Alþýðublaðið - 24.08.1975, Blaðsíða 1
Rftstjórn Slóumúla II - Slml 8IB66
— SUNNUDAGSLEIÐARINN—
|alþýðTi|
ÉH
VIDHORFI ALÞJÚDAMÁLUM
í stjórnmálabaráttunni er rás atburða gjarn-
an hröð, þróun mála er öll breytingum undir-
orpin, sem oftsinnis eru snöggar og hvassar.
Þetta á ekki sizt við um alþjóðamálin. Fyrir
aðeins skömmu siðan sátu fasistastjórnir við
völd i þrem rikjum Vestur-Evrópu, þ.e. Portú-
gal, Grikklandi og Spáni, og stjórnuðu með
ómjúkri hendi. Nú hafa þær jákvæðu breyting
ar orðið á stjórnarfarinu i Grikklandi, að lýð
ræðisstjórn hefur setzt þar að völdum: i
Portúgal var fasistastjórninni velt af stóli og
þótt kommúnisk/fasisk herforingjastjárn haldi
þar um stjórntauma i bili standa góðar vonir til
þess, að þjóðinni takist, undir leiðsögn
jafnaðarmanna, stærsta stjórnmálaflokks
Landsins að velta oki hennar af sér og koma
lýðræðislegri rikisstjórn á laggirnar. Fasista-
stjórninni á Spáni verður vonandi velt sem
fyrst og er þá mikið i húfi að rauður fasismi
kommúnista taki ekki við af hinum brúna,
heldur fái lýðræðislég stjórnmálaöfl völdin i
sinar hendur.
En það er ekki aðeins i stjórnmálum Evrópu,
sem breytingar hafa verið örar og hvassar,
skammt er um liðið frá því að grundvallar-
breytingar urðu á stöðu tveggja rikja i Suð-
Austur-Asiu. Árum og áratugum saman höfðu
styrjaldir staðið um stjórnarfar og yfirráð í
Kambódiu og Suður-Vietnam, sem lyktaði með
þvi, að Bandarikin og bandamenn þeirra urðu
undir, en þeir höfðu sigur, sem töldu sig berjast
fyrir sönnu þjóðfrelsi og lýðræði i þessum lönd-
um. Engu er að leyna um það, að hinir siðar-
nefndu nutu yfirleitt samúðar og stuðnings
vestrænna jafnaðarmanna. Auðvitað er ekki að
undra þótt viða verði ofsafengin átök i rikjum
Þriðja heimsins, jafnvel að til blóðugra átaka
og styrjalda komi: það hlýtur hver að gera sér
grein fyrir, er hugleiðir skelfilegt ástand i
löndum margra þessara þjóða, sem margar
eru, enn þann dag i dag, hroðalega arðrændar
af ýmsum ríkjum Vesturlanda og búa við hvers
kyns niðurlægingu af þeirra völdum. Jafnaðar-
menn um allan heim, einnig við hér á landi,
hljótum að hafa óskipta samúð með frelsisbar-
áttu þessarra þjóða hvort heldur er i Mið-og
Suður-Ameriku, Asiu eða Afriku, og leitast við
að veita þeim bæði siðferðilegan og efnislegan
stuðning i frelsisbaráttu þeirra, jafnvel þótt á
ýmsu bjáti. Endalok styrjaldaráíakanna i Suð-
Austur-Asiu hljóta einnig að kalla alveg sér
staklega á endurmat okkar islenzkra jafnaðar-
manna á gang mála i þróunarrikjunum.
Þröngur hagur þeirra og óskiptur stuðningur
okkar við þau og frelsishreyfingar þar hlýtur
að verða okkur leiðarljós i þvi endurmati.
Þegar litið er á þróun mála i Evrópu síðustu
árin er eftirtektarvert hve mjög hefur brugðið
til hins betra i samskiptum rikjanna i Austur-
og Vestur-Evrópu. Upphaf þess er að rekja til
hinnar merku og ómetanlegu baráttu, sem
vestur-þýzki Jafnaðarmannaflokkurinn undir
forystu Willy Brandt háði árum og áratugum
saman fyrir friðsamlegri sambúð og gagn-
kvæmri velvild í samskiptum Evrópurikjanna
i stað þess kalda striðs, sem afturhaldsöflin i
flokkum kristilegra demókrata og fasista í
Vestur-Evrópu vildu halda við lýði. Er nú svo
komið að stjórnmálaflokkar jafnaðarmanna og
verkalýðs i Vestur-Evrópu eru orðnir lang-
sterkasta stjórnmálaaflið þar. Á þingi Efna-
hagsbandalagsins eru jafnaðarmenn lang-
sterkasti og stærsti þingflokkurinn. Viðar en i
rikjum þess eru þeir þó stærsti eða næststærsti
stjórnmálaflokkur þessara þjóða, mörg önnur
Evrópuriki hafa eflt jafnaðarmenn til þjóðar-
forystu. Hafa þeir langmest fylgi allra stjórn-
málaflokka i Austurriki, Noregi og Sviþjóð að
öðrum Evrópurikjum ótöldum, SEG
—faiþýðu
I
SUNNUDAGSBLAÐ
Enn eitt gamla húsið i
Reykjavik hefur nú
verið dæmt og sekt
fundið. Þarna er um að
ræða Bergstaði A við
Kaplaskjólsveg, og er nú
skammt til aftökunnar
þar eð byrjað er að
grafa fyrir væntanlegu
fjölbýlishúsi allt i kring-
um það, þannig að þetta
gamla hús stendur orðið
á eyju i húsgrunninum.
Að sögn Gunnars
Kristjánssonar hjá
skipulagsstjóra var gert
ráð fyrir þvi i aðalskipu-
laginu, að þarna yrðu
eingöngu opinberar
byggingar, svosem
skóli, leikskóli og dag-
heimili. Þá var gert ráð
fyrir þvi, að á Eiðs-
granda yrði eingöngu
verksmiðjuhverfi, en nú
hefur verið ákveðið, að
þar verði ibúðarhverfi.
Á grundvelli þess var
sótt um þá breytingu á
aðalskipulaginu, að
þarna i krikanum milli
Kaplaskjólsvegar og
Ægissiðu, yrði i staðinn
blönduð byggð með
opinberri þjónustu,
þjónustu einkafyrirtækja
og ibúðarEúsum. Var
þessi tillaga skipulags-
deildarinnar samþykkt,
og á fundi borgarráðs sl.
þriðjudag var samþykkt
að heimila kaup á fyrr-
nefndum Bergsstöðum,
sem stendur þar sem á
að koma fjölbýlishús,
eins og fyrr segir.
Af ibúðarhúsum verða
á þessu svæði fjögur
raðhús, eitt þriggja
hasða fjölbýlishús og eitt
sjö hæða fjölbýlishús, af
þeirri gerð, sem nefnd
er ,,Punkthús”. Byrjað
er að reisa raðhúsin og
grafa fyrir öðru fjöl-
býlishúsinu. Ekki er
fullákveðið hvað verður
þarna af þjónustufyrir-
tækjum, en þó verður
liklega þarna leikskóli,
og bensinstöðin sem
fyrir er verður áfram,
og liklega sömuleiðis
dekkjaverkstæðið á
mótum Ægissiðu og
Hofsvallagötu.
Sunnudagur 24. ágúst 1975
o