Tíminn - 26.06.1945, Side 4
4
TÍMIM, j>rlð.|ndaginn 36. jnní 1945
47. blaíS
Ályklanír á stofnþingi sambands
íslenzkra sveilafélaga
Eftirfarandi tillögur voru
bornar fram á stofnþingi Sam-
bands íslenzkra sveitarfélaga,
sem haldið var í Reykjavik 11.
—13. júní s. 1. og hlutu þar af-
greiðslu þá er hér greinir:
1. Endurskoðun útsvarslaganna:
Frá Jónasi Guðmundssyni var
samþykkt eftirfarandl tillaga:
„Stofnþing Sambands ís-
lenzkra sveitarfélaga samþykkir
að skora á ríkisstjórnina að
láta fara fram sem fyrst gagn-
gerða endurskoðun á löggjöf
þeirri, sem fjallar um tekju-
stofna sveitarfélaganna.
Sérstaklega nauðsynlegt telur
þingið að útsvarslögin verði
rækiiega endurskoðuð, og upp í
þau tekin m. a. nánari ákvæði
um reglur þær, er fylgja ber við
álagningu útsvara en nú eru
þar, og að tryggt verði, að á
þennan aðal-tekjustofn — út-
svörin — verði ekki gengið af
öðrum aðilum, nema sveitarfé-
lögunum sé jafnframt séð fyrir
tekjum á annan hátt.
Þingið veitir stjórninni heim-
ild til þess að skipa nefnd
sveitarstjórnarmanna, er starfi
milli þinga, .til þess að gera til-
lögur um fast kerfi fyrir álagn-
ingu útsvara, sérstaklega að því
er tekur til hreppsfélaganna og
felur þingið stjórninni að koma
þeim tillögum á framfæri þegar
endurskoðun útsvarslaganna fer
fram“.
%
2. Endurskoðun sveitar-
stjórnarlaganna.
Frá Jónasi Guðmundssyni var
samþykkt eftirfarandi tillaga:
„Stofnþing Sambands is-
lenzkra sveitarfélaga lýsir á-
nægju sinni yfir því að hafin er
endurskoðun sveitarstjórnarlag-
anna og væntir þess, að þvi
verki verði lokið sem fyrst.
Stofnþingið lýsir því yfir sem
sinni skoðun, að fyllilega geti
komið til álita að leggja sýsl-
urnar niður sem lið í sveitar-
stjórnarkerfinu, en taka í þeirra
stað upp fjórðunga eða fylki,
sem fengju meira vald í á-
kveðnum málefnum sveitarfé-
laganna en nú er hjá sýslu-
nefndum og bæjarstjórnum, og
væri fylkjunum stjórnað af
fylkisþingum, sem til væri kosið
af sveitarfélögum innan fylkis-
ins, og fylkisstjórnum, er þing-
ið veldi.
Stofnþingið væntir þess, að
þegar frumvarp til nýrra sveit-
arstjórnarlaga liggur fyrir, verði
samtökum sveitarstjórnar-
manna gefinn kostur á að at-
huga það og segja á því álit
sitt, áður en það kemur fyrir Al-
þingi“.
3. Stofnun hælis fyrir
vandræðafólk.
Um það mál samþykkti þingið
eftirfarandi tillögú frá Jónasi
Guðmundssyni:
„Stofnþing Sambands ís-
lenzkrá sveitarfélaga samþykk-
ir að beina þeirri áskorun til
væntanlegrar sambandsstjóm-
ar, að hún athugi með hverjum
hætti sé tiltækilegt að komið
verði upp í landinu hæli fyrir
vandræðafólk það, sem nú er á
vegum sveitarstjóma heima í
hreppum og kaupstöðum en
hælisvist eða fast athvarf fæst
hvergi fyrir eins og sakir standa.
Sérstaklega er stjórninni falið
^ð athuga vel hvort ekki væri
rétt að sveitarfélögin kæmu sér
upp í félagi hæli fyrir þetta fólk
t. d. á þeim grundvelli, að hvert
sveitarfélag tryggði sér þar
rúm fyrir einn eða fleiri menn
og stæði undir stofnkostnaði
hælisins að þeim hluta. Stjórnin
skili áliti í málinu á næsta
landsþingi“.
4. Samstarf sveitarfélaga
í meninngarmálum.
Nefnd sú, sem kosin var í til-
efni af þeirri uppástungu Ólafs
B. Björnssonar forseta bæjar-
stjórnar Akraness, að sérstakar
nefndir yrðu starfandi í hinum
ýmsu sveitarfélögum á landinu,
til að eiga frumkvæði að auk-
inni alhliða menningarstarf-
semi 'hver á sínum stað, lýsti
yfir því, að hún væri hlynnt því,
að til öflugrar starfsemi verði
stofnað í þessu efni, og lagði
því fram eftii'farandi tillögu:
„Þar sem samþandið hefir í
lögum sínum viðurkennt það
nauðsyn og skyldu sína að hafa
bætandi áhrif og afskipti af
alhliða meninngarmálum hinna
ýmsu sveitarfélaga, beinir þing-
ið þeim eindregnu tilmælum til
stjórnar sambandsins og full-
trúaráðs, að það athugi á hvern
hátt megi bezt auka og tryggja
viðgang slíks starfs á hinum
ýmsu stöðum. T. d. með skipun
fastra nefnda eins og framsögu-
maður benti á, og leggi tillög-
ur sínar þar um fyrir næsta
landsþing“.
5. Ýmsar tiliögur.
Eftirtöldum tillögum var vísað
til fulltrúaráðs og framkvæmd-
arstjórnar til athugunar:
a. Tillögur frá fulltrúum
Vestmannaeyjakaupstaðar og
oddvita Neshrepps utan Ennis:
„Stofnþing Sambands ís-
lenzkra sveitarfélaga samþykk-
ir að fela fulltrúaráði og fram-
kvæmdastjórn að athuga og
leggja fyrir næsta landsþing
rökstutt álit sitt á því, hvort
ekki sé rétt:
1. Að allur kostnaður við lög-
gæzlð í landinu verði greiddur
úr ríkissjóði.
2. Að öll laun kennara við
barna- og unglingaskóla verði
greidd úr ríkissjóði.
3. Að skemmtanaskattur
renni óskiptur til þess sveitar-
félags þar sem skemmtunin fer
fram,
4. Að lögum um ríkisstyrk
sjúkra manna og örkumla verði
breytt á þann hátt, að sjúkling-
ar, sem dvelja í heimahúsum
verði einnig fulls styrks aðnjót-
andi“.
b. Tillaga frá ÁrnaGuðmunds-
syni fulltrúa Vestmannaeyja:
„Stofnþing Sambands ís-
lenzkra sveitarfélaga telur þess
brýna þörf, að bæjar- og sveit-
arfélög skapi sér nýja tekju-
stofna með víðtækum opinber-
um rekstri, þar sem við verður
komið, svo sem með útgerð tog-
ara og vélbáta, verksmiðju-
rekstri til hagnýtingar íslenzkra
afurða o. s. frv. eftir því sem
bezt hentar á hverjum stað.
Felur þingið stjórn sambands-
ins og fulltrúaráði að vinna að
framgangi þessara mála, með
því m. a. að aðstoða bæjar- og
sveitarfélögin með útvegun
teikninga, áætlana um stofn-
kostnað og rekstrarkostnað fyr-
irtækja o. s. frv.“.
c. Tillaga frá Axel V. Tulini-
us, fulltrúa Hólshrepps:
„Stofnþing Sambands ís-
lenzkra sveitarfélaga skorar á
fulltrúaráð og framkvæmda-.
stjórn að vinna að því við Al-
þingi og ríkisstjórn að ganga
ekki endanlega frá löggjöf um
framtíðartilhögun rafmagns-
mála landsins áður en umsagn-
ar og álits þeirra um þau hefir
verið leitað“.
d. Tillaga frá fulltrúum Vest-
mannaeyj akaupstaðar:
„Stofnþing Sambands ís-
lenzkra sveitarfélaga samþykk-
ir að fela fulltrúaráði sínu og
framkvæmdastjórn, að hlutast
til um, að hluti bæjar- og sveit-
arfélaga, af ágóða Áfengisverzl-
unar ríkisins verði 20% í stað
5% eins og nty, er“.
e. Tillaga frá Axel V. Tulini-
us, fulltrúa Hólshrepps og
(Framhald á 5. síðu)
Aðalfundur Norræna
félagsíns
Um stofnun byggðasafna
Eftir Þórð Tómasson, Vallnalúní
Aðalfundur Norræna félagsins
var haldinn í Oddfellowhúsinu
14. júní. Ritari og framkvæmda-
stjóri félagsins, Guðlaugur Rós-
enkranz flutti skýrslu um störf
félagsins á liðnu starfsári.
Um síðustu áramót voru fé-
lagsmenn 1181 á öllu landinu,
en siðan hafa 12 gengið í það
og eru þeir því nú 1197. Félagið
hafði síðastliðinn vetur þrjá
mjög fjölsótta skemmtifundi og
síðasta fundinn, vorhátíðina,
sameiginlega með öðrum Norð-
urlandafélögunum í Reykjavík.
Eitt af aðalverkefnum félags-
ins nú er að undirbúa byggingu
starfsheimilis síns við Þingvöll.
Til þess að hrinda þvi máli á-
fram hafa nokkrir áhugamenn
innan • félagsins stofnað hluta-
félag til þess að koma upp bygg-
ingu fyrir starfsemi félagsins
og sem dvalarstöð fyrir félags-
menn. Félagið var stofnað
laugardaginn 12. maí og heitir
Norræna heimilið h. f. Stofn-
endur eru 40 og hlutaféð 200
þús. kr. Stjórn félagsins skipa:
Guðl. Rósenkranz formaður,
Eyjólfur Jóhannsson framkv.-
stjóri varaformaður, Sveinbj.
Finsson verðlagsstjóri ritari, en
meðstjórnendur Hjálmtýr Pét-
ursson kaupm. og Kristján Guð-
mundsson framkvæmdastjóri.
Gert er ráð fyrir að hefjast
handa um byggingu heimilisins
strax þegar vegurinn niður í
Kárastaðanesið er gerður, en að
lagningu hans hefir nú verið
unnið um þriggja vikna skeið.
Noregssöfnuninni hafa alltaf
verið að berast gjafir til þessa
og er hún nú komin á aðra
miljón í peningum, auk mikilla
fata, sem áætlað hefir verið
rúml. y2 milj. kr. virði. í vetur
var keypt mjög mikið af með-
alalýsi og nálægt 90 stórir fata-
kassar fóru þá einnig, og var
mikið af vöru þessari sent til
Norður-Noregs í vetur og komst
þangað þegar mest var þörfin
fyrir hana. Og hefir formaður
norska Rauða krossins í Lond-
on látið í ljós mikla ánægju
yfir þeim sendingum. Mestöllu
fénu hefir nú verið ráðstafað í
samráði við norska Rauða kross-
inn, en það sem eftir er, verður
að ósk forráðamanna hans
geymt hér fyrst um sinn. Um
framtíðarstarfið sagði ritari að
mundi verða rætt síðar í sumar
sameiginlega af öllum félögun-
um. Margt fólk hefir leitað til
félagsins um upplýsingar um
skóla í Svíþjóð og hafa þegar
nokkrir fengið loforð fyrir
skólavist næsta vetur. Hagur
(Framhald á 5. síðu)
Varla munu skiptar skoðanir
um það, að hverri þjóð sé nauð-
synlegt að varðveita sem bezt
samband sitt við fortíð sina,
án þess þó að stara um of aftur
fyrir sig. íslenzka þjóðin er í
því efni engin undantekning.
Lengi vel sinnti hún þessu engu.
Á sama tíma og aðrar þjóðir
stofnuðu og efldu forngripa-
söfn hjá sér, létu íslendingar
fjölda góðgripa sinna frá gam-
alli tíð úr landi, en suma þeirra
létu þeir verða fórn hirðuley^is
síns. Árið 1863 yar forngripa-
safn íslands stofnað í Reykjavík
af fáum mönnum og litlum efn-
um, en af áhuga, skilningi og
j framsýni þeirrar þjóðrækni, sem
1 stofnendurnir áttu i svo ríkum
J mæli. Eiga þeir einna drýgstar
þakkirnar fyrir það, að hinn 6-
metanlegi menningararfur frá
liðnum kynslóðum, sem forn-
gripasafnið geymir, glataðist
ekki til mikilla muna. Þjóðin
stendur í mikilli þakklætisskuld
við menn þá, sem stofnuðu
j forngripasafnið og þá, sem veitt
1 hafa því forstöðu til þessa
dags, en furðu áhugalítil hefir
hún verið um hagi þess lengst
af. Nú virðist þó, sem það muni
loksins ætla að öðlast þá að-
búð, sem sómasamleg er fyrir
það og þjóðina. Má þá jafn-
framt vænta þess, að það hefjist
til þess að verða sú menningar-
stofnun, sem auður þess gefur
fyrirheit um. Þrátt fyrir þá
mergð góðra gripa sem safnazt
hafa saman i forngripasafninu
þá hefir svo margt jafnoka
þeirra glatazt hjá þjóðinni frá
stofnun þess, að sorglegt er til
þess að hugsa.
Þetta verður ljóst, þegar litið
er til þess, að allt fram um síð-
ustu aldamót voru flestir bús^
| hlutir íslenzkra sveitaheimila
j gerðir í fornum stíl, en nú er
meirihluti þeirra af nýrri gerð,
| en hinn kominn í skúma-
skotin að kalla og týnir tölunni
ár frá ári. Sú staðreynd, að
talsverðar leyfar atvinnutækja
þjóðarinnar að fornu og um leið
menningar hennar, eru þó enn
við lýði á víð og dreif um landið,
ætti að vera mönnum næg hvöt
til að -safna þeim og varðveita
þær fyrir komandi kynslóðir,
áður en það er um seinan. Eitt
gleðilegasta menningarnýmæli'
síðustu ára hér á landi er stofn-
un byggðasafna í sveitum lands-
ins. Forgöngumenn þess máls
feta í fótspor stofnenda forn-
gripasafnsins. Hreyfing þessi er
þó enn allt of laus í reifunum.
Ef vel væri ætti hún að vera
skipulögð og vernduð af ríkis-
valdinu með löggjöf, en mest
nauðsyn er henni þó á því að
öðlast hylli landsmanna.
Satt að segja fimjist méngegna
nokkurri furðu, að félagasamtök
sveitanna skuli ekki veita þessu
máli meira brautargengi en
raun ber vitni. Búnaðarfélögin
og ungmennafélögin ættu þó að
hafa góða aðstöðu tjl að safna
þeim gömlu munum á starfs-
svæðum sínum, sem ella virtust
tortímingunni seldir, en það yrði
þó tæpast nóg. Söfnunin þarf
sennilega meðfram að vera
framkvæmd af áhugamönnum,
sem sjá um, að ekkert fari
forgörðum af þessu tagi, sem
eitthvað gildi hefir, hversu lítil-
mótlegt sem sumum kynni ef til
vill að þykja það fljót á litið.
Byggðarsafn þarf helzt að kom-
ast á fót innan hverrar sýslu og
væri því þá aflað allra þeirra
muna, sem fáanlegir væru til
þess innan vébanda sýslunnar.
Sums staðar hagar þó svo til, að
tvær sýslur eða jafnvel fleiri
áýslur gætu sameinast um slíkt
safn. Landbúnaðarverkfæri fyrri
tíðar eru nú sum orðin svo tor-
gæf að ófáanleg munu vera,, því-
nær víða alveg. Þarf þá að fá
hæfa kunnáttumenn til að
smíða þau fyrir byggðasöfn þau,
sem rísa kunna á legg hér á
landi, geti þau ekki orðið full-
komin af söfnuninni einskærri.
Söfn þessi ættu að geta orðið
eins konar skóli fyrir æsku
sveitanna. Auk þess, sem þau
veittu raunhæfa fræðslu um
hætti forfeðra hennar og aðbúð,
þá gæti hún líka sótt þangað
listrænar fyrirmyndir til að
styðjast við er núverandi losara-
ástandi linnir og ný verkleg
menning blómgast í sveitum
landsins á sviði heimilisiðnað-
arins.
Efnt hefir verið til sjóminja-
safns í Reykjavík, en hvað líður
stofnun allsherjar minjasafns
landbúnaðarins? Búnaðarfélag
íslands virðist ekki illa fallið til
að hafa forustu um stofnun þess
en það virðist hafa meiri áhuga
fyrir flestum öðrum málum en*-
því. Um nauðsyn og réttmæti
slíks safns skil ég varla í að geti
verið skiptar skoðanir.
Það ætti að vera i mörgum
deildum til að sýna mismun-
andi vinnuaðferðir og áhöld í
hinum ýmsu héruðum landsins,
en miðdepill þess þarf að vera
sveitabær í fornum stíl. Hann
má ekkert skorta. Hann verður
að eiga baðstofu, eldhús, búr
mjólkurhús, vefstofu, skemmu,
•smiðju og önnur hús með öllum
munum sínum og áhöldum og
bóndinn, húsfreyjan, börn þeirra
(Framhald á 5. síðu)
málsin^ ákvað hún að veita
kvenréttindamálinu fylgi sitt.
Hún tók þó ekki virkan þátt í
baráttunni því að en var hún of
fast bundin við heimilisskyld-
urnar og börnin.
Þegar Roosevelt var skipaður
aðstoðarráðgjafi fyrir flotann
komst kona hans fljótt að því,
að kona manns, sem skipar opin-
bera stöðu verður að haga
heimilishaldinu samkvæmt því,
sem manni hennar hentar bezt.
Hún reyndi því á allan hátt að
leysa hann frá öllum áhyggjum
viðvíkjandi fjölskyldunni og
heimilinu, til þess að hann gæti
gefið sig óskiptan að starfi sínu,
og hún skapaði þeim félagslíf,
þar sem hann naut sín sem bezt.
Þegar stríðið skall á 1914 fór
Mrs. Roosevelt að gefa sig í al-
vöru að störfum utan heimilis-
ins. Hún vann við Rauða kross-
inn og að ýmsum öðrum störf-
um í sambandi við stríðið. Henni
jókst sjálfst'raust eftir því sem
hún tók á sig meiri ábyrgð og
nú fyrst komst hún i náið sam-
band við alþýðuna og lærði að
þekkja hana og samúð hennar
með fóikinu þroskaðist.
Þegar konum í Bandaríkjun-
um var Veittur atkvæðisréttur
1920, fann Mrs. Roosevelt Ijóst til
þess, að nú hafði hún nýjar
skyldur að rækja, sem atkvæðis-
bær þegn, og hún ásetti sér að
leysa þær skyldur af hendi með
samviskusemi. Börn hennar
voru nú orðin svo vel á veg kom-
in að hún tókst á hendur fjögra
vikna kosningaleiðangur með
manni sínum, þegar hann sótti
um vara-forseta embættið 1920.
Og nú fyrst vaknaði fyrir alvöru
áhugi hennar fyrir stjórnmálum.
Hún gat ekki hugsað sér að eiða
æfinni í 'te-drykljiu og í fánýtt
samkvæmislíf. Hún gekk í félög
kvenna, sem höfðu það markmið
að kynna konum þau efni, sem
lúta að stjórnmálum og félags-
málum yfirleytt. Eleanor Roose-
velt var nú farin að fara sinna
ferða og það var í alt aðra átt
en venjulegt var, fyrir konur af
hennar stétt.
En nú syrti snögglega að. Hinn
glæsilegi og þróttmikli maður,
Franklin Roosevelt var lostinn
lömunarveikinni, og allt benti til
þess að stjórnmálaferli hans
væri lokið, en bæði hann og
kona hans neituðu að gefast
upp. Þau börðust áfram hlið við
hlið með óbilandi kjarki og strax
og honum var það mögulefet,
hvatti hún hann til að taka aft-
ur þátt í opinberum málum. Hún
vildi ekki láta hann finna til
þess að hann væri fatlaður;
hún sá um að vinir hans heim-
sóttu hann til að spyrja hann
ráða eins og þeir höfðu áður
gert; hún reyndi á allan hátt
að vekja áhuga hans á ný fyrir
mönnum og málefnum. Margir,
jafnvel tengdamóðir hennar,
fundu að þessari lækningarað-
ferð, en hún gaf því engan gaum
og smám sgman náði maður
hennar aftur lífsgleði sinni og
sæmilegum kröftum og það er
mál manna að eftir að hafa
gengið í gegnum þessa eldraun
hafi hann fyrst fundið til fulls
kraftinn í sjálfum sér til stór-
ræða.
Mrs. Roosevelt var enn fremur
sannfærð um það,aðef hún sjálf
tæki virkan þátt í pólitískum
f
málum mundi það verða stuðn-
ingur fyrir mann hennar. Hún
gekk nú í félag kvenna Demo-
crataflokksins og um þetta leyti
flutti hún sína fyrstu ræðu.
Eftir þetta varði hún miklu af
tíma sínum í þarfir flokksins.
Hún sat í nefndum, bauð for-
ustumönnum flokksins á heimili
sitt; ferðaðist um ríkið til þess
að skipuleggja pólitísk samtök
kvenna; flutti kosningaræður;
keyrði kjósendur á kjörstað o. s.
frv. Þátttaka þessarar konu,
sem stóð svo ofarlega í mannfél-
aginu, hafði þau áhrif að þeir
gamaldags forustumenn innan
flokksins, sem andstæðir voru
þátttöku kvenna í pólitískum
m^lum, fóru að láta undan síga
og konur fóru að taka hana sér
til fyrirmyndar í því að starfa
að pólitískum málum.
Þrátt fyrir stjórnmála annríki
sitt, vanrækti Mrs. Roosevelt
ekki börnin. Faðir þeirra gat nú
ekki tekið þátt í leikjum með
þeim. Hún lærði því að synda
með þeim, fór í útreiðar, sleða-
ferðir og alls konar útiskemmt-
anir með þeim. Auk alls þessa,
stofnaði hún á þessum árum í
félagi við tvær konur, skóla fyrir
stúlkur og kenndi sjálf við hann
í mörg ár.
Franklin D. Roosevelt var nú
búinn að ná sæmilegri heilsu og
fyrir tilstilli konu hans og vina
gaf hann kost á sér til ríkisstjóra
kosningar i New York ríkinu og
var kosinn 1928. í hinni nýju
stöðu studdi kona hans hann á
allan hátt. „Eleanor og ég,“ var
viðkvæði hans þegar hann var
að ræða málefni, stefnur og ráða
gerðir við vini sína Þau heim-
sóttu árlega stofnanir ríkis-
stjórnarinnar, skóla sjúkrahús o.
s. frv. Þá varð hún að vera augu
hans og eyru, þvi vitanlega var
erfitt fyrir hann að komast í
kring.
Það var einmitt á þennan hátt
að Mrs. Roosevelt varð að ómet-
anlegri aðstoð stjórn landsins og
manni sínum eftir að hann varð
forseti. Hún ferðaðist um landið,
til Suður-Kyrrahafsins, Alaska,
Bretlands og aflaði upplýsinga
fyrir mann sinn um ástand,
stefnur og strauma. Þannig
treysti hún sambandið milli for-
setans og fólksins í hinu víð-
áttumikla landi.
Eftir að Franklin D. Rosseveit
varð forseti gat kona hans ekki
tekið beinan þátt 1 pólitískum
málum stöðu hans vegna, en hún
var ekki aðgerðalaus. Áhuga-
mál hennar voru mörg og hún
hikaði ekki við að beita sér fyr-
ir þeim og fannst sumum nóg,
um. En Msr. Roosevelt var ekki
kona, sem gerði sér að góðu að
sitja sem uppdubbuð brúða í
Hvíta húsinu og gefa sig alger-
lega að veizlum og móttökum.
Hún talaði í útvarpið, hún
ferðaðist um og flutti ræður,
hún skrifaði í blöð og tímarit
og hún skrifaði bækur. Hún
barðist fyrir betri húsakyrfnum
betri skólum, heilbrigði, jafn-
rétti negranna og öllu því, sem
verða mætti til að færa þjóðina
á hærra menningarstig. Og hún
er nú löngu búin að afla sér
viðurkenningar allrar þjóðar-
innar, sem framúrskarandi mik-
ilhæf kona.
Enginn efi er á því að Franklin
D. Roosevelt var það mikill
stuðningur að eiga aðra eins
konu. En hins vegar hefði hún
ekki náð þeim þroska sem raun
ber vitni, ef hún hefði ekki átt
mann eins og hann. Hann dróg
aldrei úr því, sem hana langaði
til að gera, hann hvatti hana til
þess að beita sér fyrir áhuga-
málum sínum, sumir fylgjendur
hans sögðu að athafnir hennar
hefðu slæm áhrif hvað pólitískt
fylgi hans snerti, en aldrei heyrð
ist annað frá forsetanum en að
hann hefði dýpstu aðdáun fyrir
konu sinni og þroskaferli henn-
ar.
Franklin D. Roosevelt var
mannréttinda og mannvinurinn
mikli. Hann gerði engan grein-
armun á fólki. í hans augum
áttu kvenmenn jafnt sem karl-
menn rétt til að þroska hæfileika
sína og verða þjóð sinni að sem
mestu gagni. Þegar hann skipaði
Francis Perkins í hina ábyrgðar-
fullu stöðu' sem verkamálaráð-
gjafa.þá kom honum ekki í hug
að hann væri að gera nokkuð,
sem væri óvanalegt eða óviður-
kvæmilegt. Miss Perkins minnt-
ist þá á það við hann, að það
myndi e. t. v. ekki vera heppilegt
að skipa hana í þessa stöðu fyrir
það, að húri Væri kvenmaður.
Forsetinn hló glaðlega og sagði:
„Ég hélt, að við hefðum komizt
að þeirri niðurstöðu fyrir löngu
síðan að konur væru persónur."
Og þegar hann kynnti hana fyrir
hinum ráðherrunum, gerði hann
það á vingjarnlegan og eðlileg-
an hátt, en ekki eins og hún
væri eitthvað afbrigði eins og
sumum hefði orðið á að gera.
, Roosevelt forseti á sennilega
meiri þátt en nokkur annar einn
maður í því að hefja stöðu kven-
mannsins í þjóðfélaginu. Á hans
stjórnartíð voru þúsundir
kvenna skipaðar í ábyrgðarstöð-
ur hjá stjórninni. Konur voru
skipaðar dómarar, sendiherrar
og í ráðuneytið. Forsetinn bar
traust til kvenfólksins og virti
það, og hvernig átti það öðruvisi
að vera, þegar hann átti slíkan
fulltrúa kvenþjóðarinnar við
hlið sér, sem kona hans er og
móðir hans var kona göfuglynd
og mikilhæf.
Það hefir stundum verið sagt,
að afrek mikilmenna séu að
þakka einhverjum kvenmanni,
sem standi að baki þeirra.
Franklin og Eleanor Roosevelt
gengu fram ævibrautina hlið
við hlið. Á grundvelli vitsmuna
mættust þau sem jafningjar.
Þau virtu réttindi hvors annars;
þau dáðust að réttsýni, hæfi-
leikum og afrekum hvors ann-
ars og þau báru fullkomið traust
til hvors annars. Hjónaband
þeirra varð þeim, börnum þeirra,
þjóðinni og heiminum til bless-
unar.
Nú er þetta samfélag rofið um
stund. Við getum gert okkur í
hugarlund hinn djúpa söknuð,
sem fyllir hjarta hennar, sem
eftir er skilin. En kjarkurinn er
óbilandi; það hefir hún þegar,
sýnt Hún mun ekki setjast í
helgan stein. Áhugamál hennar
eru mörg. Vonandi á Bandaríkja
þjóðin eftir að njóta hæfileika
og krafta Eleanor Roosevelt í
mörg ókomin ár.
Útbrelðið Tímann!
N