Morgunblaðið - 17.07.1986, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.07.1986, Blaðsíða 2
2___________________________ Fundur í launamálaráði BHMR: MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ 1986 Aðgerðanefnd falið að undirbúa hópuppsagnir Á FUNDI i launamálaráði Bandalags háskólamenntaðra ríkisstarfs- manna í gær var aðgerðanefnd BHMR falið að hefja undirbúning að hópuppsögnum félagsmanna „til að leggja sérstaka áherslu á mikilvægi leiðréttingar á samningstímanum", eins og segir i ályktun launamálaráðsins. Þorsteinn A. Jónsson formaður launamálaráðs BHMR sagði í samtali við Morgunblaðið i gærkvöldi að ætlunin væri að kanna vilja félagsmanna til að beita hópuppsögnum „til að knýja fram launahækkun sem ríkisvaldið hefur áður lofað“. I ályktun launamálaráðsins af ingsréttar fyrir aðildarfélög BHMR og að gengið verði frá nauðsynlegri lagasetningu um samningsrétt fé- laganna á samningstímanum. Ennfremur er sú krafa sett fram að fyrir 15. ágúst næstkomandi liggi fyrir skýr yfirlýsing af hálfu ríkisstjómar og fjármálaráðherra um vilja ríkisstjómarinnar í þessum efnum. Loks er þess krafist að fjár- málaráðherra hefji viðræður við BHMR um það hvemig jafna megi á samningstímanum þann mun sem er á dagvinnulaunum háskóla- menntaðra ríkisstarfsmanna og þeirra sem hafa hliðstæða menntun, sérhæfni og ábyrgð á almennum vinnumarkaði. Þorsteinn A. Jónsson sagði að beðið yrði með aðgerðir fram yfir 15. ágúst, en þá vildu menn vera í viðbragðsstöðu ef svör ríkisstjóm- arinnar yrðu félögum í BHMR óhagstæð. fundinum er krafist tafarlausra við- ræðna við fjármálaráðherra um gerð nýs aðalkjarasamnings fyrir BHMR. Þá er krafist fulls samn- Átta rækju- bátum vís- að til hafnar VARÐSKIPIÐ Óðinn vísaði í fyrradag átta rækjubátum, sem voru á veiðum í Húnaflóa, til hafnar, þar sem um borð voru yfirmenn, sem ekki höfðu tilskil- in réttindi eða undanþágur. Algengast var að skráðir stýri- menn væru ekki á bátunum. Um borð í rækjubátunum voru nokkrir yfírmenn sem höfðu sótt um undanþágur, en ekki fengið svar frá Siglingamálastofnun. Sér- stök nefnd á vegum Siglingamála- stofnunar veitir undanþágur og afgreiðir beiðnir vikulega. Em und- anþágumar veittar til hálfs árs í senn. Ástvaldur Magnússon skrif- stofustjóri Siglingamálastofnunar sagði í samtali við Morgunblaðið að því miður væri nokkuð algengt að menn hirtu ekki um að sækja um undanþágur fyrr en sama dag og þeir hygðust láta úr höfn. Því væri von að svona færi. Ástvaldur sagði að Siglingamála- stofnun hefði veitt í kringum eitt þúsund undanþágur á síðasta ári. Samkvæmt nýju skipstjómarlögun- um má aðeins veita þeim mönnum undanþágur, sem áður hafa fengið þær, og ber viðkomandi að greiða 2.000 krónur á mánuði fyrir. Það fé rennur í sameiginlegan menntun- arsjóð sjómanna og er notað til að fjármagna skipstjómamámskeið. Ástvaldur sagði að þetta fyrirkomu- lag hefði mælst vel fyrir meðal sjómanna. Allir sem vettlingi gátu valdið drifu sig á dansleikinn hjá Stuðmönnum. Morgunblaðiö/Sveinn Andri Stuðmenn gerðu lukku í Grímsey: íbúar 114, ballgestir 120 STUÐMENN héldu tónleika og spiluðu fyrir dansi siðast- liðið þriðjudagskvöld i félagsheimilinu Múla í Grimsey. Grimseyingar fjölmenntu til að halda tveggja tíma tónleika, að sjá og heyra í Stuðmönnum og mættu þar um 120 manns, en skráðir íbúar í Grímsey eru 114. Nokkrir komu fljúgandi frá Akureyri. Upphaflega stóð aðeins til en Grímseyingar vom ekki á því að láta Stuðmenn sleppa svo vel og spiluðu þeir fyrir dansi til kl. 2 um nóttina. Mjög góð stemmning var á ballinu og fengu Stuðmenn ekki að hætta fyrr en þeir höfðu leikið fjögur aukalög. Stuðmenn vom það ánægðir með undirtektir þeirra Grimsey- inga, að þeir lofuðu þeim því að gera þetta að árlegum við- burði svo lengi sem Stuðmenn væm við lýði. 36 ker endurgangsett hjá ISAL í Straumsvík Markaðurinn aftur breyst til hins verra, segir Ragnar Halldórsson forsljóri ÍSLENSKA álfélagið hf. end- urgangsetti 36 ker í maí og júnímánuði síðastliðnum, en þessi ker voru tekin úr sam- bandi haustið 1984 vegna slæmra markaðsaðstæðna. Afkastageta álversins eykst við þetta um 10-12%, eða úr tæplega 77 þúsund tonnum á ári í 86 þúsund tonn. Ragnar Halldórsson forstjóri ÍSAL sagði í samtali við Morgun- blaðið að þessi ákvörðun hefði verið tekin vegna skyndilegra markaðsbreytinga í maí og apríl. „í fyrsta sinn í langan tíma var staðgreiðsluverð komið upp fyrir þriggja mánaða verð, sem benti til að eftirspum væri orðin meiri en framboð. Þá var ákveðið að taka kerin í notkun aftur. Hins vegar hélst þetta ástand ekki nema í sex vikur og nú er svo komið að markaðsaðstæður em síst betri en þær vom fyrir þessi batamerki," sagði Ragnar. Ragnar sagði að skýringin á skyndilegri aukningu eftirspumar haifi hugsanlega verið yfírvofandi verkföll í Bandaríkjunum. „Verk- föll eiga sér langan aðdraganda í Bandaríkjunum og menn hafa kannski verið að birgja sig upp áður en þau skyllu á. Nú em þess- ar kjaradeildur vestanhafs leystar og þriggja mánaða verðið aftur orðið hærra en staðgreiðsluverð- ið,“ sagði hann. Ragnar sagði að það kæmi til greina að loka kerjunum aftur með haustinu ef markaðurinn breyttist ekki til batnaðar. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Ók á hús verkalýðsfélagsins ÞAÐ ÓHAPP varð á Hafnargötunni í Víkinni, húsi verkalýðsfélagsins. í bilnum Keflavík síðdegis í gær, að amerískur voru tveir menn og sakaði hvorugan. Bíllinn fólksbíll fór út af veginum og lenti á er hins vegar mikið skemmdur. Seifoss: 46 sóttu um emb- ætti landpósts ALLS hafa 46 manns sótt um starf landpósts á Selfossi, en umsóknarfrestur er nýútrunninn út hjá Pósti og síma. Flestir umsækjenda eru heimamenn eða úr sveitum Amessýslu. „Landpóstur er einskonar póst- hús á hjólum," sagði Jóhann Hjálmarsson, blaðafulltrúi Pósts og síma, í samtali við Morgunblaðið. „Hann annast alla póstþjónustu um sveitir og annað stijálbýli. Auk þess sér landpóstur um viðtöku á greiðsl- um á þeim reikningum sem Póstur og sími sér reglulega um, þannig að hann er einskonar gjaldkeri stofnunarinnar í senn,“ sagði Jó- hann. Alls eru sex landpóstar á Sel- fossi, sem allir sjá um sín afmörk- uðu svæði í Ámessýslu. í starfi eru þeir með eigin bíl. Þeir aka mismun- andi vegalengdir — lengst þó 300 km. Þeir fara í póstferðir þrisvar í viku, allir frá póshúsinu á Selfossi þegar búið er að lesa þar í sundur póstinn og fá þeir fyrir snúð sinn greitt samkvæmt kflómetragjaldi, 19.80 krónur á kílómetrann. í því eru laun þeirra og allur kostnaður innifalin. Búast má við að starfíð verði veitt fyrir 1. ágúst nk. Ungíingakeppni íslands og Bandaríkjanna í skák: Island yfir fyrir síðustu umferðina í NÓTT lauk í New York árlegrí unglingakeppni í skák milli Is- Iands og Bandaríkjanna. Úrslit Qórðu og síðustu umferð- arinnar lágu ekki fyrir þegar blaðið fór í prentun. íslensku unglingamir unnu hins vegar þá fyrstu með 9 vinningum gegn 7, en liðin skildu jöfn í annarri og þriðju lotu. Alls taka 20 íslenskir unglingar á aldrin- um 10-17 þátt í mótinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.