Tíminn - 30.12.1944, Qupperneq 6

Tíminn - 30.12.1944, Qupperneq 6
486 TÍMlNiy, langardaginn 30. des. 1944 108. blað V i ð áramót Sextngur: Helgi Einarsson hreppstjóri á Melrakkanesi (Framhald af 3. siðu) lýðsins fyrir afstöðu okkar 1 dýrtíðarmálunum, sömu stefn- una og jafnaðarmenn hafa beitt sér fyrir í Svíþjóð, Ástralíu, Nýja-Sjálandi, Englandi og frjálslyndar stjórnir í Kanada og Bandaríkjunum. En þessi stefna er að fá fólkið til að skilja það, að það er bezt fyrir þjóðfélögin og hyggilegast fyrir allan almenning að halda dýr- tíðinni innan hæfilegra marka. Þessi stefna byggist á því, að fá fólkið til að skilja, að það er jafn mikils virði að hafa fáar stórar krónur milli handa eins og að hafa krónurnar fjórum sinnum fleiri, en að sama skapi verðminni. Til þess að þessi stefna fái sigrað, verður að beita stöðugum áróðri til að fá fólk til að skilja þetta og oft og einatt jafnvel hörðum tökum, eins og reynslan sýnir í Bretlandi og Bandaríkjunum m. a. Fjármálastefnan, sem hófst vorið 1942, er byggð á þeirri veilu í hugsun almennings, þeirri blekkingu, að honum finnst stöðugt, að hann hafi meiri verðmætum úr að spila, ef hann hefir fleiri krónur milli handa, án tillits til verðgildis.' Kommúnistar urðu fyrstir til að nota sér þessa villu almenn- ins í peningamálum. Jafnaðar- menn fetuðu í fótspor þeirra, og það var ekki óeðlilegt, þar sem Sjálfstæðismenn voru með stöð- ug yfirboð á takteinum. Sjálfstæðisflokkurinn hefir aðeins tvívegis stöðvað sjálfan sig í þessum málum öll þessi ár og það aðeins stutt tímabil. í fyrra skiptið eftir áramót 1942, er hann setti gerðardómslögin með Framsóknarflokknum. En þegar um vorið 1942 gafst hann upp og Ólafur Thors hefir viður- kennt það opinberlega, að hann hafi vorið 1942 orðið að kaupa því við kommúnista, að þeir styddu hann sem forsætisráð- herra gegn því, að hann lofaði þeim því að gera engan ágrein- ing í hinum stærri málum og sízt af öllu í dýrtíðarmálunum. Kom- múnistar fengu vorið 1942 sjálf- dæmi í dýrtíðarmálum þjóðar- innar. í byrjun ársins 1944 ætlar flokkurinn aftur að taka rögg á sig, samkv. áramótagrein for- manns flokksins. Þessari stefnu heldur flokkurinn í orði til 3. október í haust, að kommúnist- ar bjóðast að nýju til að styðja Óla'f Thors sem forsætisráð- herra. Þá er enn gefizt upp og tekin upp fjármálastefnan frá 1942. En hvers vegna beita jafnað- armannaforingjarnir þeir Cur- tin í Ástralíu, Bevin í Englandi og Per Albin Hanson í Svíþjóð sér svo eindregið gegn þeirri fjármálastefnu, sem verkalýðn- um hér á íslandi hefir verið talin trú um að væri honum ein til sáluhjálpar? Það er vegna þess, að sú fjár- málastefna, sem nú ríkir hér á landi, kemur að vísu hart niður á öllum þjóðfélagsþegnum, en hún kemur þó fyrst og harðast niður á verkalýðnum. Það er fyrir þessa sök, að allir fremstu forvígismenn verkalýðsins beita sér nú gegn sams konar fjár- málastefnu og nú ríkir á íslandi. VII. Þess gerist ekki þörf að ræða áhrif ríkjandi fjármálastefnu á framleiðsluna. Það hefir nýlega verið gert. Áhrif hennar á fjár- mál ríkisins hafa og verið rakin. Það er þegar orðið óframkvæm- anlegt að koma saman fjárlög- um fyrir ríkið með sæmilegum og heiðarlegum hætti. Fjárlög þau, sem samþykkt voru og gilda fyrir árið .1945, eru fölsk mynd. Þar er ekki talið til útgjalda ýmislegt, sem þar er þó skylt að telja samkvæmt landslögum. Framkvæmdir á að gera fyrir fé úr sjóðum, sem á að tæma, — í stað þess að nú í góðærinu ætti að verða hægt að auka þá og efla. —•• Nauðsynlegar fram- kvæmdir, svo sem áburðarverk- smiðja, kaup á strandferðaskipi og ræktunarmálin (ef ekki breytist viðhorf til þeirra frá því sem nú er) — allt þetta er stöðvað. Hið sanna er, að með því að halda áfram þeirri fjár- málastefnu, er lætur dýrtíð ó- hefta, er að verða útilokað að afla ríkissjóði tekna til nauðsyn- legustu framkvæmda — og fer ört versnandi. Þeim mönnum, sem þessu stjórna, hlýtur að vera það ljóst, að á þessari leið, sem valin var 1942 og nú er farin, getur aðeins orðið einn endir — hér eins og alls staðar annars staðar. VIII. Þessi fjármálastefna fyrir- byggir því þá grózku og ný- skipan í atvinnulífinu, sem flest- ar þjóðir stefna að eftir styrjöld (íslenzka ríkisstjórnin kallar nýskipan „nýsköpun". — Minna má það ekki heita). Ég hygg, að Framsóknarflokk- urinn hafi orðið til þess flokka fyrstur að vekja hugi manna fyrir nauðsynlegri nýskipan at- vinnumála hér á landi. í atvinnuyfirlýsingu 7. flokks- þings Framsóknarmanna er sett fram mjög glögg stefna í þessu máli. Flokksþingið telur, að landið ráði yfir nægum auðlindum til þess að veita öllum, er það byggja, fullnægjandi lífsnauð- synjar og lífsþægindi. Vísindalega þekkingu og full- komna nútímatækni verði að taka í þjónustu atvinnuveganna og verklegra framkvæmda. Atvinnuleysi beri að fyrir- byggja. Tryggja beri, að verka- menn fái sannvirði vinnu sinn- ar með því að styðja og efla samvinnu í verzlunar- og at- vinnumálum — sem og hluta- skipti og ákvæðisvinnu í sem flestum greinum. Síðan er í atvinnumálayfirlýs- ingunni rakið hverra aðgerða sé þörf til að ná greindu marki. Nú- verandi ríkisstjórn gerir ráð fyr- ir að kaup á nýjum tækjum sé höfuðatríði í svonefndri nýsköp- un. En í atvinnumálayfirlýsingu 7. flokksþings Framsóknar- manna er á það bent að atvinny- leysi kunni að verða áður en nægileg tæki til að auka fram- leiðsluna verði fáanleg. Þess vegna er sýnt fram á að undir- búa þurfi innanlands áætlanir, sem lítið erlent efni þarf til að framkvæma, en mikið vinnu- afl: Ræktun, vegi, hafnargerð- ir, flugvelli o. fl. Flestar þessar framkvæmdir eru og við það miðaðar, að þær búi í haginn fyrir framleiðsluna. Þetta er að sumu leyti líkt því, sem sænska ríkisstjórnin virðist ráðgera að haga málum þessum í Svíþjóð eftir styrjöldina. Hún hefir meðal annars látið gera áætlanir um yfirgripsmikla ný- rækt í sveitum og þorpum, sem hefja á ef útlit er fyrir atvinnu- leysi. Það kæmi mér ekkert á óvart, þótt nýbyggingarráð ætti eftir að reka sig á það, að sú nýskip- an atvinnumála, sem 7. flokks- þing Framsóknarmanna gerir áætlun um í stuttri en Ijósri at- vinnumálayfirlýsingu, sé öllu hyggilegri en síðari ráðagerðir um nýsköpun. IX. En það er fleira, sem verður að gera sér ljóst í sambandi við ný- skipan atvinnumála. Á miklum umrótstímum skap- ast óvissa. Afleiðingin er oft hik og ótti. Þetta hefir lamandi áhrif á framtak einstaklinganna. Það er því mjög nauðsynlegt — jafn- vel óhjákvæmilegt — að marka opinberum rekstri og einstakl- ingsframtakinu hvoru um sig ákveðið og öruggt athafnasvið í bjóðfélagi nýskipunarinnar. Flokksþing Framsóknarmánna gerði sér þetta atriði ljóst og segir í formála fyrir Tíðindum frá þinginu að byggja verði upp „með nægilega hraðri þróun fjármála- og framleiðslukerfi þar sem lýffræði og frjálst fram- tak eru hyrningarsteinar — þó án þess, að frá því sé vikið, að láta félagslegt eða lögboðið skipulag eða íhlutun hins opin- bera grípa inn í alls staðar þar sem þess er þörf — til þess að trygggja hag heildarinnar.“ En jafnframt er skýrt fram dregin nauðsyn þess „að marka opinberri íhlutun um atvinnu- rekstur það svið, sem nauðsyn krefst, vegna hagsmuna almenn- ings, og þar með veita einstakl- ingsframtakinu þá tryggingu og það öryggi, er gefur því vaxandi hvöt til starfa.“ Helgi Einarsson hreppstjóri Melrakkanesi í Geithellnahreppi varð sextugur 9. nóvember s. 1. Hann er fæddur að Smyrla- björgum í Suðursveit í Austur- Skaftafellssýslu. Árið 1907 kvæntist hann Sigþóru Guð- mundsdóttur og hóf búskap í Melrakkanesi sama ár, og þar hefir hann búið síðan við hinn mesta myndarbrag, bætt jörð sína stórum með margvíslegum framkvæmdum og búið rausnar- búi. Helgi er áhugasámur sam- vinnumaður og hefir jafnan staðið framarlega um félags- málastörf. Hann hefir um langt skeið verið í stjórn Kaupfélags Með þessu er stefnan skýrt mörkuð. Það hafa verið einkenni á stefnu flokkanna hér á landi í atvinnumálum, að verkamanna- flokkarnir vilja láta afnema einstaklingsframtakið, Sjálf- stæðisflokkur hefir viljað láta þjóðfélagið þjóna einstaklings- framtakinu, en Framsóknar- flokkurinn vill láta einstaklings- framtakið þjóna heildinni. í samningi ríkisstjórnarinnar er viðhöfð ný vinnuaðferð. At- vinnumálastefnu stjórnarflokk- anna er þar hrært saman í einn graut. Óljóst hvert stefnir. Ein- staklingurinn veit ekkert hvar hann stendur. Óljósar hótanir eru bornar fram í ræðum og blaðagreinum. Það eiga að vera sporarnir, sem knýja menn til framkvæmda. Én það er ekki valin sú leið, að marka þá stefnu, er veit- ir einstaklingnum sanngjörn starfsskilyrði og sæmilegt öryggi til þess að hann fái vaxandi hvöt til framkvæmda, og setja síðan einstaklingsframtakinu og félagsheildum undir ýmsum formum ákveðin takmörk og benda þeim á tiltekin verkefni, sem þeim er ætlað að fram- kvæma. Þannig mætti samræma einstaklingsframtak við skipu- íagt þjóðfélag — með almanna- hag fyrir augum. Reynslan mun skera úr um það á næstunni hvor aðferðin er happadrýgri. Berufjarðar og er nú formaður félagsins. Fyrir nokkrum árum var hinum forna Geithellna- hreppi skipt í tvo hreppa og var Helgi á Melrakkanesi þá skip- aður hreppstjóri Geithellna- hrepps, en um sveitarstjórnar- mál hefir hann fjallað árum saman. Þannig hafa hlaðizt á Helga hin margvíslegustu trún- aðarstörf, enda vita menn, að því er vel borgið, sem hann tekur að sér. Þeir eru margir, sem óska Helga á Melrakkanesi allrar far- sældar á þessum tímamótum í ævi hans og þakka honum fyrir unnin störf. X. X. En stórar framkvæmdir í at- vinnumálum verða að hvíla á traustum fjárhagsgrunni, ella verða þær aldrei að veruleika, eða hrynja á skömmum tíma. Samkeppnisþjóðir okkar íslend- inga um markaði munu eigi síð- ur en við nota tækni og vísindi í þágu framleiðslunnar. Meðan verðlag innanlands og kaupgjald er hærra en hvarvetna annars staðar verður nýskipan fram- leiðslunnar aðeins frómar ráða- gerðir. Flokksþing Framsóknarmanna benti á, „að niðurfærsla afurða- verðs og kaupgjalds verði að miðast við það, að útflutningur 'andsmanna stöðvist ekki“. Samhliða niðurfærslunni verði að skattleggja stríðsgróða yfir visst Jágmark. Án þessarar niðurfærslu verður þjóðin líkust sjúklingi með opna og blæðandi slagæð í höndum lækna, sem ekki vilja fram- kvæma nauðsynlega aðgerð, vegna þess, að það kostar lítils- háttar sársauka í bráð. Þeir segjast ætla að bíða og sjá til hve lengi sjúklingurinn þolir blæðinguna. Það eitt væri heiðarlegt af nú- verandi ríkisstjórn og stuðn- ingsmönnum hennar að segja eins og er, — að sú stefna, sem stjórnin hafi tekið, sé raunveru- lega óframkvæmanleg. Bið á því að breytt sé um Sextugur: Þorsteinn Þorsteinsson r bóndi á Asmundarstöðum Hinn 13. október varð Þor- steinn Þorsteinsson bóndi á Ás- mundarstöðum 60 ára. Hann er sonur merkishj ónanna Ingi- gerðar Runólfsd. og Þorst. Þor- steinssonar, sem lengi bjuggu fyrirmyndarbúi á Berustöðum. Þorsteinn var næstelztur af 13 börnum, er þau Ingigerður og Þorsteinn áttu. Eru 10 þeirra enn á lífi. Hann ólst upp hjá for- eldrum sínum og mótaðist þar af hinni hollu og haldgóðu heimilismenningu íslenzkra sveitaheimila, í árvekni, þrifn- aði, reglusemi og hagsýni. Hefir honum orðið þetta gott vega- nesti, sem hann hefir kunnað að meta og varðveita,. enda er það eini skólinn, sem hann hefir gengið í, annar en lítilfj örleg umgangskennsla fyrir ferming- una. Árið 1917 kvæntist Þorsteinn Sigríði dóttur hinna velþekktu heiðurshjóna Guðrúnar Hannes- dóttur og Ólafs Jónssonar hreppstjóra á Austvaðsholti. Reistu þau þá bú að Króki í Villingaholtshreppi og bjuggu þar til 1919, að þau fluttu þaðan vegna mikilla veikinda Þorsteins, sem hann fékk upp úr spönsku veikinni 1918. Fluttu þau þá að Austvaðsholti. Þar lá Þorsteinn rúmfastur í 2 ár, í 3 ár hafði hann fótavist, en gat ekkert unnið, sem vinna hét. Árið 1925 keypti Þorsteinn hálfa jörðina Ásmundarstaði í Ásahreppi. Hófst hann þá þegar handa um framkvæmdir með að bæta jörð- ina: slétta túnið, stækka það, ræsa og girða það og éngjarnar. Hann hefir byggt gott íbúðar- hús, heyhlöður, og fénaðarhús. Er allt þetta vandað og vel af hendi leyst, því að hann er verk- laginn og vandvirkur. Þorsteinn og Sigríður kona hans eru bæði mjög heilsubiluð og hafa alltaf átt við mikinn las- ' leika að stríða. Eru það mestu undur hverju þau hafa afkastað 1 og til leiðar komið. Fyrir sam- ! eiginlegan áhuga og ósérhlífni hefir þeim vegnað vel. Þau hafa verið samhent í að skapa sér gott og jnyndarlegt heimili, þar sem ráðdeild, reglusemi og prýðileg umgengni, utan húss og innan, skipa öndvegi og allir, er að garði bera, njóta andlegrar og líkamlegrar hressingar. Bændastétt landsins er sómi og styrkur að slíkum heimilum og þeim mönnum, er þeim stjórna, sem í orði og verki sýna trú sína á land og þjóð og með áhuga og dugnaði hvetja aðra til bættrar ræktunar og aukinna afkasta og sýna með starfi sínu, að það er hægt að laga og unibæta margt, er við kemur hinu þjóðnýta starfi, landbúnaðinum, ef at- orka og hagsýni er við höfð. Slík heimili þyrftu að vera sem flest til í landi voru. Þorsteinn er prúður og yfirlæt- islaus, vel greindur og gætinn, rólyndur og fastur fyrir. Hann er athugull og íhugar málin áður en hann ræður þeim til lykta. Hann gegnir mjög mörg- um trúnaðarstörfum fyrir byggðarlag sitt og leysir þau af hency. með mikilli skyldurækni og trúmennsku og nýtur trausts og virðingar þeirra, er honum kynnast. Hin mörgu skyldmenni, vinir og kunningjar Þorsteins munu hafa hugsað til hans á þessum tímamótum í ævi hans og sent honum hlýjar kveðjur og beðið honum og konu hans allrar lukku og blessunar. 'G. Sumband ísl. samvinnufélaga. SAMVINNUMENN: Munið, að af hverri krónu, sem þér kaupið fyrir í kaupfélagi yðar, fáið þér nokkra aura í stofn- sjóð. SÆVOIX de PARÍS mýhir húðina oq styrhir. Gefur henni yndisfagran litblœ oy ver hana hvillum. XOTIÐ SAV0N; stefnu er sóun á miklum verð- mætum, — sem tekin verða úr vösum almennings. Bið á því að snúið sé við getur komið fjár- málum okkar í vonlaust kvik- syndi. Það ætti ekki að geta verið neinn galdur að skilja það, að með því að láta óhefta í landinu dýrtíð, sem því veldur, að kostn- aður við að framleiða útflutn- ingsvörur er meiri en fyrir þær er greitt, töpum við — þjóðinni blæðir. Þrátt fyrir þessi augljósu sannindi, sem ættu að vera fremur einfalt reikningsdæmi fyrir flesta unglinga, er haldið áfram að segja landsmönnum að við, sem bendum á þessar stað- reyndir, séu „pólitískir spell- virkjar" og „hrakspármenn." En það er nú hætt við, að þrátt fyrir allan þennan áróð- ur, verði afleiðingar stærðfræði- legra staðreynda honum sterk- ari. Þær eru þegar orðnar æði áberandi eins og bent.hefir ver- ið á og þær munu verða enn áleitnari við ríkisstjórnina því lengur sem hún neitar að taka tillit til þeirra. Ríkisstjórnin ætti nú þegar að snúa sér til launamanna og fara þess á leit við þá, að þeir fari að dæmi bændanna — lækki kaupið eins og þeir lækkuðu vöruverðið. Þá yrði að gera sam- svarandi kröfur til annarra — skattleggja stríðsgróðann. — Almenningur mundi brátt átta sig á því, að þetta er engin fórn — verðgildi peninganna vex. Afleiðing þess að þannig væri smátt og smátt mjakað niður dýrtíðinni til samræmis við þarfir útflutningsins yrði örv- un framleiðslunnar, bætt af- koma ríkissjóðs og nýskipan at- vinnulífsins yrði auðveldari í framkvæmd. — Með þessu móti einu verður fjármálum þjóðarinnar bjargað.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.