Tíminn - 26.06.1945, Qupperneq 6
6
TtMTVTV. Iirifljodaginn 26. jimí 1945
47. blað
Samvínna útvegsmanna
DÁJÍARMIMDÍG:
llans Qrönteldt
fyrrum skólastjóri.
Hans Grönfeldt, fyrrum skóla-
stjóri, lézt 1. Júní síðastl. tæpra
72 ára að aldri eftir langa van-
hellsu. Jarðarförin fór fram að
Borg á Mýrum 9. þ. m. að við-
stöddu miklu fjölmenni.
Með honum er til moldar hnig-
inn, mætur maður og merkur
b^utryðjandi í íslenzku at-
vinnulífi. Maður, sem íslenzk
bændastétt á meira að þakka,
en margur mun ef til vill gera
sér ljóst nú.
Hann hét fullu nafni Hans
Grönfeldt Jeppesen, og var
fæddur 1. júlí 1873, í Horne pr.
Vardi á Jótlandi. Til íslands
kom hánn sumarið 1900.
Hann kvæntist 6. sept. 1902
Þóru Þorleifsdóttir, Jónssonar
prests á Skinnastað, ágætri
konu og mikilhæfri. Lifir hún
mann sinn ásamt einum syni.
Grönfeldt, — en svo var hann
einatt nefndur ■— lagði ungur
stund á mjólkuriðnað, smjör-
verkun ostagerð o. fl., og að
loknu námi réðist hann starfs-
maður hjá Búnaðarféílagi ís-
lands, og kom hingað eins og
áður segir sumarið 1900, og hóf
þegar eftirlits og leiðbeiningar-
starf við rjómabúin/sem þá voru
að rísa á legg.
Fyrstu árin var hann á Hvann-
eyrf, en þar var þá eitt hið
stærsta kúabú á 4ánciinu, og
því bezt aðstaða, til þess að
kenna þar smjörverkun. Um
aðrar greinir mjólkuriðnaðar
var þá ekki að ræða.
Fyrsta veturinn kenndi hann
fáum stúlkum, því að húsnæði
það, er hann hafði til afnota,
var aðeins ein stofa, sem skóla-
stjórinn á Hvanneyri léði hon-
um, auk svefnherbergis.
Sumarið 1901 var byggt mjólk-
urskólahús á Hvanneyri og hóf
Grönfeldt kennslu í því sama
haustið. Kennslan var bæði bók-
leg og verkleg. Aðfaranótt 6. okt.
1903 brann þetta nýja mjólkur-
hús, ásamt íbúðarhúsinu á
Hvanneyri og var þá skólinn
fluttur til Reykjavíkur og starf-
aði hann þar einn vetur.
Haustið 1904 var Mjólkurskól-
inn'fluttur að Hvítárvöllum, og
hóf þá starfsemi í sambandi við
nýstofnað rjómabúsfélag, sem
starfaði undir forystu Grön-
feldts, þangað til skólinn var
lagður niður 1919.
Vorið 1908 keypti Grönfeldt
jörðina Beigalda í Borgarhreppi
og reisti þar bú. Dvaldi hann þar
með fjölskyldu sinni frá því er
skólanum var slitið að vorinu
til haustnótta ár hvert meðan
skólinn starfaði.
Á þessu tímabili útskrifaði
Grönfeldt um 140 nemendur auk
10 stúlkna, sem ekki luku prófi.
Enn fremur kenndi hann mörgu
fólki á ýmsum aldri að mjólka
kýr með svonefndri Hegelunds-
aðferð. Þegar þess er gætt, að
Grönfeldt var eini kennarinn
við Mjólkurskólann og hafði auk
þess á hendi framkvæmdastj órn
rjómabúsins á Hvítárvöllum, má
það Ijóst verða, að þetta allt var
meira verk, en nokkrum meðal-
manni væri fært að leysa af
hendi.
Stúlkum þeim, sem luku prófi
við Mjólkurskólann hjá Grön-
feldt var ætlað það hlutverk, að
veita forstöðu rjómabúum víðs
vegar um landið, en rjómabúin
framleiddu smjör fyrir Breta.
Meðan rjómabúin störfuðu,
ferðaðist Grönfeldt um landið á
hverju sumri og leit eftir starf-
semi þeirra og leiðbeindi þeim
á margan hátt.
Skömmu eftir að Mjólkurskól-
inn var lagður niður hóf Grön-
feldt nýtt brautryðjandastarf.
Hann fékk í lið með sér þrjá
bændur, sem bjuggu í grennd
við Beigalda, Jóhann Magnús-
son á Hamri, Jón Björnsson á
Ölvaldsstöðum og Pál Jónsson í
Ein'arsnesi. Þeir stofnuðu með
sér félag, reistu hús, keyptu vél-
• ar og byrjuðu á því að geril-
sneyða rjóma. Þetta var alger
nýung hér á landi og byrjunar-
örðugleikar miklir, en Grönfeldt
var bjartsýnn og vann af miklu
kappi. Var hann líka lífið og sál-
in i þessum samtökum.
Eftir 2—3 ár var þessari stofn-
un breytt þannig, að öllum hér-
aðsmönnum var opnaður að-
gangur að félaginu, húsakynni
nálega þrefölduð að stærð, bætt
við nýjum, góðum vélum og haf-
in niðursuða á mjólk. Nú virtist
svo, að þessi stofnun væri komin
yfir alla byrjunarörðugleika og
framundan væri greið og góð
leið, svo að brautryðjandinn
gæti farið að sjá árangur af
þrautseigju sinni og erfiði. En
það fór á annan veg. Annan
des. 1925 brann verksmiðjan og
allar vélar stórskemmdust. Þetta
óháiPp fékk mikið á Grönfeldt,
þótt hann æðraðist ekki. Hann
Hans Orönfeldt.
dró sig nú í hlé frá mjólkuriðn-
aðinum og kom ekki að honum
eftir það. Mjólku;rverksmiðjan
var nú flutt í Borgarnes og hefir
vaxið þar hröðum skrefum. Hún
heitir nú Mjólkursamlag Borg-
firðinga. Vörur þær, sem hún
framleiðir og selur eru smjör,
skyr, ostar, rjómi og niðursuðu-
mjólk og allt eru þetta viður-
kenndar fyrsta flokks vörur.
• Framkvæmdastj óri Mjólkur-
samlagsins hefir leyft mér að
birta eltirfarandi ummæli:
„Mjólkurskóli H. J. Grönfeldts
bætti tvímælalaust mikið alla
vöruvöndum á sviði mjólkuraf-
urðanna. Af Grönfeldt lærðu
fleiri en þeir, sem hjá honum
dvöldu. Nemendur hans fræddu
bæði nágranna sína og heilar
sveitir um rétta meðferð á mjólk.
Varð nemendahópur hans þann-
ig margfalt stærri en hópur sá,
sem dvaldi við sjálfan skólann.
Lærðu rjómabússtýrurnar, sem
búsettar eru hér í héraði, eru
alltaf í hópi þeirra mjólkur-
framleiðenda, er bezta mjólk
senda til Mjólkursamlags Borg-
firðinga.“
Grönfeldt undi ekki lengi við
búskapinn einan, eftir að mjólk-
urverksmiðjan var flutt í Borg-
arnes. — Vorið 1927 fluttu þau
hjónin að Fornahvammi og
veittu þar forstöðu greiðasölu
og gistihúsi um eins árs skeið
fyrir hönd ríkisins. Næsta ár
voru þau á Beigalda, en seldu
því næst jörðina og búið, keyptu
Hótel Borgarnes og fluttu þang-
að vorið 1929. Grönfeldt rak
Hótel Borgarnes ásamt smá-
verzlun um 10 ára skeið, en seldi
hótelið vorlð 1939. *
Síðustu árin rak hann ein-
göngu verzlun.
Þó hér séu raktir meginþætt-
irnir í starfsævi Grönfeldts síð-
an hann kom til íslands, er þó
fjarri því, að allt sé sagt, sem
um hann má segja. í einkalífi
sínu var hann fyrirmyndarmað-
ur, er í engu vildi vamm sitt vita.
Hann var ágætur heimilisfaðir
og naut líka beztu aðstoðar
hinnar ágætu konu sinnar.
Heimili þeirra var um margra
ára skeið fjölmennt -4- og ávalt
rómað fyrir gestrisni og mynd-
arbrag.
Þau hjónin ólu upp fjögur
fósturbörn með mestu prýði.
Siguröur Kristjánsson
frá .Krumshólum.
Fyrir löngu síðan hafa flestir
islenzkir bændur gengið í sam-
vinnufélög.
Flest kaupfélögin eru hvort
tveggja í senn: neytendafélög
og sölufélög framleiðenda, þ. e.
s., þau kaupa inn vörur fyrir
félagsmenn sína og annast líka
sölu á framlelðsluvörum þeirra.
Einnig hafa bændur myndað
nokkur félög, sem eru eingöngu
sölufélög, og má í því sambandi
nefna sláturfélög og mjólkurbú,
sem ekki eru tengd neinu kaup-
félagi.
Hér verður ekki út í það farið
að rekja í einstökum atriðum
hið margháttaða gagn, sem
bændur landsins hafa haft af
samvinnufélögum sínum. Hitt
skal fullyrt,að barátta bænd-
anna fyrir daglegu lífsframfæri,
endurbótum á jörðum sínum og
atvinnutækjum og fyrir marg-
háttuðum framfaramálum í
sveitum landsins, hefir yfirleitt
verið og er svo erfið, að þeir
hefðu tæplega á þeim erfiðleik-
um sigrazt, sízt svo myndarlega
sem raun ber vitni, ef samvinnu-
félögin hefðu ekki verið þeim
sverð og skjöláur í senn.
Landbúnaður skilar aldreí
ævintýralegum tekjum, en er
tryggari og fastari í rásinni en
allir aðrir atvinnuvegir og stend-
ur þvi venjulega fastari fyrir,
þegar á móti blæs.
Þessar andstæður hafa yfir-
leitt mótað bændastéttina á þá
lund, að hún hefir tamið sér
sparsemi og ráðdeild, sem m. a.
kemur fram í því að losa sig við
kostnað af öljum óþörfum milli-
liðum í viðskiptum, og gildir
það jafnt um innkaup á nauð-
synjavörum og sölu^á fram-
leiðsluvörum.
Kaupstaðamenn hafa verið
eftirbátar bændanna í þessum
efnum, að fáum undantekning-
um fráteknum. Það eru t. d. örfá
ár síðan að tekist hefir að mynda
lífvænlegt neytendafélag í höf-
uðstáðnum. /
Þegar athuguð er samvinna
útvegsmanna, kemur I ljós, að
hún er óskiljanlega skammt á
veg komin. Að vísu eru á nokk-
rum stöðum á landinu komin
á samtök um innkaup á vörum
til útgerðarinnar og félagsmynd-
unar til nýtingar og sölu á af-
urðum, en þetta er í svo smáum
stíl, þegar litið er á heildina, að
furðulegt má teljast.
Bændurnir hafa bókstaflega
tryggt lífsafkomu sína að veru-
legu leyti með samvinnufélögun-
um, sem sjá um vinslu, verkun
og sölu á sláturfjárafurðum og
mjólkurvörum. Aftur á móti eru
lýsisbræðsluverksmiðjur, fiski-
mjölsverksmiðjur og fiskfrysti-
hús, svo nokkur dæmi séu nefnd,
að mestu leyti í höndum annarra
en útvegs- og fiskimanna.
Þetta er svipað þvi, að bændur
á Suðurlandsundirlendinu létu
einstaklinga reka Mjólkurbú
Flóamanna og seldu þeim að
verulegu leyti sjálfdæmi um
verðið á mjólkinni.
Hér er um að ræða alvörumál,
sem sjómenn og útvegsmenn
verða að gera sér fulla grein
fyrir og leysa á annan veg en
verið hefir, ef að vel á að fara.
Á meðan stríðsverð er á fiskin-
um getur útgerðin e. t. v. bjarg-
ast áfram með því að hafa inn-
kaup á útgerðárvörum, viðgerðir
á skipum og vinslu og sölu á
sjávarafurðum í höndum milli-
liða, en þegar framleiðsla og
verðlag fellur aftur í sinn eðli-
lega farveg og hörð samkeppni
kemur til sögunnar á ný, munu
útvegsmennirnir sjá, ef þeir gera
það ekki fyr, að aðferð bænd
anna, að spara sér milliliðina,
er eitt af meginskilyrðunum fyr-
ir því að sjávarútvegurinn geti
blómgast og dafnað.
G. T.
Bókmenntir og listir
• '
(Framhald af 3. siöu)
mundsson, Höggin á Tindastóli
(dulrænn atburður) eftir Krist-
ján Linnet, Milli vita í kennslu-
stund . (kvæði) eftir Þráinn,
Litli og stóri (saga) eftir Án
bogsveigi, Leiklistin (leikdóm-
ar) eftir Lárus Sigurbjörnsson,
Raddir, Ritsjá og ýmsir fróð-
leiksmolar.
Þess má geta, að bókmennta-
grein Vilhjálms Þ. Gislasonar
fylgja 38 myndir af skáldum og
rithöfundum.
Rógrnrinn um
landbúnaðinn
(Framhald af 3. síðu)
atvinnuleysið gengur í garð.
Þetta hefir viðgengist hér, sam-
ber Kreppulánasjóð og gengis-
breytinguna 1939, sem áður er
vikið að.
Það er talað um ölmusur, frá
ríkinu, til bændanna. Jarðabóta-
styrkurinn er ráðstöfun rikis-
valdsins, framlag til þess að
stuðla að batnandi framtíð at-
vinnuvegarins. Það tilheyrir
hverju siðuðu þjóðfélagi. En
styrkurinn er aðeins örlítið brot
af því fé, sem gengur til jarða-
bóta. Hitt leggja bændurnir
fsam. Ég hefi verið bóndi rúm-
an aldarfjórðung og gert tölu-
verðar jarðabætur. Styrkur rík-
isins til þess heflr hvorki kvatt
mig eða latt til framkvæmd-
anna, eða styrkt mig svo að
nokkru teljandi nemi. Verðjöfn-
unarféð, sem ríkið hefir lagt
fram síðustu árin og sem haldið
er ranglega fram af sumum að
sé styrkur til landbúnaðarins,
hefi ég minnst á áður. Bændur
verða að fá sannvirði fyrir fram-
leiðslu sína, en smástyrkir, á
hvert jarðabótadagsverk, hafa
lítið að segja fyrir afkomu
þeirra. Ríkið hlýtur llka í fram-
tíðinni %ð leggja þetta fé í ný-
býlarækt, rafveitur til sveita og
þannig lagaðar stórfram-
kvæmdir.
Loks er svo það, að bændurn-
ir búi allt of dreift um sveitir
landsins. Þeir eigi að færa sam-
an byggðina og lifa á ræktuðu
landi einvörðungu og þannig
minnka framleiðslukostnaðinn.
Þetta er svo augljós heimska,
að hún er raunar alls ekki svara-
verð. Kjötframleiðsla á ræktuðu
landi einvörðúngu er ófram-
kvæmanleg sökum dýrleika.
Vetrarbeit og nærtæk heiðalönd
eru okkar miklu hlunnindi við
sauðfjárræktina. En afurðir
sauðfjár eru eftirsóttar vörur
íbæði innanlands og utan. Vegna
afréttanna og heiðalandanna
hlýtur ísland að verða hjarð-
mannaland, þótt mikið verði
ræktað. Það er líka hægt að
þétta byggðina fram til dala.
Fram í botni Reykjadals í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu, þar sem land-
ið er allhátt yfir sjávarmál, en
sérlega góð skilyrði til sauðfjár-
ræktar, hafa fimm bræður
breytt föðurleifð sinni í fimm
jarðir, með ræktun og bygging-
um og búa þar allir. Þett.a er að
þétta byggðina, án þess að yfir-
gefa heiðabeitina og fjallagrös-
in. Það er nóg fólk til í landinu
til þess að setjast að í nýbýla-
hverfunum, þegar þau koma,
þótt ekki sé reynt að taka þang-
að strjálbýlisbændurna, sem
ekki er hægt að vera án, ef hag-
nýta skal landsins gagn og nauð-
synjar. í strjálbýlinu eru líka
beztu þroskaskilyrðin fyrir fólk-
ið. —
* * *
Er þá hins helzta getið, sem
notað er til að sverta bænda-
fólkið og gera atvinnuveg þess
auðvirðilegan og tæla þannig
unga fólkið úr sveitunum. Virð-
ist raunar vera nóg til þess samt
og áreiðanlega er verkafólk
kaupstaðanna nógu margt. Ég
fer nú lítið út í það að sýna fram
á hinn „dulda“ hagnað, sem
þéttbýlið hefir af sveitunum.
Má þó benda þar á ýmislegt:
Fjárimjni flutta þaðan í kaup-
staðina, uppeldi fólksins í sveit-
unum, er svo flytur í bæina; all-
Ir vasapeningar sveitafólksins
lenda þangað, kaupstaðabörnin
borða 1 sveitinni á sumrin og
margt fleira mætti telja.
Ef þessir vandlætarar, gagn-
vart landbúnaðinum, væru
menn, fullir vilja og viðléitni til
að bæta og efla þennan atvinnu-
veg og legðu sig fram til að sýna,
í verkinu, hvað gera skuli til
umbóta atvinnuveginum, þá
væri öðru máli að gegna. En
þegar þetta eru ábyrgðarlausir
skraffinnar, sem enga dyggð eða
mannskap hafa til að vinna
gagn landbúnaðinum eða nokkru
öðru nauðsynjamáli þjóðarinn-
Samband tsl. samvinnufélaga*
SAMVINNUMENN!
Munið, að sá tími, sem fer í að vanda fram-
leiðsluvörurnar, borgar sig.
Skínnaverksmidjan
Iðunn
framleiðir
StTUÐ SKHVIV OG LEÐUR
ennfrcmur
hina landskunnu
Idunnarskó
Farmall A
Gætið þess aff nota réttar smurningsolíur
á vélarnar.
Á mótorinn á aff nota þykkt S. A. E. 30. Þaff
samsvarar t. d. GARGOYLE MOBILOIL A, eða
DOUBLE SHELL. '
í gírkassann á að nota þykkt S. A. E. 90. Þaff
samsvarar t. d. GARGOYLE MOBDLOIL CW,
effa SHELL G. P. 90.
Samband ísl. samvinnuíélaga
r Búnaðardeild.
Aaglýsing:
Irá Fiskimálanefnd
Fiskimálanefnd hefir nú lokið við að reikna
út verðuppbót á fisk veiddan í febrúar s. 1.
Verðupphótin er sem hér segir:
1. verðjöfnunarsvæði 7.756%
2. verðjöfnunarsvæði 4.1999%
3. verðjöfnunarsvæði 5.166%
4. verðjöfnunarsvæði ekkert.
5. verðjöfnunarsvæði 15.494%
6. verðjöfnunarsvæði 9.623%
Útborgmn verðuppbótarinnar annast sömu
mcnn og áður.
Fiskimálanefnd.
ar, þá á ekki að hlífa þeim. Að
rægja og níða lífsnauðsynleg
störf og það fólk, sem stunda
þau og tæla fólkið frá starfinu,
hlýtur að eiga skylt við landráð.
í gömlum norskum lögum var
það saknæmt að tefja fyrir fólki
eða glepja, er það var að störf-
um við landbúnað. Hér ætti að
semja lög, sem færu í líka átt.
Það á að hegna þeim, sem óvirða
lífsnauðsynleg störf, tæla fólk
frá þeim og brjála með því heil-
brigða skynsemi þess. Og það á
að herða á straffinu þegar hin-
ir brotlegu eru ónytjungar, ó-
magar hjá þjóðinni og á hennar
framfæri.