Morgunblaðið - 18.08.1977, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 18.08.1977, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. AGUST 1977 19 Kristján Jónsson fyrrum skólastjóri í Hnífsdal - Áttræður Kristján Jónsson f.v. skólastjóri og hreppstjóri í Hnífsdal er 80 ára í dag. Hver skyldi trúa þvi sem sér hann beinan og kvikan í spori. Hann hefur alltaf veriö léttur í lund. Hann er fæddur á Eyri, Seyðisfirði, N. Is. 18. ágúst 1897. Foreldrar hans voru Jón Jakobs- son bóndi og smiður og kona hans, Kristjana Kristjánsd. Kristján lauk kennaraprófi 1919 og tók þá við kennslu og skólastjórastarfi við barnaskólann i Hnifsdal. Hann kenndi þar til ársins 1968. Einnig var hann hreppsstjóri í Eyrarhreppi frá 1945 þar til Hnífsdalur sameinaðist Isafirði. Hann hefur starfað mikið fyrir Hnífsdal, bæði að íþróttum og söng og verið orgelleikari við messur og í allskyns nefndum. A yngri árum stundaði hann vor- sildarveiðar og landbúnað. Ég sem þessar linur rita minnist þess hve okkur þótti vænt um að hann kom alltaf heim á jólunum og fylgdi honum þá alltaf mikil gleði og góðgæti. Hann tók mikinn þátt i leik með okkur börnunum og var svo fljótur að hlaupa og stökkva. Hann kvæntist fyrri konu sinni 15. maí 1932, Sigriði Kjartans- dóttur kennara, hún dó 6. ágúst 1956. Þau eignuðust 5 efnileg börn sem öll eru á lifi. Seinni kona hans er Helga Jónsdóttir. Jæja bróðir minn þú fyrirgefur þessar fátæklegu línur. A þessum tímamótum sendi ég og fjölskylda mín þér hugheilar afmælisóskir, og megir þú njóta fjölskyldu þinnar um ókomin ár og þeirrar gæfu sem þú helzt kýst. Margrét Jónsdóttir. Einn af merkari borgurum i Hnífsdal, Kristján Jónsson fyrr- um skólastjóri Barnaskóla Hnifs- dals, er áttræður i dag. Hann var siðasti hreppstjóri Eyrarhrepps i Norður- Isafjarðar- sýslu, hreppnum, sem nú er týnd- ur og tröllum gefinn. Kristján Jónsson er fæddur að Eyri í Seyðisfirði í Súðavíkur- hreppi, 18. ágúst 1897, en jörðina Eyri hafa margir búhöldar fyrr og siðar setið, enda talin vildisjörð, Foreldrar Kristjáns voru Kristjana Kristjánsdóttir og Jón Jakobsson, mikil sæmdarhjón, sem um langan aldur bjuggu gagnsömu búi að Eyri og voru mikilsvirt af nágrönnum sinum og sveitungum sem og mörgu öðru fólki i héraðinu. Jón Jakobsson, faðir Kristjáns, gerði út og var formaður á eigin bát, eins og svo margir aðrir bændur við ísafjarðardjúp á þess- um árum. Seinna hóf svo Jón Jakobsson síldveiðar á innfjörð- um Isafjarðardjúps með góðum árangri og seldi síldina í beitu til hinna ýmsu veiðistöðva við Djúp- ið. Jóni á Eyri var margt til lista lagt, þvi hann var völundarsmið- ur bæði á tré og járn og mjög eftirsóttur til 'þessara verka, en mikill dugnaður var honum í blóð borinn, þvi var ég persónulega kunnugur. Foreldrar Kristjáns eignuðust 5 börn, fjórar dætur og soninn Kristján, er hér getur. Af þessum Eyrarsystkinum eru tvö á lifi, Kristján og Margrét búsett í Reykjavik, gift Ragnari Jakobssyni, fyrrum útgerðar- manni og hraðfrystihússeiganda frá Flateyri við Önundarfjörð. A þeim tima er Kristján Jóns- son var að alast upp, máttu börn og unglingar snemma verða að liði, við heimilisstörfin og búskap- inn, því að mörgu var að hyggja á stóru heimili, sem Eyrarheimilið var, enda ekki vélvæðingu í sveitabúskap til að dreifa. Snemma mun hugur Kristjáns hafa hneygzt til meiri menntunar en farskóli i sveit gat veitt á þeim tima. Kristján hóf nám við Flens- borgarskóla i Hafnarfirði og lauk þaðan prófi vorið 1915 og prófi frá Kennaraskóla Islands lauk hann vorið 1919. Haustið 1919 var Kristjáni Jóns- syni veitt skólastjórastaðan við Barnaskóla Hnífsdals og gegndi hann þeirri stöðu í samfleitt 48 ár eða til vorsins 1967, er hann varð að láta af störfum fyrir aldurssak- ir, svo sem lög mæla fyrir um. Þó er það svo, að ennþá veitir hann nemendum barnaskólans tilsögn i söng. Þegar tekið er tillit til hins langa kennslutímabils Kristjáns við Barnaskóla Hnífsdals, gefur auga leið, að Hnifsdælingar eiga honum margt gott upp að unna, enda hafa þeir við ýms timamót í lífi hans sýnt honum góðan hug sinn fyrir langt og giftudrjúgt starf, með þvi að færa honum að gjöf fagra gripi, sem mjög hafa glatt hann og hafa hér verið að verki bæði nemendur og foreidr- ar þeirra. Kristján Jónsson hefur jafnvel kennt 3. kynslóðinni í Hnífsdal og munu þess fá dæmi. Við lát föður sins árið 1923 gerðist Kristján fyrirvinna móður sinnar á sumrum, ásamt systrum sínum, en ekkjan hélt áfram bú- skap að Eyri nokur ár eftir lát manns síns, þar til hún fluttist til dóttur sinnar, Margrétar, er bú- sett var og gift á Flateyri við Önundarfjörð. A þessu timabili stundaði Kristján nokkur sumur síldveiðar frá Eyri með góðum árangri sum árin, en þennan veiðiskap hafði hann stundað með föður sínum og kunni vel til verka. N Árið 1932 gekk Kristján að eiga kennaramenntaða stúlku, Sigríði Ólöfu Kjartansdóttur frá Fremri- Hnífsdal, en hún var dóttir Kjart- ans Guðmundssonar bónda þar, hreppstjóra og sýslunefndar- manns sem á sinni tið var kunnur maður fyrir vitsmuni og em- bættisstörf. Með Sigriði konu sinni eignaðist Kristján 5 börn, sem öll eru á lifi og hið mannvæn- legasta fólk og hafa sum þeirra menntazt vel, svo sem einn sona hans, Kjartan, sem er rafmagns- verkfræðingur. Sigriði konu sína missti Kristján 6. ágúst 1956, en hún hafði reynzt honum traustur lífs- förunautur og góður uppalandi barna þeirra, enda mjög greind og vel menntuð, jafnvel utan- lands. Sigriður var einmitt samkenn- ari hans, er þau kynntust og kvað mikið að kennslu hennar. Seinni kona Kristjáns er Guð- rún Helga Jónsdóttir, austfirðing- ur að ætt, hin mesta myndarkona, sem búið hefir Kristjáni vini mín- um aðlaðandi heimili. Fundum okkar Kristjáns Jóns- sonar bar fyrst saman i ung- mennafélaginu „Þróttur" í Hnífs- dal, haustið 1920, en ég var farinn til náms i Reykjavík, er hann hóf kennslu i Hnífsdal haustið 1919. Með Kristjáni bættist ung- mennafélaginu góður starfskraft- ur, þvi bæði var það, að hann var mjög greindur og hafði ríkan áhuga á félagsmálum. Glaðlyndi hans og grandvarleiki aflaði hon- um fljótt vina í félaginu, enda fundvis á margt það, er betur mátti fara í félagsstarfinu. Auk venjulegra félagsmála, komu fram ýms mál er vörðuðu viðgang og heill byggðarlagsins. í ungmennafélaginu átti kveikjan að byggingu bryggju i Hnífsdal upptök sin, enda margir sjómenn í félaginu. Mörgum okkar ung- mennafélaga rann til rifja að sjá sjómennina erfiða við að bera á bakinu lóðastampana, oft eftir erfiðar og langar sjóferðir, upp i aðgerðarskúrana. Af því tilefni strengdu félagarnir þess heit, að verða hér að liði og fá á breyt- ingu, þó það tæki sinn tíma. Það var þvi fangaráð fyrst að vekja athygli hreppsnefndar Eyrarhrepps á þessu ófremdar- ástandi og hvetja hana til fram- kvæmda í þessu máli, sem og í fleiri málum er vörðuðu viðgang og heill Hnífsdalskauptúns. Hreppsnefndin tók málaleitan okkar vel, en hafði þann hátt á, að velja fjóra ágæta ungmenna- félaga til þess, að taka sæti í nefnd um bryggjumálið undir for- ustu þáverandi hreppsnefndar- oddvita, Ingimars Bjarnasonar. Það var ekki beðið boðanna, enda átti þetta mikilsverða mál hug allra útgerðarmanna og sjó- manna, sem og annarra borgara í Hnífsdal. 1 bryggjunefndina, því að engin hafnarnefnd var þá til í Hnífsdal, valdist Kristján Jónsson skólastjóri og vann af miklum áhuga ásamt okkur hinum að framgangi málsins. Og bryggjan í Hnifsdal varð að veruleika, því smíði hennar hófst 18. júlí 1931, en við tilkomu hennar skipti margt sköpum til hins betra bæði fyrir útgerð alla, sem og fyrir sjómennina. Þá var og i ungmennafélaginu rætt um nauðsyn á því, að fá talstöðvar í mótorbátana, en þær voru þá að sjá dagsins ljós og taldar nauðsynlegar til slysa- varna. Með komu Kristjáns Jónssonar til Hnífsdals mátti heita, að nýr og ferskur blær færi um félagslíf- ið, því hann lá ekki á liði sinu, við að glæða það meiri gleði með söng og hljóðfæraslætti. Kristján stofnaði fljótlega sam- kór og var stjórnandi hans um langt árabil. Þetta framtak hans naut óskriftrar ánægju þorpsbúa, bæði karla og kvenna, enda margt ágætisvelgefið söngfólk í byggðarlaginu, sem iðkaði jafnvel söng á heimilum sínum, þar sem góð hljóðfæri voru. Það fór ekki hjá þvi, að Kristjáni yrðu falin opinber störf, svo vel gerður og greindur maður, sem hann var. Hann var kjörinn í Hreppsnefnd Eyrarhrepps árið 1925 og átti þar óslitið sæti til ársins 1937 og kom svo aftur i nefndina árið 1946 til ársins 1954, að hann gaf ekki kost á sér lengur. Sem a líkum lét, reyndist hann prýðilegur starfskraftur og léði hverju því máli góðan stuðning, er hann taldi vera sveitarfélaginu til heilla og uppbyggingar. Hreppstjóri Eyrarhrepps varð Kristján fyrst árið 1923, en því embætti tók hann við af tengda- föður sinum Kjartani Guðmunds- syni í Fremri-Hnifsdal, er verið hafði hreppstjóri í full 25 ár, en varð nú að hætta vegna heilsu- leysis. Árið 1954 var Kristján enn á ný skipaður hreppstjóri og var í þvi embætti, er sameining Eyrar- hrepps og Isafjarðarkaupstaðar varð. Sóknarnefndarmaður varð Kristján árið 1942 og átti þar langa setu. Þá var hann og kosinn i fyrstu stjórn Sjúkrasamlags Eyrahrepps og var í stjórn þess til ársins 1958. Þá var Kristján lengi úttektarmaður jarða i Eyrar- hreppi. Sem hreppstjóri var Kristján lengi formaður skattanefndar Eyrarhrepps, en siðar umboðs- maður Skattstjóra Vestfjarðaum- dæmis, eftir að það embætti var stofnað. Kristján átti lengi sæti-i bygg- ingarnefnd Eyrarhrepps og sömu- leiðis í hafnarnefnd Hnifsdals. 1 fasteignamatsnefnd Norður- Isafjarðarsýslu átti hann sæti í nokkur ár. Eitt af merkari störf- um, er Kristján Jónsson hafði og sem ég hygg að honum hafi þótt verulega vænt um var organista- starfið í Hnifsdalssókn, sem hann gegndi í tugi ára við vinsældir sóknarpresta og sóknarfólks og lengi vel fyrir engin eða lítil laun. Þetta gat þó verið ærið starf á stundum við öflun söngfólks i kirkjukórinn, ekki sizt hin síðari ár, þótt margt sóknarfólk karlar og konur, sýndu þessu sjálfboða- starfi mikla rækt. Kristján hefir nú látið fyrir nokkru af organista- starfinu. Þessi upptalning á embættis- störfum Kristjáns Jónssonar er sjálfsagt ekki tæmandi, þvi svo víða kom hann við störf í heima- sveit sinni, enda leitað fulltingis hans um langa ævi. Ef til vill er Kristján vinur minn ekki að öllu sáttur við mig fyrir alla þessa uppalningu á störfum hans um langa ævi fyrir sveit hans og þjóðfélag, sem þó er sannleikanum samkvæm. Af ævistarfi Kristjáns Jónsson- ar verður það fyllilega ráðið, að hann hefir verið sterkbyggður maður og notið óvenjulegs trausts samborgara sinna til hverskonar trúnaðarstarfa, er hér hafa verið tíunduð, þótt kennarastarfið beri þar hæst þegar á allt er litið, sem með eindæmum hefir reynzt giftudrjúgt. Ég vil að lokum þakka Kristjáni vini mínum langt samstarf að opinberum málum í sveit okkar, óska honum hjartanlega til ham- ingju á þessum merku timamót- um í lífi hans og árna honum og hinni ágætu konu hans allra heilla á ókomnum árum með þeirri einlægu ósk, að ævikveldið megi verða honum blitt. Einar Steindórsson. — Heilsugæzla Framhald af bls. 12 tjarnarness ákveðið að beita sér fyrir byggingu hjúkrunarheimilis fyrir aldraða og að það verði reist í Nesi og að byggðar verði íbúðir fyrir aldraða i tengslum við það. Einnig er ákveðið að byggja dag- heimili fyrir börn j næsta nágrenni við þessar byggingar. Svipaða stefnu hafa mörg byggðarlög tekið, og von min er sú, að nú sé þjóðin að vakna til meðvitundar um, að þetta er hennar vandi. Verkefnunum á að skipta niður, hvert heilsugæzlu- umdæmi þarf að leysa vandamál- in heima fyrir með byggingu hentugra ibúða fyrir aldraða og með hjúkrunaraðstöðu fyrir aldr- aða i tengslum við sjúkrahúsin og heilsugæzlustöðvarnar. Auk þess er það skoðun mín, að lítil hjúkr- unarheimili dreifð um landið séu hentugri og taki meira mið af þörfum hvers héraðs, þvi að þar vita menn bezt, hvar skórinn kreppir. Þessi stutta grein mín um heilsugæzlu á Seltjarnarnesi er öðrum þræði skrifuð til þess að hvetja alla landsmenn til þess að leysa vandamál aldraðs fólk heima i héraði. Verkefnið er heill- andi og ég held nauðsynlegt hverju byggðarlagi, því að við höfum gott af þvi að styðja þá sem eru minni máttar og gefa af alls- nægtum okkar. Til þess að gefa orðum mínum um heilsugæzlu á Seltjarnarnesi aukinn þunga vil ég leyfa mér að taka upp ummæli Magnúsar Erlendssonar, forseta bæjar- stjórnar Seltjarnarness, en hann segir i viðtali við Dagblaðið 3. ágúst s.l. meðal annars: „Nú snú- um við okkur að heilsugæzlu. Fyrsta skóflustungan að heilsu- gæzlustöð verður væntanlega tek- in í haust. Næsta verkefni verður einnig málefni heilsugæzlu, það er íbúðir aldraðra, hjúkrunar- heimili og sundlaug ásamt stöð- inni.“ Ég læt hér staðar numið með þeirri ósk, að vandamál aldraðra leysist sem farsællegast og að sem flestra biði fagurt ævikvöld. Jón Gunnlaugsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.