Breiðfirðingur - 01.04.1997, Blaðsíða 17
GULLKISTA LANDSINS
15
mönnum, en að lokum var frumvarpið „ í heild sinni” og með
„áorðnum breytingum” samþykkt með 16 atkvæðum gegn 3.19)
Skrifað var „Álitsskjal til konungs”, dagsett í Reykjavík 19.
ágúst 1871 og undirritað af Jóni Sigurðssyni og Jóni Péturs-
syni og sent konungi ásamt breytingartillögum við hið kon-
unglega frumvarp.20’
Gullkista fyrir landið
Á 1. fundi Alþingis, 1. júlí 1873, er aftur lagt fram konunglegt
frumvarp um friðun á laxi.2l)
Á 2. fundi, 2. júlí, var samþykkt að skipa nefnd í málið, og
voru þessir kosnir: Hjálmur Pétursson, 18 atkvæði, Páll J.
Vídalín (1827-1873) stúdent í Víðidalstungu, þingmaður Hún-
vetninga, 14 atkvæði, Páll Ólafsson (1827-1905) skáld, um-
boðsmaður á Hallfreðarstöðum, varaþingmaður Norður-Múla-
sýslu, 12 atkvæði.22)
Á 18. fundi 26. júlí tilkynnti forseti að til umræðu komi
frumvarpið um friðun laxins og þingmaður Húnvetninga,
framsögumaður nefndarinnar, mundi lesa nefndarálitið, hvað
hann gerði.23) Að þessu sinni er frumvarpið í 11 greinum og
hver þeirra styttri en í fyrri gerð. Aftur á móti eru athuga-
semdir við hverja grein lengri.24) í frumvarpinu segir að stjórn-
in hafi eigi viljað fallast á fyrri frumvörp þingsins og því lagt
þetta fyrir það. Niðurstaða nefndarinnar varð sú að gera að
tillögu sinni:
1. að þingið ráði frá, að frumvarp það, er hér ræðir um, verði
gjört að lögum.
2. að þingið beiðist þess, að nefnd verði sett hér á landi, er sé
skipuð þeim mönnum, sem séu kunnugir laxveiðum, og
einum lagamanni, er útvegi skýrslur frá hinum ýmsu
héruðum, þar sem laxveiði er við höfð, og búi síðan til
frumvarp til tilskipunar um friðun á laxi, sem því næst
verði lagt fyrir alþingi.
Alþingi, 22. júlí 1873.25)