Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1960, Blaðsíða 6

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1960, Blaðsíða 6
4 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS ur stjórnin tekið saman yfirlit um ýmis konar hlunnindi, sem stéttinni ber sam- kvæmt launalögum. Vei’ður plagg þetta fjölritað og sent til allra þeirra sjúkra- húsa og stofnana, sem hafa hjúkrunar- konur í þjónustu. Gjöf til Hjúkrunarfélags Islands. Hjúkrunarfélagi Islands hefur borizt rausnarleg minningargjöf, til minningar um Ingibjörgu Ingveldi Sigurðardóttur, kaupkonu, Öldugötu 51, Reykjavík, sem andaðist 23/11 1958. Gjöfin var afhent af Guðmundínu Guttormsdóttur, mágkonu hinnar látnu, og skyldi henni varið til sjóðsstofnunar, sem nota skal til jólagjafa fyrir eldri hjúkrunarkonur. Kosin hefur verið sjóðsnefnd og eiga í henni sæti: Guðmundína Guttoi*msdóttir, Þuríður Þor- valdsdóttir og Salóme Pálmadóttir. Á stjórnarárinu hefur enginn náms- styrkur verið greiddur til framhaldsnáms á vegum S.S.N. Aftur á móti hefur hjúkr- unarkonunum Elínu Eggerts Stefánsson og Kristínu Gunnarsdóttur verið veittir styrkir frá W.H.O. til framhaldsnáms í heilsuvernd í Bandaríkjunum. Hinn nor- ræni styrkur frá S.S.N. til H.F.Í. hefur nú verið hækkaður um sænskar kr. 500,00 og nemur nú s. kr. 3000,00, sem mun á næstu árum verða greiddur til aðstoðar við fram- haldsnám á Norðurlöndum. Hjúkrunarfélag íslands átti 40 ára starfsafmæli þ. 19. nóv. 1959. I þessu til- efni átti stjórnin blaðamannaviðtal og var afmælisins minnzt í öllum dagblöðum bæj- arins. Auk þess gaf félagið út hátíðarit og lé.t gera jólakort með teikningu eftir Bar- böru Ámason og áletruð ártölin 1919— 1959. Loks var afmælisins minnzt með fjölmennu hófi í Sjálfstæðishúsinu. Sumarhús hjúkrunarkvenna hefur hrörnað mjög hin síðari ár, enda langt síðan viðgerð hefur farið þar fram. I sumar voru miklar endurbætur gerðar á húsinu og kostaði það að sjálfsögðu nokk- uð fé, sem að mestu var aflað með sam- skotum hjúkrunarkvenna. Sett var nýtt þak á húsið og er nú von um að það verði vel nothæft næstu ár. Hjúkrunarkonur heiðraöar. Sigríður Bachmann, yfirhjúkrunarkona og María Maack, yfirhjúkrunarkona hafa verið sæmdar riddarakrossi Fálkaorðunnar. Hjúknmarkvennaskipti. 31 íslenzkar hjúkrunarkonur hafa dvalið erlendis við störf og nám, og skiptast þær þannig á löndin: 8 í Danmörku, 1 í Noregi, 8 í Sví- þjóð, 3 í Canada og 11 í Bandaríkjunum. Hér á landi hafa eftirtaldar hjúkrunar- konur fengið starf fyrir milligöngu H.F.l.: 7 frá Danmörku, 2 frá Finnlandi og 4 frá Svíþjóð. Auk þess hafa starfað hér ca. 10 þýzkar hjúkrunarkonur, sem ýmist eru giftar hér eða hafa verið búsettar um lengri tíma. 26 hjúkrunarlconur hafa útskrifast á ár- inu úr Hjúkrunarkvennaskóla íslands og 2 piltar. Sá atburður gerðist einnig, að 500. félagsmerkið var afhent og hlaut handhafi þess og fyrstu karlmennirnir sem gerast meðlimir H.F.l. áletraðar bækur frá félaginu til minningar. 3 íslenzkar hjúkrunarkonur, sem lært hafa erlendis, hafa gerzt félagar í H.F.I., þær Ingunn Klementsdóttir og Sólveig Jónsdóttir, sem lært hafa á Amtsygehuset í Hilleröd og Hlín Gunnarsdóttir, sem hef- ur stundað hjúkrunarnám sitt í Little Bromwich General Hospital, Binningham. Ein félagskona, frú Þorbjörg A Ein- arsson, yfirhjúkrunarkona í Sólvangi í Hafnarfirði, hefur látizt á árinu. Erindi fluttu á árinu frú Maj-Lis Tóm- asson um heilsuvernd í Finnlandi, Hlín Gunnarsdóttir um hjúkrunarnám í Eng- landi og Jón Oddgeir Jónsson sýndi og

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.