Morgunblaðið - 12.12.1992, Blaðsíða 75

Morgunblaðið - 12.12.1992, Blaðsíða 75
75 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1992 GOLF Bestu leikmenn heims Marco Van Basten, Hollend- ingurinn í liði AC Milan á Ítalíu, var útnefndur knattspyrnu- maður ársins af enska tímaritinu Woríd Soccer, eins og fram kom í blaðinu fyrir skömmu. Danska landsliðið var útnefnt lið ársins og Richard Möller-Nielsen, landsliðs- þjálfari Dana, þjálfari ársins í heiminum. Listinn yfir tíu efstu í hveijum flokki er sem hér segir. Leikmenn: 1. Marco Van Basten, 2. Denn- is Bergkamp, Ajax, 3. Peter Schmeichel, Man. Utd., 4. Thomas Hassler, Roma, 5. Brian Laudrup, Piorentina, 6. Ronald Koeman, Barcelona, 7. Ally McCoist, Ran- gers, 8. Frank Rijkaard, AC Milan, 9. Rai, Sao Paulo, 10. Tomas Brol- in, Parma. Liðin: 1. Landslið Danmerkur, 2. AC Milan, 3. Barcelona, 4. Sao Paulo, 5. Glasgow Rangers, 6. Brasilía, 7. Argentína, 8. Atletico Madrid, 9. Þýskaland, 10. Holland. Þjálfarar: 1. Richard Möller-Nielsen, Dan- mörku, 2. Johan Cruyff, Barcel- ona, 3. Fabio Capello, AC Milan, 4. Tele Santana, Sao Paulo, 5. Alfio Basile, Argentínu, 6. Howard Wilkinson, Leeds, 7. Walter Smith, Glasgow Rangers, 8. Bora Milut- inovic, Bandaríkjunum, 9. Carlos Parreira, Brasilíu, 10. Egil Olsen, Noregi. UM HELGINA Handknattleikur taugardagur Bikarkeppni karla - 8-Iiða úrslit: Vestm.: IBV-Valur...................16 Bikarkeppni kvenna - 8-liða úrslit: Austurberg: Fylkir - Fram........12.30 Vestm.: ÍBV-Valur...................14 Kaplakriki: FH-Grótta............16.80 Víkin: Vlkingur - Stjaman........16.30 Sunnudagur Bikarkeppni karla - 8-Iiða úrslit: Selfoss: Selfoss - Fram.............20 Sehj’nes: Grótta - Vfkingur.........20 KA-húsið: KA-Haukar.................20 2. deild karla: Austurberg: Fylkir-KR............. 20 Digranes: UBK-Uölnir................20 Varmá: UMFA-ÍH......................20 Keflavik: HKN-Ögri..................20 Körfuknattleikur Laugardagur 1- deild kvenna: Örindavlk: UMFG-UMFN................14 Hagaskóli: KR-ÍBK............... 14 1- deild karla: Sandgerði: Reynir-UMFAk........... 14 Sunnudagur Bikarkeppni karla - 8-liða úrslit: Borgarnes: UMFS-KR..................18 Bigranes: UBK-ÍBK...................17 %kkish.: Snæfell - Valur............20 Sauðárkrókur: UMFT - UMFN...........20 Bikarkeppni kvenna: Sauðárkrókun UMFT-ÍBK...............17 Kennaraháskóli: ÍS-KR...............20 Blak Lúugardagur V deild karla: Asgarður. Stjaman-KA................16 Sunnudagur 1- deild karla: Higranes: HK-ÞrótturR...............14 J* deild kvenna: Bigranes: HK-Víkingur............16.15 “adminton Svonefnt Ljúflingamót í badminton verður haldið [ TBR-húsinu á morgun, sunnudag °e hefst 10. Keppt verður f flokki stráka °8 stelpna fæddum 1982 og sfðar. Keppt er ' einliðaleik. Skráning fer fram á staðnum, Júdó Llandsmót í sveitakeppni í júdó 21 árs og yngri fer fram í KA-húsinu á Akureyri í dag- Keppni hefst kl. 10 og mun standa ynr fram eftir degi. PELAGSLIF i BingóhjáFram Ffamarar verða með sitt árlega jólabingó fyrir alla fjölskylduna I félagsheimili Fram við Safamýri á morgun, sunnudag, kl. 15. Margir idœsilegir vinningar eru í boði. Spil- aðar verða fímmtán umferðir. IMýr átján holu gotfvöll- ur í landi Korpútfsstaða JÚLÍUS Hafstein, borgarfulltrúi og formaður íþrótta- og tómstundar- áðs, sagði á aðalfundi GR í fyrrakvöld að framkvæmdir við nýjan 18 holu golfvöll Golfklúbbs Reykjavíkur í landi Korpúlfsstaða hæf- ust strax á næsta ári og að völlurinn yrði tekinn í notkun innan tveggja ára. Guðmundur Bjömsson, fráfar- andi formaður GR, sagði við Morgunblaðið að það væri fyrir löngu komin þörf fyrir annan golf- völl því völlurinn í Grafarholti væri mjög ásetinn. „Þetta er mjög skemmtilegt land og myndarlegt af borginni að láta það undir golfvöli," sagði Guðmundur. Nýji völlurinn á að liggja utan um 9 holu æfingavöllinn sem fyrir er í landi Korpúlfsstaða, en verður lagð- ur niður við tilkomu nýja vallarins. Nýji völlurinn á að liggja niður að árósnum og framhjá gömlu gijótná- munni. Að sögn Guðmundar er hug- myndin sú að völlurinn liggi um- hverfís menningarmiðstöðina, sem verður í Korpúlfsstaðahúsinu, en þar verður Errósafn Reykjavíkurborgar til húsa sem kunnugt er. Ætlunin er að landið verði einnig nýtanlegt til annarra nota og þar verði t.d. reiðstígar og göngustígar — einskonar íjölnota íþrótta- og úti- vistarsvæði. Teikningar af fyrirhuguðum golf- velli GR í landi Korpúlfsstaða hanga nú uppi í klúbbhúsinu I Grafarholti. Áður voru hugmyndir uppi um að byggja völl á Keldnalandi eða á gömlu sorphaugunum í Gufunesi, en fallið hefur verið frá því. HANDKNATTLEIKUR Morgunblaðið/Ámi Sæberg Bjarkl Slgurösson mátar hér nýjar spelkur og fær aðstoð frá Sveini Finnbogasyni, einum eiganda Stoðar. Bjarki prófar nýjar spelkur BJARKI Sigurðsson, landsliðsmaður úr Víkingi, sleit krossbönd í hægra hné í landsleik gegn Spáni 2. júlí, eða fyrir sex mánuðum og hefur ekkert leikið síðan. Hann er nú óðum að ná sér eftir meiðslin og reiknar með að leika með Víkingum í 1. deildinni 6. janúar. Bjarki er nú með sérhannaðar þandarískar spelkur frá fyrirtækinu Stoð á hægri fæti. „Ég er hálfgert fómardýr fyrir þessar spelkur sem ekki hafa verið reyndar hér á landi áður. Ég ætla að prófa þær næstu vik- umar og síðan gef ég þeim hjá Stoð skýrslu um hvemig þetta kemur út,“ sagði Bjarki. Hann sagðist bjartsýnn á gott gengi Vík- ings þó svo að meiðsli hafí komið illa niður á liðinu að undanfömu. Birgir Sigurðsson sleit krossbönd í hægra hné, eins og Bjarki, fyrir skömmu og Gunnar Gunnarsson, þjálf- ari liðsins og leikstjómandi, á einnig við hné- meiðsli að stríða og gat ekki leikið gegn Þór í síðasta deildarleik - kom aðeins inná til að taka víti. „Ég var kallaður inní Víkingsliðið á dög- unum sem fyrirliði fyrir Birgi, en hef þó ekk- ert spilað með liðinu. Það er undir þjálfaran- um komið hvort ég spila gegn Gróttu í bikar- keppninni um helgina, en ég stefni á að byija að leika strax eftir áramótin," sagði Bjarki. Leikmenn FH greiða sekt - fýrir að mótmæla dómi ÆT Islandsmeistarar FH hafa tekið upp nýja fjáröflun á meðal leikmanna liðsins. Ef leikmaður FH er rekinn útaf I leik fyrir að mótmæla dómgæslu verður hann að greiða kr. 1.000 í sekt. Peningamir renna ( „menn- ingarsjóð" leikmanna eins og Kristján Ara- son, þjálfari, orðaði það. Eftir leikinn gegn ÍBV í vikunni runnu 2.000 krónur f sjóðinn, og komu þær frá þjálfaranum og Pétri Peters- en. Kristján sagði að þetta væri gert til að reyna að koma í veg fyrir að leikmenn liðsins væru að þrasa við dómara. KORFUKNATTLEIKUR John Taft til liðs við Val Keppnisleyfi fyrir Damon Lopez hjá Snæfelli ekki komiðfrá Alþjóða körfuknattleikssambandinu Valsmenn hafa fengið nýjan Bandaríkjamann til liðs við sig. Það er blökkumaðurinn John Taft, 24 ára bakvörður frá Ala- bama. „Þegar Franc Booker meiddist fórum við á fulla ferð að útvega okkur nýjan leikmann fyrir bikarieikinn gegn Snæ'- felli,“ sagði Guðmundur Sigur- geirsson, formaður körfuknatt- leiksdeildar Vals. Taft, sem er ipjög fjölhæfur leikmaður og skytta góð, kemur til landsins I dag og hefur fengið leyfí til að leika með Valsmönn- um, þannig að hann getur leikið bikarleik þeirra gegn Snæfelli í Stykkishólmi á morgun. „Maður getur ekki verið öruggur fyrr en leikmaðurinn er kominn til ís- lands. Þetta hefur gengið hratt og er algjört happdrætti hvort að leikmaðurinn falli inn í lið okkar,“ sagði Guðmundur. Kepphisleyfí fyrir Bandaríkja- mannin Damon Lopez hjá Snæ- felli var ekki komið í gær frá Alþjóða körfuknattleikssam- bandinu, FIBA. KKÍ fékk síin- bréf frá Bandaríkjunum í gær- köldi, en það sem stóð á var að fá mann til að fara inn á skrif- stofu FIBA til að senda keppnis- leyfíð síðan áfram til Körfu- knattleikssambands íslands. Snæfellingar höfðu góðar vonir um að það tækist þannig að Lopez geti leikið með þeim gegn Vad á morgun. Þess má geta að Lopez braut körfuhring á fyrstu æfingu sinni hjá Snæfelli, þegar hann tróð knettinum I körfuna. KNATTSPYRNA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.