RITMENNT 10 |2005) 133-50 Vilboig Auður ísleifsdóttir Oddur norski og Nýja testamentið 1540 Isögu 16. aldar hefur jafnan stafað miklum ljóma - jafnvel helgiljóma - af Oddi Gottskálkssyni (d. 1556) og þýðingu hans á Nýja testamentinu á norræna tungu. Með þessu framtaki sínu gerðist Oddur einn mesti örlagavaldur í íslenskri sögu, þar sem kirkjan, helsta menntastofnun og bókaútgefandi landsins, notaði þetta mál og ruddi því brautina sem opinberu máli á íslandi á síðari tímum.1 í þessari grein verður varpað fram spurningum veraldlegs eðlis um tilgang þýðingar þessarar og útgáfu, úr hvaða umhverfi hún er sprottin, hvaða aðilar kunna að hafa fjármagnað hana og hverjir voru hugsanlegir kaupendur hennar. Líf í skugga diepsóttai 15. öldin var fremur óróasamt tímabil og sjálfsagt óyndislegt fyrir alþýðu manna, hvort heldur var á íslandi eða í Noregi, svartidauði nýafstaðinn í Noregi og margir dauðir. í upphafi aldarinnar barst sóttin til íslands og var mjög mannskæð. Mannlífið fór úr skorðum og stjórn íslensku biskups- dæmanna og biskupstólanna varð laus í reip- unum. Vígðir biskupar komu annaðhvort ekki til landsins, eins og t.d. Marcellus Skálholtsbiskup (1448-62),2 eða voru mis- indismenn, eins og t.d. Jón Gerreksson Skálholtsbiskup (1426-33) - nema hvort tveggja hafi verið. í Noregi höfðu danskir konungar Kalmar- sambandsins tekið við völdum og danskir aðalsmenn urðu lénsmenn yfir norskum lénum. Þessir aðalsmenn skrifuðu á þýsku- skotinni dönsku og töluðu hana væntanlega líka. Þeir áttu í mesta basli með að skilja norska undirsáta sína. I stórborgum þeirrar tíðar, t.d. í Björgvin, voru f jölmargir norður- þýskir kaupmenn, sem töluðu norður-þýsk- ar mállýskur. Norskir sveitamenn héldu að sjálfsögðu áfram að tala norrænu, en fram- burður mun sjálfsagt hafa verið breytingum í inngangi að sígildu riti sínu um málið á Nýja testa- menti Odds Gottskálkssonar gerir Jón Helgason grein fyrir stöðu verksins í íslenskri málsögu og bókmenntasögu og sambandi þess við þær útgáfur, sem Oddur þýddi úr, og við önnur guðsorðarit íslensk. Jón Helgason, Málið á Nýja testamenti Odds Gottskálkssonar, bls. 1-8. Sjá einnig: Páll Eggert Ólason, Menn og menntir siðskiptaaldarinn- ar á Islandi, bls. 533-56. Um Marcellus Skálholtsbiskup, sjá: Björn Þorsteins- son, Ævintýri Marcellusar Skálholtsbiskups. 133