Tíminn - 10.04.1945, Blaðsíða 8
DAGSKRÁ er bezta íslenzka tímaritið um
8
þjóðfélagsmál.
REYKJAVÍK
Þeir, sem viljja ktpina sér þjóSfélatjsmál, inn-
Iend otj útlend, þurfa að Iesa Datjskrá.
10. APRÍL 1945
26. blað
TaÍÍÍáll tímmsT
0 '
3. apríl, þriðjudagur:
Sótt til Gotha.
Vesturvígstöðvarnar: Banda-
menn hafa tekið Osnabriick og
Miinster. Þriðji herinn var kom-
inn til Gotha, 240 km. frá Berlín
og 130 km. frá landamærum
Tékkoslóvakíu. Kanadamenn
áttu eftir 40 km. til Suidersee í
Hollandi, og er ætlun þeirra að
innikróa þýzkt lið þar fyrir
sunnan.
Austurvígstöðvarnar: Rússar
tóku Winer-Neustadt og brutust
inn í Bratislava.
4. apríl, miðvikudagur:
Farið yfir Weser.
V esturvígstöðvarnar: Þriðji
herinn tók borgirnar Gotha og
Suhl. Frakkar tóku Karlsruhe.
Her Montgomerys fór yfir We-
serfljót við Bielefeld og einnig
yfir Emsfljót. Hann á eftir 80
km. til Emden og 100 km. til
Bremen. Vörn Þjóðverja í Hol-
landi fór harðnandi, en þaðan
eiga þeir enn opnar tvær und-
anhaldsleiðir. -
' Austurvígstöðvarnar: Rússar
tóku Bratislava og áttu eftir 8
km. til Vínar. Allt Ungverjaland
er nú á valdi þeirra.
Danmörk: Tilkynnt, að Þjóð-
verjar hefðu tekið 9 Dani af lífi
í páskavikunni.
Bretland: Samveldisráðstefn-
an brezka hófst í_London.
5. apríl, fimmtudagur:
Stj órnar skipti
I Japan.
Japan: Japanska stjórnin
fór frá. Suzuki flotaforingi, sem
er 77 ára, hefir myndað nýja
stjórn. Stjórnarskiptin eru tal-
in afleiðing af ósigrum Japana
undanfarið. — Rússar hafa til-
kynnt Japönum, að þeir endur-
nýi ekki hlutleysissáttmálann,
en hann er útrunninn í apríl
1946.
Vesturvígstöðvarnar: Banda-
menn fóru yfir Weserfljót á
fleiri stöðum. Þeir voru 40 km.
frá Hannover og 60 km. frá
Bremen. Þriðji herinn tók
Múhlhausen. Frakkar voru 40
km. frá Stuttgart.
, Austurvígstöðvarnar: Rússar
voru 4 km. frá Vín. Þeir tóku
marga bæi í nágrenni borgar-
innar.
6. apríl, föstudagur:
Pólverjjar hverfa.
Rússar: Pólska stjórnin hefir
tilkynnt, að ekkert hafi heyrzt
frá 15 manna pólskri sendi-
nefnd, sem var í Rússlandi, síð-
an 28. marz. Hún var þá kvödd
á fund rússnesks herforingja.
Nefnd þessi átti að ræða um
stjórnmálaástandið í Póllandi.
í henni voru m. a. varaforsæt-
isráðherra Londonarstjórnar-
innar og fyrv. yfirhershöfðingi
pólska heimahersins.
Vesturvígstöðvarnar: Banda-
menn fóru víðar yfir Weser.
Þeir voru 50 km. frá Bremen,
50 km. frá Emden og 75 km. frá
Hannover. 3. herinn nálgaðist
Erfurt og var 90 km. frá landa-
mærum Tékkóslóvakíu. 7. her-
inn var í Heilbronn. Fakkar
voru 3? km. frá Stuttgart.
Áusturvígstöðvarnar: Rússar
hafa brotizt inn í Vín. Þeir hafa
tekið Sarajevo í Serbíu.
7. apríl, laugardagur:
Stórtjón Japana.
Kyrrahafsstyrjöldin: Flugvél-
ar Bandamanna gerðu stórárás
á japanska flotadeild fyrir
sunnan Japan. Sökktu þær
stærsta orustuskipi Japana,
tveimur beitiskipum, þremur
tundurspillum og eyðilögðu 116
flugvélar. Sjálfir misstu þeir að-
eins sjö flugvélar. Japanskar
flugvélar hafa gert gagnárásir
á bandarísk skip og valdið
nokkru tjóni.
Vesturvígstöðvarnkr: Banda-
menn unnu enn mikið á í Norð-
ur-Þýzkalandi og Hollandi. Þeir
áttu eftir 15 km. til Hannover
og 20 km. til Bremen. í Ruhr
þrengdist hingurinn um Þjóð-
verja.
Austurvígstöðvarnar: Barizt
ákaft í .Vín. Rússar hafa hafið
stórsókn í Tékkóslóvakíu og
stefna til Brúnn.
8. apríl, sunnudagur:
IVý g'rísk síjórn.
Grikkland: Bulgaris flotafor-
ingi hefir myndað utanflokka-
stjórn í Grikklandi. Plastiras
varð að fara frá vegna harðn-
andi mótstöðu konungssinna, er
töldu hann hafa sýnt Elasmönn-
um of mikla vægð.
Vesturvígstöðvarnar: iBanda-
menn héldu áfram harðri sókn
í Hollandi og Norður-Þýzka-
landi. Þeir voru 8 km. frá Brem-
en, 10 km. frá Hannover og 40
km. frá Braun-Schweig. Þriðji
herinn tók Göttingen. 7. herinn
var 50 km. frá Núrnberg. Frakk-
ar voru 20 km. frá Stuttgard.
Austurvígstöðvarnar: Rússar
tóku 3 járnbrautarstöðvar í
Vín. Lokasóknin gegn Königs-
berg var hafin.
9. apríl mínnst
Félag Norðmanna og frjálsra
Dana minntust þess sameigin-
lega í gær, að þá voru liðin fimm
ár frá því er Þjóðverjar réðust
á þessar þjóðir og hernámu lönd
þeirra.
Séra Bjarni Jónsson flutti
guðsþjónustu í Dómkirkjunni
kl. 2 um daginn, að viðstöddum
forseta íslands og ríkisstjórn, á-
samt fulltrúum erlendra ríkja.
Fór sú athöfn mjög virðulega
fram. í kirkjunni léku þeir ein-
leika Björn Ólafsson, fiðluleik-
ari, og Páll ísólfsson, organ-
leikari, og frú Gerd Grieg flutti
kvæði manns slns, 9. apríl. Um
kvöldið var fjölmenn samkoma
í Gamla Bíó í tilefni dagsins.
Deildarfundir KR0N
/
Aðalfundur 4. deildar verður þriðjudaginn 10. apríl í Listamanna-
skálanum og hefst kl. 8,30.
Deildarsvæði í stórum dráttum: Aðalstræti að vestan, Bjargar-
stígur og Skálholtsstígur að sunnan, Bergstaðastígur og
Smiðjustígur að austan.
Aðalfundur 6. deildar veður miðvikudaginn 11. apríl í Kaup-
þingssalnum, hefst kl. 8,30.
Deildarsvæði í stórum dráttum: Skálholtsstígur og Bjargarstíg-
ur að norðan, Bergstaðastræti að austan, Njarðargata að
sunnan.
Aðalfundur 8. deildar verður í Kaupþingssalnum föstudaginn 13.
apríl og hefst kl. 8,30.
Deildarsvæði í stórum dráttum: Frakkastígur að vestan, Grettis-
gata að sunnan, Rauðarárstígur, vatnsþró að austan.
|
Félagsmenn! Munið að hafa með yður aðgöngumiðana á
fundinn!
KKOIV.
Áburðarinnílutningurinn
(Framhald af 1. síðu)
Allmikið af áburðinum er þeg-
ar búið, eða er verið að senda,
til ýmissa hafna utan Reykja-
víkur, og byrjuö er afgreiðsla á
honum til þeirra, sem flytja
hann til sín landveg héðan.
Verður fyrst um sinn að af-
greiða aðeins nokkurn hluta
hans, eða í syipuðu hlutfalli og
komið er til landsins.
Ábnrðarverðið.
Verðlag helztu áburðarteg-
undanna verður allmiklu lægra
en á síðasta ári eins og hér
verður greint:
Brennisteinssúrt ammoníak
kr. 26,50, var í fyrra kr. 32,00.
Ammophos 16—20 kr. 30,00,
var í fyrra kr. 37,00.
Ammoníaksaltpétur kr. 34,00,
var ekki til í fyrra.
Verð það, sem hér er talið,
er miðað við 100 ensk pund.
Viö það bætist uppskipun og
vörugjald, sem verður krónur
1.50 á hvern hálfpoka í Reykja-
vík, en annars er verð áburðar-
ins hið sama á öllum höfnum
landsins, sem skip Eimskipafé-
lags íslands og Skipaútgerðar
ríkisins hafa viðkomu á, eins og
jafnan hefir verið.
Nokkur hluti af Brennisteins-
súru ammoníaki er á heilsekkj-
um, sem eru að þyngd full 100
kgr. Verð á þeim verður kr. 55,00
sekkurinn, og er það ívið lægra
hlutfallslega en á þvi sem er í
hálfpokum.
Flskimjöl til áburðar.
Af því sem hér hefir verið
sagt, er auðsætt, að nokkur á-
burðarvöntun verður í vor, ef
miðað er við pantanir af land-
inu alls. Ekki verða tök á, að
þæta úr þeirri- vöntun með við-
bótarinnflutningi, en hins veg-
ar er það ekki ófær leið að nota
fiskimjöl til áburðar. Hafa ýms-
ir gert nokkuð að því undan-
farin ár, og iáta margir vel af.
Að vísu er það miklu dýrari
áburður miðað við áburðargildi
heldur en tilbúni áburðurinn, en
með þvi má þó bæta úr brýnni
þörf og áburðarvöntun, einkum
hér sunnanlands. Verð á fiski-
mjöli er nú kr. 50,00 hver 100
kg. hér í Reykjavík og munu
nokkrar birgðir vera til af því í
landinu.
Aðalfundur Blaðam.-
íélags Islands
Aðalfundur Blaðamannafé-
lags íslands var haldinn að Hó-
tel Borg á sunnudaginn var.
Valtýr Stefánsson ritstjóri, er
var formaður félagsins síðast-
liðið ár, gerði grein fyrir fjárhag
dg störfum félagsins og drap^á
nokkur þau mál, er úrlausnar
biða.
Síðan fór fram stjórnarkosn-
ing. Formaður var kjörinn Jón
Magnússon fréttastjóri út-
varpsins, en meðstjórnendur
Hersteinn Pálsson ritstjóri
Vísis, Sigurður Guðmundsson
ritstjóri Þjóðvilj ans, Thorolf
Smith blaðamaður við Alþýðu-
blaðið og Jón Helgason blaða-
maður við Tímann.
í stjórn menningarsjóðs Blaða-
mannafélagsins voru kosnir Jón
Sextngnr:
Jón Sígurjónsson
prentari.
í dag er sextugur Jón Kr. Sig-
urjónsson, prentari, Njálsgötu
108.
Jón er" fæddur í Njarðvík í
Norður-Múlasýslu 10. apríl 1885,
sonur Sigurjóns Jónssonar
bónda þar og Maríu Guðbrands-
dóttur. Jón afi hans var fræði-
maður mikill, sérstaklega á sviði
ættfræði.
Jón Kr. Sigurjónsson
Prentnám hóf Jón í prent-
smiðju Austra á Vestdalseyri
við Seyðisfjörð í maímánuði
1901. Var þá Skapti Jósefsson
ritstjóri Augtra. En eigandi
prentsmiðjunnar og prent-
smiðjustjóri var Þorsteinn
Skaptason, síðar ritstjóri Austra
og póstafgreiðslumaður á Seyð-
isfirði.
Til Reykjavíkur skrapp Jón
veturinij. 1909, og vann þá stutt-
an tíma í prentsmiðjunni Gut-
enberg, en hvarf aftur austur
um vorið. í aprílmánuði 1910 fór
Jón enn til Reykjavíkur og fór
þá að vinna í ísafoldarprent-
smiðju, þar sem hann starfaði
samfleytt um rösklega tíu ára
skeið. í ársbyrjun 1921 tók hann
til starfa í prentsmiðjunni
Acta og vann þar óslitið, þar til
sú prentsmiðja var seld Prent-
smiðjunni Eddu h. f. haustið
1936. Síðan hefir hann verið
starfsmaður Edduprentsmiðju,
og verið elztur starfsmanna þess
fyrirtækis frá byrjun.
Jón er giftur Sínú Ingimund-
ardóttur frá Sörlastöðum í
Seyðisfirði.
Jón er maður glaðlyndur og
félagslyndur, vinhlýr og dreng-
ur hinn bezti.
Það mun verða gestkvæmt í
heimili þeirra hjóna í dag, bæði
af samstarfsmönnum Jóns og
öðrum vinum og kunningjum
þeirra hjóna.
Tíminn þakkar Jóni Sigur-
jónssyni mörg. og margvísleg
störf í blaðsins þágu á liðnum
árum.
Kjartansson ritstjóri Morgun-
blaðsins, Sigfús Sigurhjartar-
son ritstjóri Þjóðviljans og Jón
H. Guðmundsson ritstjóri Vik-
unnar.
Framhaldsaðalfundur verður
haldinn innan skamms.
YMSAR FRETTIR
Jarðhræringar við Heklu.
Jarðskjálftakippir hafa fund-
izt nokkuru sinnum undanfarið
á næstu bæjum við Heklu. Guð-
mundur Kristjánsson jarðfræð-
ingur gekk á Heklu um páskana
og fann þá jarðhita á tindi
hennar, en hans varð ekki vart
fyrir fimm árum. 'Síðasta stór-
gos Heklu var 1845, en oft hefir
liðið öld milli aðalgosa hennar.
Þó hafa orðið smærri gos með
skemmra millibili, t. d. 1878 og
1913.
Skógræktargjöf.
Formaður Skagfirðingafélags-
ins í Reykjavík, Pétur Jónsson,
hefir afhent sýslunefnd Skaga-
fjarðar 12 þúsund krónur, sem
gjöf frá félaginu. Fé þetta er
gjöf til Skógræktarfélags Skaga-
fjarðarsýslu.
Sigurður Hlíðar heiðraður.
Á ársfundi Mjólkursamlags
KEA, er haldinn var 5. þ. m.,
var samþykkt að veita yfirdýra-
lækni, Sigurði E. Hlíðar, 10 þús.
krónur að gjöf. — En gjöf þessi
er viðurkenning fyrir margra
ára ágætt starf, sem dýralækni
í Eyjafirði.
Sigurður átti nýlega sextugs-
afmæli.
♦♦ G A M L A B í Ó f t N Ý
Eyðimerkurævin-
týri TARZANS
(Tarzan’s Desert Mystery)
Aðalleikarar:
Johnny Weissmuller,
Nancy Kelly.
.Sýnd kl. 3, 5 og 7.
Engin sýning Id. 9.
BERNSKUBREK
OG
ÆSKUÞREK,
hin vinsæla ævisaga
Winston Cliurcliills
forsætisráðherra Breta,
hefir nú verið send til
flestra bóksala á landinu.
Aðeins fá eintök eru til.
B í Ó *
JACK L0ND0N
Amerísk stórmynd, er sýnlr
merka þætti úr ævi hins heims-
kunna rithöfundar,
Jack London.
Aðalhlutverkin leika:
Susan Hayward,
Michael O’Shea.
Bönnuð börnum yngri en 14 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9. '
TJARNARBÍÓ
ÓBOÐNIR
GESTIR
(The Uninvited)
Dularfull og spennandi reim-
leikasaga.
Ray Milland,
Rpth Hussey,
Gail Russell.
Sýnd ki. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
Kaupmaðurinn IF eneyjum
Gamanleikur í 5 þáttum, eftir William Shakespeare.
Sýning í kvöli! kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir í dag frá kl. 2
Aðgangur bannaður fyrir börn.
Ú R B Æ N U M
Skemmtisamkoma.
Seinasta skemmtun Framsóknar-
manna á vetrinum verður n. k. föstu-
dagskvöld í Sýningaskálanum. Hefst
hún kl. 8,30 með Framsóknarvist. Eftir
að verðlaunum hefir verið úthlutað
til sigurvegaranna í spilunum, verður
ýmiss konar gleðskapur fram eftir
nóttu. Öllum, sem komnir eru kl. 8,30
í samkomusalinn er ábyrgzt rúm við
spilaborðin. Búizt er við að mörgum
þurfi að neita um aðgang eins og
undanfarið á Framsóknarskemmtun-
unum og eru því Framsóknarmenn
minntir á að panta sér sem allraUyrst
aðgöngumiða á afgreiðslu Tímans,
sími 2323.
Fræðslufélag bílstjóra.
Samkvæmt ákvörðum síðasta aðal-
fundar bifreiðastjórafélagsins Hreyfill,
var ákveðið að stofna fræðslu- og
málfundafélag fyrir bifreiðastjóra. í
Reykjavík og nágrenni. Félag þetta var
stofnað 27. febr. þ. á., og hlaut nafn-
ið Fræðslu- og málfundafélagið „Kynd
ill.“ Félagið hefir haldið fundi viku-
lega síðan það var stofnað. í stjórn
félagsins voru kosnir: Tryggvi Krist-
jánsson formaður, Ingimundur Gests-
son ritari og Ingvar þórðarson gjald-
keri. — Félagið er deild úr bifreiða-
stjórafélaginu Hreyfill. ,
Ný frímerki
voru nýlega gefin út. Eru þetta þrjár
tegundir frímerkja með myndum, sem
áður hafa verið notaðar á íslenzk frí-
merki. Gilda þau 10 krónur, með mynd
af Þorfinni karslefni, 1 kr., með mynd
af Geysisgosi, 25 aura, með mynd af
þorski og 10 aura, með mynd af síldum.
Ný götunöfn.
Þeir próf. Ólafur Lárusson, próf.
Sigurður Nordal og, Pétur Sigurðsson
háskólaritari hafa gert tillögur um
götunöfn á nýjum götum austan Engi-
hlíðar, sunnan Miklubrautar og sam-
hliða henni. Tillögur þeirra hafa ver-
ið -samþykktar og eru göturnar talið
suður frá Miklubraut: Barmahlíð,
Mávahlíð, Drápuhlíð og Blönduhlíð.
Ennfremur hefir syðsta gatan í Klepps
holtinu, milli Langholtsvegar og
Kambsvegar verið nefndur Dyngju-
vegur. ,
Foreldrablaðið.
1. tölubl. 9. árg. er komið út. Af
efni þess má nefna: Tillögur um
skólamál eftir Hermann Halldórsson,
Skóli skólanna eftir Sigurð Thorlacius,
Skólínn og börnin eftir Helga Elíass-
son fræðslumálastj., Félagslíf barna
í skólum eftir Jón Sigurðsson, Hvað
ungur nemur ........ eftir Ingimar
Jóhannsson, Um sumardvöl barna eftir
Kristinn Gíslason o. fl.
Dómar
hafa nýlega verið kveðnir upp yfir
tveimur mönnum. Annar í sex mán-
aða fangelsi skilorðsbundið og sviptur
kosningarétti og kjörgengi fyrir skjala-
fals. Hann hafði gefið út ávísun á
banka án þess að innstæða væri fyrir
hendi. Hinn maðurinn, 29 ára að aldri,
hafði keypt hjólbarða' af setuliðiðs-
manni og var dæmdur í 30 daga fang-
elsi skilorðsbundið.
Jón Sigurðsson verkfræðingur
hefir verið ráðinn slökkviliðsstjóri
frá 1. maí að telja. Var þetta sam-
þykkt á seinasta bæjarstjórnarfundi.
Slökkviliðsmenn höfðu farið fram á,
að Karli Bjarnasyni varaslökkviliðs-
stjóra yrði veitt starfið.
Aðalfundur
Vestfirðingafélagsins.
Aðalfundur Vestfirðingafélagsins var
nýlega haldinn. Formaður félagsins
Guðl. Rósinkranz, gaf skýrslu um starf
félagsins. Félagið hafði haft þrjá
skemmtifundi auk fjölmenns Vest-
firðingamóts. Þá hefir félagið með
höndum útgáfu á ritverki um Vestfirði.
Er nú verið að prenta fyrstu bókina,
sem fjallar um gróðurlíf á Vestfjörð-
um og er eftir Steindór Steindórsson
menntaskólakennara. Sýslufélögin á
Vestfjörðum hafa gefið 7000 kr. styrkt-
arfé til útgáfunnar. Félagið leg^ur
árlega 1 kr. af hverjum féíagsmanni
í sjóð Byggðasafns Vestfjarða. Verið
er að safna í þann sjóö á Vestfjörðum.
Þar hafa safnazt um 30 þús. kr., en
í sjóði Vestfirðingafélagsins eru nú um
13 þús kr. í stjórn félagsins eru nú:
Guðl. Rósinkranz, Elías Halldórsson
skrifstofustj., dr. Símon Jóh. Ágústs-
son, Sigurvin Einarsson kennari, frú
Áslaug Sveinsdóttir, fröken María
Maack og Sveinbjörn Finnsson verð-
lagsstjóri. Um 800 manns eru nú í
félaginu.
Hjúsbapur.
Nýlega voru ^efin saman af séra
Garðari Svavarssyni ungfrú Ragn-
heiður Jónsdóttir (Grímssonar banka-
fulltrúa) og Jakob J. Tryggvason til-
skeri. Heimili ungu hjónanna er við
Hrísateig 12.
Lýst eftir ættingjum
Arnórs Björnssonar.
Hinn 15. október 1944 andaðist i
Bandaríkjunum íslenzkur sjómaður
að nafni Arnór Björnsson. Þeir sem
kynnu að geta gefið upplýsingar um
ættingja Arnórs heitins eru góðfús-
lega beðnir að láta þær utanríkisráðu-
neytinu í té. Talið er að systir Arnórs
að nafni Unnur eða Anna muni vera
búsett í Reykjavík.