Morgunblaðið - 14.06.2005, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 14.06.2005, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN A f samræðum mínum við ófáa Íslendinga undanfarin ár hefur mér orðið ljóst að Ís- lendingar hafa af- skaplega undarlegar hugmyndir um umhverfisverndarsinna. Þeim megi í raun helst líkja við einhvers konar skrímsli, sem vilja ekkert frekar en að eyðileggja og tortíma öllum okkar göfugu og gömlu lífs- háttum, vanvita sem skilja ekkert um sérstöðu okkar eða sjálfstæði sem þjóðar. Þetta er fjarri sanni og vænt- anlega hefur viðkoma hins ofbeld- ishneigða furðufugls Pauls Wat- sons haft rík mótunaráhrif á hugarfar meðalíslendingsins, en „umhverfisverndarsinninn“ sá vann sér það helst til frægðar að valda tortryggni og eyðileggingu. Nokkrir íslenskir fjölmiðlar hafa nú lapið upp áróður stjórn- valda og ákveðið að samnefna þann hóp umhverfisverndarsinna og andófsmanna sem hingað kem- ur til lands í sumar „atvinnumót- mælendur“ að hætti fyrrverandi forsætisráðherra þjóðarinnar. Orðið kemur í staðinn fyrir enska orðið „activist“, sem mætti frekar þýða „manneskja sem liggur ekki bara uppi í sófa og borðar snakk á meðan Róm brennur, heldur fer út og gerir eitthvað í hlutunum“. En ég býst við að „atvinnumótmæl- andi“ sé þjálla og vænlegra til vin- sælda. Við höfum öll hagsmuna að gæta. Sumir gæta einungis sinna eigin. Dæmi um slíka eru pen- ingamenn, stjórnmálamenn og út- vegsmenn. Aðrir gæta hagsmuna annarra, sem kannski eru ekki eins færir um að gæta sinna eigin hagsmuna. Í þeim hópi eru mann- réttindafrömuðir, fólk sem berst fyrir bættum lífskjörum fátækra og umhverfisverndarsinnar. Umhverfisverndarsinnar eru ekki upp til hópa vitleysingar eða veruleikafirrtir öfgamenn, þótt það væri örugglega ósköp þægi- legt ef svo væri. Yfirleitt er þetta nokkuð upplýst fólk sem hefur leit- að sér þekkingar á sviði umhverf- isins. Það hefur lært ýmislegt um uppblástur, áhrif nútímalandbún- aðar á heilsu jarðarinnar og áhrif úreltra veiðitækja á heilsu hafsins. Sumir þeirra gera sér einnig grein fyrir mikilvægi þess að vernda við- kvæma náttúru hálendisins sem virðist hafa lítið efnahagslegt gildi en skiptir samt afar miklu máli í stærra samhengi. Ég heyrði áhugaverða frétt á dögunum í fréttatíma sjónvarps- ins. Þar var því lýst að Kofi Annan og Sameinuðu þjóðirnar vildu banna togveiðar með botnvörpum. Þar var meðal annars sagt að um- hverfisverndarsinnar líktu þessu við kanínuveiðar með jarðýtu. Fréttin var svo eldsnögg að taka U-beygju og sjávarlíffræðingur LÍÚ talaði út í eitt um hvað þetta væri mikil vitleysa. Það mátti næstum skilja á manninum að það að draga botnvörpur í gegnum við- kvæm vistkerfi virkaði eins og vítamínsprauta á viðkvæma kór- alana. Aðra lýsingu hef ég fengið frá sjómönnum til 30 ára. Þeir lýsa því hvernig trollin voru dregin gegnum kóralana þangað til smám saman botninn á þeim veiðisvæð- um var orðinn rennisléttur. Kór- alarnir eru, fyrir þá sem ekki vita það, lífsnauðsynlegir fyrir afkomu fiskistofna. Formaður Hafró kom síðan á skjáinn og sagði ljóst að botnvörp- ur yllu ekki skaða alls staðar, ekki á mjúkum leirbotni t.d. En það er eins og að segja að sprengjur drepi engan í eyðimörkinni. En þeim er sjaldnast beitt á mannlaus svæði. Á endanum klykkti fréttafólkið út með þeirri staðreynd að ef botn- vörpuveiðum hefði verið hætt á þessu ári, hefðum við glatað 40% af útflutningsverðmæti fisksins okkar. Já, það er rétt, en það er enginn að tala um að hætta þeim á þessu ári, er það? Hafa Íslend- ingar enga hæfileika til að aðlagast nýjum aðstæðum? Ég hefði haldið að það væri metnaðarmál fyrir Íslendinga að vilja fara gætilega að fiskimið- unum sínum og veiða með um- hverfisvænum veiðarfærum. Er það kannski rangt? Eru allar full- yrðingar Íslendinga um sjálfbæra nýtingu auðlinda kannski bara blekking og vitleysa, ætlaðar til að skapa falska ímynd af landinu okk- ar, sem hefur öll tækifærin til að gera vel, en klúðrar þeim svo? Algeng orðræða þeirra sem „betur vita“ er sú að allir umhverf- isverndarsinnar vilji helst að eng- inn veiði fisk og enginn borði neitt nema úldið grænmeti. Það þarf ekki að velta þessu lengi fyrir sér til að sjá að þetta er bara helbert bull. Niaz Dorry heitir kona, sem í viðtali við umhverfisvefritið gri- st.org ræðir sjónarmið sín um heil- brigðar veiðar. Hún hefur lengi barist gegn óréttlátri og óvist- vænni stýringu veiða og veið- arfærum sem hafa óheilbrigð áhrif á umhverfið. Dorry elskar fisk og borðar mikið af honum. Þess vegna vill hún vernda hann fyrir vondum veiðiháttum og lélegri stjórnun. Þegar ég horfði á þessa frétt í Ríkissjónvarpinu læddist að mér sá grunur að einungis einn hags- munahópur hafi eitthvað um stýr- ingu á fiskveiðum að segja. Þeir sem með hræðsluáróðri ógna okk- ur með því að allt fari hér í kalda kol ef ekki verður farið nákvæm- lega eftir þeirra korti að velgengn- inni. Eru íslensk stjórnvöld og stofnanir ofurseld þessum mönn- um sem eiga stóru togarana og sópa fiskinum upp úr sjónum með offorsi og forneskjulegum veið- arfærum í skjóli greiðs aðgangs að lánsfjármagni? Getur það verið að landið okkar og miðin séu komin í eigu aðila sem gefa ekkert fyrir nærgætni og tillitssemi við lífríki og umhverfi? Mér finnst ég ekki þurfa að segja ykkur það kæru lesendur, en umhverfisvernd snýst ekki um of- fors og hatur, afturhaldssemi eða fáfræði, heldur nærgætni og ást á bæði fólki og lífríkinu, framsýni og upplýsingu. Hagsmuna- gæsla Réttnefnd umhverfisvernd snýst ekki um offors eða heimsku, heldur nærgætni og upplýsingu, og að gæta hagsmuna þeirra sem ekki geta borið hönd fyrir höfuð sér. VIÐHORF Svavar Knútur Kristinsson svavar@mbl.is LÖNGUM hefur einstaklings- hyggja verið ríkjandi í háttum Ís- lendinga. Þeir vilja eiga sitt og búa að sínu, þar með talið að búa í eig- in húsnæði. Þá hefur um langan aldur verið samstaða með þjóðinni um fé- lagslega samábyrgð til að tryggja sjálf- stæði borgaranna. Sitthvað bendir til að þessi öld sé að líða undir lok en öld auð- hyggju að ganga í garð. Útvegurinn er í höndum örfárra, land- búnaðurinn einnig. Einyrkjum í iðnaði fækkar jafnt og þétt, sama á við um flutn- inga og verslun svo bent sé á ljós dæmi. Sveitarfélög eru þær stofnanir þjóðfélagsins sem falið hefur verið að sjá um að þegnana vanhagi ekki um frumþarfir s.s.vatn, raforku, hitaveitu, frárennsli, sorphirðu, heilsugæslu, eftirlit með holl- ustuháttum, grunnskóla og ýmiss konar þjónustu, m.ö.o. það sem samfélagið getur lagt af mörkum til að gera einstaklingnum kleift að standa á eigin fótum og framfæra sig og sína, en það er öllum skylt skv. lögum. Þetta er frá öndverðu það verkefni sveitarfélaganna sem þeim er ætlað að sinna öðru frem- ur. Þess vegna er sveitarfélög- unum veittur hlutur í skattfé og þegnarnir skyldaðir til aðildar að þeim. Auk þess er sveitarfélögum heimilt að innheimta þjónustugjöld sem skulu þó einungis standa und- ir kostnaði við framantalin verk- efni. – En ekki meira en það. Í störfum sínum öllum ber sveit- arstjórnum að hafa jöfnuð og al- mannaheill að leiðarljósi. Hér hald- ast í hendur þau gildi sem Íslendingar hafa haft í heiðri öðr- um fremur þ.e. jöfnuður í mögu- leikum og réttindum og félagsleg samábyrgð til að tryggja sjálfstæði og frelsi einstaklings- ins. Meðal þess sem sveitarfélög hafa með höndum er skipulag byggðar og landnýt- ing. Þau eiga að kapp- kosta að hafa land til umráða og hafa á hendi útvegun byggingalóða. Um þennan þátt í starf- semi sveitarfélaganna hafa alltaf gilt sömu sjónarmiðin og um aðra þætti í störfum þeirra, þ.e. að lág- marka álögur svo sem kostur er og veita þjónustuna á sem næst kostnaðarverði, þó á þann hátt að rekstrarþættir geti borið sig með viðunandi og nauðsynlegu svig- rúmi. Nú er breyting orðin hér á og það er Reykjavíkurborg sem gefur tóninn. Í stað þess að sjá fólkinu fyrir lóðum á því verði sem einungis stendur undir kaupum á landi og skipulagningu þess, eru þær nú seldar hæstbjóðendum. Þessi markaðsvæðing frumþarf- anna er alvarlegt íhugunarefni og vekur grundvallarspurningar um hefðbundið og lögbundið meg- inhlutverk sveitarfélaganna og hvort hún eigi rætur í umræðu og pólitískri stefnumótun meðal þjóð- arinnar? Þ.e. hvort Íslendingar hafi kosið um þessa stefnubreyt- ingu og hvort gróði af lóðabraski sé orðinn meðal tilgreindra lögboð- inna tekjustofna sveitarsjóða? Svo sem að framan er bent á eru landsmenn skyldaðir til aðildar að sveitarfélögum. Með því tryggir löggjafinn gagnkvæmni í rétt- indum og skyldum. Allir skulu taka þátt í félagslegri samábyrgð og eiga sömu möguleika, vera jafn- ir fyrir lögum. Að bjóða upp lóðir þannig að einungis þeir efnameiri geti keypt þær er fullkomið brot á þeirri grundvallarreglu sem starf- semi sveitarfélaganna hvílir á og lýst er í þessari grein og hleypir almennu landverði í himinhæðir. Allir þurfa þak yfir höfuðið og aðgangur að byggingarlandi á að vera greiður. Þessi nýja tilhögun vegur hins vegar að möguleikum og velferð þeirra sem hvað helst þurfa að fá notið hinna félagslegu lausna. Þetta mun síðar meir kosta margfalt það sem hefst út úr þessu braski með landið. Íslendingar eiga meira land en flestar aðrar þjóðir og er það vorkunnar- og vandalaust að sjá svo um að allir fái það pláss sem þeir þurfa. Því er brýnt að hinir kjörnu fulltrúar hverfi nú þegar af þessari óheilla- braut. Ef það ekki gerist með góðu er óhjákvæmilegt annað en reyna að stöðva þennan ósóma með dómi. Er lagagrunnur fyrir lóða- braski Reykjavíkurborgar? Ámundi Loftsson fjallar um skyldur sveitarfélaga ’Að bjóða upp lóðirþannig að einungis þeir efnameiri geti keypt þær er fullkomið brot á þeirri grundvallarreglu sem starfsemi sveitarfé- laganna hvílir á. ‘ Ámundi Loftsson Höfundur er verkamaður. FALSANIR og eftirlíkingar af hvers kyns varningi eru ört vaxandi vandamál. Það sama á við um fals- anir og eftirlíkingar af sköpun og hugverkum. Innan Evrópusambandsins hefur verið reynt að bregðast við þessari þróun með tilskipun nr. 2004/48 EC, sem ætlað er að auðvelda eig- endum hugverkarétt- inda að standa vörð um réttindi sín. Með til- skipuninni, sem sam- þykkt var af Evr- ópuráðinu í apríl 2004, var ætlunin að stuðla að samræmdri fram- kvæmd og möguleikum á réttarúrræðum innan Evrópusambandsins. Tilskipunin mun væntanlega verða samþykkt sem hluti af EES-samningnum og munu ákvæði hennar þá verða að- löguð íslenskum lögum og reglum. Skilvirk vernd hugverkaréttinda er nauðsynleg öllum framleiðendum og afar mikilvæg stoð við nýsköpun og efnahagsþróun. Hún er ekki að- eins nauðsynleg forsenda framþró- unar heldur einnig mikilvægur grundvöllur fyrir samkeppnisstöðu framleiðenda. Af þeim sökum er mikilvægt að tryggja að slíkum rétt- indum verði framfylgt með einföld- um og áhrifaríkum hætti. Áð- urnefnd tilskipun miðar að því að skapa umsækjendum og eigendum slíkra réttinda sömu aðstæður innan Evrópu. Hingað til hafa tilskipanir og gerðir Evrópusambandsins á sviði hugverkaréttar aðallega miðað að því að samræma efnisreglur og þannig hefur verið reynt að tryggja svipaða framkvæmd innan Evrópu- sambandsins. Þau réttindi sem þeg- ar hafa verið samræmd varða vöru- merki, hönnun, uppfinningar á sviði líftækni og þætti er varða höf- undarétt. Reglur um fullnustu hug- verkaréttinda hafa hins vegar ekki enn verið samræmdar inn- an Evrópusambands- ins. Með tilskipuninni verður meðal annars auðveldara fyrir eig- endur hugverkarétt- inda að krefjast bóta vegna þess tjóns sem þeir verða fyrir vegna óheimillar notkunar annarra á hugverkum þeirra. Hægt verður að gera upptæka bankareikninga og aðrar eignir hins brotlega til að tryggja greiðslu dæmdra bóta. Þá verður innköllun falsaðra vara og eftirlíkinga á kostnað hins brotlega einnig heimil samkvæmt ákvæðum tilskipunarinnar, auk þess sem hinn brotlegi ber allan kostnað af mála- rekstri vegna brota á hugverkarétti. Falsanir og eftirlíkingar eru vax- andi vandi sem í raun felur í sér al- varlega ógnun við hagkerfi þjóða. Framboð af fölsuðum varningi og annarri sjóræningjaútgáfu á Netinu er mikið. Ef lög og reglur um fulln- ustu hugverkaréttinda eru mismun- andi innan Evrópu getur það haft slæm áhrif á innri markaðinn. Ætla má að falsanir og eftirlíkingar séu mun líklegri til að vera á boðstólum í þeim ríkjum sem ekki hafa að geyma eins áhrifarík ákvæði til að fullnusta þessi réttindi, þ.e. þar sem eigendur hugverkaréttinda hafa ekki raunhæfa möguleika á að fram- fylgja réttindum sínum. Tilgangur tilskipunarinnar er einkum að koma í veg fyrir misræmi milli reglna í ríkjum innan Evrópu og til að tryggja ákveðna lágmarksvernd eigenda hugverkaréttinda gagnvart fölsunum og eftirlíkingum. Markmið tilskipunarinnar er einnig að auka neytendavernd. Falsanir og sjóræningjaútgáfur hafa það yfirleitt í för með sér að reynt sé að blekkja neytendur af ásetningi. Er þá átt við að kaupand- anum séu gefnar rangar upplýs- ingar eða væntingar um gæði og eiginleika vörunnar, sér í lagi ef um er að ræða fölsun eða eftirlíkingu af þekktu vörumerki. Falsanir og eft- irlíkingar eru framleiddar án próf- ana frá viðurkenndum eftirlits- aðilum og fylgja ekki lágmarksgæðakröfum. Þegar neyt- andi kaupir falsaða vöru eða eftirlík- ingar er hætt við að hann njóti ekki góðs af ábyrgð eða annarri þjónustu ef varan er gölluð. Afleiðingar fals- ana og eftirlíkinga geta einnig verið mjög alvarlegar og haft í för með sér ógnun við heilsu og líf manna þegar um lyf er að ræða. Þá getur öryggi manna einnig stafað ógn af eftirlíkingum af leikföngum og eins varahlutum í bifreiðar og flugvélar. Það er því mikilvægt að tryggja það að réttarúrræði fyrir eigendur hug- verkaréttinda séu skýr og áhrifarík, bæði til verndar neytendum og eig- endum réttindanna. Brot á hugverka- rétti – bætt úrræði Borghildur Erlingsdóttir fjallar um falsanir listaverka í tilefni af alþjóðlegum hug- verkadegi 26. apríl 2005 ’Falsanir og eftirlík-ingar eru vaxandi vandi sem í raun felur í sér al- varlega ógnun við hag- kerfi þjóða.‘ Borghildur Erlingsdóttir Höfundur er deildarstjóri á Einkaleyfastofunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.