Tíminn - 26.06.1945, Qupperneq 7
47. blað
Erlent yfirlit.
(Framháld af 2. síðu)
vorum táldregin með loforðum
Hitlers um sigur og velmegun og
það er enginn í Þýzkalandi
framar, sem saknar nazista.
Sjötta: Við höfum enga löng-
un, eða ástæðu framar til að
vera Bandamönnum fjandsam-
leg.
Mörgum mun finnast það of
mikil bjartsýni, að byggja ein-
hverjar vonir á þessum ályktun-
um. En það er samt áreiðanlegt,
að Þjóðverjar vita, að þeir eru
algjörlega sigruð þjóð. Þeir hafa
orðið fyrir barðinu á þeirri sömu
hernaðarvél, sem þeir urðu
fyrstir til að beita, og vegna þess,
að þeir eru auösveipnir að eðlis-
fari og vanir að hlýða fyrirskip-
unum umhugsunarlaust, eru þeir
í dag reiðubúnir að hlýða fyrir-
skipunum frá hinum nýja yfir-
boðara, þar sem nazistaleiðtog-
arnir eru ekki lengur til.
Þjóðverjar búast við að þurfa
að líða vegna styrjaldarinnar.
Þeir búast við að Bandamenn
krefjist fullra bóta. Alls staðar
um landið er manna saknað og
sérhver kona býst við því, að
sonur sinn, bróðir eða eigin-
maður, verði hafður í haldi er-
lendis um tíma, eða jafnvel í
nokkur ár, til þess að hjálpa til
við að bæta það tjón, sem Þjóð-
verjar gerðu í styrjöldinni.
Ef einhverjum mönnum verð-
ur leyft að hverfa heim, munu
konurnar verða mjög glaðar,
en konur þeirra,^em ekki fá að
hverfa heim strax, munu líta á
það sem hverja aðra hegningu.
Það verður ekki vart við neina
skemmdarverkamenn, eða var-
úlfa í Þýzkalandi nú. Þjóðverj-
ar eru nú auðmjúkir og kvíðn-
ir. Tveir óvopnaðir striðsblaða-
menn geta ekið óhultir klukku-
stund eftir klukkustund um
hliðarvegi, þar sem enginn her-
maður Bandamanna er sjáan-
legur í mílna fjarlægð. Þeim er
heilsað með brosi og boðið það,
sem hægt er að láta þeim í té.
A víðavangi
(Framhald af 2. siðuj
heldur var allur undirbúningur
í megnasta ólagi. Þannig gengur
sú saga, að nefndin muni hafa
haft útreikninga um þörf fyrir
timburkaup, sem voru a. m. k.
helmingi lægri en þeir þurftu að
vera. Nefndin mun því hafa
nokkurn veginn fengið það
tlmbur, sem hún var látin biðja
um, en eins og kunnugt er, mun
það hrökkva skammt til að
fullnægja brýnustu þörfum. Er
það ekki ofsagt, að hvert
hneykslið öðru verra einkenni
afskipti‘stjórnarinnar af Sví-
þ j óðarviðskiptunum.
Blekking Péturs.
í ræðu þeirri, sem Pétur
Magnússon flutti á landsfundi
Sjálfstæðismanna, er þess vand-
lega gætt, þegar minnst er á
greiðslurnar úr ríkissjóði til nið-
urfærslu á dýrtíðinni, að kalla
þær „greiðslur vegna landbún-
aðarafurða". Með ^essu er ber-
sýnilega verið að ýta undir þá
blekkingu, að hér sé að ræða um
greiðslur vegna landbúnaðarins.
Sýnir landbúnaðarráðherrann
vel hug sinn til landbúnaðarins
með því að hjálpa þannig til að
viðhaída þessari falskenningu.
íslendingur fierst
med erlendu skipi
Sú fregn hefir borizt hingað,
að Helgi Helgason, sjómaður,
hafi farizt með erlendu flutn-
ingaskipi. Hann var ættaður
héðan úr bænum, 32 ára gam-
all. *
Stúdenfspróf víð
Verzlunarskólann
Þann 17. þ. m. brautskráði
Verzlunarskóli íslands stúdenta
í fyrsta sinn. Stúdentarnir voru
sjö talsins. Þennan dag var 5. og
6. bekk skólans ^litið.
_ Nöfn hinna nýju stúdenta eru:
Árni J. Fannberg, Gísli Guð-
laugsson, Helgi Hjartarson, Jón
Ó. Hjörleifsson, Karl Bergmann,
Óskar Kristjánsson og Valgarð
Briem, allir með I. eink.
Útbreiðið Tíinann!
M, liriðjndaginn 26. júní 1945
MYNDAFRÉTTIR
Hér á myndinni sjást (talið frá vinstri) Marshall, formaður herforingjaráðs
Banáaríkjanna, og Alan Brooke, Jormaður herforingjaráðsins brezka
Til vinstri á mynáinni sést hinn kunni hershöfðingi Þjóðverja, Gerá von
Rundsteát, en hann er einna frœgastur allra þýzkra hershöfðingja. Hann
sést hér á tali við amerískan hersliöfðingja skömmu eftir handtökna. Hann
var tekinn fastur af sjöunda ameríska hernum hinn 2. maí síðastliðinn.
Innilegt þakklæti fyrir mikla hjálp og samúð í veikindum
og við fráfall mannsins míns,
Ðalls Magnússonar frá Hlíð.
Einnig þakka ég hjartanlega allar þær miklu gjafir, er
okkur og börnum okkar voru færðar og alla þá margvíslegu
hjálp, er þeim var veitt.
Guð blessi ykkur öll.
HRAFNHILDUR EINARSDÓTTIR.
Ullarverksmiðjan
Gefijun
framleiðir fyrsta flokks vörur.
Spyrjið því jafnan f y r s t eftir
Geíjunarvörum
þegar yður vantar ullarvörur.
Sláttuvél- - Rakstrarvél
(Deeríng)
til sölu. — Tilboð í vélarnar (liggjandi í Vestmannaeyjum). sem
eru sem ónotaðar, óskast sent blaðinu, merkt:
„Sláttuvél — Rakstrarvéi66.
Móðir
ísland
heitir nýja skáldsagan eftir Guðmund G.
Hagalín, sem er nýkomin í bókaverzl-
anir.
Móðir fsland er bók, sem menn hafa
lengi beðið eftir, þvi að hún tekur til með-
ferðar á frjálsmannlegan hátt lífið fi
Reykjavík á hernáinsárunum.
j§ |
Þrátt fyrir hina raunsæju frásögn höf-
undar markast hinar þróttmiklu persón-
ur bókarinnar þó fyrst og fremst af samúð
og réttlætiskend liöfundarins.
Bók þessi sneiðir að mörgu, sem aflaga
hefir þótt fara fi hæjarlífinu á hinum svo-
nefndu „ástandsárum66, en er þó engu að
sfiður fagurt og stílhreint listaverk og
hráðskemmtileg aflestrar.
Bókfellsútgáfan h.L
2o-25 ha.
lands
óskast til kaups.
Landið liggi sem næst aðal-
akvegasambandi Suðurlands.
i
Tilboð merkt „Aðalbraut“,
sendist blaðinu fyrir 20. júlí.
IVÝKOMIH
Prjónasilki
H. TOFT
Skólavörðustíg 5. Sími 1035.
Þurrkaður og pressaður
SAETFISKUR
ódýr og góður, í stærri og
minni kaupum.
Uafliði Baldvinsson
Sími 1456. — Hverfisg. 123.
Vinnið ötuUega fprir
Aðvörun
Á síðasta ári var gerður samningur við Bandaríkjastjórn um
kaup á öllum símalínum setuliðsins hér á landi, og falla þær til
landssímans jafnóðum og setuliðið þarfanst þeirra ekki lengur.
Er hér um að ræða loftlínur á staurum, jarðstrengi og sæstrengi,
og gúmvíra á jörðu. Mikið af þessum línum er þegar í notkun hjá
landssímans jafnóðum og setuliðið þarfnast þeirra ekki lengur.
inn hættir að nota þær.
Að gefnu tilefni eru menn alvarlega aðvaraðir um að skemma
ekki línur þessar, hvort heldur eru ofanjarðar eða neðan, eða
hrófla við hlutum úr þeim, svo sem staurum, jarðstrengjakössum
o. fl., enda liggja við því þungar refsingar samkvæmt lögum.
Póst- og sfimamálastjórnin, 22. júní 1945.
Tilkynntng
• \
Viðskiptaráðið hefir ákveðið, að. hámarksálagning
á innfluttar rafmagnseldavélar megi hæst vera 20%
(ein álagning).
Þurfi að skipta álagningunni, ber innflytjanda að
tilkynna þeim, er hann selur, hvað útsöluverðið megi
hæst vera. (
Ákvæði þessi ganga í gildi frá og með 22. júni 1945.
Reykjavík, 22. júní 1945.
Verðlagsstjórlnn.
t