Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1960, Blaðsíða 19

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1960, Blaðsíða 19
tímarit hjúkrunarfélags íslands 17 HorLiálmwr úr liój^i Ljúlru.ncirl í kvöld skal vegleg veizla ger og vínið ekki svikið, því félag okkar fertugt er sem finnst víst engum mikið. Og hjörtun þau brenna í hópi glæstra kvenna, því æ á æskan völdin, á kvöldin. En konur hafa ávallt enn svo ótal mörgu að sinna, og ennþá vilja eiginmenn víst að sér láta hlynna. Til hjúkrunarkvenna, því hýrum augum renna, ungir jafnt sem aldnir, og baldnir. Og líf og fjör er félag vort, og formann þess, í kring um, því enn er víst til hennar horft, á heimsins friðarþingum. Ei undrun mun sæta, ef eitthvað þarf að bæta, að kveði mest að konum, að vonum. Og oft er mikið okkar starf og um það vita fáir, hve margur kvartar meir’ en þarf, sem meyjargæði þráir. Margan víst dreymir þá draum, sem ei hann gleymir, um aðstoð arma mjúkra, sem hjúkra. Þó virðist mest í veröld treyst á vísindanna frama, og hafi flest í heimi breyzt, er hjartað æ hið sama. Um gjörvallar byggðir, þær gömlu kvennadyggðir, ei eldast eða þreytast, né breytast. En margan þjáir ami enn og oft er misjafnt geðið, því hafa jafnvel hraustir menn um hjúkrun okkar beðið. rnnarnvenna En fljótt ef við önsum, þeir flestir taka sönsum, því svo er misjafnt sinnið, sem skinnið. Við töldum kjark í margan mann, sem mjög var niðurbrotinn, og reynt var oft að róa þann, sem reyndist illa skotinn. Það satt er án vafa, að sumir karlmenn hafa minni þolinmæði en gæði. Og enn er treyst á trú og fórn, þó tæknin verði meiri, en ýmsir láta illa að stjórn, já, eiginmenn og fleiri. En þetta má laga, og það er gömul saga, að bezt sé bætt úr þrautum, með sprautum. Og áfram heldur okkar stétt, að auka sína tækni, og enn er nemum næsta létt, að næla sér í lækni. En stundum er vandi að vera í hjónabandi og viðsjál vaktaskipti, þeim giftu. En nú skal hátíð haldin hér og hafin glös með sóma, því félag okkar fertugt er, í fullum æskublóma. Það eflir vort gengi að æskan vari lengi, og ung í anda og sálum, við skálum. Já, góða veizlu gera skal, svo gangi púlsinn hraðar, og hér er mikið vífaval og vænna en annars staðar. Til hjúkrunarkvenna menn hýrum augum renna, þær eilíft ungar lifi, — þær lifi.

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.