Réttur - 01.02.1926, Page 58
60
BRJEF TIL JUDDS
[Rjettur
vorum, og áhrifamesta vopnið í þeim hildarleik er tískan,
hugsunarlaus breyting á hverri árstíð, svo að við fyrirverðum
okkur fyrir að vera í ársgömlum fötum, þó þau sjeu alger-
lega óslitin.
Þá er það ekki lítið, sem fer forgörðum fyrir mistök í
iðnaðinum. Hin svonefnda »Hoover-nefnd« verkfræðinga-
fjelaganna í Bandaríkjunum hefir rannsakað þetta atriði mjög
gaumgæfilega, og það er vert að taka eftir því, að þessi
nefnd vinnuveitenda lelur stjórn iðnaðarins eiga sök á 50°/o
mistakanna en verkafólkið aðeins á 25°/o. Peir áætla að í
fáeinum stærstu iðnaðargreinum eyði6t af mistökum það, sem
hjer segir: í málmiðnaði 28°/o, við stígvjela og skógerð
40°/o, við byggingar 53°/o, við prentun 57%, við klæðagerð
63%. Taktu vel eftir tölunni um byggingarnar, Judd. Jeg
er viss um, að þú skilur hvað hún þýðir. Hún þýðir það,
að af þessum 40 árum, sem þú hefir unnið að byggingum
hafa 21 farið til ónýtis, af þeirri einföldu ástæðu, að þeir,
sem stjórnuðu vinnu þinni, voru að hugsa um það, að græða
fje, en ekki um hitt, að byggja varanleg hús.
Mjög mikilvægt atriði í óþarfri eyðslu iðnaðarins eru iðju-
lausir menn og konur, sem ekkert geta fengið að gera. Jeg
lít svo á, að þetta sje grundvallarbölið, undirrót flestra ann-
ara meinsemda, og jeg held, að þetta böl verði ekki skilið
frá því fjárgróðaskipulagi, sem nú ríkir. Yrði það bætt,
mundi skipulagið hrynja til grunna. En nú skulum við fyrst
athuga það nákvæmlega, hversu mikil brögð eru að þessu böli.
Jeg vil benda þjer á það, Judd, að hvergi í þessu brjefi
hefi jeg tekið nokkra tölu eftir skýrslum eða ritúm jafnaðar-
manna. í hverju einasta atriði hefi jeg leitað »viðurkendra«
heimilda. Jeg sæki öll mín sönnunargögn til þeira heimild-
arrita, sem síst eru líkleg til að halla máli mjer í vil. Tölur
mínar um atvinnuleysið sæki jeg í rit, sem hefir verið undir-
búið og gefið út fyrir fje, sem fengist hefir af jarðeignum
einhvers hins auðugasta jarðeiganda og lánardrottins, sem
nokkurn tímann hefir beinin borið í New-York-borg. Jeg á
hjer við »Russel Sage Foundation*, og hjer kernur setningin,