Tíminn - 26.06.1945, Blaðsíða 8
DAGSKRÁ er bezta íslenzka tímaritið um
þjóðf élafismát.
Þeir, senu viljja kynna sér þjóðfélagsmál, inn-
lend og útlend, þurfa að lesa Dagskrá.
? MNÁLL TÍJWAMS ^
21. Júní, fimmtudagur:
Stríðslok á Oklnava.
Asíustyrjöldin: Bandaríkja-
menn tilkynna, að þeir hafi alla
Okinavaey á valdi sínu.
Rússland: Dómur féll í máli
pólsku sendinefndarinnar. Tólf
nefndarmennirnir voru dæmdir
til lengri eða skemmri fangelsis-
vistar, en hinir sýknnðir.
22. júní, föstudagur:
Ný stjórn í Noregi.
Noregur: Einar Gerhardsen,
formaður Alþýðuflokksins, lauk
stjórnarmynduninni. Stjórn
hans er skipuð fulltrúum allra
flokka.
Asíustyr j öldin: Ástr alíumenn
gengu á land á nýjum stöðum á
Borneo.
Pólland: Frá pólsku stjórninni
i London bárust mótmæli gegn
dómunum í Moskvu í máll pólsku
sendinefndarinnar.
23. júní, laugardagur:
Ný pólsk stjórn.
Pólland: Tilkynnt að sam-
komulag hefði náðst á viðræðu-
fundinum í Moskvu um nýja
pólska stjórn. Verður hún skip-
uð 5 fulltrúum frá leynihreyf-
ingunni í Póllandi, 4 fulltrúum
frá Lublinstjórninni og 3 full-
trúum frá Pólverjum, sem hafa
verið í útlegð.
24. júni, sunnudagur:
Svíar minnka matar-
skammtlnn.
Svíþjóð: Tilkynnt, að matar-
skammturinn verði minnkaður,
svo að hægt verði að veita öðr-
um þjóðum meiri hjálp.
Asíustyr jöldin: Bandaríkja-
menn hafa hafið nýja sókn á
Luzon.
Frá aðallundi S. I. S.
(Framliald af 1. síðu)
Um veltuskattinn var sam-
þykkt svohljóðandi tillaga með
samhljóða atkvæðum:
„Aðalfundur S. í. S., haldinn
að Laugárvatni 24. júní 1945,
ályktar að lýsa yfir því, að hann
telur löggjöf um veltugjsatt frá
síðasta Alþingi svo mjög rang-
láta að ekki sé viðunandi, eink-
um af þeim ástæðum er hér
greinir:
1) Skattur þessi er ekki mið-
aður við rekstursafkomu eða
efnahag gjaldendanna, og er að
því leyti ranglátari en aðrir toll-
ar til ríkissjóðs að hann leggst
jafnt á brýnustu nauðsynjar
sem miður þarfan og óþarfan
varning.
2) Skatturinn leggst á alla fé-
lagsmenn samvinnufélaganna og
því þyngra, sem þeir hafa stærri
fjölskyldur fram að færa, þar
sem sá hluti skattsins, er S. í. S.
og deildir'þess borga, hlýtur að
koma fram í minnkandi tekju-
afgangsúthlutun til félags-
mannanna, og verður þannig til
að hækka verð þeirrar vöru, er
þeir kaupa.
3) Auk þess veltuskatts, sem
S. í. S. og sambandsfélögin verða
að borga, og sem eins og áður
segir hlýtur að leggjast á félags-
mennina, þurfa þau að greiða
skatt af því fé, er þau þannig
innheimta fyrir ríkissjóð, og
leiðir veltuskatturinn þannig af
sér stórkostlega hækkun beinna
skatta hjá félögunum, sem kem-
ur niður á félagsmönnum þeirra
á næstu árum.
Fundurinn mótmælir því þeirri
tekjuöflunaraðferð, sem hér he^-
ir verið upp tekin, og skorar á
Alþingi að hverfa tafarlaust af
þeirri braut.“
Um áburðarverksmiðjumálið
var samþykkt nær einróma svo-
hljóðandi tillaga:
„Aðalfundur S. f. S. haldinn
að Laugarvatni 22. og 23. júní
1945, skorar á næsta Alþingi að
setja löggjöf um stofnun og
rekstur ríkisverksmiðju til fram-
leiðslu á áburði, og að gera ráð-
stafanir til að bygging verk-
smiðjunnar verði hafin eigi síð-
ar en p. árinu 1946.
Verði engar ráðstafanir gerð-
ar á næsta Alþingi, til stofnun-
ar áburðarverksmiðjunnar,
heimilar fundurinn stjórn S. í.
S. að hefja framkvæmdir í mál-
inu af hálfu Sambandsins, enda
fái það einkarétt til .framleiðslu
og sölu á tilbúnum áburði um
ákveðið tímabil og stofnstyrk
frá ríkinu til fyrirtækisins eftir
því sem stjórn Sambandsins tel-
ur nauðsynlegt.“
Um framfaramál landbúnað-
arins var samþykkt svohljóð-
andi tilaga með samhljóða- at-
kvæðum:
„Aðalfundur S. í. S„ haldinn
að Laugarvatni 22.—24. júní
1945, skorar á samvinnumenn að
standa saman um þróun land-
búnaðarins: >
1. Með stéttarsamtökum
bænda
2. Með virkari þátttöku sam-
vinnusamtakanna í aðkallandi
umbótamálum sveitanna.
3. Með aukinni fræðslustarf-
semi og kynningu samvinnu-
stefnunnar“.
Um búfjárræktun var þessi
tillaga samþykkt:
„Aðalfundur S. f. S„ haldinn
að Laugarvatni í júní 1945, skor-
ar á stjórn S. f. S. og Búnaðar-
félag fslands að láta athuga
hvort ekki sé rétt að flytja inn
úrvals búfjártegundir til blönd-
unar á íslenzku búfé og hrein-
ræktar, enda verði gætt fullrar
varúðar .gagnvart .búfjársjúk-
dómum“.
Stjórnarkosning.
Úr stjórn S. í. S., sem skipuð
er 7 mönnum, áttu að ganga að
þessu sinni Sigurður Jónsson,
bóndi að Arnarvatni og Þórður
Pálmason, kaupfélagsstjóri. —
Voru þeir báðir endurkosnir.
Varaformaður S. í. S. var end-
urkosinn Vilhjálmur Þór banka-
stjóri.
í varastjórn S. í. S. voru end-
urkosnir: Skúli Guðmundsson,
kaupféhstjóri, Bjarni Bjarnason
skólastjóri og Þórhallur Sig-
tryggsson, kaupfélagsstjóri.
Siglufjarðardeilan.
Á fundinum voru mættir full-
trúar frá Kaupfélagi Siglfirð-
inga, sem kjörnir höfðu verið á
aðalfundi félagsins áður en
kommúnistar hófu brottrekstr-
ana. Kommúnistar hugðust síð-
ar að reyna að ógilda þessa
kosningu, og kusu aðra fulltrúa
á „aðalfundinum", sem þeir
héldu í seinustu viku. Ekki
mættu þó þessir fulltrúar þeirra
á aðalfundi S. í. S., og kommún-
istarnir, sem þar mættu frá
KRON, reyndu lítið til þess að
fá kosningu þeirra viðurkennda.
Báru þeir aðeins fram tillögu
um að frestað yrði að taka gild
kjörbréf siglfirzku fulltrúanna,
sem mættir voru, og báru því
einkum við, að nægar upplýs-
ingar væru ekki fyrirliggjandi!
Reyndu þeir jafnframt á allan
hátt að komast hjá umræðum
um þetta Siglufjarðarmál, þar
sem þeir munu komnir að raun
um, að framkoma þeirra þar sé
þeim síður en svo til fremdar.
Frestunartillaga þeirra var vit-
anlega felld og kjörbréf hinna
mættu fulltrúa tekin gild, þar
sem skýlaust var að þeir voru
kjörnir af lögmætum aðalfundi.
Yfirleitt var framkoma kom-
múnista á aðalfundi S. í. S. á
þann veg, að þeir létu óvenju-
lega lítið á sér bera. Mun þeim
hafa verið fullljóst, að málstað-
ur þeirra var slíkur, að þeir
græddu ekki á umræðum um
hann.
ÝMSAR FRETTIR
Aðalfundur Bókmennta-
félagsins.
Aðalfundur Hins ísl. bók-
menntafélags var haldinn að
kvöldi hins 18. þ. m. Matthías
Þórðarson þjóðminjavörður,
forseti fél„ setti fundinn og
minntist látinna félaga. Reikn-
ingar félagsins voru þvínæst
samþykktir. Forseti skýrði frá
væntanlegrl bókaútgáfu félags-
ins, en þær eru þessar: Jón Sig-
urðsson, Samtíð og saga, eftir
Pál Eggert Ólason, Skírnir 119.
árg. Ennfremur 2. hefti XIV.
bindi Fornferéfasafnsins.
Þá skýrði forseti frá því, að
á síðasta starfsári félagsins
hefðu 57 manns gerzt meðlimir
í félaginu.
Prestskosningar.
/
Prestskosning fór fram í
Sauðlauksdalsprestakalli hinn
13. maí síðastl. Frambjóðandi
var aðeins einn, sr. Trausti Pét-
ursson og hlaut hann lögmæta
kosningu. Atkvæði voru talin í
skrifstofu biskups 1. júní. Af
136, sem á kjörskrá voru, neyttu
89 kosningarréttar síns. Um-
sækjandi fékk 87 atkvæði.
Prestskosning fór einnig
fram í Staðarprestakalli á
Reykjanesi 27. maí og voru at-
kvæði talin í skrifstofu biskups
12. júní. Umsækjandi var að-
eins einn, sr. Jón Sigurðsson,
settur prestur þar. Kosningin
var ólögmæt sökum ónógrar
þátttöku.
Kaup á símaleiðslum
setuliðsins.
%
Póst- og símamálastjórnin
samdi á s. 1. ári við Bandaríkja-
stjórn um kaup á öllum síma-
leiðslum setuliðsins hér á landi.
Tekur Landssíminn við síma-
línum þessum jafnóðum og her-
inn þarfnast þeirra ekki lengur.
Landssíminn hefir þegar tekið
margar af þessum línum til
notkunar. Hér er um að ræða
loftlínur, jarðstrengi, sæstrengi
og gúmmívíra, er liggja á jörð-
inni.
Gjafir til vinnuheimilis
berklasjúklinga.
Sýslunefnd Árnessýslu ákvað
á síðasta sýslufundi að gefa
vinnuheimili S. í. B. S. 5000 kr.
Stjórn vinnuheimilisins flytur
íbúum Árnessýslu beztu þakkir
fyrir þennan rausnarlega stuðn-
ing við vinnuheimilið.
Jón Loftsson hefir gefið
vinnuheimili S. í. B. S. timbur
fyrir 5000 krónur.
Stjórn vinnuheimilisins flytur
Jóni Loftssyni sínar beztu
þakkir fyrir þessa höfðinglegu
gjöf.
Kaupfélag Skaftfellinga sam-
þykkti á aðalfundi sínum þann
5. þ. m. að gefa vinnuheimili S. í.
B. S. 5000 krónur.
Stjórn vinnuheimilisins flyt-
ur gefendunum sínar alúðar-
fyllstu þakkir fyrir þetta rausn-
arlega framlag til stofnunar-
innar.
Aðstoðarmaður við
Þjóðminjasafnið.
Kristján Eldjárn, magister,
hefir nýlega verið skipaður að-
stoðarmaður við Þjóðminjasafn-
ið. Hefir Kristján lagt sérstaka
stund á þau fræði, sem lúta að
verndun og söfnun fornminja.
Teikning Þjóðminjasafns-
hússins.
Sigurður Guðmundsson arki-
tekt er farinn loftleiðis til Sví-
þjóðar. Erindi hans utan er að
kynna sér nýjungar á sviði
safnabygginga. Hefir bygginga-
nefnd Þjóðminjasafnsins falið
honum og félaga hans, Eíríki
Einarssyni, að gera uppdrætti að
fyrirhuguðu þjóðminjasafni, er
reist verður á Háskólalóðinni, á
gatnamótum Hringbrautar og
Melavegar,
Stúdentar frá Mennta-
skólanum á ‘Akureyri
Uppsögn Menntaskólans á j
Akureyri fór fram 17. þ. m. j
Flutti skólameistari snjalla
ræðu að vanda og hvatti nem-
endur sérstaklega til að temja
sér umburðarlyndi.
All» voru brautskráðir 45 nem-
endhr. Fara nöfn þeirra hér á
eftir:
Máladeild: Anna Jóhannes-
dóttir, Seyðisfirði, I. eink., Árni
Stefánsson, ísafirði., II., Bene-
dikt Thorarensen, Árn., I., Björg
Friðriksson, Húsavík, I., Fjalar
Sigurjónsson, N.-Múl., II., Flosi
Sigurjónsson, S.-Múl., I„ Guð-
mundur Benediktsson, Ak., I.,
Guðmundur H. Þórðarson, N,-
Múl., I., Halldór G. Þórhallsson,
Vestmannaeyjum, II., Harald-
ur Sigurðsson, Ak., II., Héðinn
Finnbogason, Mýr., II., Ingimar
Einarsson, Keflavík, I„ In'gvi
Ingvarsson, Rang., I., Jóhannes
Sigfússon, Húsav., II., Árni Jóns-
son, Ak., I., Jón Gestsson, ,Seyð-
isfirði, II., Lilja Kristjánsdóttir,
Eyjaf., I., Páll Jónsson, Árn., I„
Sigurður Blöndal> S.-Múl., I„
Skúli Helgason, Ak., I., Sverrir
Haraldsson, S.-Múl., II., Þórunn
Rafnar, Eyjaf., I.
Utanskóla: Árni Kristjánsson
Rvík, III., Alfred Einarsson,
Sigluf., III.
Stærðfræðideild: Aðalsteinn
Sigurðsson, Eyjaf., II., Baldur
Sveinsson, Eyjaf.,I., Baldur Þor-
steinsson, Barð., I., Eggert Jó-
hannesson, V. ísafj., I., Einar
Pálsson, Ak., I., Guðmundur
Árnason., Ak., I., Guðmundur
Björnsson, N.-Þing., ág., Gunnar
Sigurðsson, Ak., I., Jóhann Ind-
riðason, Ak., I., Jón Ormar Ed-
vald, ísaf., I„ Karl Guðmunds-
son, Árn., I., Móses Aðalsteins-
son, Ak., I„ Ólafur Jónsson,
Rang., II., Sigurður Helgason,
Ak., ág., Sigurður Ringsted, S.-
Þing., II., Tómas Árnason, Seyð-
isfirði, I„ Valgarður Haraldsson,
Ak., II., Þórður Jörundsson, Árn.
II. eink.
Utansk.: Ingvar Þórarinsson,
|Húsav., II. eink.
Hörmulegt slys
Það sorglega slys vildi til á
Reykjavöllum í Biskupstung-
um síðastliðinn fimmtudag, að
þriggja ára gömul telpa féll í
hver og beið bana. Var hún að
leika sér við hverinn, er slysið
varð, en bjargaðist þó mjög
fljótt. Var náð í lækni á Eyrar-
bakka, en barnið lézt skömmu
eftir að hann kom.
SHdveiðikjörin
(Framhald af 1. síðu)
inu til aðstoðar sáttasemjy.ra og
hefir hann óskað þess, að ríkis-
stjórnin skipaði sér sáttanefnd
til aðstoðar. Yfirleitt hefir verið
mikill samkomulagsvilji á báða
bóga, og voru menn því
vongóðir um samkomulag. Hins
vegar hefir „yfirboð" kommún-
ista skapað nokkurn ugg, þar
sem vitanlegt er, að þeir ætla að
nota það til að svívirða fulltrúa
sjómanna, ef þeir ganga að
lægri kjörum. Hafa kommúnist-
ar sýnt það hér, sem oftar, að
þeir taka ekki minnsta tillit til
vinnufriðar eða samstarfs stétt-
anna, ef þeir telja sér flokks-
legan ávinning í öðru. Afsannar
þetta eins vel og verða má það
glamur íhaldsblaðanna, að kom-
múnistar séu nú eitthvað tillits-
samari í þessum efnum en áður,
vegna samstarfsins við Ólaf
Thors!
Vestfirzka
bændaförfn
(Framhald af 1. síðu)
verið sagt, Steingrímur Stein-
þórsson búnaðarmálastjóri.
Ferðafólkinu hefir hvarvetna
verið tekið með miklum ágæt-
LISTAMAMALÍF
(Show Business)
Eddie Cantor,
George Murphy,
Joan Davis,
Constance Moore.
FRÉTTAMYND:
Frá ISerlín öT fl.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
t N Ý J A
B Í Ó
KATIJR piltur
Donald O’Connor,
Peggy Ryan.
Sýnd kl. 7 og 9.
Svarti svanurinn
Sjóræningja-litmyndin fræga,
með:
Tyrone Power.
Bönnuð börnum innan 14 ára.
Sýnd kl. 5.
Þeir gerðu garðinn
frægan
OG
Dáðir
voru drýgðar
eru ágætar skemmtibækur og
hafa auk þess þann kost að
vera ódýrar.
| TJARNARBÍÓ < >
AAARÍKI OG
ÁSTIR
(No Time for Love)
Amerískin- gamanleikur.
Ciaudette Colbert,
Fred MacMurray.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
Gíit eða ógíit
/
Gamanleikur í þremur þáttum eftir J. B. Priestley.
, Sýning annað kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4—7 í dag.
Næst síðasta sinn.
U R B Æ N U M
Gunnlaugur Kristmundsson
sandgræðslustjóri verður 65 ára í
dag.
Hallgrímur Jónsson,
fyrrv. skólastjóri varð sjötugur
síðastl. sunnudag.
Thor Thors sendiherra
íslands í Bandaríkjunum kom ásamt
fjölskyldu sinni til Reykjavíkur loft-
leiðis síðastl. laugardag. Mun hann
dvelja hér um mánaSartíma.
Fréttamynd Óskars Gíslasonar
var sýnd í Gamla Bíó síðastl. föstu-
dagskvöld fyrir fullu húsi. Eru þetta
myndir af ýmsum hátíðahöldum nú
i vor, svo sem Sjómannadags hátíða-
höldunum, 17. júní, listamannaþinginu
o. fl.
Kennaraskólanum
ætluð lóð á Skólavörðuhæð.
Bæjarráð hefir nýlega samþykkt að
verða við tilmælum frá skólastjóra
Kennaraskólans og ætlað lóð undir
hinn fyrirhugaða kennaraskóla og æf-
ingaskóla í sambandi við hann, á
Skólavörðuhæð, vestan Bárónsstígs og
norðan Eiríksgötu. Kennaraskólinn á
því að rísa skammt frá hinum fyrir-
hugaða Gagnfræðaskóla.
Dómaranámskeið
í frjálsum íþrottum,
er íþróttaráð Reykjavíkur hefir geng
izt fyrir að tilhlutun í. S. í. og haldið
var 4. til 23. maí var fjölsótt. Þátttak-
endur voru 36 og gengust 22 undir próf,
af þeim stóðust 17 prófið og tveir luku
yfirdómaraprófi, þeir Brynjólfur Ing-
ólfsson K.R. og Skúli Norðdal, Ár-
manni. Þeir aðrir, sem stóðust prófið
eru þessir: Frá Ármanna: Ástvaldur
Jónsson, Kristinn Helgason, Lárus O.
Þorvaldsson, Baldur Möller, Helgi Osk-
arsson, Magnús Þórarinsson, Árni
Kjartansson og Hörður Hafliðason.
Erá í. R. Finnbjörn Þorvaldsson, Einar
Steindórsson og Guðni Steindórsson.
Frá K. R.: Einar Þ. Guðjohnsen, Ás-
geir Einarsson og Jón M. Jónsson. Frá
Ungmennafélagi Reykjavíkur: Daníel
Einarsson. Prófdómendur voru Sigurð-
ur S. Ólafsson og Skúli Guðmundsson.
•
Sjómannablaðið Víkingur,
5. tbl. 7. árg. er nýlega komið út. Efni
um. Veður var mjög hagstætt
allt ferðalagið. Tíminn mun
bráðlega birta ýtarlegri frásögn
af ferðinni.
er m. a.: Friður í Evrópu, eftir Ásgeir
Sigurðsson, Það, sem koma skal, rann-
sókn og rökrétt ályktun marki stefn-
una eftir Gísla Halldórsson, Fisksalan
í Reykjavík eftir R. N., Nokkur orð um
sjávarútvegsmál, eftir Ásgeir Sigurðs-
son, Ellert Schram skipstjóri eftir G.
Ó. E., Leyndardómur hafsins eftir Á.
R. Wetjen, Endurnýjun fiskiflotans
og sjómannafræðslan eftir G. Ó. Er-
lingsson, Mið fyrir siglingu á Reykjar-
fjörð eftir Pétur Sigurðsson og Björg-
un eftir Þórarinn Jónsson. .
Heilbrigt líf,
1.—2. hefti 5. árgangs er komið út.
Ritið flytur að vanda margar fróðlegar
greinar um læknisfræðileg og heilsu-
farsleg efni. Þessar greinar eru helztar
í þessu hefti: Penicilin, eftir Níels
Dungal prófessor, Blóðkornasökk eftir
Jón Steffensen prófessor, Þættir úr
sögu þorskalýsisins eftir dr. Þórð Þor-
bjarnarson, Rottur eftir Guðm. Hann-
esson prófessor. Ufedralækningar íeftir
dr. med. Karl Kroner, Blóðþrýsti'ngur
eftir Gísla Fr. Petersen, Forsaga Lands
spítalans eftir Sigurjón Jónsson fyrrv.
héraðslækni, Ritstjóraspjall: Gunn-
laugur Claessen, Á víð og dreif, Bækm-
og ýmislegt fleira.
Firmakeppni Golfklubbsins
er lokið. Til úrslita kepptu Tjarnar-
café h.f. (Jakob Hafstein) og Helgi
Magnússon & Co. (Helgi Eiríksson).
Leikar fóru þannig, að Tjarnarcafé
vann eftir mjög jafnan og spennandi
leik.
Nýtt Hutníngaskip
Að kvöldi £ins 17. júní kom
nýtt flutningaskip til landsins
og hefir það hlotið nafnið
„Haukur“.
Eigendur skipsins eru hluta-
félögin Haukur og Baldur á
Reykjafirði.
„Haukur“ er alveg nýtt skip
og var smíðað í Kahada. Það er
hið varidaðasta að öllum frá-'
gangi og traustbyggt.
Það er byggt úr tré, furubyrð-
ingur 3y2 þuml., bönd úr eik
10X12 þuml. Það er 520 rúm-
lestir brúttó og 442 rúml. nettó.
Það hefur 2 Fairbanks diesel-
vélar, 240 hö. hvor, 2 dekkspil,
10 hö. hvort, 10 ha. akkerisspil
og ljósavél. Það er ennfremur
búið dýptarmæli, miðunarstöð
og talstöð.
I
/
i