Ljóri - 01.11.1980, Blaðsíða 12
SAFNADEILD
Þessari deild er œtlað að sjó um söfnun muna. Markviss minjasöfnun er orðin bróð
nauðsyn svo oð hœgt sé að fylla betur f þœr eyður sem nú eru f minjasöfnunum. A
hverjum degi glatast munir og minjar, sem hefði ótf oð varðveita, vegna þess að enginn
er til að sinna þessum málum.
Sérfróðir safnarar þyrftu að vera innan hverrar undirdeildar til að annast söfnun á
sfnu sviði. Þeir œttu einnig að vera ráðgjafar fjórðungsminjavarða og einstakra byggða-
safna.
Gera má ráð fyrir þvf, að einstakar undirdeildir geti vaxið svo mikið, að þœr verði
gerðar að sérstökum deildum eða söfnum siðar meir, t.d. Sjóminjasafn, tœkniminjasafn
o. s. f rv.
Starfsmannaþörf deildarinnar:
1 Deildarstjóri
6 Safnverðir
2 Skrásetjarar muna
LJOSMYNDADEILD
Hér biður mikið verkefni óunnið f sambandi við skrásetningu og varðveislu á gömlum
Ijósmyndum og plötusöfnum. Gamlar glerplötur og Ijósmyndir eru ómetanlegar heimildir sem
eru mjög vandmeðfarnar og þarfnast alveg sérstakrar meðhöndlunar. Stór hluti af plötum
Þjóðminjasafnsins og gömlum þjóðlffsmyndum er óaðgengilegur, bœði vegna þess að ekki
eru til kópfur af þeim, og að þœr hafa ekki verið flokkaðar niður. Þar að auki taka
safnverðir jafnan mikinn fjölda mynda á ferðum sfnum og við rannsóknir, sem þarf að
skrá og flokka.
Það er þvf brýn nauðsyn á að ráðinn verði Ijósmyndari við Þjóðminjasafnið ef einhver
bót á að verða hér á.
Skráning og flokkun Ijósmynda er gffurlega mikið starf og seinunnið, enda er um margra
áratuga uppsafnaðan vanda að rœða.
Mannamyndasafnið er þó ágœtlega skráð og aðgengilegt,og er mikið notað af almenning
Starfsmannaþörf deildarinnar:
1 Deildarstjóri
1 Ljósmyndari
2 Skrósetjarar Ijósmynda
1 Umsjónarmaður myndasafna
12