Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2014, Blaðsíða 52

Náttúrufræðingurinn - 2014, Blaðsíða 52
Náttúrufræðingurinn 52 þroskaðar við klak. Það má því segja að þroskun fóstursins inni í egginu sé að sumu leyti komin fram yfir „lirfustigið“ og formbreyting yfir í seiði að hluta til hafin þegar við klak. Til dæmis eru uggageislar þegar byrjaðir að myndast við klak, en oft er upphaf seiðastigsins miðað við að uggar séu fullmyndaðir. Þessi sér- staða laxfiska er enn eitt atriðið, sem hefur torveldað samræmingu í nafn- giftum á fyrstu þroskastigum fiska. Til einföldunar leggur höfundur þó til að frá klaki og þar til uggar eru aðskildir verði laxaafkvæmin nefnd lirfur. Að lokum Stöku sinnum kemur upp þörf fyrir að aðgreina fyrstu þroskastig fiska nánar en einungis í egg, lirfur og seiði. Í því sambandi má nefna orðið kviðpokalirfa sem oft er notað og á stundum rétt á sér, ef þörf er á að aðgreina nýklaktar lirfur með kviðpoka og eldri lirfur, sem farnar eru að afla sér fæðu. Út frá þroskunarfræði er hins vegar rangt að tala um kviðpokaseiði, því að þrátt fyrir leit hef ég ekki fundið heimildir um neina fisktegund, sem er enn með kviðpoka eftir að seiða- stiginu er náð. Að mínu mati ætti að þýða enska orðið alevin (einkum notað um laxfiska fyrst eftir klak), sem laxalirfa eða kviðpokalirfa, en ekki kviðpokaseiði, að minnsta kosti þar til næringin í kviðpoka klárast. Eins og áður segir hafa laxfiskar strangt til tekið ekki lirfustig (af- kvæmin ekki nægilega ólík for- eldrum), en til einföldunar tel ég þó eðlilegra að útvíkka lirfuhugtakið á íslensku, frekar en að kalla þau seiði eða „frítt syndandi fóstur“, svo vitnað sé bókstaflega í þroskunar- fræðina. Eflaust þykir einhverjum hér of langt gengið í einföldun og að bein og óbein þroskun séu sitt hvor hluturinn, en allt eru þetta samt lit- brigði á sama þroskunarrófinu og til eru mörg millistig þarna á milli. Uppbygging og starfsemi nátt- úrunnar er æfinlega flóknari en við viljum vera láta og öll flokkun á náttúrunni, kenningar, kerfi og nafngiftir eru settar fram til einföldunar, svo við náum að skilja helstu drætti hennar. Ég tel að á ís- lensku sé eðlilegt að einfalda eins og kostur er, vísindamennirnir sem þurfa að flokka nánar og kafa dýpra nota hvort eð er nánast eingöngu ensku (eða jafnvel latínu), til að lýsa undrum náttúrunnar. Ég legg því til að í hrognasekk- num verði hrognin hér eftir sem hingað til nefnd hrogn, en egg eftir frjóvgun. Úr fiskeggjum klekjast fisk- lirfur (stundum nefndar kviðpoka- lirfur) og þær myndbreytast síðar í seiði. Hvort seiðin breytast í ungfisk nákvæmlega um næstu áramót eftir klak er meira á reiki, en þegar ung- fiskurinn verður kynþroska breytist hann í kynþroska fisk, sem þroskar hrogn og svil, hrygnir og sagan endurtekur sig. Þakkir Jónbjörn Pálsson, Margrét Auðunsdóttir og yfirlesarar Náttúrufræðingsins fá bestu þakkir fyrir hjálplegar athugasemdir við greinina. Heimildir 1. Bjarni Sæmundsson 1926. Fiskarnir. Bókaverslun Sigfúsar Eymunds- sonar, Reykjavík. 528 bls. 2. Balon, E.K. 1975. Terminology of intervals in fish development. Journal of Fisheries Research Board of Canada 32. 1663–1670. 3. Muus, B.J. & Dahlström, P. 1964. Havfisk og fiskeri i Nordvesteuropa. G.E.C. Gads forlag, Köbenhavn. 338 bls. 4. Muus. B.J. & Dahlström, P. 1968. Fiskar og fiskveiðar við Ísland og í Norð- austur-Atlantshafi (Jón Jónsson þýddi og staðfærði). Almenna bókafélagið, Reykjavík. 337 bls. 5. Gunnar Jónsson 1972. Fiskalíffræði. Iðunn, Reykjavík. 207 bls. 6. Gunnar Jónsson 1983. Íslenskir fiskar. Fjölvi, Reykjavík. 519 bls. 7. Gunnar Jónsson & Jónbjörn Pálsson 2006. Íslenskir fiskar. Vaka-Helgafell, Reykjavík. 336 bls. 8. Guðni Guðbergsson & Þórólfur Antonsson 1996. Fiskar í ám og vötnum. Landvernd, Reykjavík. 191 bls. 9. Ware, D.M. 1975. Relation between egg size, growth, and natural mortality of larval fish. Journal of the Fisheries Research Board of Canada 32. 2503–2512. 10. Mennta og menningarmálaráðuneytið 2013. Aðalnámsskrá grunnskóla: Almennur hluti 2001 og greinasvið 2013 http://www.menntamalaradu- neyti.is/nyrit/nr/7525, sótt 22.8.2013. 11. Ismennt.is 2013. Aðalnámsskrá grunnskóla, náttúrufræði. http://www. ismennt.is/vefir/namskra/g/nattura/af01.html, sótt 22.8.2013. um höfundinn Konráð Þórisson fæddist (f. 1952) á Siglufirði. Hann lauk stúdentsprófi frá náttúru- og eðlisfræðideild Mennta- skólans í Hamrahlíð 1972, B.S.-prófi í almennri líffræði frá Háskóla Íslands 1976 og cand.scient-prófi í fiskifræði frá Háskólanum í Bergen árið 1991. Konráð hefur starfað hjá Hafrannsóknastofnun frá árinu 1976, mest að klak og hrygningarrannsóknum, en var einnig útibússtjóri stofnunarinnar á Húsavík 1979–1983. Hann vann fyrir Þróunarsamvinnustofnun Íslands sem ráðgjafi á Hafrann- sóknastofnun Namibíu 1997–1998 og sem aðstoðarskóla- stjóri Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna 2008–2009. Gegnum tíðina hefur hann einnig sinnt útgáfumálum og almannatengslum, svo og kennslu á öllum skólastigum. Póst- og netfang höfundar/Author’s address Konráð Þórisson Blesugróf 17 108 Reykjavík konrad@hafro.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.