Uppeldi og menntun - 01.01.2007, Blaðsíða 53
53
SVANBORG R. JÓNSDÓTTIR
Nýsköpunarmennt í íslenskum grunn-
skólum
Í þessari grein er fjallað um rannsókn á útbreiðslu nýsköpunarmenntar á Íslandi þar sem skoðað
er hvaða innri og ytri þættir hafa áhrif á framgang hennar. Rannsóknin var byggð á spurninga-
könnun sem var send til allra grunnskóla á Íslandi veturinn 2003 –2004. Frekari upplýsinga
var aflað með þátttökuathugunum og viðtölum við ýmsa aðila sem hafa áhrif á framkvæmd ný-
sköpunarmenntar og hafa reynslu af henni: nemendur, kennara, skólastjórnendur, starfsmenn
menntamálaráðuneytis og frumkvöðla í nýsköpunarmennt. Einnig voru skoðaðar skýrslur, lög,
námskrár, námsefni og afurðir úr nýsköpunarkennslu. Í greininni er fjallað um námskrár-
fræði enda stuðst við hana til að greina niðurstöður rannsóknarinnar. Meginniðurstaða rann-
sóknarinnar er að nýsköpunarmennt hafi ekki náð fótfestu í íslensku skólakerfi. Þeir þættir
sem virðast hafa áhrif á framkvæmd námskrár í nýsköpunarmennt eru hlutverk nýsköpunar-
kennarans og nemenda ásamt kröfum til beggja aðila, starfskenningar kennara, skólamenning,
stuðningur skólastjóra, námsmat, bóknámstilhneiging, kennaramenntun, aðgangur að upp-
lýsingum og námsefni. Það sem virðist hamla framgangi nýsköpunarmenntar eru áhrif hinnar
svokölluðu duldu námskrár. Mikilvægt er að koma auga á og viðurkenna undirliggjandi þætti,
sem tilheyra hinni duldu námskrá og horfast í augu við áhrifavald þeirra ef gera á hina form-
legu námskrá skilvirkari.
INNGANGUR
Frumkvöðlar nýsköpunarmenntar hér á landi skilgreina hana á eftirfarandi hátt: „Ný-
sköpun er hugmyndavinna barna sem felur í sér að finna lausnir á þörfum og vanda-
málum eða að endurbæta það gamla og gera eitthvað með það“ (Gísli Þorsteinsson og
Rósa Gunnarsdóttir, 1996, bls. 3). Nýsköpunarmennt hefur verið að þróast í íslenskum
grunnskólum frá því um 1990 og kom fyrst fram í aðalnámskrá 1999.
Frá því að nýsköpunarmennt var tekin upp í skólastarfi um 1990 (Rósa Gunnars-
dóttir, 2001) hefur orðið nýsköpun verið notað yfir námsgreinina. Þeir sem ekki þekkja
til nýsköpunarkennslu í grunnskóla hafa gagnrýnt að orðið nýsköpun skuli notað yfir
tiltekna námsgrein þar sem orðið hefur mjög almenna merkingu (Svanborg R. Jóns-
dóttir, 2005). Ég hef því kosið að nota orðið nýsköpunarmennt um námsgreinina sem
hér er fjallað um.
Í nýsköpunarmennt er leitast við að ýta undir og örva sköpunargáfu barna með því
Uppeldi og menntun
16. árgangur 1. hefti, 2007