Tíminn - 19.06.1945, Page 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
ÚTGEFPANDI:
FR AMSÓKN ARFLOKKURINN.
Simar 2353 Og 4373.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
RITST JÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Lindargötu 9A.
Simar 2353 og 4373.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9A.
Sími 2323.
29. árg.
Reykjavík, þriðjudaglnn 19. júní 1945
45. blað
Lýðræðinu verður bezt íullnægt
á grundvelli samvinnusteinunnar
Sextíu fulltrúar sóttu þing
Samb. ungra Framsðknarm.
Skýrt frá störfum þingsins og kosningu
nýrrar sambandsstjórnar.
Stjórnmálayíírlýsing þriðja
þings S. U. F.
Sambandsþing ungra Framsóknarmanna lýsir yfir því, að það
telur höfuðnauðsyn að halda í heiðri grundvallarskilyrði lýð-
ræðisins, svo sem rétt þegnanna til hugsanafrelsis og félaga-
frelsis, menntunar, atvinnu og framfærslu og skyldu þeirra til
þess að vinna hver þau þjóðnytjastörf, sem fyrir liggja, og hlýðn-
ast stjórnarskrá og lögum landsins.
Sambandsþingið telur að andi þessarar stefnuskrár náist bezt
á grundvelli samvinnunnar, þar sem hún sameinar ábyrga og
réttmæta þátttöku einstaklingsins í stjórn og arði fyrirtækja og
framleiðslu og fyrirbyggir óeðlilegt vald og gsóða einstakra
manna. '
Þinginu er það Ijóst, að vinnufriður í landinu hlýtur að byggj-
ast á jöfnuði og gagnkvæmu trausti milli stétta og héraða. Það
telur því hina mestu nauðsyn að afnema stórgróða og forréttindi
einstakra manna og stétta og að jafna stjórnarfarslega og fjár-
hagslega aðstöðu hinna ýmsu landshluta og Reykjavíkur.
Jafnframt gerir þingið sér grein fyrir því, að íslenzk framleiðsla
verður ekki samkeppnisfær á heimsmarkaði nema dýrtíð og
framleiðslukostnaður verði fært til samræmis við það, sem er í
öðrum löndum. Niðurfærsla verðlags og kaupgjalds er því aðkall-
andi nauðsyn, enda sé þess gætt að skattleggja stórgróða síðustu
ára í samræmi við það, en kaupgeta almennings verði ekki
minnkuð.
Ennfremur telur þingið óumflýjanlegt, að gerðar verði örugg-
ar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir, að framleiðsla lands-
manna við sjó og í sveit dragist saman eins og líkur benda til að
verða muni, ef fólk leitar svo mjög, sem nú er, annarra starfa
en framleiðslunnar.
Sambandsþingið telur stefnu núverandi ríkisstjórnar hættu-
lega og sé því sérstaklega brýn þörf fyrir öflug samtök þjóðlegra
NÝ STORVELDARAÐSTEFNA I VÆADLM.
Innan skamms mun verða haldin ný stórveldaráðstefna, sem verður eins
konar framhald Krímfundarins, og munu þeir Truman, Churchill og '
Stalin mœta á henni. Líklegt þykir, að ráðstefnan verði haldin í Berlín.
Mynd Jiessi var tekin af þeim Stalin og Churchill á Krímfundinum, en
þriðji aðalmaðurinn þar, Roosevelt, Bandaríkjaforseti, er fallinn í valinn.
Adalfundur Kaupfélags
Þíngeyinga
og frjálslyndra umbótamanna til að koma fjármálum og atvinnu-
rekstri þjóðarinnar á heilbrigðan grundvöll, svo að tryggja megi
nauðsynlegar framkvæmdir og almenna velmegun.
Aðrar ályktanir þingsins
Endurskoðun
stjórnarskrárinnar.
Sambandsþing ungra Fram-
sóknarmanna leggur áherzlu á
það, að við endurskoðun stjórn-
arskrárinnar verði þjóðinni gef-
inn kostur á að fylgjast vel með
umræðum og ýmiskonar tillög-
um, sem fram kunna að koma.
Mælir það eindregið með því, að
skipað verði sérstakt stjórnlaga-
þing, (þjóðfundur), þar sem
það er eina ráðið til þess, að
stjórnarskrármálið verði að-
greint frá öðrum málum og
kosið um það eitt og sérstak-
lega. Verði sú stjórnarskrá, sem
þar yrði samþykkt, síðan borin
undir þjóðaratkvæði til sam-
þykktar.
Landbúnaðarmál.
Þriðja þing Sambands ungra
Framsóknarmanna telur mikla
nauðsyn bera til, að hraða rækt-
unarframkvæmdum svo, að
bændur landsins geti tekið allan
heyfeng sinn á ræktuðu landi
og lýsir yfir Stuðningi sínum við
jarðræktarlagafrumvarp milli-
þinganefndar B. í., sem svæft
var á sfðasta Alþingi.
Þingið telur landgræðslumálið
eitt hið stærsta mál þjóðarinn-
ar, og bendir í því sambandi á
þau verkefni, sem sinna verði í
næstu framtfð að koma upp víð-
áttumiklum girðingum til sand-
græðslu og skógræktar og að
ræsa fram stóra mýrarflóa í
byggðum og víðar, þegar ráð-
úm gefst til.
Þinginu er það íjóst, að korn-
rækt á að vera fastur liður í bú-
skap á íslandi og telur því, að
nú sé þýðingarmikið að veita
allri viðleitni í þá átt stuðning
og sérstaklega að stuðla að því,
að tilraunir verði gerðar með
akurreinar milli skjólbelta úr
skógargróðri.
Ennfremur lítur þingið svo á,
að hraða beri sem unnt er bygg-
ingu áburðarverksmiðju og
skorar jafnframt á Alþing og
ríkisstjórn að hefja fram-
kvæmdir eigi síðar en á næsta
ári.
Sjávarútvegsmál.
Þriðja þing S. U. F. telur það
eitt af meginverkefnum þings
og ríkisstjórnar að vinna að efl-
ingu og aukningu sjávarútvegs-
ins. Meðal þeirra úrræða, sem
þar koma fyrst til greina, er að
auka svo fjárráð Fiskimálasjóðs
að hann geti veitt aukna styrki
til skipakaupa, rannsóknar-
starfsemi, markaðsleita og ann-
arrar starfsemi *í þágu útvegsins.
Þá ber að leggja mikið kapp á
eflingu hvers konar samvinnu-
starfsemi í þágu útvegsins, t. d.
fiskisölusamlaga, olíusamlaga,
sameiginlegra viðgerðarstöðva,
og þannig verði útgerðarkostn-
aðurinn stórlega lækkaður til
hags fyrir útvegsmenn og sjó-
menn.
Iðnaðarmál.
Þriðja þing S. U. F. leggur
áherzlu á, að iðnaðurinn verði
viðurkenndur sem einn af aðal-
atvinnuvegum þjóðarinnar við
hliðina á landbúnaðinum og
sjávarútveginum, og verði því að
honum búið af hálfu Alþingis
og stjórnarvalda í samræmi við
það. Má í þessu sambandi minna
á það, að nauðsynlegt er á næstu
árum að auka hvers konar iðn-
að til að bæta hagnýtingu land-
búnaðarafurða og sjávarafurða,
ef ekki á að láta mikil verðmæti
fara forgörðum. Verður það að
(Framhald á 8. síöu)
Aðalfundur Kaupfélags Þing-
eyinga var haldinn í Húsavík
dagana 27.—29. apríl s. 1. Var
þetta 64. aðalfundur félagsins.
Fundinn sátu 65 fulltrúar frá 17
deildum, auk félagsstjórnar,
endurskoðenda og forstjóra. Á
fundinum var gefin ýtarleg
skýrsla um starfsemi félagsins
á síðastl. ári. Vörusala félags-
ins á árinu sem leið nam kr.
3.211.594,00 í búðum þess, og
hafði aukizt um 134 þúsund. Auk
þess seldi félagið innlendar
vörur til neytenda og beitusíld
fyrir 386 þúsund. — Stofnsjóð-
ur félagsmanna er nú 220 þús-
und og hefit aukizt á árinu um
391/2 þús. Varasjóðir félagsinls
eru 617 þúsund og hækkuðu á
árinu um 134 þúsund. — Ákveð-
ið var að greiða félagsmönnum
8% í arð af ágóðaskyldum við-
skiptum þeirra. Af þessu voru
3% lögð í stofnsjóð, en 5% út-
borguð.'
Á árinu var lokið við viðgerð
og endurbætur á húsinu „Garð-
ar“ og þar á neðstu hæð opnuð
Uppeldismálaþing*
Fjórða uppeldismálaþing sam-
bands ísl. barnakennara var sett
í gær kl. 4 í Kennaraskólanum
•í Reykjavík. Ingimar Jóhannes-
son, forseti sambandsins, setti
þingið með snjallri ræðu. Eftir
þingsetninguna flutti Helgi El-
íasso>,.fræðslumálastjóri, fram-
söguerindi um frumvörp milli-
þinganefndar I skólamáluta um
fræðslu barna og skólakerfi og
fræðsluskyldu.
í gærkvöldi kl. 8,30 flutti Ár-
mann Halldórsson skólastjóri
framsöguerindi um kennara-
menntunina.
Dagskrá þessa þings er ein-
göngu um tillögur milliþinga-
nefndar í skólamálum. Fyrsti
forseti þingsins var Sveinn Hall-
dórsson, kennari í Görðum.
Þingið sitja hátt á annað
hundrað kennarar víðs vegar
af landinu.
sölubúð með skó- og vefnaðar-
vörur hinn 9. júlí sl. Úr Menn-
ingarsjóði félagsins voru veittir
þessir stytkir: Til Sýslubóka-
safnsins kr. 1000.00. Til skóg-
ræktar kr. 1000.00. Til viðgerðar
á bókhlöðunni í Húsavík kr.
5000.00. Til Búnaðarsambands
Þingeyinga, til bændafarar, kr.
1000.00. — Fundurinn sam-
þykkti að félagið keypti 25 þús-
und kr. hlutafé í fyrirhuguðu
útgerðarfélagi í Húsavík, að
þvi tilskildu, að félagið verði
stofnað fyrir apríllok 1946.
Fundurinn fól stjórninni að láta
rannsaka nú þegar skilyrði til
.mjólkurvinnslustöðvar í Húsa-
vík.
Fundurinn samþykti tillögu
um að skora á ríkisstjórnina að
hefja nú þegar á þessu ári und-
irbúning að byggingu áburðar-
verksmiðju. Fáist það hins vegar
ekki framgengt, var fundurinn
hvetjandi þess, að SÍS og deild-
ir þess tækju málið í sínar hend-
ur, að fengnum þeim trygging-
um og aðstoð frá ríkinu, sem
Búnaðarþingið gerði tillögur um.
Samþykkt var áskorun til sauð-
fjársjúkdómanefndar, að hún
vinni að því, að lokið verði nú
þegar á næsta hausti fjárskipt-
um á svæðinu milli Jökulsár og
Skjálfandafljóts, en á því svæði
eru nú tveir hreppar með
sjúkan fjárstofn, Mývatns-
sveit og Bárðardalur. *
Endurkosnlr í stjórn K. Þ.
voru þeir: Björn Sigtryggsson,
bóndi á Brún, og Illugi Jónsson,
tbóndi í Reykjahlíð. Fulltrúar á
aðalfund SÍS: Þórhallur Sig-
tryggsson, framkvæmdastjóri,
(Framhald á 8. síðuj
I DAG
birtist á 3. sí5u grcin er nefn-
ist Félagsheimili í sveitum, eftir
Daníel Ágústínusson, erindreka.
Neðanmáls á 3. og 4. síðu er
grein um efnafræðiframfarir,
einkum á sviði landbúnaðarins
í Bandaríkjunum, eftir Ross L.
Holman.
1 ----■----——------------------
Þriðja þing Sambands ungra Framsóknarmanna var haldið að
Laugarvatni dagana 15.—16. júni síðastl. Þingið sóttu um 60
fulltrúar víðs vegar að af landinu. Á þinginu voru samþykktar
margar ályktanir, bæði varðandi landsmál og sérmálefni S. U. F.
Kosin var ný stjórn fyrir S. U. F., sem að mestu leyti er skipuð
nýjum mönnum, þar sem flestir þeirra, sem áður skipuðu hana,
eru nú að komast á þann aldur, að þeir munu hætta að starfa
innan samtaka ungra Framsóknarmanna.
Þingið var sett að Laugarvatni
kl. 41/2 síðdegis á föstudaginn. i
Á fyrsta fundinum gáfu fráfar-
andi formaður, ritari og gjald-
keri skýrslur um störf og efna-
hag S. U. F. á liðnu kjörtíma-
bili, en síðan fóru fram nefnd-
arkosningar. Nefndarstörf fóru
fram um kvöldið. Á laug-
ardaginn voru nefndarálit af-
greidd og urðu talsverðar um-
ræður um sum þeirra. Ályktanir
þingsins um landsmál, eru birt-
ar á öðrum stað í blaðinu, en á-
lyktanir þess um sérmálefni S.
U. F. munu verða sendar félög-
um og trúnaðarmönnum þess.
Seinni fundardaginn flutti
Eysteinn Jónsson erindi, er fjall-
aði um stefnu stjórnmálaflokk-
anna, og Bjarni Bjarnason flutti
erindi, er fjallaði um skólamál
og sam^ök bænda. Var báðum
þessum erindum mjög vel tekið.
Á seinasta þingfundinum voru
fluttar allmargar hvatningar-
ræður og sungin ættjarðarkvæði.
Þá voru þeim mönnum, sem
starfsemi S. U. F. hafði hvílt
mest á undanfarin ár, færðar
þakkir og þó sérstaklega þeim
Þórarni Þórarinssyni, er hafði
verið formaður S. U. F. frá
stofnun þess, Jóni Helgasyni, er
verið hafði jafnlengi í stjórn-
inni, Guðmundi V. Hjálmars-
syni, er var fyrsti ritari S. U. F.
og vann mikið að stofnun þess,
Jóni Emil Guðjónssyni, er var
ritari S. U. F. seinasta kjörtíma-
I
bil, og Daníel Agústinussyni, er
verið hafði gjaldkeri S. U. F.
undanfarið og unnið hafði mik-
ið starf í þágu þess. Þá voru
Bjarna Bjarnasyni færðar sér-
stakar þakkir. Hafa öll þing S.
U. F. verið haldin að Laugar-
vatni og hefir Bjarni sýnt S. U.
F. mikla greiðvikni í þvi sam-
bandi.
Það er ekki ofsagt, að þingið
einkenndi mikill áhugi fyrir
stefnu Framsóknarflokksins og
eflingu hans. Sýndu margir full-
trúahna líka, að sá áhugi var
meira en orðin ein, þar sem þeir
höfðu lagt á sig erfið og kostn-
aðarsöm ferðalög til að geta sótt
þingið.
S t j órnar kosningf n.
Stjórn S. U. F. er þannig skip-
uð, að hvert kjördæmi á þar full-
trúa, auk sérstakrar fram-
kvæmdastjórnar í Réykjavík, —?
Kosningar í stjórn S. U. F. fóru
að þessu sinni þannig:
í framkvæmdastjórnina í
Reykjavík voru kosnir:
Formaður Jóhannes Elíasson,
stud. jur., ritari Andrés Krist-
jánsson kennarij gjaldkeri Gutt-
ormur Óskarsson fulltrúi, með-
stjórnandi Friðný Pétursdóttir
skrifstofumær. Varamenn voru
kosnir: Þorgerður Þorvarðsdótt-
ir, Guðni Þórðarson, Sigurður
(Framhald á 8. síðu)
Ofbeldi kommúnista
í Kaupfél. SíglHrðínga
Im 70 menn reknir úr félaginu.
Kommúnistar hafa framiff nýjan ofbeldisverknaff í Kaup-
félagi Siglfirffinga, sem er alveg einstæður hér á landi.
Eins og áffur hefir veriff skýrt frá, töpuffu þeir í flestum
deildum kaupfélagsins, þegar kosnir voru fulltrúar á aðal-
fund þess. Hugffust þeir samt geta beitt brögffum til aff
halda völdunum áfram og hefir því tvívegis þurft að fresta
aðalfundinum. Að lokum var kommúnistum þó ljóst, aff
ekki myndu neinir smáklækir koma aff gagni, og vap því
Áki Jakobsson kvaddur norffur til aff gefa ráff, sem dyggffu. ,
Nokkru eftir komu hans þangaff, voru 29 fulltrúar, sem
sæti áttu á aðalfundinum, reknir úr félaginu af fráfarandi
stjórn, sem var komin í augljósan minnihluta í félaginu, og
síðan hefir brottrekstrunum veriff haldið áfram, og mun í
gærkvöldi hafa veriff búiff aff reka um 70 manns úr félaginu.
Jafnframt hefir þessi fráfarandi stjórn auglýst nýja deild-
arfundi til aff kjósa fulltrúa á nýjan aðalfund, og þykist
nú vera orffin viss um sigur þar eftir þessa stórfelldu
„hreingerningu“.
Þaff þarf vitanlega ekki aff taka fram, aff þetta framferffi
hinnar fráfarandi stjórnar er byggt á fullkominni lögleysu
og fulltrúar þeir, sem var búiff aff kjósa áffur en brottrekstr-
arnir hófust, munu því ljúka aðalfundinum, eins og lög
standa til. Þessi framkoma kommúnista er eigi aff síffur hiff
Ijósasta dæmi um einræffi og ofbeldi þeirra, sem ætti aff
verffa öllum frjálshuga mönnum hvatning til aff herða bar-
áttuna gegn þeim.
Saga átakanna í Kaupfélagi Siglfirðinga, er á margan
annan hátt lýsir þessu innræti kommúnista, mun rakinn
nánara hér í blaðinu innan skamms, svo aff menn geti
fengiff sem ljósasta mynd af þeim háska, sem hér er á ferff-
um, ef ekki verffur kröftuglega gegn honum risiff.