Breiðfirðingur - 01.04.1997, Blaðsíða 77
TVÍTUGUR BALLSTJÓRI SEGIR FRÁ
75
hann áheitið vel úti látið með kaffi og brauði, sem mér fannst
þau bæði hefðu unnið til að fá. Naut Gvendur eins vel þess
sem hann fékk með brjóstbirtu og spilum, eins og við piltarnir
að fá að dansa við Bíbí.
Nú kl. 7 var orðinn húsfyllir af ungu, hraustu og lífsglöðu
fólki, körlum og konum og áttu þau eitt sameiginlegt áhuga-
mál, að skemmta sér af lífi og sál eina næturstund. Þegar allir
höfðu farið úr snjófötum sínum og sett á sig dansskóna og
dömurnar búnar að snyrta sig, þá var dömuklefinn tekinn
undir snjófötin og sokka og þetta hengt upp til þurrks á snúrur.
Svo var gengið í salinn með skóflum og mokað út snjónum og
þvegið svo yfir á eftir. Síðan var farið með mótorlampa yfir
gólfið til að þurrka það mesta, svo þurfti að láta gólfið jafna
sig og þorna.
A meðan setti ég skemmtunina og lét skemmtiatriðin fara
fram. Ég byrjaði að þakka þann mikla dugnað, sem þessi góða
aðsókn á skemmtistað sýndi, með því að bjóða birginn vega-
lengdum, veðurfari, vosbúð og þreytu. Þetta sýndi best þá
knýjandi þörf fyrir að gleðja sál og sinni, lyfta sér upp frá
steindauðum hversdagsleikanum með jafnöldrum sínum, æsku-
örvandi hóp og glöðu fólki og sannast best hér hið góða gamla
og sígilda orðatiltæki „maðurinn lifir ekki á einu saman brauði“.
Hann er fæddur félagsvera og því félagslíf í starfi og gleði
honum jafnnauðsynlegt og fæði og klæði
Ég tilkynnti að skemmtiatriðin yrðu þau sömu og í sömu
röð og auglýst var, nema hvað ferðasagan, sem var í bundnu
máli (ljóðum) yrði sungin og leikin um leið, og að síðustu
hópsöngur og bað ég alla að taka vel undir. Svo gætu þeir spil-
að sem þess óskuðu og til að gleðja munn og maga yrðu kaffi-
veitingar með fimm kökutegundum og verð samkvæmt aug-
lýsingu. Síðan tilkynnti ég það síðasta á dagskránni, sem allir
biðu eftir með óþreyju, hinn dunandi dans, undir taktföstum
og hljómfögrum tónum okkar vinsæla harmonikuleikara.
„Og get ég sagt það til gamans að hér verður meðal gesta
okkar í kvöld annar góður spilari, sem hefur lofað að hvíla
hinn, svo ekkert hlé þurfi að verða á dansgleðinni. Ég vona