Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Síða 57

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Síða 57
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 1. árg. 1993 í sálarfræði og MA prófi í ráðgjöf, Hann hefur í rúman áratug stundað einstaklings- og hjóna- bandsráðgjöf og hefur undanfarin ár haldið námskeið á Suðurnesj- um fyrir uppkomin börn alkó- hólista. Árni kemur inn á það í bók sinni að mörg uppkomin börn alkólhólista velji sér hjálparstörf, meðal annars hjúkrun, að ævi- starfi. Við erum sammála höfundi um þetta og bendum jafnframt á að þegar einstaklingur hefur unnið sig frá einkennum þeim sem hamla honum eru þetta oft hæfustu einstaklingarnir til að vinna með fólk. Meðferð og úrræði fyrir fíkni- efnasjúka hafa þróast mjög mikið á undanförnum árum og margir af þessum einstaklingum eru skjólstæðingar hjúkrunarfræð- inga. Því er mikilvægt að gera sér skýra grein fyrir einkennum og afleiðingum alkóhólismans. í bókinni er útskýrt hvernig sumar þarfir barna alkóhólista eru vanræktar af foreldrum þeirra og hvernig persónuleiki og viðbrögð barnanna mótast af hinum sérstöku heimilisaðstæum. Eins og Árni Þór segir í inngangi bókarinnar: „Börn aðlagast þeim heimilisaðstæðum sem þau alast upp við og finnst í sjálfu sér ekkert athugavert við þær þar sem þau þekkja ekkert annað. Þau vita reyndar að það er minna drukkið á öðrum heimilum en þau geta á engan hátt skilið hvernig börnum á þeim heimil- um líður öðruvísi en þeim sjálfum. Afstaða þeirra verður því oft þessi: „Það er ekkert að á mínu heimili þó svo að það hafi verið svolítið drukkið. Við höfum alltaf nóg af öllu.““ Bókin er mikilvægt innlegg í þá umræðu sem verið hefur um þessi mál. í ljósi þess að alkóhól- ismi er fjölskyldusjúkdómur nýtist þessi bók ekki síst hjúkr- unarfræðingum sem stefna að því að fá heildræna yfirsýn. Hún er aðgengileg og auðveld aflestrar, sett fram á máli sem allir skilja hvort sem þeir hafa kynnt sér málefni alkóhólista eða ekki. Helstu veikleikar bókarinnar eru að oft eru settar fram alhæfingar: „Börn alkóhólista geta hvorki treyst neinu né neinum.“ Að okkar mati er mjög mismunandi hvernig einstaklingar fara út úr því að alast upp á heimili þar sem áfengi er misnotað. Einnig finnst okkur skorta að ýtt sé undir styrk og hvernig það að hafa alist upp við slíkar aðstæður getur komið manneskjunni til góða ef hún vinnur sig frá þeim sársauka sem þetta hefur valdið henni. Við teljum að bókin sé í heildina hin ákjósanlegasta og hvetjum því alla hjúkrunarfræð- inga sem aðra til að lesa hana. Ingibjörg Ingólfsdóttir og Dóra Þorgilsdóttir, hjúkrunar- frœðingar á Vogi

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.