Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1960, Blaðsíða 15

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1960, Blaðsíða 15
tímarit hjúkrunarfélags íslands 13 Meðal þekktra kvenna á stjómarfundi í húsakynnum SSN, des. ’58, situr Iva Bondeson fyrir miðju t. v. útlendum hjúkrunarkonum, sem koma í náms- og kynnisför til Svíþjóðar. Enn- fremur greiðir hún götu þeirra hjúkrun- arkvenna sænskra sem ætla að læra utan- lands. Frú Bondeson hefur góða hjálp þar sem Britta Jónsson er, en hún hefur umsjón með bréfum og skjölum, og skrifar öll bréf frá SSN. Frú Jónsson hefur unnið hjá SSF síðan 1946 og hjá SSN frá 1954 og er því öllum hnútum kunnug. Hún hjálpaði til á tveimur hjúkrunarþingum, í Helsingfors og í Kaupmannahöfn, en það var mikil vinna. Þegar SSN þarfnast meira húsnæðis en venjulega, t. d. á stjórnarsamkomum, nefndarfundum o. þ. h., vill svo vel til að hægt er að bæta tveimur herbergjum við hinar venjulegu vinnustofur. Það er vinnumiðlunarstöð sænska hjúkrunarfé- lagsins sem hefur þessi tvö herbergi til afnota og lánar þau SSN, þegar þörf krefur. Að lokum má nefna tvö gestaherbergi, sem notuð eru bæði af SSN og SSF, þegar gesti ber að garði — en það skeður æði oft. Kannske eiga íslenzkar hjúkrunarkon- ur eftir að gista þessi húsakynni á öster- malmsgatan 19, sem hér hefur verið sagt frá — hver veit. — (Þýð.). 3>-------------------------------6 2 hjúkrunarkonur óskast að St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, sem fyrst eða með vorinu. Ætlast er til, að önnur þeirra starfi á skurðstofunni og er henni heitið sunnudaga- og helgidagafríi, en hinni eru ætluð störf aðstoðarhjúkrunar- konu. Laun og kjör samkvæmt launalögum. Umsóknir sendist til príorinnunnar, eða til Jónasar Bjamasonar, yfirlæknis spít- alans.

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.