Ný kynslóð - 01.10.1941, Blaðsíða 22

Ný kynslóð - 01.10.1941, Blaðsíða 22
Okt. ’41, Ný kynslóð — Hvar eru klæðin mín? — Hver hefir rænt þeim? hrópaði hann. — Það getur ekki verið um neinn mann að ræða. Hlustaðu á orð mín, jörð. Haf- ir þú gleypt þau, læt ég eyða öllum gróðri þínum í ríki mínu. Hann hné örmagna til jarðar og grét. beisklega. Hann spratt á fætur að nýju og ógnaði mánan- um í reiði sinni. — Lýstu betur, fyrirlitlegi næturlampinn þinn, eða ég læt leggja musteri þitt í rústir. En máninn virtist - all,s engan áhuga hafa á þvi að hlýðnast boði hans. Hann hagaði sér eins og feim- in ungmey og dró skýblæju fyrir ásjónu sína. Regn tók að falla. Vatn draup af rykugum trján- um og afskræmdi andlit hins nauðstadda mikilmennis. Maurus konungur afréð í örvæntingu sinni að halda til hallar sinnar og klæðast að nýju. Það myndi valda hirðmönnum og' þjónum mikilli ónáð að sjá drottnara sinn þannig á sig kominn. Eh honum hug- kvæmdist brátt ráð við því: — Hann akvað að láta hálshöggva alla, sem yrðu á leið hans til hallarinn- ar, svo að þeir gætu ekki brugðizt honum. En þessi von hans var næsta fánýt. Hann koon að garðshliðinu luktu. Þó minntist hann þess gerla að hafa falið lykilinn þar. Það var ekki um annað að ræða en takast för á hendur umhverfis borgina og fara inn um suður- hliðið. En sú leið til hallarinnar lá chjákvæmilega um ótal fjölfarin stræti. Hann varð að hafa hraðan á til þess að komast heim fyrir dögun. Honum hraus hugur við háðkvæð- 18

x

Ný kynslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný kynslóð
https://timarit.is/publication/1866

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.