Morgunblaðið - 09.02.1988, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 09.02.1988, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1988 15 Stofnun Sigurðar Nordals tekin til starfa: Skal efla rannsóknir á íslenskri menningn að fornu og nýju Morgunblaðið/Þorkell Dr. Úlfar Bragason S fundarherbergi Nordalsstofnunar. STOFNUN Sigurðar Nordals tók til starfa um áramótin. Henni var komið á fót að frumkvæði Sverr- is Hermannssonar þáverandi menntamálaráðherra 14. sept- ember 1986 en þá voru 100 ár liðin frá fæðingu Nordals. Stofn- unin hefur fengið til umráða húsið i Þingholtsstræti 29 og ráðinn hefur verið forstöðumað- ur til að vinna að því, sem stofn- nninni er ætlað samkvæmt reglu- gerð, „að efla hvarvetna í heim- innm rannsóknir og kynningu á íslenskri menningu að fornu og nýju og tengsl íslenskra og er- lendra fræðimanna á þvi sviði“. Formaður stjórnar Nordalsstofn- unar er Davíð Ólafsson fyrrver- andi seðlabankastjóri og aðrir stjórnarmenn eru dr. Jónas Kristjánsson og Svavar Sig- mundsson dósent. Forstöðumað- ur er dr. Úlfar Bragason. Stofnunin skal rækja hlutverk sitt með því að afla gagna um rann- sóknir erlendra fræðimanna, bjóða hingað erlendum fræðimönnum, styðja íslenska til utanfarar og standa fyrir fundum og ráðstefnum. Á núgildandi fjárlögum voru stofn- uninni veittar 3 milljónir króna til launagreiðslna og rekstrar. „Ég er nú að vinna að því að setja mig í samband við 400 manns sem kenna eða rannsaka íslensk fræði erlendis," sagði Úlfar Braga- son. „Það er einkum á Norðurlönd- unum, í Frakklandi og Þýskalandi en einnig á Bretlandseyjum, í Bandaríkjunum, Kanada og jafnvel í Australíu, Nýja-Sjálandi og Japan sem unnið er að rannsóknum sem tengjast íslenskum bókmenntum, tungu eða sögu. í þeim hópi eru margir íslendingar sem starfa við erlenda háskóla. Það er mikilvægt fyrir alla fræðimenn að geta haft samband við þá sem vinna að sams konar rannsóknum og eitt fýrsta verkefni stofnunarinnar verður að gangast fyrir ráðstefnu um íslenska menningu nú í sumar og stendur til að bjóða hingað af því tilefni 10 erlendum fræðimönnum sem vinna að rannsóknum sem tengjast um- ræðuefninu." Úlfar segist þekkja marga af fræðimönnunum sem hann hefur samskipti við í starfinu frá því að hann var við nám erlendis en að loknu BA-prófi í íslensku og sögu frá Háskóla íslands lauk Úlfar magistersprófi frá Oslóarháskóla, doktorsprófi í frásagnalist Sturl- Morgunblaðið/Þorkell Dr. Úlfar Bragason. ungu frá Berkleyháskóla í Kali- fomíu. Að því loknu kenndi Úlfar við Chicagoháskóla uns hann kom heim til að hleypa starfi Stofnunar Sigurðar Nordals af stokkunum. „Það er gaman að standa að uppbyggjandi starfsemi eins og þessari," sagði Úlfar þegar hann er spurður hvemig honum líki að starfa einn í stóm húsi þar sem aðeins tvö herbergi em enn sem komið er búin húsgögnum og það ákaflega sparlega. „Fólki og hús- gögnum á eftir að ^ölga héma þegar skriður kemst á starfið." AEGRYKSVGANA FJJLLV... Nú hafa JHJEfk ryksugurnar lækkað verulega í verði! Við getum nú boðið þessar gæðaryksugur á verði sem enginn getur hafnað. VAMPYR 406 ryksugan frá ABG er 1000 W og því sérlega kraftmikil, hún er með stillanlegum sogkrafti, inn- dreginni snúru og snúningsbarka, svo fátt eitt sé nefnt. Kr. 7.595.- (STAÐGREITT) Vestur-þýsk gsði á þessu verði? • Engin spurning! ...ÁFRÁBÆRU VERÐI! AFKÖST ENDING GÆÐI Reykjavík og nágr. Bjarnabúð Tálknafirði Kaupfélag Þingeyinga Húsavík Stjörnubær Seltjnesi RafbúöJónasarÞórs Patreksfirði Austuriand H.G. Guðjónsson hf. Reykjavik Verslun Gunnars Sigurössonar Þingeyri Kaupfélag Langnesinga Þórshöfn Hagkaup Reykjavik Straumur Isafirfti Kaupfélag N-Þingeyinga Kópaskerí J.L húsið Reykjavík Verslunin Edinborg Bíldudal Kaupfélag Vopnfirðinga Vopnafirfti Mikligarður Reykjavík Einar Guðfinsson hf. Bolungarvík Stálbúð Seyðisfirði Þorsteinn Bergmann Reykjavik Húsið Stykkishólmi Kaupfélag Fáskrúftsfirftinga Fáskrúftsfirfti Kaupstaöur i Mjódd Reykjavík Guðni Hallgrímsson Grundarfirði Sveinn Guðmundsson Egilsstöðum Samvirki Kópavogi Blómsturvellir Hellissandi Kaupfélag A-Skaftfellinga Höfn Rafbúðin, Auðbrekku Kópavogi Norðurfand Rafnet Reyöarfirði Búkaup Garðabæ Kaupfélag Steingrimsfjaróar Hólmavik Elís Guönason Eskifirði Kaupfélag Hafnfirðinga Hafnarfirði Verslun Sig. Pálmasonar Hvammstanga Suðuríand Mosraf Mosfellsbæ Kaupfélag Húnvetninga Blönduósi Nýfand ViV Rafbær Keflavík Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki E.P.-innréttingar Vestmannaeyjum Vasturiand * Kaupfélag Eyfirðinga Akureyri Mosfell Hellu Málningarþjónustan Akranesi Bókabúð Rannveigar H. Ólafsdóttur Laugum S-Þing. Árvirkinn Selfossi Verslun Einars Stefðnssonar Búðardat Verslunin Sel Mývatnssveit Raftækjaverslun Söfva Ragnarssonar Hveragerði AEG heimilistæki ■ þvíþú hleypir ekki h verju sem er í húsverkin! BRÆÐURNIR ÖRMSSONHF Lágmúla 9, sími: 38820
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.