Tíminn - 30.01.1945, Blaðsíða 7
TÍMITCN, þriðjwdagiim 30. jjan. 1945
8. bla«
4 víðavsfingf
(Framhald Jaf 2. síöu)
Kaupgjaldsmálin og Fram-
tillögu þess efnis, að bændur
mættu ekki ráðstafa fé úr sjóðn-
um án samþykkis landbúnaðar-
ráðherra. Fyrir flutningsmann
að þessari tillögu, er rænir
bændur umráðaréttinum yfir
eigin sjóði, fengu þeir „bónd-
ann“ og „bændafulltrúann“ Jón
Pálmason,
Enn er ekki séð uijr afdrif
þessarar tillögu, en hver sem
þau verða, hefir hún sett það
brennimark á Jón Pá., að hún-
vetnzkir bænctur ættu ekki að
vilast lengur á því, hverjír eru
eigendur hans og húsbændur.
t
Annað brennimark.
Annað mál í þinginu hefir og
eigi síður brennimerkt Jón þeim
mönnum, sem eru fjandsamleg-
astjs bændum.
Fyrir nokkru síðan flutti einn
kommúnistinn á Alþingi tillögu
um, að ríkisstjórnin skyldi
leggja fram á næsta þingi frv.
um skipulagningu landbúnaðar-
framleiðslunnar. Tillaga þessi
var sett til höfuðs þeirri fyrir-
ætlun, að bændur leystu þetta
mál sem mest á eigin spýtur, en
í þeim tilgangi hafði búnaðar-
þingið 1943 kosið sérstaka millÞ
þinganefnd til að undirbúa til-
lögur um lausn málsins, er ræð-
ast skyldu á búnaðarþingi í veC-
ur. Á grundvelli þessa undir-
búnings búnaðarþings lögðu
Bjarni Ásgeirsson og Haraldur
Jónasson (varamaður Jóns á
Reynistað) það til í landbún-
aðarnefnd n. d., að tillögu kom-
múnistans yrði vísað frá. „Bónd-
inn“ og „bændafulltrúinn" Jón
Pá. skipaði sér hins vegar við
hlið kommúnista og fyrir at-
beina hans var kommúnistatil-
lagan samþykkt.
Um það verður enn ekki sagt,
hvort ríkisstjórnin fer eftir til-
lögunni og tekur þetta mál" úr
höndum réttra aðila, búnaðar-
þings og bændasamtakana. En
Jón Pá. hefir vissulega gert sitt
til þess, að þau verði endalokin,
og andstæðingum bænda þann-
ig sköpuð aðstaða til áhrifa á
þessi mál, er orðið geta næsta
háskaleg. Ættu húnvetnzkir
bændur vissulega að átta sig á
þessu brennimarki á Jóni í
næstu kosningum.
sóknarilokkurinn
Hann heldur áfram sami
söngurinn í stjórnarblöðunum,
að Framsóknarmenn séu fjand-
samlegir verkamönnum, þar sepr
þeir hafi beitt sér fyrir stöðv-
un á kauphækkunum og bendi
á sameiginlega niðurfærslu á
verðlagi og kaupgjaldi sem að-
alúrræði í dýrtíðarmálunum.
í þessu sambandi skal bent
á í fyrsta lagi, að gróði verka-
mannanna af kauphækkunum
mun, þegar til lengdar lætur,
verða sama og enginn, því að
hann verður etinn upp af auk-
inni dýrtíð og hækkuðum álög-
um. Eins og nú horfir eru líka
fyllstu horfur á, að árangurinn
verði neikvæður, þar sem lík-
legustu afleiðingarnar verði
samdráttur í atvinnurekstrinum
og lítið eða ekkert verði úr ný-
sköpun á atvinnusviðinu, þar
sem menn þykjast sjá fram á
hallarekstur. Þá myndu verka-
menn hafa litla eða enga at-
vinnu og hinn hái kauptaxti
yrði þeim því lítil .raunabót.
í öðru lagi skaí svo á það
bent, að frá sjónarmiði Fram-
sóknarmanna hefir það jafnan
þótt hyggilegasti vegurinn til
kjarabóta að lækka framfærslu-
kostnaðinn og auka þannig
kaupgetuna, án þess að krón-
unum fjölgi. Þetta má gera með
aukinni sgmvinnu um verzlun,
samvinnu mn byggingar og ýms-
ar aðrar framkvæmdir. Með því
að spara ýmsan milliliðakostn-
að geta verkamenn stóraukið
kaupgetu sina, án þess að kaup-
ið hækki. Meðal stærstu fram-
tíðarmála verkamanna eru
vafalaust þau, að ríkið útvegi
samvinnubyggingarfél. Iþeirra
mjög hagkvæm lán til bygg-
inga, tryggi þeim aðstöðu til
ýmsrar smáræktunar og bæti
fyrir þeim með ýmsum fleir-
um þvílíkum ráðstöfunum.
Um niðurfærsluná á verðlagi
og kaupgjaldi er það að segja,
að sé hún fjandskapur við verka-
menn, er hún það ekki síður
við bændur og er þó Framsókn-
arflokkurinn yfirleitt ekki sak-
aður um slíkan fjandskap með-
al verkamanna! Niðurfærslan
þarf ekki neitt að rýra að kjör
verkamanna, þar sem verðlag-
ið lækkar í sama hlutfalli, a.
m. k. að langmestu leyti. Fyrir
verkamenn er niðurfærslan því
ekkert tjón, en hún veitir hins
vegár margfalda tryggingu fyr-
ir stöðugri atvinnu og nýsköp-
un atvinnuveganna, sem er
verkamönnum meira til hags en
nokkrum öðrum.
! Framtíðarstefna Framsókn-
arflokksins í kaupgjaldsmálum
er sú, að yerkamenn eigi ati-
vinnutækin eða hafi þau á leigu
og fái þannig allan arð, sem
þeim réttilega ber. Þar sem
slíku verður ekki við komið, vill
i flokkurinn að höfð séu hluta-
skipti og ákvæðisvinna, ef hægt
’ er. Hefif þetta fyrirkomul. verið
reynt í Rússlandi og gefizt mjög
j vel. Með þessu móti þurfa verka-
' menn ekki að vera í stöðugum
; deilum um kaup sitt, heldur
'fá þeir það, sem þeir 'eiga rétt
tilkall til eftir afköstum þeirra
og dugnaði. En eftir, sem áður,
þurfa þeir samt að leggja meg-
ináherzlu á að kaup þeirra nýt-
ist sem bezt, en eyðist ekki í
aukna dýrtíð og milliliðakostn-
að, og þar er samvinna um
verzlun, byggingar og aðrar
framkvæmdir, sem geta verið
j sameiginlegar, öruggasta úr-
ræðið.
Þegar þessi stefna er borin
saman við þá stefnu stjórnar-
; flokkanna, að einu kjarabætur
! verkalýðsins skuli vera kaup-
hækkanir, sem fara strax aft-
ur í aukna dýrtíðogskatta.draga
' saman atvinnureksturinn og
hindra nýsköpunina, þá ættu
j verkamenn ekki að þurfa að
' undra, þótt þessir flokkar geri
| sitt til að afflytja og rangfæra
i stefnu Framsóknarflokksins.
Það er eina vonin til að fá verka-
menn til að aðhyllast enn um
stund hina skammsýnu stefnu
þeirra.
Nafnaruglingur. ,
Morgunbl. hefir oft skrökvað
ólíklega, en aldrei eins og fyrra
sunnudag, þegar Valtýrgarm-
urinn heldur því fram í Reykja-
víkurbréfinu, að blaðið vilji ekki
ræða olíumálin frá. vetrinum
1942—43, vegna þess, að það
muni verða óþægilegt fyrir Vil-
hjálm Þór!
Eina góðviljaða skýringin á
þessari skreytni Valtýsgarms-
ins er sú, að þarna hafi orðið
nafnaruglingur og hann hafi
ætlað að setja þarna nafn Ólafs
Thors. Þvi ítarlegar, sem þessi
mál verða rædd, mun hlutur
Ólafs verða verri, en Vilhjálms
betri. Ólafur skildi við málin
þannig, þegar ríkisstjóri vék
honum frá völdum, að hækkun
á olíuverðinu var raunverulega
skollin á. Hafði Ólafur látið
ið einn lepp olíufélaganna ann-
ast þetta mál að mestu fyrir sína
hönd. Réð þar hjá honum sem
oftar fjölskyldusjónarmiðið, því
að leppur þessi var mágur hans.
Stjórnarskiptin munu áreiðan-
lega ekki hafa mátt síðar verða,
því að það kostaði Vilhjálm
mikla vinnu og atorku að kippa
þessum málum í lag.
Það er því skiljanlegt, að
Valtýrgarmurinn vilji fá þögn
um þess^. mál, vegna Ólafs.
Báðir hafa svikið.
Mbl. segir, að það sé tvísöng-
ur hjá Tímanum, að herma
bæði svik upp á Sósíalistafl. og
Sjálfstæðisfl. í sambandi við
vaxtatollinn. Ef annar flokkur-
inn hefir svikið, segir blaðið,
getur hinn flokkurinn ekki hafa
gert það!
Það mun hafa verið slík rök-
vísi, er Þorsteinn Gíslason gaf
hið alkunna fjólunafn á sínum
tíma.
Til að skýra þetta fyrir Mbl.,
skal því bent á, að Sjálfstæðis-
menn hafa alltaf lofað lágum
og sanngjörnum sköttum. Sé
hægt að svíkja slíkt loforð, þá
er það vissulega gert með hinu
fyrirhugaða vaxtatolli, sem
kemur til viðbótar öllum fyrri
Styrkjum skipt millí
lístamanna
Samkvæmt fyrirmælum á 15.
gr. fjárlaga 1945 hefir Mennta-
málaráð íslands á fundi sínum
þann 20. þ. m. sklpt þannig
milli listamanna fjárhæð þeirri,
sem veitt er til „skálda, rithöf-
unda' og listamanna“:
Félag islenzkra rithöfunda
fái kr. 84.500.00.
Félag ísl. myndlistarmanna
kr. 38.500.00.
Félag ísl. tónlistarmanna kr.
27.500.00.
Félag íslenzkra leikara kr.
24.500.00.
Þessi skipting er ákveðin sam-
kvæmt tillögu allra deilda
Bandalags ísl. listamanna.
í upphæðinni til Félags ísl.
rithöfunda eru meðtaldar kr.
6000.00, sem Alþingi ákvað sér-
staklega að skyldu vera heið-
urslaun til Gunnars skálds
Gunnarssonar.
álögum. Kommúnistar hafa lof-
að, að nýir skattar skyldu að-
eins lagðir á stórgróðann, en
vaxtatollurinn leggst raunveru-
lega á allan almenning, Hér er
því einnig um fullkomin svik að
ræða.
Þannig hafa báðir flokkarnir
svikið, en ekki aðeins annar
þeirra.
Slæmur fyrirboði?
í yfirlitsræðu, sem Churchill
flutti nýlega í þinginu, skýrði
hann frá því, að kommúnistar
hefðu farið inn í stjórn Papan-
dreou í Grikklandi eingöngu til
þess að eiga betra með að vega
aftan að henni á eftir.
Mbl. birti ýtarlegan útdrátt úr
þessari ræðu Churchills, en
sleppti að segja frá þessu atriði.
Hins vegar skýrði Alþbl. frá því.
Hvers vegna skyldi Mbl. hafa
fellt þetta niður úr útdrættin-
um? Skyldi það vera farið að
hafa hugboð um, að kommún-
istar eru að leika sama leikinn
með Ólaf Thors og Papandreou?
Erlcnt yfírlit.
(Framhald af 2. síðu)
Með því að afhenda Lublin--
stjórninni völdin í Póllandi, hafa
Rússar fullkomlega brotið það
fyrirheit Atlantshafsyfirlýsing-
arinnar, að hver þjóð skuli sjálf
ráða stjórnskipulagi sínu, því að
þessi stjórn hefir ekkert umboð
frá kjósendum og hagar sér á
engan hátt eins og bráðabirgða-
stjórn, er ætlar aðeins að fara
með völd fram til kosninga, því
að hún hefir þegar gert víðtækar
breytingar á stjórnarháttum og
leyfir engin pólitísk samtök, sem
eru henni andvíg. Jafnframt er
það fullkomið brot á Atlants-
hafssáttmálanum að landamær-
um sé breytt, án þess að það sé
samþykkt með atkvæðagreiðslu
hlutaðeigandi íbúa.
Pólska stjórnin í London hef-
ir lýst sig fúsa til að samþykkja
þær landamærabreytingar, sem
samþykktar séu af íbúum hlut-
aðeigandi héraða við atkvæða-
greiðslu, sem fari fram undir al-
þjóðaeftirliti. Einnig hefir hún
lagt til, að alþjóðanefnd verði
falin stjórn í Póllandi, unz kosn-
ingar geti farið fram og þvl ekki
krafizt að fá þar völd, a. m. ,k.
ekki eins og sakir standa, þótt
hún telji sig hina löglegu stjórn
Póllands. Þetta tilboð gerir hún
til að greiða fyrir lausn deilu-
málanna um Pólland.
Rússar virðast ætla að hafna
þessu boði. Afleiðingarnar eru
öllum auðsæjar. Taki eitt stór-
veldi sér vald til að gera stór-
kostlegar landamærabreytingar
og þvinga fylgislausum stjórn-
um og óvinsælum stjórnarform-
um upp á smáþjóðirnar, þá er
friðurinn eftir styrjöldina tap-
aður a. m. k. í þeirri mynd, sem
flesta hefir dreymt um. í stað
bróðurlegrar alþjóðasamvinnu,
kemur þá hnefaréttur stórveld-
anna, því að þegar eitt byrjar
að brjótast þannig til yfirráða,
er hætt við því, að hin komi á
eftir.
Anglýsið í Tímanum!
7
r
IJtsvör -
AðVörun
Þeir útsvarsgjaldendur Reykjavíkurbæjar, sem hafa ekki enn
greitt að fullu útsvar sitt frá s.l. ári, eru alvarlega áminntir um
að gera það nú þegar.
Dráttarvextir hækka um mánaðarmótin.
Þar sem allir ATVINNUVEITENDUR eru ábyrgir fyrir útsvars-
greiðslum starfsmanna sinna, er þeim bent á að kynna sér nú
þegar i bæjarskrifstofunum hvort starfsmennirnir skulda
' útsvar.
Um þessi mánaðarmót ber atvinnuveitendunum að gera bæjar-
sjóði fullnaðarskil á útsvörum starfsfólks síns. Hafi þeir eigi
gert það fyrir 5. febrúar næstkomandl, verður tafarlaust látlð
fara fram lögtak, hjá atvinnuveitendum sjálfum, til trygglngar
útsvarsskuldum starfsmannanna, án frekarl aðvörunar.
Fyrsti gj-alddagi útsvara 1945 verður 1. marz næstkomandi.
Skrifstola borgarsiíóra.
Athyglisverð bók.
(Framhald af 4. síðu)
ingu veiðibjöllunnar, þótt nokk-
uð sé gert til að fækka henni
um nokkurra ára skeið. Þar er
af svo miklu að taka. Hitt þætti
mér líklegra, ef veiðibjallan væri
alfriðuð myndi hún útrýma
sumum fuglategundum vorum,
sem meiri eftirsjá væri að.
í stuttri blaðagrein er ekki
hægt að gera margþættu efni
mikil skil'. G. D. kemur víða við
Tilkynning
Að gefnu tilefni skal það tekið fram, að
öll nmferð óviðkomandi manna um sorp-
hanga bæjarins á Eiðisgranda og allur
brottflutningur þess, sem á haugana er
kastað, er baimaður.
og vil ég ráðleggja mönnum að
afla sér bókar hans og kynnast
beim málflutningi, sem hún
hefir að færa.
í einni ritgerðinni víkur G.
D. m. a. að selarœkt, og telur
líklegt, að „með atorku og þraut-
seigju gæti selaræktin orðið hér,
þegar frá liði, varanlegur gróða-
vegur hundruðum og jafnvel
Allir, sem flytja sorp á haugana, skulu
snúa sér til varðmannsins áður en þeir
losa það af bílnum.
Heykjavík, 25. janúar 1945.
HEILBRIGÐISFULLTRtlM.
búsundum manna.“
Einnar ritgerðar eftir G. Dav.
sakna ég þarna, en það er út-
varpserindi hans um áburðar-
vinnshc'jölclanna, er síðar birt-
ist í Þjóðólfi, og að mínum dómi
hefði átt að birtast í einhverju
Aðvörun
* \ * /
búnaðarrita vorra. En hún kem-
ur e. t. v. í næsta safni?
Leiðinleg prentvillubrenglun
nr í efnisyfirlitinu, en að öðrum
í.eyti er frágangur bókarinnar
<róður. G- Þ.
Reykvíkingar eru alvarlega aðvaraðir
um að láta ekki drykkjarvatn renna að
óþörfu.
Sé hætta á að vatn frjósi I pípnm að
í't frá staðreyndum.
nóttu til, ber að loka aðalstopphana húss-
(Framhald af 4. síðu)
um það,að fóðurkostnaðurinn sé
tekjur(!), ef um keypta skepnu
er að ræða, hvort sem um er
að ræða bústofnsauka, viðhald,
uppeldi eða venjulegt fóður.
Margir tala um, að mat á bú-
peningi sé lágt nú sem stendur,
og er það að visu rétt, miðað við
það, sem stundum hefir verið. En
ég held, að þá sé mat á t. d. ánni
rétt, þegar það er jafnt og slát-
urverð lambs að haustinu.
Það, sem hún er meira virði að
vorinu, er vegna þess, að þá hef-
ir verið lagður á hana reksturs-
kostnaðurinn, en hún ekki búin
að skila arðinum. Það er þvi
hliðstætt að meta ána til skatts
á þessum tíma það hátt, sem
búast mætti við, að hægt væri
að selja hana og togari fullhlað-
inn af fiski væri metinn til
skatts eins hátt og líkur væru til
að mætti selja hann með afl-
anum. Þetta væri æskilegt, að
sem flestir hugleiddu hloypl-
dómalaust og sérstaklega þeir,
sem mestu ráða í þessum mál-
um.
Framsóknarflokknr-
inn og nýsköpunin.
(Framhald af 4. síðu)
sem komið er aðeins þau að
hindra framgang nokkurra um-
bótamála, en skipa nýja nefnd,
nýbyggingarráð, sem á að taka
við störfum, sem aðrir hafa
undirbúið og eru að leysa af
hendi.
ins að kvöldinu og tæma pípurnar.
Leka krana, pípur o. þ. h. ber að láta
laga svo að sírennsli eigi sér ekki stað.
Verði eftirlitsmenn varir við sírennsli,
verður lokað fyrir vatnið I viðkomandi
húsi.
Vatnsweita Reykjavíkur
Dáðir vovu *
dvýgðav
Saga Nólseyjar-Páls og fleiri afreksmanna, segir frá
margvislegum mannraunum, ævintýrum, svaðilförum Qg
hetjudáðum. Sögurnar gerast á hinum ólíkustu stöðum
og umhverfi, allt frá hjarnbreiðunum á nyrztu slóðum
jarðarinnar til fjallavatnanna í Sviss, háíjallanna í Tí-
bet og sólheitra stranda Arablu.
Allír, sem unna stórfenglegum hetjusögum og ævin-
týrum, lesa „Dáðir voru drýgðar".
Kaupið bókina hjá næsta bóksala, eða pantið hana betnt
frá útgefanda.
Bókaúigáfan Fram
Lindargötu 9 A — Reykjavík — Sími 2353