Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1960, Blaðsíða 22

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1960, Blaðsíða 22
20 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS (( ''l FRÉTTIR □□ TILKYNNINGAR | Blaðið oklcar breytir um nafn. í samræmi við nafnbreytingu H.F.f. hefur Hjúkrunarkvennablaðið nú verið skírt á nýjan leik og heitir upp frá þessu Tímarit Hjúkrunar- félags tslands. — Ritstjórnin vonar, að nafnið venjist vel, og að tímaritið verði stéttinni til ánægju, gagns og sóma. Kaffisala HFÍ verður í Sjálfstæöishúsinu sunnudagseftirmið- dag 13. marz n.k. Félagar leggi vinsamlegast til kaffibrauð og aðstoð við framreiðsluna. Nöfn þeirra hjúkrunarkvenna sem umsjón hafa með kaffisölunni eru skráð í ársskýrslu formanns á öðrum stað í blaðinu. Væntanlegum hagnaði verð- ur varið til móttöku norrænu gestanna í sumar. Bazar. Oft er þörf en nú er nauðsyn að félagar H.F.f. bregðist vel við og setjist niður við saumana, prjónana, heklið eða hvað það nú er sem hverj- um lætur bezt. Því haldinn skal myndarlegur bazar í kjallara Heilsuverndarstöðvarinnar (geng- ið inn um austurdyr, slysastofumegin) þ. 30. april n.k. kl. 13,30, og verður ágóða varið til móttöku norrænu hjúkrunarkvennanna. Eftirtaldar konur gefa nánari upplýsingar og taka á móti munum: Elín Ágústsdóttir, Miðbæjarbamask. sími 16491 Hulda Guðmundsdóttir, Kjartansg. 1 — 16649 Ragnheiður Konráðsd., Laugateigi 60 — 34659 Rannveig Ólafsdóttir, Lyfjadeild Lsp. —- 13427 Rósa Magnúsd., Sjúkrahús Keflavíkur Sigr. Erlingsd., skrifst. borgarlæknis — 22409 ---- heima, Skipasundi 51 (e. kl. 18) — 35690 Þórunn Jensdóttir..................... — 15885 Maria P. Maack, sem átti sjötugsafmæli þ. 21. október 1959, var í nóvember s.l. sæmd riddarakrossi hinnar íslenzku fálkaorðu fyrir hjúkrunarstörf og störf að mannúðarmálum. María er, sem flestum mun kunnugt, forstöðu- kona Farsóttahússins í Reykjavík, og hefur verið það í 40 ár. Hún er enn á létt í spori og létt í lund og bregður sér til fjalla í sumarleifum sín- um. — Beztu hamingjuóskir. Guðriður Jónsdóttir, yfirhjúkrunarkona á Kleppi, hefur fengið leyfi frá störfum, og mun dveljast í Kaliforníu um óákveðinn tíma. — Sólveig Halldórsdóttir gegn- ir störfum yfirhjúkrunarkonu í fjarveru Guðríðar. Stöðuveitingar: Kristín Tryggvadóttir er ráðin yfirhjúkrunar- kona á Hrafnistu. Rósa Magnúsdóttir er ráðin að sjúkrahúsi Keflavíkur. Dagbjört Þórðardóttir er ráðin að Reykjalundi. Guðrún Hulda Guðmundsdóttir er ráðin að Landakotsspítaia. Svanhildur Gísladcttir og Matthildur Ólafs- dóltir eru ráðnar á Militærsjúkrahúsið í Kaup- mannahöfn Hjónabönd: Rannveig Sigurbjörnsdóttir hjúkrunarkona og Bernharður Guðrr.undsson, stud. theol. Ingunn Klementsdóttir hjúknmarkona og Ólaf- ur Sigfússon, vélstjóri. Hólmfríður Geirdal, hjúkrunarnemi og Geir Friðbergsson, hjúkrunarmaður. Trúlofanir: Kristjana Ragnarsdóttir hjúkrunarnemi og Haraldur Logason. Margrét Stefánsdóttir hjúkrunamemi og Bjöm Sigurðsson, trésmiður. Sigrurlaug Jóhannesdóttir hjúkrunarkona og Jón G. Tómasson, lögfræðingur. Trúlofun sína opinberuðu á afmælishátíð H.F.f. Hóimfríður Ólafsdóttir hjúkrunarkona og Guðjón Ólafsson, skrifstofumaður. Laugardaginn 23. jan. opinberuðu trúlofun sína ungfrú Hlín Gunnarsdóttir hjúkrunarkona, Bar- ónsstg 61 og Loftur Magnússon, stud. med., Innra- Ósi, Strandasýslu.

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.