Vísir - 16.06.1964, Blaðsíða 1

Vísir - 16.06.1964, Blaðsíða 1
VÍSIR 54. árg. - Þriðjudagur 16. júní 1964. - 135. tbl. 211STUDENTAR BRAUTSKRAÐIR FRÁ M. Menntaskólanum i Reykjavík var sagt upp í gær. Voru 211 nýstúd- entar brautskráöir, en það er Iang hæsta stúdentatala við íslenzkan menntaskóla. Hæstu einkunn við stúdentspróf hlaut Jakob Ingva son, 1. ágætiseinkunn 9,62. í skólaslitaræðunni gat rektor þess, að í haust yrði byggingu bráðabirgðarhúsnæðis við Bók hlöðustíg lokið. Þar verða 6 nýjar kennslustofur, aðallega fyrir raun- visindi og einnig bókasafn og mála kennslu. Þrátt fyrir þetta nýja hús- næði verður að nota Þrúðvang við kennslu í vetur og verður svo þar til hinn nýi Menntaskóli rís af grunni f Litluhlið, en áætla má að fyrsta áfanga þeirrar byggingar verði Iokið haustið 1965. Þakkaði R. rektor sérstaklega forsætisráð- herra, fjármála. og menntamálaráð herrum, velvild þeirra, ríkisstjórnar og alþingis í garð skólans. í vetur hófu 903 nemendur nám í Menntaskólanum, en 637 luku árs prófum í vor. 573 stóðust árspróf, en hæstu einkunn hlaut Borghild- ur Einarsdóttir 5 bekk C, 1. ágæt- iseinkunn 9,28. Stúdentsprófum lauk 13. júní. Undir stúdentspróf gengu 212 nemendur, 99 í stærð- fræðideild og 112 í máladeild. Einn Iauk ekki prófi nú. 5 hlutu ágætis- einkunn, 93 1. einkunn, 97 2 eink- unn og 16 3. einkunn. Hæstu eink- unn í stærðfræðideild hlaut Jakob Ingvason 1. ágætiseinkunn 9,62, en í máladeild Sigurður Pétursson, 1. einkunn 8,90. Þessar fimm blómarósir eru meðal þeirra 211 nýstúdenta, sem settu upp stúdentshúfuna í Háskóla- bíói í gær. Stúlkurnar á myndinni heita Sigríður Ragna Sigurðardóttir, Margrét Schram, Sigríður E. Magnúsdóttir, Margrét S. Sæmundsdóttir og Sigrún Dungal. Myndina tók I. M., ljósmyndari Vfsis á Háskólalóðinni í gær, eftir að skólaslit Menntaskólans höfðu farið fram. SILDIN: mál veiddust síðustu — en ekkert á sama tíma í fyrra Bíllinn fór / loft- köstum yfír ána Fyrsta síldarskýrslan hefur nú verið birt á þessu sumri, og er það viku fyrr en í fyrra. í síðustu viku bárust á land 154.262 mál og tunn ur, en á sama tíma í fyrra hafði ekkert veiðzt Er það góð byrjun. í skýrslunni segir, að um 250 skip stundi veiðarnar í sumar og séu velflest þegar komin á miðin. Hins vegar kemur afli einstakra skipa ekki fram í skýrslunni, svo sem venja hef- ur verið. Er það samkvæmt til- mælum samgöngumálaráðuneyt- isins, byggt á tillögu Sjóslysa- nefndar, sem óttast að hin harða keppni um efstu sætin í aflaskýrslunni geti dregið dilk á eftir sér. Utan 3500 tunna, hefur öll síldin, sem veiðzt hefur, farið í bræðslu. Hæstu löndunarhafnir eru nú Siglufjörður með 42.143 mál og Raufarhöfn með 65.294 mál. Bræla var enn á síldarmiðun- um í gær og héldu flestir bát- anna kyrru fyrir. Veður fer þó skánandi og í morgun lóðaði Sólfaxi á síld aðeins 60 mílur frá Raufarhöfn. Var vitað um allmarga báta, sem stefndu til þess staðar nú í morgun. Til Siglufjarðar komu eftir- taldir bátar með síld f gær: Mar grét 600, Jón Finnsson 522, Sig fús Bergmann 400, Hafrún 440, Sólfaxi 1200, Guðrún 548, Sif 500, Sigurbjörg 128, Hrafn Svein bjarnarson II. 476, Áskell 322, Guðbjörg 172, Hamarsvík 798. Á sunnudagsmorguninn varð'bif- reiðarslys í Leirársveit í Borgar- firði og var aðkoman á slysstaðinn svo ljót að hrein undur mega heita að ekki skuli hafa orðið banaslys. Slysið mun hafa skeð nálægt kl. 7 um morguninn við Geldingá eða Skarholtslæk gegnt bænum Skar- holti í Leirársveit. Ökumaðurinn, sem var allmjög undir áhrifum á- fengis hitti ekki brúna, mun þó hafa lent á brúarstöplinum og við það virðist bíllinn hafa tekizt á loft og senzt yfir ána. Hafnaði hann á toppnum hinum megin árinn ar, sneri þá í sömu átt og hann kom úr. 1 bifreiðinni voru þrír menn, allir frá Akranesi. Höfðu þeir farið um nóttina upp að Hvanneyri, en voru á leið þaðan aftur þegar þeir lentu Framh. á bls. 6 BLAÐLD I DAG BIs. 3 Stúdentar útskrif- ast. — 4 Leikdómur um hið nýja leikrit Odds Björnssonar. — 7 Kröfuhafar, leikrit Þjóðleikhússins. - 8 Heimsókn í Síldar- verksmiðjuna á Raufarhöfn. - 9 Þrir áfangar í sjáif- stæðisbaráttunni. Brezkir togaramenn mótmæla veii- um íslendinga / landhelgi Fishing News segir að megn óánægja og reiði sé nú ríkjandi í Grimsby vegna þess, að menn telja þar, að islenzkir togarar, sem þangað koma hafi fengið afla sinn innan íslenzkrar landhelgi, það er af miðum, sem brezkir togarar hafa verið reknir af. Sérstaklega segir blaðið að til vandræða hafi horft í fyrri viku, þegar togaramir Fylkir Og Surprise seldu þar afla sinn. Fylkir var með um 180 tonn sem hann seldi á 13 þúsund pund og Suprise með 120 tonn sem seldist á 11 þúsund pund og er það hátt meðalverð. Sérstak- Iega er þess getið að Fylkir hafi verið með um 90 tonn af ýsu, sem skortur hefur verið á í Englandi. Formaður félags yfirmanna á togurum í Grimsby John Hobbs sendi við komu þessara Islenzku togara mótmæli til brezka fiski- málaráðuneytisins og um það sagði hann m. a.: „lslendingar Framhald á bls. 6 I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.