Tíminn - 29.06.1945, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
ÚTGEFFANDI:
FRAMSÓKN ARFLOKKURINN.
Símar 2353 oB 4373.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.í.
RITST JORASKRLFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Llndargötu 9A.
Stmar 2353 Og 4373.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9A.
Sími 2323.
29. árg.
Reykjávík, föstndagmu 29. júní 1945
48. blaft
Sextíu ogf fíxnm ára:
u - .íit
Sigurdur Kristiusson
forstjóri S. í. S.
Nýjar npplýsingar í hneykslismáli S. Arnason & Co.
Fyrirtækið flutti inn vörur í leyfis-
leysi fyrír 280 þúsund krónur
Amerískt fyrirtæki, sem íslendingar munu eíga,
lagfdi lOO°|0 álagfningu á sumar vörurnar
Það upplýsist alltaf betur og betur, að réttarsættin í svindlmáli S. Árnason & Co. og
Brynju, fyrirtækja þeirra Jóhanns Þ. Jósefssonar, formanns Nýbyggingaráðs og Gunnars
Guðjónssonar skipamiðlara, eru ein stórfelldustu réttarmistök, sem kunnugt er um hér á landi.
Hafa nýlega birzt í Skutli nýjar upplýsingar um málið, sem sanna á þetta. Þess ber því hík-
laust að krefjast, að mál þetta verði tafarlaust tekið upp aftur og það því frekar, sem upp-
lýzt hefir síðan réttarsættin var gerð, að fyrirtækið S. Árnason & Co. var stórum brotlegra
en þá var kunnugt um, þar sem talið var, að það hefði flutt inn vörur án gjaldeyrisleyfa fyrir
13 þús. dollara, en f reyndinni hafði það flutt inn vörur á þennan hátt fyrir a. m. k. 43 þús.
dollara. Þá hefir einnig upplýzt, að fyrirtæki þetta hefir staðið í sambandi við amerískt
firma, sem íslendingar munu eiga, og hafði það keypt vörur af amerískum seljendum og selt
síðan S. Árnason & Co. með allt að 100% álagningu. Er næsta ólíklegt, að S. Árnason & Co.
hefði keypt vörur með svo óhagstæðu verði, nema eitthvert leynisamband hafi verið til stað-
ar. Er full ástæða til að álykta, ef ekki koma fram nýjar upplýsingar, að hér sé bæði um að
ræða verðlagsbrot og tilraun til að flytja gjaldeyri úr landi með ólöglegum hætti.
Hinar nýju upplýsingar í þessu máli, sýna líka enn betur en áður, hve sjálfsögð og rétt-
mæt er sú krafa Tímans, að Jóhann Þ. Jósefsson víki úr nýbyggingarráði meðan framhalds-
rannsókn fer fram. Það er með^öllu óþolandi ástand, að eigandi jafn brotlegra fyrirtækja
séu falin mikil völd í gjaldeyrismálum landsins, nema fullkomin rannsókn sýni, að hann sé
alveg sýkn saka.
Sá núlifandi íslendinga, sem
unnið hefir mest og gifturíkust
störf í þágu samvinnuhreyfing-
arinnar, Sigurður Kristinsson
forstjóri, verður 65 ára næst-
komandi mánudag.
Sigurður Kristinsson er fædd-
ur að Öxnafellskoti í Eyjafirði
2. júli 1870. Hann stundaði nám
við gagnfræðaskólann á Akur-
eyri og gerðist nokkru síðar,
1906, starfsmaður Kaupfélags
Eyfirðinga. Hallgrímur bróðir
hans, sem tvímælalaust hefir
verið mikilhæfasti forvígismaður
samvinnuhreyfingarinnar, hafði
þá nýlega tekið við forustu fé-
lagsins og var byrjaður að skapa
því þann grundvöll, sem hefir
gert það að öflugasta kaupfélagi
landsins. Sigurður var hægri
hönd Hallgrims í þessu starfi.
Þegar Hallgrímur lét af for-
stöðu félagsins 1918, til að tak-
ast á hendur enn stærra verk-
efni í þágu samvinnuhreyfingar-
innar, forustu Sambands ísl.
samvinnufélaga, var Sigurður
sjálfkjörinn eftirmaður hans.
Það féll þá í hans hlut að stjórna
félaginu á hinum örðugu fjár-
hagsárum eftir lok heimsstyrj-
aldarinnar. Tókst honum það svo
vel, að slíkt mun ekki hafa verið
gert betur annars staðar og átti
KEA gengi sitt síðar ekki sízt
því að þakka, hve vel það var
varið áföllum, sem þá urðu
mörgum öðrum fyrirtækjum
fjötur um fót.
Þegar Hallgrímur Kristinsson
féll frá fyrir aldur fram í árs-
byrjun 1923, þótti Sigurð-
ur sjálfsagður eftirmaður hans
sem forstjóri S. í. S. og tók
hann við. því ^tarfi á næsta
ári. Hefir hann gegnt því stöð-
ugt síðan, nema-í nokkra mán-
uði 1931, er hann var atvinnu-
málaráðherra.
Að þessu sinni mun ekki verða
leitast við til neinnar hlítar að
lýsa hinu giftumikla starfi Sig-
urðar Kristinssonar sem for-
stjóra S. í. S., enda kann að gef-
ast til þess annað tækifæri inn-
an skamms. Slíkt yrði líka
trauðla gert, nema rekja jafn
framt sögu S. í. S. á þessu tíma
bili. Það mun hafa verið margra
mál, þegar Hallgrímur Kristins-
son fél.1 frá, að samvinnuhreyf
ingin hefði misst þennan glæsi-
lega forustumann, þegar sízt
skyldi, því að fjárhagsaðstæður
voru þá á ýmsan hátt erfiðar
fyrir kaupfélögin og hinir harð
skeyttari kaupmannasinnar
höfðu þá nýlega gert að þeim ill-
vígari hríð en nokkru sinni fyrr
eða síðar. Þessir erfiðleikar voru
sigraðir og aðrir þeir, sem síðar
urðu á vegi S. í. S. Sigurður
Kristinsson hefir jafnan reynzt
samvinnuhreyfingunni hinn far-
sæli og öruggi leiðtogi. Þegar
hann skilar af sér störfum, mun
hann því geta litið með mikilli
ánægju yfir farinn veg, því að
samvinnuhreyfingin er nú marg-
fait öfíugri en hún var, er hann
tók við forustu hennar, og eftir-
mönnunum því búin stórum
betri skilyrði til að auka land-
nám samvinnunnar en honum
voru búin á þeim tíma.
Aðeins þeir, sem kunnugastir
eru, vita um það mikla starf,
sem þessi glæsilegi árangur hef-
ir kostað forustumanninn, þvi
að fáir eru lausari við það en
hann, að láta á sér bera. Þótt
margt ágætra manna hafi starf
að innan samvinnuhreyfingar-
innar á þessum tíma, er vafa-
samt, hvort nokkur hafi að
jafnaði haft lengri vinnudag né
unnað sér minni hvíldar. Má
nefna það sem dæmi, að það er
ekki fyrr en allra síðustu árin,
sem Sigurður hefir tekið sér
sumarfrí. Oft hefir heilsu
hans samt verið þannig háttað
að hann hefir ekki gengið heill
til skógar. En áhugi hans og
fórnfýsi í þágu samvinnuhreyf
ingarinnar hefir ekki spurt um
eigin hag og aðstæður, þegar
hún var annars vegar. Má þessu
til áréttingar geta þess, að Sig-
urður varð fyrstur til að lækka
laun sín hjá S. í. S., þegar krepp-
an var mest fyrir styrjöldina og
nauðsynlegt var að draga saman
rekstrarkostnaðinn. Munu þó
launin hafa verið lægri en hjá
(Framhald á 8. slðu)
1 ÖAfí
birtist á 3. síðu grein eftir Hall-
dór Kristjánsson á Kirkjubóli,
Um stjórnarandstöðuna.
Neðanmáls á 3. og 4. síðu er
síðari hluti greinar Um ána-
maðkinn eftir Guðmund Davíðs-
son. Ofanmáls á 4. síðu er grein
um lækningar á mæöiveiki eftir
Sigurð Jónsson á Arnarvatni.
í blaðinu Skutli 21. þ. m.
birtist mjög ýtarleg grein um
aetta mál undir fyrirsögninni:
„Frá gósenlandi heildsalanna.
Vörur fyrir 280 þús. kr. fluttar
inn í leyfisleysi. Á áð fela Jó-
hanni Jósefssyni allan innflutn-
ing til landsins?“
Þessari spurningu n^un varpað
fram í tilefni af því, að kom-
múnistar hafa nýlega krafizt
?ess, að viðskiptaráð yrði lagt
niður og öll innflutningsleyfi
lögð undir nýbyggingaráð.
í upphafi greinar Skutuls er
síðan skýrt frá því/ að ritstjóri
blaðsins hafi gert sér sérstakt
far um að fá upplýsingar um
Detta mál, m. a. farlð bæði til
sakadómara til að fá að sjá rétt-
arskjölin og til formanns við-
skiptaráðs, en hvorugur þeirra
vildi neinar upplýsingar gefa.
Ritstjórinn segist hins vegar
hafa fengið allrækilegar upp-
lýsingar um málið eftir öðrum
heimildum og fer sú frásögn
hans hér á eftir:
Verðlagsbrottn.
„Fyrir um það bil ári síðan
komst það upp, að allmikið af
bollapörum og annari leirvöru
frá ofangreindum fyrirtækjum
hafði verið selt með hærri á-
lagningu en heimilt var sam-
kvæmt verðlagsákvæðum. Hafði
fyrirtækið ekki sent vörureikn-
inga til verðlagsstjóra eins og
skylt er, en þegar þeirra var
krafizt, var komið með allskon-
ar skýringar til að réttlæta
verknaðinn, svo sem að vöntun
hefði komið fram í vörusending-
unni, þvert ofan í opinber vott-
orð frá amerískum yfirvöldum.
Til þess að gera þetta senni-
legt, var látin fara fram eins-
konar vörutalning, sem þó sum-
part á sér stað eftir að búið er
að selja nokkuð af vörunni. Eins
og hún var framkvæmd, var
vitanlega ekkert mark á henni
takandi, en samt sem áður tókst
fyrirtækinu að fá endurgreidd
an toll út á vottorð „teljaranna"
fyrir þann hluta vörusendingar-
innar, sem þeir töldu að hefði
vantað.
Til þess að draga úr verðlags
brotinu var einnig lagður fram
óeðlilega hár vátryggingar-
reikningur. Var hann framleidd-
ur á þann hátt, að starfsmaður
fyrirtækisins fór á skrifstofu vá-
tryggingafélagsins, fékk ókvitt-
Forstjóraskipti hjá
Mjólkursamsöiunni
Forstjóraskipti verða hjá
Mjólkursamsölunni í Reykja-
vík 1. september n. k. Halldór
Eiríksson, sem gegnt hefir
forstjórastarfinu með mikl-
um ágætum undanfarin 10
ár, hefir sagt því lausu fyrir
nokkru síðan. Stjórn Sam-
sölunnar hefir nýlega ráðið
Árna Benediktsson fram-
kvæmdastjóra í hans stað.
Hinn væntanlegi forstjóri
Mjólkursamsölunnar, Árni
Jóhann Þ. Jósejsson.
aða nótu fyrir upphæð, sem
hann tilnefndi sem vátrygging-
arupphæð fyrir vörusendinguna,
stimplaði síðan greitt á hana
og sendi síðan sem fylgiskjal til
verðlagsstjóra!
Hinn óleyfilegi hagnaður af
verðlagsbrotinu var við réttar-
sættina áætlaður 30 þús. kr., en
að öðru leyti eru sakir hinna
einstöku aðila ekki gerðar upp
í þessu máli.
Innf lutningsmálið.
Inn í réttarsættina er svo
flækt öðru óskyldu máli, sem að
öllu samanlögðu er margfalt al-
varlegra en hitt, og sýnir ennþá
betur það hyldýpi spillingar,
sem ríkjandi er í verzlunarmál-
unum.
Upphaf þessa máls er það, að
frá Ameríku kemur vélskipið
,Braga“ með vörusendingu til
ofangreindra fyrirtækja. Fyrir
þessum vörum vcru engin inn-
flutningsleyfi, enda sumþart um
að ræða algera bannvöru, sem
alls ekki hefði komið til mála
að leyfa innflutning á, frá Ame-
ríku, vegna skipaskortsins. í
þessari vörusendingu voru m. a.
leikföng, pelsar og ýmsar tízku-
og tildursvörur.
Fyrirtækið hafði gefið upp,
að vörur þær, sem það hafði
flutt inn í algeru leyfisleysi og
innflutningsleyfi vantaði fyrir,
hefðu kostað ca. 13 þús. dollara.
Einnig þetta mál var kært til
sakadómara af formanni við-
skiptaráðs, en af einhverjum á
stæðum var það mjög lítið rann
sakað og því að siðustu slegið
saman við fyrrgreint verðlags
brot sömu manna og með réttar-
sættinni ákveðin samtals 10 þús.
kr. sekt fyrir bæði málin.
Viðskiptaráð skyldi ráðstafa
hinni innfluttu bannvöru.
Kárnar gamanið.
Þegar að því kom, að við-
skiptaráð skyldi ráðstafa vör-
unni, kemur það allt í einu í
ljós, eftir að hún er búin að
vera í vörzlu tollayfirvaldanna
í marga mánuði, að andvirði
vörunnar, sem flutt hafði verið
inn í algeru heimildarleysi, er
ekki 13 þús. dollarar heldur 43
þús. dollarar, eða ca. 280 þús.
kr. íslenzkar að innkaupsverði.
Geta menn gizkað á hvert út-
söluverð slíkrar vörusendingar í
heild hefði orðið að viðbættum
tollum, og allri álagningu.
Er nú heimilt að spyrja:
Nær nú réttarsættin góða
einnig til þessarar viðbótar? Og
hvaða afstöðu hafa stjórnar-
völdin tekið til þesssv atriðis?
Lánað úr tollinum.
Auk þess, sem varan reyndist
(Framhald á 8. slðu)
Arni Benediktsson
Benediktsson, er Norður-Þing-
eyingur að ætt og uppeldi, fædd-
ur 1897. Hann lauk prófi frá
Samvinnuskólanum 1921 og
starfaði næstu árin við ýms
kaupfélög. Árin 1928—42 var
hann starfsmaður hjá Áfengis-
verzluninni, lengstum skrif-
stofustjóri. Hann hefir jafnan
tekið mikinn þátt í kaupfélags-
j málum hér í bænum, var i stjórn
iKaupfélags Reykjavíkur, unz
! KRON var stofnað, en í fram-
| kvæmdastjórn þess hefir hann
verið frá byrjun. Hann hefir
og verið framkvæmdastjóri þess
tvö síðustu árin. Hann er viður-
(Framhald á 8. síðu)
Ríkisstjórnfii ótt-
ast málstað sinn
Hán boðar til funda um stjórnarstefnuna,
os' vill hafa % af ræðutímanum!
Ríkisstjórnin hefir nú glögglega sýnt það álit, sem hún hefir
sjálf á málstað sínum. Hún hefir boðað til ellefu landsmála-
funda, þar sem fyrst og fremst á að ræða um stefnu og verk
stjórnarinnar, og er til þeirra boðað með þeim hætti, að stjórn-
arliðum er ætlaður % hlutar ræðutímans, en stjórnarandstæð-
ingum y4. Munu þess sennilega engin dæmi, að ríkisstjórn hafi
boðið upp á umræður um stefnu sína með þvflíkum hætti.
Þau tíðindi gerðust síðastl.
þriðj udagskvöld, að birt var til-
kynning frá ríkisstjórninni, eða
stuðningsflokkum hennar um
11 landsmálafundi, sem haldnir
verða um næstu helgar. í blöð-
um . stjórnarinnar var síðan
skýrt frá því, að þessir fundir
væru fyrst og fremst haldnir til
að kynna stjórnina eða réttara
sagt, til „að ræða um stefnu og
störf ríkisstjórnarinnar“, eins og
Þjóðviljinn orðar það. Fundir
þessir verða því frábreyttir
venjulegum landsmálafundum
að því leyti, að hver flokkur
ræðir ekki fyrst og fremst stefnu
sina og störf, heldur viðhorfið
til ríkisstjórnarinnar. Hefði því
verið eðlilegast, að þeim, sem
eru með og móti stjórninni, væri
veitt jöfn aðstaða eða jafn
ræðutími og hefði það lýst
nokkru trausti stjórnarinnar á
málstað sínum, ef hún hefði
(Framhald á 8. síðu)