Tíminn - 19.06.1945, Blaðsíða 7

Tíminn - 19.06.1945, Blaðsíða 7
45. blað TÍMINN, |>riðjadagiim 19. jiiní 1945 7 Áttræður. (Framhald af 6. síðu) en deyfð og sinnuleysi. Hann er greindur vel og fróður um margt enda víðförull um eitt skeið ævi sinnar. Hann er vel máli fp.rinn og einarður vel við hvern, sem Jón Eiríksson. í hlut á, stefnufastúr og trygg- ur í lund. Gestrisinn og góður heim að sækja og hefir heimili þeirra hjóna verið vel þekkt að rausn og myndarskap. Jón ber aldurinn vel, er kvik- ur í spori og léttur í lund, en sjónin er farin nokkuð að dapr- ast. Hinir mörgu vinir Jóns hugsa nú hlýtt til hans á þessum tíma- mótum ævinnar. Þakka honum margar ánægjulegar samveru- stundir og óska! að bjart megi verða um hann á ævikveldi hans. J. K. Aths. Framarlega í grein þessari stendur: Jón er elztur 11 systkina. Eru tveir bræður hans á lífi, Kristján, fyrrum bóndi, o. s. frv., — á að standa: Kristján fyrrum bóndi að Núpi við Beru- fjörð, nú umsjónarmaður við barnaskóla Austurbæjar, og Jón bóndi í Volaseli í Lóni. — Síð- an greinin óbreytt áfram: Á víðavangi. (Framhald a) 2. síðu) að — og það var vegna þess (það vissu allir þingmenn og alþjóð) að Framsóknarflokkur- inn fékk ekki tryggingu fyrir því, að verðbólgan yrði stöðvuð. „Kollsteypan“. Sjálfstæðismenn virtust á sama máli og Framsóknarmenn í tólfmannanefndinni. En allt í einu í byrjun október tók Ólafur „kollsteypuna" með kommúnist- um. Hækkunarstefnan var val- in, þveröfug stefna við það, sem Framsóknarflokkurinn lagði á- herzlu á. Ágreiningurinn var og er hvorki minni né mjórri en þetta milli stjórnarinnar _ og stjórnarandstöðunnar. — Jón Rafnsson gefur nú skýrslu um það, að 50 verkamannaíélög hafi hækkað kaupið, laun embættis- manna hækka, allt annað hækk- ar einnig. Meinsemdirnar, sem Framsóknarmenn vöruðu við, eru að holgrafa þjóðfélagið. En maðurinn, sem sökina og á- byrgðina ber, er hinn hnakka- kertasti og telur allt í lagi. Mótsagnir. En til hvers er Ólafur að eyða pappír og prentsvertu í allan þennan þvætting. í næsta kafla ræðunnar ómerkir Ólafur sjálf- ur allt þetta skraf. Þar segir, að engin ástæða sé fyrir Sjálf- stæðisflokkinn að harma það, að sættir tókust ekki við Fram- sóknarflokkinn. Þarna segir Ól- afur satt um skoðanir sínar ög tilfinningar, sem réðu gerðum hans, enda hefir hann oftar fullyrt, að ekki væri unnt að stjórna landinu nema með kom- múnistum, lýðræðið væri búið að vera, ef núverandi stjórnar- samvinna rofnaði. — En fjár- málaástandið? Ólafur segir landsmönnum á sumardaginn fyrsta og við öll tækifæri, að þar sé allt í bezta lagi. Svo kem- ur Pétur einu sinni enn og segir, að nú verði að fara að draga saman seglin, „ella getur svo farið, að fjársóun og óhófleg skattaálagning bcinlínis hindrí þá nýsköpun atvinnulífsins, sem flestir játa að sé nauðsynleg". En hvorum eiga vesalings Sjálf- stæðismennirnir að trúa, Pétri eða Ólafi og kommúnistunum ? Töfrar efna- breytmgaima. (Framhald af 4. síðu) í burtu, til að selja það til gin- gerðar (víngerðar). En á síðastl. fimm árum hefir bómullarfræ orðið til mikilla nytja, því úr þvi hafa verið framleiddar matarolíur, fitur, og aðrar þýðingarmiklar fæðu- tegundir. Hefir þessi hagnýting aukið tekjur bómullarræktar- manna í Bandaríkjunium um hálfa biljón dollara á ári. Hýði bómullarfræsins hefir einnig tekizt að nota til ann- arar iðju. Amerískum efna- fræðing við háskólann í Tenn- esse, hefir tekizt að framleiða úr hýði þessu plastic, sem hægt er að nota til margs, er plastic hafði ekki áðUr verið notað. Það er þessari uppgötvun að þakka, að nú eru um 350,000 trissuhjól úr plastic í spunavél- um víðsvegar í Ameríku. Önnur úrgangsvara á amer- ískum búgörðum, sem virðist ætla að verða mikils virði, eru dauf tóbaksblöð. Við háskólann í Kentucky hefir verið búið til, úr þessum nærri verðlausu tóbaksblöðum, mjög vandaður viður, til að klæða innan hús með. Úr lélegu og skemmdu tóbaki er einnig búin til sápa, málning, skordýraeitur og ýmis- konar önnur vara Stofnun Rannsóknar- og til raunastofu Bandaríkjastjórnar var mikils virði, fyrir þróun efnabreytinganna þar í landi. Hjá stofnun þessari vinna nú hundruð vísindamanna í efna- fræði að því að finna nýjar leið- ir, með aðstoð efnafræðinnar, til þess að breyta verðlitlum og jafnvel ónýtum úrgangsvörum amerískra tænda, í verðmæta iðnaðarvöru. Mikinn þátt hafa einnig átt í þessari þróun vísindastofnanir og rannsóknarstofur þeirra Du Pont, Fords, Hercules Powder, Reicholds og ýmsra vísindafél- aga. Þó að efnafræðilegar breyt- ingar landbúnaðarvara hafi þegar lagt drjúgan skerf til hinna daglegu þarfa í Banda- ríkjunum, þá eru ekki enn öll kurl komin til grafar. Margar nýjar framleiðslugreinir á þessu sviði eru á tilraunastigí og aðrar langt komnar, þó þær hafi ekki enn náð útbreiðslu, og séu orðn- ar almenningseign. En burt séð frá því, háfa þessar efnabreyt- ingar gert mikið gagn til þess að auka tækifærin til að breyta ónothæfum úrgangi í verðmæti, til hags, bæði fyrir bændur, verksmiðjueigendur og neyt- endur. Erlcut yfirlit. (Framhald af 2. síðu) horn i síðu hans og búlgarskir kommúnistar veittu honum all- an þann miska, sem þeir gátu. Kom svo að lokum, að Dimitrof taldi ekki annað ráðlegra en að leita á náðir sendiráðs Banda- ríkjanna í Sofíu og hefir hann dvalið á vegum þess undanfarið. Rússar hafa gert þá kröfu til Bandaríkjamanna, að hann verði framseldur, en þeir hafa neitað að verða við henni. Kunnugir menn telja, að Dimitrof sé nú lang vinsælasti stjórnmálamaðurinn í Búlgaríu og telji kommúnistar hann því skæðasta andstæðing sinn. Þess vegna þykir líka sýnt, að þeir vilja losna 'við hann með einu eða öðru móti. Takmark þeirra er talið að hefja þar annan Dimitrof til valda. Það er Dimi- trof sá sem frægur var í sam- bandi við þinghúsbrunamálið í Berlín og siðan var allengi formaður Alþjóðasambands kommúnista. Hann dvelur enn í Moskvu. v i Tvöfaldar kápur Ijósleitar og dökkleitar H. TOFT Skólavörðustíg 5. Sími 1035. Myndaíréttir »• Tveir af frœgustu hershöfðingjum Breta,. Montgomery og Mountbatten lávarður. Mynd þessi var tekin nýlega, er Herbert H. Lehman, forstöðumaður UNRRA, hjálparstofnunar sameinuðu þjóðanna, flutti fyrir nokkru síðan. Lehman er einn af þekktustu stjórnmálamönnum Bandaríkjanna. Hann var kosinn landsstjórí í New York fylki, er Roosevelt lét af því starji, og var þrívegis endurkosinn. Aðalíundur Sölumiðstöðvar Hraðírystihúsanna Aðalfundur Sölumiðstöðvar Hraðfrystihúsanna var haldinn í Reykjavík dagana 11. og 12. júní. í S. H. eru nú 52 hraðfrystihús og mættu fulltrúar á fundinum fyrir öll nema 3. Fundarstjóri var kosinn Einar Sigurðsson, Vestmannaeyjum, og fundarritari Elías Ingimarsson, Hnífsdal. Formaður gaf skýrslu um starfsemi Sölumiðstöðvarinnar á liðnu starfsári, 1944. Alls hafði verið fryst á árinu 25.000 smál. af fiskflökum og voru 90% af því þorskflök. Út- flutningsverðmæti þessa fisks nam 56 milj. kr. Frystihús S. í. S. frystu á árinu 1900 smál. fyrir verðmæti um 4 miljónir. Mjög treglega gekk með út- flutning á framleiðslunni og var verðmæti um 4 miljónir. Mjög treglega gekk með út- flutning á framleiðslunni og var ekki lokið fyrr en í marz 1945. Til Ameríku voru seldar á ár- inu 300 smál. af þorsk og ýsu- flökum og fékkst fyrir þann fisk mun hærra verð en í Bretlandi. Hægt hefði verið að selja þang- að mun meira magn, en við- skiptasamningar við Breta gerðu ekki ráð fyrir meira magni. Murta úr Þingvallavatni og kúfiskur voru send til Ameríku, en ekki tókst að selja þar né annars staðar hraðfrysta síld, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Skriístofa til að annast sölu afurða og innkaup nauðsynja var opnuð í New York um ára- mótin og var Jón Gunnarsson, verkfræðingur, ráðinn til að veita .henni forstöðu. Atvinnudeild Háskólans hafði á hendi fyrir S. H. rannsóknir á fiski og önnuðust þær Trausti Ólafsson, efnafræðingur, og Sig- urður Pétursson, gerlafræðingur. Námskeið fyrir vélstjóra frystihúsanna var haldið í nóv- ember og sóttu það 43 vélstjór- ar víðsvegar að af landinu. Hér fer á eftir skýrsla til sam- anburðar um frystingu á þessu ári til 2. júní og næsta á undan til 31. desember. Faxaflói, Akranes, Suður- nes, Stokkseyri, Eyrar- bakki, Grindavík ....... Snæfellsnes & Breiðifjörður Vestfirðir ............... Norðurland ............... Vestmannaeyjar ........... Austfirðir ............... Fryst1945 «12. júní 436.529 ks. 47.962 — 107.973 — 30.727 — 98.992 — 0 — Fryst allt árið 1944 558.485 ks. 72.301 — 169.495 — 69.914 — 109.512 — 6^8 — Vantar á fyrra árs frystingn 121.956 ks. 22.339 — 61.522 — 39.187 — 10.520 — 668 — 722.183 ks. 980.375 ks. 258.192 ks. \ Frá 2. júní 1944 til áramóta voru frystir að mestu leyti á Vestfjörðum og Norðurlandi 144.770 kassar. Sé gengið út frá að fryst verði til áramóta næstu sama magn, vantar samt 113.422 ks. eða ca. 2900 smál. til þess að ná sömu frystingu og 1944. S. H. tók 1% umboðslaun af útflutningsverðmæti afurða, sem hún annaðist sölu á fyrir frysti- húsin og lagði 10—11% á þær vörur, sem hún útvegaði til reksturs þeirra. Endurgreidd voru 1%% til félagsmanna af útflutningsverðmæti og nam sú upphæð kr. 760.000,00. Tillaga var samþykkt á fund- inum að skora á fiskimatsstjóra, Þeim öllum, sem auðsýndu hluttekningu við fráfall og útför móður minnar, Sigríðar Sigurðardóttur, Álfhólum, votta ég þakkir okkar vandamanna. Valdimar Jónsson. Þakka mér sýnda vinsemd og virðingu á 65 ára afmœlisdegi mínum. MAGNÚS SIGURÐSSON, bankastjóri. 1 — Reykjavík — Borgarnes — Hreðavatn Áætlunarbílferðir um Hvalfjörð, ekið um Hvalfjarðarströnd, Skilmannahrepp, Leirársveit, Meiasveit, Andakíl um Hvítárbrú, Borgarnes og Hreðavatn. Frá Reykjavík: Mánudaga kl. 8,30 f. h. Fimmtudaga kl. 8,30 f. h. Laugardaga kl. 2 e. h. Frá Borgarnesi og Hreðavatni: Þriðjudaga kl. 2 e. h. Föstudaga kl. 2 e. h. Sunnudaga kl. 5 e. h. Frá Reykjavík á fimmtudögum um Dragháls. Frá Borgarnesi á Þriðjudögum um Dragháls. Afgreiðsla í Borgarnesi í Hótel Borgarnes, simi 19. Afgreiðsla í Reykjavík í Bifreiðastöðínni Heklu h. f., sími 1515. Áthugið að geyma ferðaáætlunina. Háli jörðín Kolbeinsá í Hrútafirði er til sölu. Hlunnindi: æðarvarp, selveiði, viðarreki, kofnatekja, bátaútræði. — Tilboð sendist eiganda jarðarinnar, Kristmundi Jónssyni, Bollagötu 10, Reykjavík, fyrir lok júnímánaðar. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum. f Kristmnndur Jónsson. (Jtborgnn arðs fyrir síðastl. ár hefst í dag. Útborgun 1 Reykjavík fer fram í skrifstofu félagsins, Skóla- vörðustíg 12 daglega kl. 10—12 árdegis, nema laugardaga. í deildum utan Reykjavíkur verður borgað út í sölubúðunum. Vinsamlegast hafið með yður kvittun fyrir arðmiðaskilum. Reykjavík, 16. júní 1945. Kaupfélag Reykjavikur og nágrennis. að hann hlutist til um að geyma megi fisk i ís í veiðiskipum allt að fimm dögum, svo fram- arlega sem aflinn á að fara til vinnslu í hraðfrystihúsum, en ekki umísast til útflutnings í fiski- eða flutningaskip. Enda sé fiskurinn að dómi fiskimats- manns hæfur til útflutnings. Tillaga var samþykkt um að brýn nauðsyn bæri til að láns- stofnanir þjóðarinnar miði út- lánastarfsemi sína fyrst og fremst við það að atvinnuveg- irnir hafi jafnan greiðan að- gang áð ódýru lánsfé, sérstak- lega að ríflega sé lánað út á fullunnar afurðir, sem eru sölu- tryggðar með milliríkjasamn- ingum, og gegn lægri vöxtum en nú er. Stofnlán verði sameinuð í fiskiveiðasjóði íslands og nú- verandi hámark lánað til iðju- fyrirtækja, sem er ákveðið í lög- um 75.000 krónur, verði afnumið, og honum „ gert kleift að lána fullan helming stofnkostnaðar gegn 1. veðrétti og verði vextir ekki yfir 3%. Samþykkt var tillaga um að fela félagsstjórninni að leita eftir hlutafjárframlögum meðal félagsmanna og annarra til stofnunar hlutafélags í því skyni að kaupa eitt eða fleiri kæliskip, ný eða notuð, til flutn- ings á afurðum félagsmanna. Jafnframt heimilaði fundurinn stjórninni að festa kaup á eða semja um smíði á að minnsta kosti einu slíku skipi, ef hún telur það hagkvæmt og undir- tektir félagsmanna það góðar með hlutafjárframlög eða lof- orð. Þá var stjórninni falið að leita eftir hjá félagsmönnum að verja allt að 500.000,00 krónum af sérstökum inneignum þeirra sem hlutafjárframlag eða aftur- kræft lán, þegar fjárhagur skipafélagsins leyfði. Þá lýsti fundurinn yfir á- huga fyrir hinni merkilegu nýj- ung á þurrkun fisks, sem kom- ið hefir fram á fundinum og fól stjórninni að áthuga málið nán- ar. Kosnir voru í stjórn til næsta árs: Einar Sigurðsson, Vest- mannaeyjum, formaður, Elías Þorsteinsson, Keflavík, varafor- maður, Ólafur Þórðarson, Rvík, ritari, Eggert Jónsson, Njarðvík, og Elías Ingimarsson, Hnífsdal. Elías Þorsteinsson hefir verið formaður stjórnarinnar síðan hún var stofnuð 1942, en baðst nú undan endurkosningu sem formaður. Á fundinum fluttu erindi: Jón Gunnarsson, verkfræðingur, um þurrkun matvæla, Adolf Björns- son um lánaþörf og lánskjör fiskiðnaðarins, Sigurður Péturs- son um gerlagróður í fiski, sjó og vatni, dr. Jakob Sigurðsson um nýting þunnilda, og Guð- mundur Marteinsson, verkfræð- ingur, um hagnýtingu á fiskúr- gangi i áburðarverksmiðju. Fundinum lauk með kvöld- verði að Tjarnarcafé, þar sem margar ræður voru fluttar og mikill gleðskapur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.