Tíminn - 10.04.1945, Blaðsíða 6

Tíminn - 10.04.1945, Blaðsíða 6
6 T1 iú ii \N, þrlgjndagfim 10. apríl 1945 26. blnð Flmmtngnr: Sigurdur Þórðarson söngst jóri Sigurður Þórðarson fæddist 8. apríl árið 1895 á Gerðhömr- um í Dýraíirði. Hann er sonur séra Þórðar Ólaíssonar prófasts að Söndum og konu hans, Maríu ísaksdóttur. Sigurður útskrifað- ist úr Verzlunarskóla íslands árið 1915. Síðan lagði hann stund á tónlistarnám í Leipzig og Vínarborg. Atvinnugrein Sigurðar að námi loknu urðu skrifstofu- störf í Reykjavík. Frá stofnun Ríkisútvarpsins hefir hann ver- ið skrifstofustjóri þess. Um þann þátt athafna hans verður þó eigi fjölyrt hér, þótt starfið sé bæði ábyrgðarmikið og erfitt. Aðeins má geta þess, að þeir, sem dómbærir eru um þess kon- ar vinnubrögð, róma reglusemi hans, árvekni og afköst. Þótt Sigurður Þórðarson hafi innt skyldustörfin af hendi með kostgæfni og samvizkusemi, fullnægðu þau hvergi nærri at- hafnaþrá hans og áhugamálum. Með mikilli elju og fádæma þolgæði hefir hann. unnið að tónlistarmálum okkar, frá því er hann kom heim frá tónlist- arnámi og æ síðan. Hann gerð- Ist undir eins einn af allra at- hafnamestu forvigismönnum í þeirri fylkingu, og hefir hann sannarlega hvergi legið á liði sinu. Hefir bæði einlægni, ósér- plægni og gifta fylgt störfum Sigurðar. Sigurður Þórðarson mun hafa haft forgöngu um stofnun Karlakórs Reykjavíkur árið 1926. Hefir hann verið söng- stjóri kórsins jafnan síðan. Öllum landsmönnum, sem komnir eru til vits og ára, mun vera vel ljóst, hversu .kórinn hefir verið athafnasamur og innt af höndum dáðríkt starf. Fyrstu tíu starfsár sín flutti hann nálega 90 opinbera hljóm- leika. Tvívegls hefir kórinn far- ið utan, söngför um Norðurlönd 1935 og um Þýzkaland, Tékkó- slóvakíu og til Vínarborgar 1937 — og stóðst þá þolraun með sæmd. Hinn ytri árangur tónlistar- starfa er mörgum skiljanlegur. og er hann metinn að verðleik- unj af sumum. En fyrir þá, sem eigi hafa beinlínis starfað að tónlistarmálum, mun vera mjög erfitt að gera sér I hugarlund hvílík feiknar undirvinna felst á bak ýið hvert eitt fullæft lag. Og þó er ennþá erfiðara að gera sér grein fyrir, hversu mikla þrautseigju og yflrburði þarf ti) þess að ala upp söngsveit og efls hana svo að llstþroska, að upr til hennar sé litið af þeim, sem gera kröfur og eru dómbærir um listrænan tónflutning. Með kunnáttu sinní og persónuleik verður söngstjórinn að sveigjs raddirnar til hlýðnl við sig, svo að þær getl orðið miðlar, sem enduróma hans eigið mál, tií- finningar og hugarhræringar. Söngstjórinn túlkar anda tón- verksins með hreyfíngum sínum og látbragði. Ein af Iþróttum söngmannanna er sú að vera viðbragðs skjótir, samstilltir og vel læsir á hreyílngar söngstjór- ans og hverja minnstu vísbend- ingu frá hans hendi. En auk söngstjórnarinnar og uppeldisstarfsins, verður söng- stjórinn einnig að vera lífið og sálin í félagsskapnum í heild. Vera sér út um ný verkefni til æfinga, vera vakinn og sofinn yfir að fylla í skörðin, þegar starfskraftar hverfa, eins og ó- umflýjanlega hlýtur að verða í félagi, sem starfar árum saman. Saga Karlakórs Reykjavíkur er nátengd afmælisbarninu. En hún er hins vegar yfirgripsmeiri en svo, að unnt sé að gera henni nokkur skll hér. Enda mun hún öllum I fersku minni, sem fylgzt hafa með söngmálum okkar. Aðeins einu atriði, sem mun hafa legið að mestu eða öllu i þagnarglldi, vildi ég víkja laus- lega að. Söngstjórinn mun eigi hafa átt hvað minnstan þátt í því, að kórinn hefir haldið hljómleika einungis í því skyni að styrkja fjárhagslega félaga sína, sem horfið hafa að söng- námi erlendis. Þetta hefir mér þótt bera vitni um aðdáunar- verða ræktarsemi og stórmann- legan hugsunarhátt. Þess kon- ár bróðurþel hlýtur að hefja til manndóms, ef unnt er, og örva þá, sem slíks verða aðnjótandi, til þess að leggja sig alla fram, það skérpir ábyrgðartilfinningu þelrra, eykur þeim sjálfstraust og siðferðilegt þrek Þeir, sem þekkja Sigurð Þórð- arson aðeins af afspurn —, hafa söngstjórann sennilega efst I huga, en án umhugsunar muna þeir einnig eftir tónskáldinu og kannast e. t. v. við skrifstofu- stjórann. SIOURÐUR ÞÓRÐARSON söngstjóri En þeir, sem þekkja Sigurð Þórðarson persónulega, muna fyrst af öllu eftir manninum Sigurði Þórðarsyni — hinu fág- aða, viðmótsljúfa prúðmenni, sem þrátt fyrlr annríki er sí og æ boðinn og búinn til að bæta á sig aukastörfum og umsvifum til þess að gleðja vini sína og gera þeim greiða. Það er næstum því undravert, hversu miklu sumir menn fá á- orkað í tómstundum sínum, ef unnið er markvisst og af brenn- andi áhuga. Þótt söngstjóra- starfið í nálega tvo áratugl hafi verið umfangsmikið og tíma- frekt mjög, hefir Sigurður Þórð- arson þó einnig verið mikilvirk- ur sem tónskáld og auðgað tón- bókmenntir okkar bæði að stór- um vérkum og sönglögum. Af stórum tónverkum Sigurðar má nefna: Alþingishátíðar-kantötu (1930), samin við hátíðaljóð Da- víðs Stefánssonar —, í álögum, söngleik (óperettu) fluttan í Reykjavík 1944. í handriti á hann ennfremur stórt kirkju- iónverk, og mun það bráðlega verða flutt opinberlega. Af lög- um, sem gefin hafa verið út, eru bessi helzt: Létt lög fyrir píanó, prentuð í Vínarborg 1932, Þrjú lög fýrir einsöng með píanóund- 'Lrleik: Hlíðin, Stjarna stjörn- um fegri og Vögguljöð, prentuð í Vínarborg 1932, Fimm ein- ?öngslög með píanóundirleik: Sjá dagar koma, Mamma, Vögguvísa, Sáuð þið hana systur mína og Harmljóð, prentuð í Ameríku 1944. Auk þessa hafa birzt eftir Sigurð Þórðarson mörg einstök lög með öðru efni í sönglagasöfnum. Meðal ann- ars má nefna fimm kórlög, sem tekin hafa verið upp í Ljóð og lög. Allmörg af lögum þeim, sem Sigurður Þórðarson hefir sam- ið, hafa upprunalega verið rituð fyrir karlakór. í tölu þeirra má minna á hið glæsilega, ris- mikla lag úr kantötu hans: Sjá da^r koma, skrifað fyrir sóló og kór con bocca chiusa. — Þetta lag er snilldarlega ritað fyrir háa tenórrödd. Er það á borð við ítalska, tígulega aríu, með söngrænni laglínu, sífelldri stíg- andi, sem nær hámarki sínu í lok lagsins. — Snjallir söngmenn gætu heillað áheyrendur með þessu lagi, svo vel er það til söngs fallið og fagurlega sam- ræmt ljóð og lag. Sigurður Þórðarson heíir auk- ið glæsilegum kapítula í hina ó- skráðu tónlistarsögu íslendinga. Sá þáttur fjallar um gagnmerk afrek, unnin í fyllsta samræmi við eðli hinnar tiginbornu tón- listar. Sigurður Þórðarson hefir aldrei litið tll launa fyrir verk sín í víngarði söngsíns. Ófölskv- aður kærleikur til listarinnar hefir verið orkugjafinn, sem hefir örvað hann til dáða. Hann hefir unnið ræktunarstarfið sökum innri þaríar, með fögn- Umstoínsjóð samvinnuíélaga Samvinnufélögin þurfa á all- miklu fé að halda. Þau þurfa að eiga vörubirgðir, fasteignir áhöld o. s. frv. Stofnsjóður er myndaður til þess að komast hjá því að þurfa að taka allt þetta fé að láni. Honum er ætl- að að vera rekstursfé fyrir fé- lagið. Hann er þannig mynd- aður, að félagsmenn leggja í hann ákveðinn hluta af úthlut- uðum tekjuafgangi sínum. Stofnsjóðurinn er því séreign félagsmanna, er þeir eiga hver og einn í sinn ákveðna hluta. í fyrstu samvinnufélögunum hér á landl voru litlar eða eng- ar sjóðamyndanlr. Þess vegna skorti félögin einatt reksturs- fé. Komust þau oft í ýms vand- ræði af þeim sökum. Torfi í Ól- afsdal o. fl. samvinnuleiðtogar sáu, að hér þurfti breyting að verða á og að félögín yrðu að eignast sjóði og ráða sjálf yfir nokkru rekstursfé. Þess vegna beittu þeir sér fyrir myndun stofnsjóðs. í þeim samvinnufélögum, sem hafa vörukaup sem verksvið, má ekki grelða tekjuafgang út, fyrr en minnst 3% af verði að- keyptra vara, sem félagsmenn hafa keypt hjá félaginu, hafa verið lögð í stofnsjóð. í félög- um, þar sem ábyrgð félags- manna er takmörkuð við stofn- sjóðsinnstæðu aðeins, skal enn- fremur greiða helming af því, sem úthlutað er umfram 3% í stofnsjóð, þangað til stofnsjóðs- innstæða félagsmanns er orðin 300 kr. Þau samvinnufélög, sem ekki hafa vörukaup sem verk- svið, ákveðna sjálf, hve mikið skal leggja í stofnsjóð. Eins og áður er drepið á, er stofnsjóður séreign félags- manna, er þeir geta fengið út- ■borgaðan ásamt vöxtum, þegar vissar ástæður eru fyrir hendi. Samkvæmt samvinnulögunum fellur stofnsjóðseign til útborg- unar: 1. Við andlát félagsmanns. 2. Við burtflutning félags- manns af félagssvæðinu. 3. Við gjaldþrot félagsmanns. 4. Verði félagsmaður fátækra- styrksþurfi. Aldrel má þó borga stofnfé út fyrr en eigandi hefir innt af hendi allar fjárhagslegar skuld- bindingar, sem á honum hvíla sem félagsmanni, þ. e. stoín- sjóðsínnstæðu má ekki greiða út fyrr en eigandinn er laus úr þeirri ábyrgð, sem á honum hvílir sem félagsmanni. Annars -er stofnsjóðsfé óupp- segjanlegt og verður ekki selt né af hendi látið, nema með samþykki félagsstjórnar. Stjórn félagsins er og heimilt að greiða félagsmanni, .sem skipt hefir við félaglð í 15 ár eða lengur, það sem stofnfjáreign hans er hærri en nemur meðalúttekt hans síðastliðin 5 ár. Þó má stofnsjóðsinnstæða aldrei verða minni en 300 kr. vegna slíkrar útborgunar. uði yfir því að geta miðlað öðr- um fegurðarverðmætum. Slíkir menn eiga skilið þökk og virðingu alþjóðar, þökk fyrir mannbætandi, þjóðnýt störf, þökk fyrir að leiða landslns börn út úr þokusúld og mollu hvers- dagsleikans upp 1 heiðríkju tón- anna. Vinir Sigurðar Þórðarsonar og aðdáendur fjær og nær senda honum og konu hans, Áslaugu Sveinsdóttur, hugheilar árnað- aróskir á þessum merku tíma- mótum ævi hans. Glæsilegur á- fangi er að baki, nýr að hefjast. Við hann eru tengdar hlýjar óskir og bjartar vonir um giftu- drjúgt starf á komandi árum. Laugarvatni, 4. apríl 1945. Þórður Kristleifsson. Ef félag er hætt störfum og búið er að fullnægja öllum skuldbindingum, sem á því hvíldu, má greiða félagsmönn- um út stofnsjóðsinnstæður þeirra, enda sé þá félagsfundur búinn að samþykkja fullnaðar- reikninga félagsins. Þó að aðalhlutverk stofn- sjóðsins sé að vera rekstursfé fyrir félagið er hann þó einnig til tryggingar skuldbindingum félagsins, ef á þarf að halda. Hafi orðið svo mikil eignatöp eða tekjuhalli hjá félagi, að tryggingarsjóðir nægi ekki til að greiða töpin og hætta er á, að félagið verði að hætta störf- um af þeim sökum, getur félags- fundur ákveðið, að stofnsjóðs- innstæður skuli notaðar til greiðslu á töpum. Þó að stofnsjóður gegni svip- uðu hlutverki í samvinnufélög- unum eins og hlutafé í hluta- félögum, eru reglurnar, sem um hann gilda, ólíkar reglunum um hlutafé, eins og ljóst er af fram- anskráðu. Hlutabréfin ganga kaupum og sölum manna á milli, þau falla aldrei. til útborgunar af ástæðum varðandi eigendur þelrra, heldur aðeins af ástæð- um viðkomandi félaginu. En stofnsjóðseignirnar falla hins vegar fyrst og fremst til útborg- unar vegna atvika, sem varða stofnfjáreiganda, sbr. það, sem áður hefir verið sagt. Þess vegna er lagt bann við sölu þeirra, því að það er fjárhagsatriði fyrir félagið hver er eigandi þeirra. Sá, sem ætíð hefir skipt við kaupfélag, getur átt stóra upp- hæð í stofnsjóði við andlát sitt. Hún gengur að erfðum til af- komenda hans. Upphæð þessi hefir safnazt smátt og smátt, og án þess að eigandi hafi þurft nokkuð sérstakt á sig að leggja. Ef hann hefði verzlað við kaup- mann, hefði ekki slík stofnsjóðs- innstæða safnazt. Stofnfjár- söfnunin er auðveld leið til að mynda dálítinn sjóð handa af- komendum sínum, jafnframt bví sem nauðsynlegt almanna- fyrirtæki er stutt. Gum-Gripper, nýtt ameriskt efni, lagfærir falskar tennur, sem tolla illa eða særa góminn. Berist á á þriggja mánaða fresti. Einfalt og þægilegt. Leiðarvísir á íslenzku. Tólf króna túba endist heílt ár. Sendum um land allt. Seyðisfjarðar Apótek. Þér skuluð lesa þessa bók. Fylgízt með Allir, sem fylgjast vilja með almennum málum, verða að lesa Tímann. Samband ísl. samvinnufélaga. 8AMVINNUMENN! Hafið eftirfarandi í huga. Tekjuafgangi kaup- félags er úthlutað til félagsmanna í hlutfalli við viðskipti þeirra. Fyrsta Mndi af ritnm Jóns Pálssonar er koinið ojí nefnist AUSTANTÓRUR Jón Pálsson fyrverandi banka- gjaldkeri Landsbankans er eins og kunnugt emeinn gagnfróð- asti maður hinnar eldri kyn- slóðar. Hann hefir safnað geysi- miklum og merkilegum fróðleik um menn og þjóðlífshætti. Jón hefir skemmtilegan írásagnar- máta og um áreiðanleik hans þarf ekki að fjölyrða, svo kunnur sem hann er fyrir margháttuð störf sín í þágu al- þjóðar. '.m Formála ritar Guðni Jónsson, magister, og hefir hann séð um útgáfuna. Bókin kostar aðeins 20,00. Fæst hjá öllum bókabúðum. t Helgaf ell Aðalstræti 18. — Sími 1653. 1 ikngga Cilæiibæjar Fftir Rajstnheiði Jónsdóttur. Speimandi róman um Filisteana í ísl. fijóðlífi. Skömmu fyrir heimsstyrjöldina fyrri var byrjað að nota nafnið Filistear um ákveðna mann- tegund hér á landi. Það voru menn, sem I skjóli nýrra hátta i viðskiptum gátu framið hvers konar siðleysi og beitt ótrú- legustu brögðum til þess að komast yfir fé manna, án þess að það virtist koma beinlínis í bága við landslög. í höfuðdrátt- um fjallar þessi bók um slíkar manntegundir og allskonar ó- gæfu í ástamálum og fjármál- u'm, sem orsakaðist af viðsklpt- um við þá. Ekki skal um það fuljyrt, hvort hér er um sannsögulegar frá- sagnir að ræða, þó margt koml lesandanum mjög kunnuglega fyrir. Bókin er prýðilega skemmtilega og fjörlega skrifuð, stór við- burðirnir reka hver annan og spenningurmn vex með hverri blaðsíðu, sem lesin er. Lesið „í skugga Glæsibæjar“ Fæst hjá öllum bókabúðum. Helgafell Aðalstræti 18-Sími 1653. Raftækjavinnustofan Selfossi framkvæmir allskonar rafvirkjastörf.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.