Morgunblaðið - 05.05.1994, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 05.05.1994, Blaðsíða 52
52 FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR KORFUKNATTLEIKUR Fjonr nýlioar í landsliðinu Undirbúningur hafinn fyrir undankeppni EM TORFI Magnússon, landsliðs- þjálfari í körfuknattleik, til- kynnti í gær liðið, sem tekur þátt í Polar-Cup í Svíþjóð í næstu viku, og eru fjórir nýliðar í hópnum. Landsliðið verður með í Promotion-keppninni í byrjun júní og eru þessi mót fyrsti liður í undirbúningi liðs- ins fyrir undankeppni EM að ári. Island er í riðli með Eistlandi, Finnlandi og Svíþjóð B á Polar- Cup, sem verður í Stokkhólmi 12. til 15. maí, en í hinum riðiinum eru Litháen, Svíþjóð, Danmörk og Nor- egur. Promotion-keppnin verður í Dublin á írlandi 4. til 8. júní og þar er ísland í riðli með Kýpur, And- orra og Gíbraltar, en í B-riðli eru Irland, Lúxemborg, Malta og Wal- es. 20 til 27 þjóðir leika um 10 sæti í undankeppni EM, sem verður í maí og júní á næsta ári, en áður komust aðeins fjórar þjóðir áfram. í undanúrslitakeppninni leika' 30 þjóðir og verður leikið í fimm sex liða riðlum heima og að heiman keppnistímabilin 1995-96 og 1996-97, en tvær efstu þjóðirnar í hveijum riðli komast í úrslitakeppni Evrópumótsins 1997. Þær 11 þjóð- ir, sem verða í 2. til 12. sæti í úr- slitakeppni EM 1995, leika einnig í undanúrslitum næstu EM sem og þær 10 þjóðir, sem verða í 3. og 4. sæti í riðlum undanúrslitakeppn- innar 1995. Eftirtaldir ieikmenn skipa lands- liðið, sem leikur í Svíþjóð, landsleik- ir tii hægri: Jón Kr. Gíslason, ÍBK................131 Valurlngimundarson, UMFN.............141 Guðmundur Bragason, UMFG..............82 TeiturÖrlygsson, UMFN,................64 Guðjón Skúlason, ÍBK,.................58 Jón Amar Ingvarsson, Haukum...........39 Nökkvi Már Jónsson, UMFG,.............28 Kristinn Friðriksson, ÍBK,.............4 Hermann Hauksson, KR...................0 Hjörtur Harðarson, UMFG................0 Brynjar Karl Sigurðsson, Val...........0 Marel Guðlaugsson, UMFG................0 Landsliðið mætir úrvaisliði, sem Ingvar Jónsson valdi, í Garði í kvöld kl. 20. Þessir eru í úrvalsliðinu: Einar Einarsson, ívar Ásgrímsson og Eggert Garðarsson úr ÍA. Pétur Ingvarsson og Sigfús Gizurarson frá Haukum. Joe Wright, Friðrik Ragnarsson UMFN, Bárður Eyþórsson Snæfelli, Bragi Magnússon og Ragnar Þór Jónsson frá Val og KR-ingarn- ir Davíð Grissom og Ólafur Ormsson. VALUR Ingimundarson er landsleikjahæstur íslendinga í körfuknattleik. Kvennalið til Luton ^Jigurður Hjörleifsson, þjálfari unglingalandsliðs kvenna í körfuknattleik, hefur valið tólf stúlkur til að leika með liðinu á fjögurra þjóða móti í Luton, sem hefst á morgun. Auk íslenska liðs- ins taka lið frá Englandi, írlandi og Wales þátt í mótinu. Landsliðs- hópurinn er þannig skipaður: Anna Dís Sveinbjörnsdóttir, Grindavík, Auður Jónsdóttir og Hólmfríður Karlsdóttir, Njarðvík, Erla Reynisdóttir og Erla Þor- steinsdóttir, Keflavík, Birna Val- garðsdóttir, Tindastóli, Elín Harð- ardóttir og Kristjana Magnúsdótt- ir, Val, Erla Hendriksdóttir og Hildur Ólafsdóttir, Breiðabliki, Kolbrún Pálsdóttir og Helga Þor- valdsdóttir, fyrirliði, KR. íslenska liðið leikur gegn írlandi á morgun, Englandi á laugardag og Wales á sunnudag. Héðinn Gunnarsson, dómari, fer út með liðinu, en hann dæmir á mótinu. í kvöld Handknattleikur 1. deild karla 2. leikur um bronsið: Víkin: Víkingur-Selfoss...20 Meistaramir áfram SCOTTIE Pippen skoraði sigurkörfu Chicago í framlengdum leik gegn Cleve- land. Hann hefur leikið mjög vel með Chicago í úrslitakeppninni. MEISTARARNIR í Chicago Bulls tryggðu sér sæti í undan- úrslitum Austurdeildar NBA í fyrri nótt og sýndu jafnframt að þeir eru til alls líklegir án Michaels Jordans. Bulls vann Cleveland 95:92 eftirfram- lengdan ieik og sigraði því 3:0. Þetta er fjórða árið í röð sem félagið slær út mótherja sinn í 8-liða úrslitum án þess að tapa leik og í fimmta sinn á sjö árum sem Bulls slær Cleveland út í úrslitakeppni. Scottie Pippen var hetja Chicago, gerði 23 stig og skor- aði körfuna sem tryggði sigurinn í framlengingunni, en staðan var jöfn eftir venjulegan prj leiktíma, 90:90. Gunnari „Vörnin hjá okkur Valgeirssyni var betri og það réði i Bandaríkjunum úrslitum," sagði Pippen,. sem tók einnig 11 fráköst og átti sex stoð- sendingar. Meistararnir leika í und- anúrslitum Austurdeildar við sigurliðið úr viðureign New York og New Jersey. Chris Mills bætti eigið stigamet er hann gerði 25 stig fyrir Cleveland í leiknum og Mark Price gerði 22. Cleveland lék án Brad Daugherty, Larry Nance og John Williams, sem allir eru meiddir. Miami Heat sigraði Atlanta Hawks 90:86 og tók óvænta for- ystu 2:1. Ef Miami kemst áfram verður það í fyrsta skipti síðan úr- slitakeppnin hóf göngu sína fyrir 48 árum að lið sem kemst í úrslita- keppnina. í 8. sæti, slær út lið sem kemur inn í 1. sæti. Steve Smith var besti leikmaður í Miami, gerði 25 stig. Miami á nú góða möguleika á að komast áfram því næsti leikur verður á heimavelli annað kvöld. Glen Rice gerði 19 stig fyrir Miami og Rony Seikaly, sem lék í stað Grant Long sem tók út leikbann, gerði 12 stig og tók 20 fráköst. Craig Ehlo var bestur í liði Hauk- anna með 20 stig. „Þetta var stór- kostlegur sigur og mikilvægur, en við höfum ekki unnið neitt enn,“ sagði Kevin Loughery, þjálfari Miami. Vesturdeild Portland heldur enn í vonina um að komast áfram í úrslit Vestur- deildar eftir 118:115 sigur á Houst- on Rockets á heimavelli. Rod Strick- land gerði 25 stig fyrir heimamenn og átti 15 stoðsendingar. Hakeem Olajuwon gerði 36 stig fyrir Rock- ets og hefur nú skorað 108 stig í fyrstu þremur leikjunum í úrslita- keppninni. Næsti leikur fer fram í Portland. Karl Malon gerði 24 stig og tók 13 fráköst er Utah Jazz sigraði San Antonio Spurs auðveldlega 105:72 — náði mest 30 stiga mun. Utah hefur yfir, 2:1, og á næsta leik heima. Jeff Hornacek gerði 15 stig og John Stockton 13 og átti 12 stoðsendingar fyrir Utah. David Robinson, sem var stigahæstur í deildarkeppninni, var haldið niðri í 16 stigum. Hann hitti aðeins úr átta skotum af 21. Dennis Rodman lék ekki með Spurs vegna leik- banns, en hann lét sér ekki leiðast þó að hann hafi greitt 710 þús. ísl. kr. í sekt — því að það sást til hans ganga út af hóteli ásamt söngkon- unni frægu Madonnu í fyrrinótt. Webber nýliði ársins Chris Webber hjá Golden State Warriors hefur verið útnefndur ný- liði ársins í NBA-deiIdinni og Jim Lynam var í gær ráðinn aðalþjálf- ari hjá Washington Bullets í staðinn fyrir Wes Unseld, sem sagði upp eftir síðasta leik liðsins í deildar- keppninni. Unseld verður áfram varaforseti félagsins. KFÍ sigraði í 2. deild KFÍ frá ísafirði sigraði í úrslita- keppni 2. deildar sem fram fór á ísafirði um síðustu helgi og leikur því í 1. deild næsta keppnis- tímabil. ísfirðingar hafa aldrei áður leikið í 1. deild. KFÍ vann Þór frá Þorlákshöfn í úrslitaleik 75:48, en þau færast bæði upp í 1. deild. Selfoss sigraði UMF Stafholts. 88:57 í leik um þriðja sætið. Leikið var í tveimur 4-liða riðlum. Úrslit voru sem hér segir: A-riðill: KFÍ-Seltoss.....................87:50 Selfoss - Laugar...................82:65 Laugar - KFI......................100:70 ■Árvakur mætti ekki. B-riðill: Þór Þorlákshöfn - ÍH...............74:58 UMF Stafholts. - Þrymur............80:55 Þór-Þrymur.........................77:65 UMF Staf - Þór.....................84:59 ÍH - UMF Stafholts.................80:55 ÍH - Þrymur.......................64:51 Þar sem fyrirhugað er að fjöiga í úrvals- deildinni næsta vetur úr 10 í 12 lið má búast við að Selfyssingar flytjist einnig upp í 1. deild með KFÍ og Þór. Eins hefur heyrst að Léttir verði ekki með lið í 1. deildinni næsta vetur. Morgunblaðið/Þorkell KR Reykjavíkurmeistari kvenna KR-STÚLKUR tryggðu sér Reykjavíkurmeistaratitilinn í knattspyrnu í gær- kvöldi með 1:0 sigri gegn Val, en KR vann fyrri leik liðanna 5:3. Helena Ólafs- dóttir, fyrirliði, gerði eina mark leiksins stundarfjórðungi fyrir leikslok og hér er hún með sigurlaunin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.