Tíminn - 26.06.1945, Side 1
RITSTJÓRI*
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
ÚTGEFFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
Símar 2353 Og 4373.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.í.
RITST JÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Lindargötu 9A.
Símar 2353 Og 4373.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9A.
Sími 2323.
29. árg.
Keykjavík, þriðjudagiim 26* júní 1945
47. blað
Kommúnistar reyna að spilla
samkomulagi um síldarkjörín
Stjóru Alþýðusambandsins ber fram hærri
kröfur en sjómannafélögitt höfðu gert.
í gær hófst atkvæöagreiðsla um það í sjómannafélögunum í
Reykjavík og Hafnarfirði að veita stjórnum félaganna heimild
til verkfalls á síldveiðiskipunum, ef ekki hefðu náðst nýir samn-
ingar um kaup og kjör sjómanna fyrir tilskilinn tíma. Atkvæða-
greiðslunni mun ljúka í dag. Stjórnir félaganna á Akranesi og í
Keflavík hafa áður tryggt sér slíka heimild.
Samningaviðræður um þessi mál hófust fyrir nokkru siðan og
gerðu menn sér góðar vonir um, að samkomulag myndi nást. Nú
hafa þessar vonir versnað, því að kommúnistar í stjórn Alþýðu-
sambandsins hafa fengið tvö minnstu félögin til að skerast úr
samtökum sjómanna og hefir hún nú borið fram hærri kröfur
fyrir þeirra hönd en hin félögin höfðu gert,
Brendao Bracken
í kosningabaráttunni, sem nú stendur
sem hœst í Bretlandi, ber nú ekki
meira á öðrum í flokki íhaldsmanna,
þegar Churchill er undanskilinn, en
Brendan Bracken, sem var áður uvv-
lýsingamálaráðherra, en er flotamála-
ráðherra í hinni nýju stjórn Churcliills.
Fyrir styrjöldina var Bracken tryggasti
fylgismaður Churchills á þingi og þótti
mörgum að það vœri frekar laun fyrir
það en verðleika,' þegaf Bracken var
gerður upplýsingamálaráðherra. En
Bracken hefir stöðugt unnið sér aukið
álit og ýmsir telja hann líklegastan
til að verða eftirmann Churchills sem
forscetisráðherra, ef hann félli frá og
íhaldsflokkurinn hefði meirihluta á
þingi.
Vestíirzku bænda-
förinni lokið
För vestfirzku bændanna
um Norður- og Austurland
lauk um seinustu^ helgi og
munu flestir þátttakendurnir
nú vera komnir heim til sín.
Eru þeir hinir ánægðustu yf-
ir förinni, enda gekk hún
mjög að óskum.
í seina^a blaði var nokkuð
sagt frá fyrra hluta ferðalags-
ins, og verður hér lauslega sagt
frá því, er síðar gerðist.
Fyrra mánudag skoðaði ferða-
fólkið verksmiðjur S. í. S. og
K. E. A. á Akureyri og var síðan
haldið til Mývatnssveitar og
stanzað í Reykjahlíð. Um nótt-
ina var gist að Laugaskóla. Á
þriðjudag var farið til Húsavík-
ur, Ásbyrgi skoðað og gist að
Grímsstöðum. Á miðvikudag var
ekið um Möðrudalsöræfi og til
Fljótsdal og komið við á Val-
þjófsstað og Skriðuklaustri, en
gist á Egilsstöðum og Ketilsstöð-
um. Á fimmtudaginn var haldið
til Eiða og Reyðarfjarðar og
komið að Hallormsstað. Á föstu-
dag var haldið heimleiðis. Far-
arstjóri var eins og áður hefir
(Framhald á 8. síðu)
Það hefir verið venja, að sjó-
mannafélögin við Faxaflóa hafa
haft með sér samvinnu, þeg^r
samið hefir verið við útvegs-
menn. Forustan hefir þá jafnan
verið Fhöndum Sjómannafélags
Reykjavíkur. Félögin ákváðu að
halda' þessari samvinnu áfram,
þegar viðræður um nýja samn-
inga hófust í vor. Kommúnist-
um fannst þetta of mikil viður-
kenning fyrir Alþýðuflokks-
menn, sem mestu ráða í þessum
félögum, og fóru því þess á leit,
að félögin veittu Alþýðusam-
bandinu umboð til samninga.
Félögin néituðu þessum tilmæl-
um og ákváöu að hafa sömu til-
högun og áður. Kommúnistar
hófu þá ákafan áróður, er bar
þann árangur, að tvö minnstu
félögin, félögin í Sandgerði og
Garði, fólu Alþýðusambandinu
umboð sitt, en félögin i Reykja-
vík, Hafnarfirði, í Keflavík og
á Akranesi ákváðu að halda
saman eins og áður, án þess að
fela Alþýðusambandinu umboð.
Fyrsta, verk Alþýðusambandsins
eftir að það hafði fengið umboð
félaganna í Sandgerði og í Garði,
var að bera fram hærri kröfur
en hin félögin höfðu gert.
Áður en Alþýðusambandið
kom til sögunnar, voru fulltrúar
sjómananfélaganna búnir að
leggja fyrir útgerðarmenn á-
ákveðnar tillögur um breyting-
ar á kaupi og kjörum sjómanna
á síldveiðiskipum.Tillögur þessar
fjölluðu um aukna hlutdeild í
afla og hækkaða tryggingu.
Mun hér hafa verið um veru-
legar hækkanir að ræða, en þó
vart meiri en til samræmis við
kauphækkanir hjá landverka-
fólki. Una sjómenn því að von
um illa að vera lægra settir og
verður áreiðanlega torvelt að fá
nokkurn mann á sjó, ef slíku
heldur áfram. Fyrir áhrif dýr-
tíðar- og verðbólgu-stefnu
þeirrar, sem stjórnarflokkarnir
reka, er nú svo komíð, að sjó
mönnum myndi vart veita af
nær öllum aflanum á meðalver-
'tíð, ef þeir ættu að vera hlut-
gengir við landverkamenn, sem
hafa svipaðan vinnutíma, og er
þá eftir að mæta öllum öðrum
útgerðarkostnaði. Má vel á þessu
marka, hve grálega dýrtíðar-
stefna rikisstjórnarinnar lelkur
útgerðina og ætti mönnum að
vera auðvelt að gera sér þess
grein, hvernig fara myndi, ef
verðlag á sjávaraftirðum yrði
ekki eins hagstætt og nú.
Á fyrstu samningafundum
fulltrúa sjómanna og útvegs
manna náðist ekki samkomulag,
en báöum þótti rétt að vísa mál-
(Framhald á 8. síðu)
í DAG
birtist á 3. síðu grein eftir Jón
H. Þorbergsson, bónda á Laxa-
mýri, er nefnist: Rógurinn um
landbúnaöinn.
Neðanmáls á 3. og 4. síðu er
grein eftir Ingibjörgu Jónsson
um frú Eleanor Roosevelt.
Frá aðalfundi Sambands ísl, samvinnufélaga:
Víðskiptavelta allra sambandsléiag-
\
anna nam 143,5 milj. kr. á árinu 1944
RáSstefnunni í San Fransisco að Ijjúha
i -
í dag lýkur ráðstefnunni í San Fransisco um myndun nýs þjóðabandalags
til að afstýra ófriði. Hér á myndinni sjást tveir þeir menn, sem einna
mest hafa unnið að undirbúningi þessara ,máW, Edvard Stettinius utan-
ríkismálaráðherra Bandaríkjanna (til vinstri) og Alexander Cadogan, að-
stoðarutanríkismálaráðherra Breta (til hœgri).
Viðskiptavelta S. í. S. sjálfs nam
96 miljónnm króna
Viðskiptavelta kaupfélaganna, sem eru innan Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga, nam á síðastl. ári 143.5 milj. kr. og var
það fjórum miljónum króna meira en árið áður. Viðskiptavelta
S. í. S. nam 96 milj. kr. og var það aðeins minna en árið áður.
Innan vébanda S. í. S. voru í árslok 52 félög með 23 þús. félags-
mönnum alls. Stofnsjóðir félaganna, sem eru í SÍS, námu í árslok
8 milj. kr., en sameignarsjóðir 16 milj. kr., en auk þess nam
stofnsjóður S. í. S. 6 milj. kr. og sameignarsjóðir þess tæpum 4
milj. kr. Má á tölum þessum, er birtar voru á nýloknum aðalfundi
S. í. Sv vel marka, hve umfangsmikil og öflug samvinnuhreyf-
ingin er orðin.
Skýrslnr um starf-
seml S. t. S.
N j ó snarleiðangr-
ar til íslands
Þjoðverjar sendu
hingað fjrja leiðangra
á síðastl. ári.
Blað ameríska hersins á
íslandi hefir nýlega skýrt frá
þremur tilraunum, er Þjóð-
verjar gerðu á síðastl. ári til
að senda njósnara hingað til
lands.
í fyrsta leiðangrinum voru
tveir íslendingar. Fóru þeir úr
kafbát skammt frá Raufarhöfn
og ætluðu að róa til lands á
litlum bát, en festust í ís og voru
handsamaðir þar. Þóttust þeir
vera flóttamenn, en þar sem
þeir höfðu meðferðis senditæki
og annað þess háttar, var til-
gangur þeirra augljós. Þetta
gerðist snemma í apríl.
Átta dögum seinna gerðu
Þjóðverjar aðra tilraun til að
koma á land njósnarleiðangri
frá kafbáti skammt frá Eiðsvík.
Voru það einnig tveir íslending-
ar, er þar voru á ferð. Þeir voru
handsamaðir, áður en þeir
höfðu þurrkað klæði sín.
Þriðja tilraunin var gerð
nokkru seinna. Voru þá 3 menn
settir á land úr kafbát í grennd
við Borgarfjörð eystra. Höfðu
þeir meðferðis vistir til þriggja
vikna og senditæki. Þessara
manna varð vart, þar sem engra
mannaferða var von, og varð við
þá dálítill eltingarleikur, áður
en þeir ui;ðu handsamaðir. Þótt-
ust þeir í fyrstu vera skemmti-
ferðamenn, en foringi þeirra
sagði loks, að þeir væru þýzkur
veðurathugunarleiðangur, eins
og hann orðaði, það. í þessum
leiðangri voru tveir íslendingar
og einn Þjóðverji,. sem hafði
verið hér í 7 ár.
Þessir sjö menn voru hafðir í
haldi um nokkurn tíma í Reykja
vík, en síðan fluttir til Englands.
Þeir munu hafa ætlað að gefa
Þjóðverjum upplýsingar um
innrásarfyrirætlanir Banda-
manna, skipaferðir og veðráttu.
Sívaxandí fylgí raf-
orkulagafrv.
Álykíanir sýslunefnd-
ar Snðnr-Þingeyjar*
sýslu um raforkufrv.
og búnatSarinálasjóð.
Á sýslufundi Suður-Þingeyj-
arsýslu, sem haldinn var i síð-
asta mánuði, var samþykkt í
einu hljóði svohljóðandi tillaga
um raforkumálið:
„Aðalfundur sýslunefndar
Suður -Þingeyj arsýslu, haldinn í
Húsavík, dagana 5.—8. maí 1945,
lýsir yfir fullum stuðningi við
frumvarp það frá milliþinga-
nefnd um rafveitur ríkisins, er
lá fyrir síðasta Alþingi, og skor-
ar á næsta Alþingi að samþykkja
framvarpið."
Á fundinum var einnig rætt
um búnaðarmálasjóðinn og kom
fram svohljóðandi tillaga frá
Jóni Gauta Péturssyni, sýslu-
nefndarmanni, Skútustaðahr.
„Aðalfundur sýslunefndar
Suður-Þingeyjarsýsíu lýsir yfir,
að hann telur það stríða gegn
almennri réttarmeðvitund, að
ráðstöfunarréttur á fé hins ný-
stofnaða Búnaðarmálasjóðs, sem
myndaður er með gjaldi af
framleiðslu landbúnaðarins, sé
í höndum annarra stjórnarvalda
en þeirra, sem framleiðendur
sjálfir skipa. Skorar hann því á
Alþingi það, sem næst kemur
saman, að fella þar að lútandi
ákvæði úr lögum um Búnaðar-
málasjóð.“
Tillaga þessi var samþykkt
mótatkvæðalaust.
Þá samþykkti sýslunefndin
áskorun til stj órnarvaldanna
um fjárskipti í Mývatnssveit og
Báðardal strax á þessu hausti.
Utanför Esju
Esja kom til Kaupmanna-
hafnar síðastl. sunnudag og var
tekið á móti skipinu af fjölda
íslendinga, er það kom að landi.
Esja var fimm sólarhringa á
•ftiðinni héðan og fór mjög krók-
ótta leið. Ferðin gekk vel.
Aðalfundur Sambands ísl.
samvinnufélaga var haldinn að
Laugarvatni dagana 22.—24. þ.
m. Fundinn sátu 80 fulltrúar,
auk stjórnar og framkv.stjóra,
en alls munu 85 fulltrúar hafa
átt sæti á fundinum, en fimm
ekki getað komið af óviðráðan-
légum ástæðum. Fundarstjóri
var Bjarni Bjarnason, skóla-
stjóri, og fundarritarar Gunnar
Grímsson kaupfélagsstjóri og
Karl Kristjánsson oddviti.
Á fundinum voru að vanda
fluttar ýtarlegar skýrslur um
starfsemi S. í. S. á síðastl. ári.
Formaður S. í. S., Einar Árna-
son, flutti skýrslu um störf
stjórnarinnar, Sigurður Krist-*
insson, forstjóri, flutti skýrslu
um rekstur S. í. S. og afkomu,
Jón Árnason framkvæmda-
stjóri flufti Skýrslu um starfsemi
útflutningsdeildarinnar, Aðal-
steinn Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri, flutti skýrslu um
starfsemi innflutningsdeildar-
innar, Árni G. Eylands flutti
skýrslu um starfsemi búnaðar-
deildar, Ólafur Jóhannesson,
framkvæmdastjóri, flutti skýrslú
um starfsemi fræðslu- og félags-
máladeildar, Jónas Þór, fram-
kvæmdastjóri, flutti skýrslu um
starfsemi Gefjunar, Þorsteinn
Davíðsson, framkvæmdastjóri,
flutti skýrslu um starfsemi Ið-
unnar og Jónas Jónsson, skóla-
stjóri, flutti skýrslu um Sam-
vinnuskólann og Samvinnuna.
Þá flutti Halldór Pálsson ráðu-
nautur fyrirlestur um íslenzka
ull.
Samkvæmt skýrslu forstjóra
nam heildarumsetning S. í. S.
á síðastl. ári 96 milj. kr. og er
það aðeins minna en árið áð-
ur. Sala innlendra afurða nam
41 milj. kr., en sala erlendra vara
og iðnaðarvara 55 milj. kr.
Heildartekjur námu 9,1 milj. kr.
eða 479 þús. kr. meira en árið
áður, en gjöldin námu 7,6 milj.
kr. eða 914 þús. kr. meira en árið
áður. í opinbera skatta voru
greiddar 513 þús. kr. og nam
tekjuafgangur því 1.405 þús. kr.
eða 434 þús. kr. lægri en árið
áður. Skuldir sambandsfélaga
við S. í. S. námu í árslok 543
þús. kr., og höfðu lækkað um
323 þús. kr. Inneignir félaganna
hjá S. í. S. námu 36.7 milj. kr.
í árslok. í lárslok nam sam-
bandsstofnsjóður 6 milj. kr. og
hafði aukizt á árihu um 1.677
þús. kr., en sameignarsjóðir
námu 3.783 þús. kr. og höfðu
aukizt um 325 þús. kr. á árinu.
Sambandsfélögin seldu vörur á
árinu fyrir 143.5 milj. kr., þar
af erlendar vörur og iðnaðar-
»vörur fyrir 92.5 mílj. kr. og inn-
lendar afurðir fyrir 51 milj. kr.
Hafði heildarumsetning kaupfé-
laganna aukizt um 4 milj. kr. á
árinu. í árslok námu sameign-
arsjóðir félaganna 16.5 milj. kr.
Sigurður Kristinsson
forstjóri S.f.S.
og stofnsjóðir 8.9 milj. kr. Höfðu
stofnsjóðirnir aukizt um 1.6 milj.
kr. á árinu, en sameingarsjóð-
irnir um 3.5 milj. kr. í árslok
voru í S. í. S. 52 félög með 23
þús. félagsmönnum. Tvö félög
höfðu bæzt við á árinu, Kaup-
félagið Dagsbrún i Ólafsvík og
Sláturfélagið Örlygur í Barða-
strandarsýslu.
Það kom fram í skýrslu for-
manns, forstjóra og framkv.-
stjóra, að S. í. S. hefir margar
merkilegar framkvæmdir í und-
irbúningi og snerta ýmsar þeirra
bætta og aukna hagnýtingu ís-
lenzkra afurða, enda hafa kaup-
félögin og S. í. S. haft þar for-
göngu á mörgum sviðum og hafa
fullan hug á, að svo verði einn-
ig í framtíðinni. Þá er í ráði að
auka verulega fræðslustarfsem-
ina. Sérstök fræðslu- og félags-
máladeild var stofnuð á síðast-
liðnu hausti, og er Ólafur Jó-
hannesson framkvæmdastjóri
hennar. ^Æeð stofnun hennar
hefir aðstaðan verið stórum
bætt til að sinna þessu þýðing-
armikla verkefni.
Yfirleitt urðu litlar umræður
um skýrslurnar og fáar tillögur
samþykktar varðandi starfsemi
S. í. S., þar sem undirbúningur
er_ hafinn um lausn margra
verkefna, eins og skýrslurnar
báru með sér.
Fundurinn samþykkti að ráð-
stafa tekjuafganginum þannig,
að 1.114 þús. kr. voru lagðar í
stofnsjóð, 59 þús. kr. í verk-
smiðjustofnsjóð og afgangurinn
í várasjóð.
Ýmsar ályktanir.
Auk sérmálefna S. í. S. var
rætt á fundinum um nokkur
almenn mál, er snerta þó starf-
semi kaupfélaganna á ýmsan
hátt. Ályktanir voru gerðar um
sum þeirra mála.
(Framhald á 8. tíðu)
1