Tíminn - 13.02.1945, Síða 8
DAGSKRÁ er bezta íslenzha tímaritið um
þjóðfélagsmál.
t»eir, sem vilja kynna sér þjóðfélagsmál, itm-
lend og útlend, þurfa að lesa Dagskrá.
f AJVMÁIiJL TIMANS V
8. febrúar, fimmtudagur:
Kanadamenn
hef ja sókn.
Vesturvígstöðvarnar: Kana-
diskl herinn hóf sókn nyrst á
vígstöðvunum rétt austur af
Nijmegen. Bandaríkjamenn
héldu áfram sókn á miðbiki
vígstöðvanna og Frakkar í El-
sass. Her Bandaríkjamanna á
skammt ófarið til helztu vatns-
stíflanna við upptök Rörárinn-
ar, en þaðan fá mörg orkuver
Ruhrhéraðanna orku sína.
Austurvígstöðvarnar: Rússar
tilkynntu að þeir hefðu aukið
yfirráðasvæði sitt í Pommern
og í Slesíu vestan Oder. Einnig
sögðust Rússar hafa unnið á í
Austur-Prússlandi. Þjóðverjar
segja, að her Zukovs sé kominn
vestur yfir Oder, en Rússar
minnast ekki á þetta, en segja
Zukov draga að sér aukið lið.
Noregur: Karl Martinsen, yf-
irmaður hirðar Kvislings, var
myrtur er hann var á leiðinni til
skrifstofu sinnar. Menn, sem
voru vopnaðir vélbyssum, stöðv-
uðu bíl hans og skutu hann.
Holland: Gerbrandy, forsæt-
isráðherra hollenzku útlaga-
stjórnarinnar, hefir beðist
lausnar fyrir ráðuneyti sitt.
Drottningin fól honum að
mynda nýja stjórn.
9. febrúar, föstudagur:
]Vý glæpaverk
nazisía í Noregi.
Noregur: Tilkynnt var að í
hefndarskyni fyrir morð kvisl-
ingsins Martinsens hefðu seyt-
ján norskir gislar verið dæmdir
til dauða og teknir af lífi. Voru
átta þeirra dæmdir af dómstól-
um kvislinga, en ellefu af þýzk-
um herrétti.
Vesturvígstöðvarnar: Kan-
adamenn hafa rofið fremsta
virkjabelti Siegfriedlínunnar
nyrst á vígstöðvunum og sótt
fram um 8 km. á 12 km. breiðri
víglínu. Bandamenn unnu víðar ,
á. Þjóðverjar hafa hleypt vatni.
úr öllum stíflum Rörárinnar og !
er því óvenjulegur vöxtur í
henni.
Austurvígstöðvarnar: Rússar
tilkynntu, að þeir hefðu um-
kringt Elbing. Þeir sögðust
einnig hafa sótt lengra í áttina
til Stettin. Þjóðverjar sögðu
enn frá bardögum við lið Zu-
kovs vestan Oder.
10. febrúar, laugardagur:
Glæpaverkiuinm
í Noregi f jölgar.
Noregur: Alls hafa nú 34
menn verið teknir af lífi í Nor-
Nýkomið:
egi í hefndarskyni fyrir morð
kvislingsins Martinsen. Þrettán
þeirra hafa verið dæmdir til
dauða af dómstólum Kvislings,
en 21 af herrétti Þjóðverja.
Vesturvígstöðvarnar: Banda-
menn héldu uppi sókn á öllum
vígstöðvunum. Kanadiski her-
inn rauf aðalvirkjabelti Sieg-
friedlínunnar á vígsvæði sínu og
átti eftir 3 km. til Cleve. Banda-
ríkj amenn tóku aðalstíflurnar
við upptök Rörárinnar.
Austurvígstöðvarnar: Rússar
tóku Elbing í Austur-Prússlandi.
Annars ekki sagt frá verulegum
breytingum á austurvígstöðv-
unum.
11. febrúar, sunnudagur:
Stórsókn Rússa
í SlesÍDi
Austurvígstöðvarnar: Rússar
tilkynntu, að þeir væru komnir
yfir Oder í Slesíu á 160 km.
svæði og hefðu sótt lengst fram
60 km. vestan árinnar. Þeir
sögðust hafa tekið mikið af her-
gögnum herfangi. Her Zukovs
átti eftir 23 km. til Stettin.
Vesturvigstöðvarnar: Kan-
adamenn og Bretar brutust inn
í Cleve og var barizt á götunum.
Þeir sóttu allt til Rínar á nokkr-
um kafla. Miklar loftárásir voru
gerðar sókn þeirra til stuðnings.
Grikkland: Samningar náð-
ust eftir alllangar viðræður
milli grísku stjórnarinnar og
EAM. Er þar með lokið borgara-
styrjöldinni í Grikklandi.
Belgía: Acker, formaður
jafnaðarmannaflokksins, hefir
myndað. stjórn allra flokka í
Belgíu.
i j-ybj-rrrr?i
«' 11 '.Cfc-rrm
Súðin
Tekið á móti flutningi til
Húnafióa- og Skagafjarðarhafna
árdegis í dag og flutningi til
Siglufjarðar og Akureyrar síð-
degis í dag,
Hermóður
Tekið á móti flutningi til
Stykkishólms, Salthólmavíkur,
Króksfjarðarness og Flateyjar
síðdegis í dag.
Kápuefni
Ullarkjólaefni
Verzlon H. TOFT,
Skólavörðustfg 5. Sími 1035.
TlMlNN
Þeir, sem fylgjast vilja með
almennum málum verða að lesa
Tímann.
Áskriftarverð í Reykjavík og
Hafnarfirði er 4 kr. á mánuði.
Áskriftarsími 2323.
Verð á kartöilum
Verð á kartöflum, sem vér kaupum af framleiðendum, er ákveð-
ið frá og með 6. þessa mánaðar:
I. flokkur .... kr. 116.00
Úrvalsflokkur ... — 130.00
II. flokkur ..... — 105.00
Verðið er miðað við 100 kg. í vöruhúsi vory i Reykjávík.
Verð í heildsölu og smásölu er óbreytt þannig:
Heildsala: I. fl. kr. 88.00, Úrvalsfl. kr. 98.00 og II. fl. kr. 80.00
hver 100 kg.
Smásala: I. fl. kr. 1.10, Úrvalsfl. kr. 1,20 og II. fl. kr. 1.00 hvert kg.
Reykjavík, 5. febr. 1945.
Grœnmetisverzlun ríkisins.
Utbreiðsla Tímans
»»
Þar sem Tíminn er hlutfalls-
lega minna lesinn í Reykjavík
heldur en annars staðar á land-
inu og öll bæjarblöðin eru dag-
lega með ádeilur á hann og
Framsóknarmenn, hefir undan-
farið verið gerð dálítil tilraun
til þess að senda blaðið nokkr-
um mönnum, sem líklegt var
talið að væru þeir manndóms-
menn að vilja kynnast málunum
frá fleiri en einni hlið, þótt þeir
væru ekki samherjar Timans.
Morgunblaðið og Þjóðviljinn
hafa bæði verið að senda hnút-
ur út af þessari blaðasendingu.
Senda þó engir blaðaútgefendur
eins ákaft út blöð sín til manna,
sem aldrei hafa beðið um þau
eins og aðstandendur þessara
blaða. ísafold er t. d. send á
nær hvert heimili í sumum
sveitum, þó að þar. hafi ekki
einn einasti maður beðið um
hana — né borgi hana.
Annars hafa þessir Reykvík-
ingar, sem Tíminn hefir verið
sendur til, ýmist gerzt kaup-
endur hans eða endursent
hann með fullri kurteisi, þegar
frá er skilinn einn heildsali,
einn prestur og ein frú.
Þeir, sem stóðu að útbreiðslu
Tímans í Reykjavík, vissu vel
ÓI íkt höfnmst vér að“.
að til voru þær „sálir“, sem
aldrei vilja heyra nema frá
annarri hlið málanna. En að
blöð fari að spilla fyrir, að and-
stasðingablöð séu lesin, ber að-
eins ljósan vott um slæman
málstað. Góður málstaður vinn-
ur alltaf á við kynninguna, en
slæmur tapar, og því vill Tim-
inn hvetja þá, sem hafa áhuga
fyrir almennum málum að lesa
andstæðingablöðin, ekki sízt
aðalleiðarana í Morgunblaðinu.
Stjórnarstökur
Ólafs-fingur.
Ólafur á tíu fima fingur,
sem fitla ekki við neitt
barnaglingur.
Sjö eru krepptir fast
að eigin arði,
en upp hann réttir þrjá
í stjórnargarði.
Alltaf nöldra Ólafs tíu fingur,
að engum gagni svona
tvískiptingur.
Loks þeir hverfa, sem til
himins hóf ’ann,
við hentugt tækifæri inn
í lófann.
Búnaöarmálasjóð-
nrinn.
(Framhald af 1. síðu)
færi m. a. til að svívirða sam-
vinnufélögin og brigsla þeim um
sakir, er vafalaust væri hægt
að fá hann dæmdan fyrir, ef
hann nyti ekki þinghelginnar.
Eftir að Brynj ólfur hafði tal-
að, dró Pétur sig í hlé í um-
ræðunum, en allmiklar umræð-
ur spunnust út af ræðu Péturs.
Hermann Jónasson sýndi fram
á, að sú ólíka aðstaða þessara
tveggja ráðherra til umrædds
ákvæðis, að Pétur teldi það
þýðingarlítið, en Brynjólfur
þýðingarmikið, sýndi bezt af
hvað rót það værí sprottið.
Kommúnistar hefðu bersýnilega
krafizt þess, að þetta kúgunar-
ákvæði yrði sett í lögin, ef til
vill hótað með samvinnuslitum,
ef þeir fengju það ekki fram.
Sjálfstæðismenn hefðu látið
undan að vanda. Hins vegar
mættu kommúnistar gera sér
ijóst, að þótt þeir gætu komið
þessu fram nú, myndí það ekki
standa lengi. Bændur myndu
ekki þola þennan órétt og þeir
myndu ekki linna baráttunni
fyrir því, að þetta kúgunarat-
riði yrði afnumíð, fyrr en sigur
væri fenginn.
Að umræðunni lokinni var
borin upp tillaga frá Páli Her-
mannssyni og Þorsteini Þor-
steinssyni um að fella þetta
kúgunarákvæði úr lögunum, en
það var fellt með atkvæðum
stjórnarsinna gegn atkvæðum
Framsóknarmanna og Þorsteins
Þorsteinssonar.
: Frv. var síðan afgreitt sem lög
frá Alþingi.
Jón Pá. hefir nýlega rætt um
þetta mál í Mbl. og er hann
bersýnilega óttasleginn vegna
þjónustu sinnar við kommún-
ista í því. Reynir hann að klóra
í bakkann með því, að hann
treysti Pétri Magnússyni til að
misnota ekki þetta ákvæði,
Framsóknarmenn hafi áður tek-
ið svipaðan rétt af búnaðarsam-
tökunum, þar sem þeir hafi ráð-
ið mestu um að ráðning bún-
aðarmálastjóra sé háð sam-
þykki landbúnaðarmálaráð-
herra, og að mönnum, sem séu
að einangra bændur með því að
styðja ekki ríkisstjórnina, sé
ekki trúandi til að fara vel með
þetta fé, og mun hann þar ekki
aðeins eiga við Framsóknar-
menn í stjórn Búnaðarfélagsins
og á búnaðarþingi, heldur einn-
ig við menn eins og Pétur Otte-
sen, Jón á Reynistað, Þorstein
Þorsteinsson og aðra Sjálfstæð-
ismenn, er þar eiga sæti.
Um hið fyrsta þessára atriða er
það að segja, eins og bent var
á af Pétri Ottesen á Alþingi, að
ráðherradómur Péturs Magnús-
sonar getur orðið fallvaltur og
um eftirmenn hans getur eng-
inn sagt. Þótt Pétur vildi heldur
ekki nota þetta kúgunarákvæði,
geta samstarfsmenn hans neytt
hann til þess og hefir Pétur
sýnt, að hann vinnur fyrir þá
verk, er sízt munu honum ljúf-
ari, eins og t. d. að flytja veltu-
skattsfrv. Um ráðningu búnað-
armálastjóra er það að segja, að
þar er ólíku saman að jafna,
því að hann er raunar starfs-
maður ríkisins jafnframt og
hann er starfsmaður Búnaðar-
félagsins, og það fé, sem hefir
farið um hendur hans, hefir
verið lagt beint úr ríkissjóði.
Þess vegna þótti eðlilegt, að ráð-
herra hefði nokkru íhlutun um
val hans, en í sambandi við
búnaðarmálasjóðinn er um fé að
ræða, sem komið er beint frá
bændum s.iálfum og því eðlilegt,
að þeir ráði einir um ráðstöfun
þess. Þriðja röksemd Jóns, að
réttlæta þetta kúgunarákvæði
með því, að forustumenn bænda
fylgi ekki ríkisstjórninni, er
meira en óskammfeilið og sýnir
bezt þann einræðisanda, sem
ríkjandi er í stjórnarherbúð-
unum.
Með slíkum röksemdum verð-
ur vissulega ekki hægt að fá
bændur til að sætta sig við þann
órétt, er þeir hafa hér verið
beittir. Þeir munu hvorki láta
slík eða önnur falsrök stöðva
baráttu sína fyrir því að fá ful!
og óskipt umráð yfir eigin
sjóði. Þeir munu heimta þenna
rétt sinn og þeir menn, sem hafa
stutt að því að svipta þá hon-
um, munu ekki fá umflúið sinn
verðskuldaða áfellisdóm.
Útlilutimin.
(Framhald af 1. sí6u)
listi kosinn með 10 atkvæðum.
Á hinum listanum, sem fékk 9
atkvæði, voru þessir menn:
Davíð Stefánsson, Guðmundur
Hagalín og Þorsteinn Jónsson
(Þórir Bergsson). 2 seðlar voru
auðir.
Rösklega 50 manns eru í fé-
laginu, en af þeim eru ’ all-
margir búsettir úti á landi og
hafa því ekki aðstöðu til að
sækja fundi félagsins reglulega.
Virðist það æði kynlegt, að þeim
mönnum, sem búa úti á landi,
skuli ekki vera veittur kostur á
að taka þátt í kosningunni.
Með því kosningafyrirkomulagi,
sem nú er, getur lítil klíka Reyk-
víkinga valið úthlutunarnefnd-
ina.
Vegna rangsleitni þeirrar, sem
mönnum fannst úthlutunar-
nefndin beita í fyrra, flutti fjár-
veitinganefnd þá tillögu í vetur,
að sérstakri þingnefnd yrði fal-
in úthlutunin. Kommúnistar
-GAMLA BÍÓ.
KROSSGÖTUR
(Crossroads)
WILLIAMS POWELL,
HEDY LAMARR,
BASIL RATHBON(.
Sýning kl. 7 og 9.
Prófessorlnn og'
dansmærin.
Martha O’Driscoll,
Richard Carlson,
Frances Grifford.
Sýnd kl. 5.
► NÝJA BÍÓ.
LOGINN HELGI
(„Det Brinner en Eld“)
Sænsk stórmynd, gerð
undir stjórn meistarans:
Gustaf Molander.
Aðalhlutv. leika:
Inga Tidblad,
Lars Hansen,
Victor Sjöström.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
<■———.■ TJARNARBÍÓ •——
I GISLINGU
(Hostages).
Áhrifamikil mynd frá
leynibaráttu Tékka.
Luise Rainer,
Paul Lukas,
William Bendix,
Arturo de Cordova.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð yngri en 16 ára.
Jóhannes S. Kjarval
opnar í dag
Málverkasýningu
í Listaiiirumaskálaimm kl. 10 árd.
DÁÐIR
VORU DRÝGÐAR
Saga Nólseyjar-Páls
og fleiri afreksmanna.
er m e r k bók og
skemmtileg.
Sýningin opin daglega frá kl. 10 árdegis til kl. 10 síðdegis.
Ú R B Æ N U M
Samkoma.
Framsóknarfélögi n héldu skemmti-
samkomu í Sýningaskálanum síðastl.
föstudagskvökf. HCifst hún eins og
venjulega með hiimi einkar vinsælu
Pramsóknarvfet. Þii flutti Bjarni Ás-
geirsson snjalla xæðu, tvær ungar
stúlkur sungu og spiluðu undir á gítar
við mikinn fögiauð áheyrenda. Síðan
skiptist á söiogur og dans til kl. þrjú
um nóttina, Skemmtunin var mjög
ánægjuleg eins og skemmtanlr Fram-
sóknarmanna eru alþekktár fyrir að
vera. Telja margir þær menningarleg-
ustu skemmtisamkomur, sem haldnar
eru i höfuðstaðnurn.
Sjötugsafmæli.
Karl Bjarnason, <iyravörður í Arnar-
hvoli er sjötugur í dag.
Davíð Stefánsson
skáld er nýkomjinn til bæjarins og
mun hann lesa upp úr verkum sínum
i hátíðasal Háskólnns, samkvæmt boði
‘■ofnunarirmar. Skáldið mun byrja
plestur sinn um næstu helgi og að-
-.lega lessi kvæði sín og þá ef til vill
eitthvað af nýjum kvæðum.
Málverhasýning.
Kjarval opnaði málverkasýningu 1
Sýningaskálanum f gær. Þann dag var
hún opin fyrir blsúíamenn, en í d.lg
verður hún opnuð fyrir almenning.
Sýning danskra föður-
landsvina.
Ákveðið hefir veriS að halda danska
sýningu í Reykjavík f aprílmánuði n.
k. með það fyrir augam, að kynna
störf danskra föðurlantlsvina í þágu
ættjarðarinnar, baráttu þeirra gegn
kúgurum sínurn og aðstoB þeirra við
Bandamenn. Verður þetta aðallega
sýnt í Ijósmy’ndum og uppdráttum.
risu mjög öndverðir gegn þeirri
tillögu og fengu nær allan Sjálf-
stæðisflokkinn í lið með sér. Til-
lagan. var því felld, en þó tókst
að fá ákveðna sérstaka fjárveit-
ingn handa Gunnaji Gunnars-
sjmi, svo að hann þyrfti ekki
lengur að búa við rangsleitni
nefndarinnar.
Því mun nú mikil athygli
veitt, hvort gagnrýni sú, sem
úthlutunin sættí í fyrræ, áorkar
því að nefndin bætir xáð sitt
eða hvort sama kommúnistiska
hlutdrægnj.n ræður þar ríkjum
áfram.
Úrslit Badmintonkeppninnar.
Síðastl. miðvikudag var keppt til
úrslita í Badmintonkeppninni, sem
Tennis og Badmintonfélag Reykja-
víkur gekkst fyrir. Friðrik Sigurbjörns-
son varð sigurvegari og vann Jón Jó-
hannesson eftir mjög harðan og jafn-
an leik, sem fór þannig: 15:13; 14:17;
15:10.
Taxti leigubifreiða.
Verðlagsstjóri hefir ákveðið verð á
bifreiðaleigu og sett leigubifreiðum
nýjan taxta. Innanbæjarakstur er tal-
inn innan þessara takmarka: Á Laug-
arnesvegi við Fúlalæk, Suðurlands og
Reykjanesbraut við Kringlumýrarveg
og á Seltjarnarnesi við Kolbeinsstaði.
Verð fyrir innanbæjarakstur er fast
gjald 3 kr., sem bifreiðin fær fyrir
ferðina, að og frá stöð. En auk þess
er mínútugjald frá því bifreiðin kem-
ur á hinn tiltekna stað, og þar til
leigjandinn segir henni upp. Er það
gjald 35 aurar um mínútuna í dag-
akstri en 45 aurar í næturakstri. Næt-
urakstur telst frá kl. 7 að kveldi til
kl. 7 að morgni. Fastagjaldið er hið
sama, hvort heldur er um nætur eða
dagakstur að ræða. Utanbæjarakstur
telst utan áðurgreindra takmarka og
er gjaldið þar 90 aurar fyrir hvern
ekinn kílómetra að degi til en kr. 1,10
að nóttu.
Skíðamót Reykjavíkur
verður að þessu sinni haldið dagana
4. og 11. marz í Jósefsdal. Glímufélag-
ið Ármann mun standa fyrir mótinu
og sjá um það. Keppt verður í sömu
greinum og undanfarin ár, það er:
Svigi, göngu, stökki og bruni í öllum
aldursflokkum karla. Einnig munu
konur keppa í svigi og bruni.
Herferð gegn ólöglegum
ökutækjum.
Lögreglan í Reykjavík hefir nú í
vikutíma gert gangskör í því, að kæra
alla bífreíðastjóra, sem ekki hafa
I ijósaútbúnað eða skrásetningarmerki
bifreiða slnna í lagi. Um seinustu helgi
voru 139 bifreiðastjórar kærðir en alls
hefir lögreglan kært nokkuð á fjórða
hundrað bifreiðastjóra síðan þessi her-
för var hafin. Aldrei verður það nóg-
samlega brýnt fyrir bífreiðastjórum að
hafa ljósaútbúnað og skrásetningar-
merki á bifreiðum sínum í samræmi
við kröfur þær, sem grrðar eru. Það
skapar meira öryggi. bæði þeím sjálf-
um og öðrum vegfarendum, enda er það
kunnara en frá þurfi að segja, hvað
slys hafa oft hlotizt af því, að ljósa-
útbúnaður farartækja hefir ekki full-
nægt gildandi reglum.