Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2008, Page 25

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2008, Page 25
var takmarkað, m.a. vegna sársauka sem fylgdi lyfjagjöfinni. Eftir 1980 var farið að gefa lyfið í æð. Gammaglóbúlín, sem gefið var í æð, var dýrara en það sem áður var gefið í vöðva auk þess sem það kostaði dvöl á spítala meðan það var gefið. Heimameðferð Það var svo í byrjun níunda áratugarins að farið var að gera tilraunir með að gefa gammaglóbúlín undir húð í heimahúsi. Þær tilraunir gáfu góða raun. í rannsókn frá Huddinge-sjúkrahúsinu í Stokkhólmi árið 1992 kom í Ijós að aukaverkanir voru marktækt færri en við gjöf með dreypi í æð. í fjölþjóðlegri rannsókn, sem birtist 2004, um gammaglóbúlín-meðferð undir húð með dælu hjá börnum og fullorðnum var árangur mjög góður. Borin var saman meðferð með dreypi í æð á spítala og meðferð með dælu í heimahúsi hjá 47 sjúklingum á aldrinum 2 til 75 ára. Líkamleg, andleg og félagsleg líðan var betri hjá þeim sem fengu meðferð í heimahúsi. Fleiri rannsóknir hafa verið birtar sem sýna svipaðar niðurstöður. Ákveðið var að hefja þessa meðferð hér á landi þegar Tryggingastofnun ríkisins hafði veitt samþykki sitt fyrir kostnaði lyfsins og þess búnaðar sem til þarf. Þeir sem byrjuðu í heimameðferðinni hættu nú að leggjast reglulega inn á sjúkrahús eða mæta á dagdeild á þriggja til fjögurra vikna fresti til að fá lyfið gefið í æð og fóru nú að meðhöndla sig sjálfir heima vikulega. Meðferðin felst í því að reyna að koma í veg fyrir tfðar og erfiðar sýkingar sem jafnvel hafa staðið árum saman. Notuð er dæla, CRONO Super RID, sem dælir lyfinu undir húð. Lyfið er dregið upp í sprautu sem tengd er við dæluna. Áður en heimameðferð hófst opinberlega hafði eínum einstaklingi hérlendis verið veitt undanþága, vegna sérstakra aðstæðna, til að gefa sér Gammanorm, eins og lyfið heitir, heima. Eins og langflestir sem hefja þessa meðferð hafði þessi einstaklingur í mörg ár þurft að leggjast inn á sjúkrahús þriðju til fjórðu hverja viku til að fá lyfið gefið í æð auk þess að leggjast oft inn á sjúkrahús vegna annarra veikinda. Sótt var um undanþágu til Trygginga- stofnunar ríkisins fyrir fleiri einstaklinga þar sem heimameðferðin reyndist vel hér á landi eins og annars staðar þar sem hún er notuð en hún er einnig mun ódýrari en meðferð á sjúkrahúsi. Þegar ákveðið hefur verið að hefja heimameðferð þarf viðkomandi að undirbúa Hjúkrunarfræðingar geta hjálpað til við að greina meðfæddan ónæmisgalla með því að vera á varðbergi gagnvart skjólstæðingum sem sýna eftirfarandi einkenni sem gætu bent til þessa sjúkdóms. 1. Eyrnabólga átta sinnum eða oftar á ári. 2. Alvarleg nef- og kinnholsbólga tvisvar eða oftar á ári. 3. Meðferð sýklalyfja í tvo mánuði án teljandi árangurs. 4. Lungnabólga tvisvar eða oftar á ári. 5. Vanþroski eða lítil þyngdaraukning ungbarna. 6. Graftarkýli í húð eða innri líffærum aftur og aftur. 7. Viðloðandi sveppasýking i munnholi eða húð eftir að eins árs aldri er náð. 8. Nauðsyn á sýklalyfjagjöf í æð til að meðhöndla sýkingar sem annars eru vægar. 9. Tvær eða fleiri alvarlegar sýkingar, s.s. heilahimnu- bólga, heimakoma eða sýking f beini. 10. Meðfæddir ónæmisgallar í ættinni. Listi þessi birtist upphaflega með grein Björns Rúnars Lúðvíkssonar læknis „Meðfæddir ónæmisgallar" í fréttabréfi Astma- og ofnæmisfélagsins, 2. tölublaði 5. árgangs. Tímarit hjúkrunarfræðinga - 4. tbl. 84. árg. 2008 23

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.