Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Qupperneq 19

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Qupperneq 19
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 1. árg. 1993 fyrsta lagi var spurt um persónulegar upplýs- ingar, s.s. kyn, aldur og menntun. í öðru lagi var spurt um áhættuþætti og dvölina á hjarta- deildinni, s.s. lengd sjúkrahúsdvalar, fyrri dvöl, endurhæfingu o. fl. í þriðja lagi var leitað svara við hversu mikla fræðslu sjúklingurinn fékk annars vegar og þörf hans fyrir fræðslu hins vegar. Einnig var sjúklingurinn beðinn að svara því hvort maki hans hefði fengið fræðslu. í fjórða lagi var spurt hverjir veittu fræðsluna á deildinni og hvernig hún var veitt. Að lokum var spurt hvort einstaklingurinn hefði breytt um lífsstíl í kjölfar fræðslunnar. Við forprófun var spurningalistinn lagður fyrir 4 einstaklinga á aldrinum 35 -67 ára sem fengu kransæðastíflu í október 1992. Tveir þeirra lágu á hjartadeild Landspítalans og tveir á hjartadeild Borgarspítalans. Tveim spurn- ingum var breytt í samræmi við athugasemdir einstaklinganna en að öðru leyti þótti þeim spurningalistinn vera auðskiljanlegur og að- gengilegur. Einstaklingarnir voru 13-15 mínút- ur að svara listanum. Spurningalistinn var sendur út 30. október 1992 að öllum leyfum fengnum. Með spurninga- listanum fylgdi frímerkt umslag og var beðið um að senda listann til baka fyrir 20. nóvember 1992. ítrekunarbréf var sent út til allra þann 20. nóvember 1992. Nlöurstöður í niðurstöðum eru svör þátttakenda flokkuð út frá rannsóknarspurningum. f lokin er gerð grein fyrir öðrum upplýsingum sem fengust við úrvinnslu gagna. Hverjar eru fræðsluþarfir kransœðasjúklinga og hvernig er komið til móts við þœr? Til að svara þessari spurningu eru borin saman svör við tveimur spurningunum úr spurningalistanum. Annars vegar spurningunni „hversu mikla fræðslu fékkst þú um eftirfarandi atriði þegar þú varst á spítalanum?" Hins vegar spurningunni „hversu mikla fræðslu um eftir- farandi atriði finnst þér þú hefðir þurft að fá eftir kransæðastíflu?“ (mynd 1). Niðurstöðumar sýna að meira en helmingur svarenda vonaðist eftir meiri fræðslu en hann taldi sig fá. Af svörum við ofangreindum spurningum var tekið meðaltal. Stuðst var við Likert - kvarða og gaf hann valmöguleikana: 1 = Engin fræðsla 2 = Lítil fræðsla 3 = Töluverð fræðsla 4 = Mikil fræðsla MYND 1. Samanburöur á þeirri frœöslu sem sjúklingarnir vildu fá og þeirri frœöslu sem þeir töldu sigfá.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.