Tíminn - 03.07.1945, Side 4

Tíminn - 03.07.1945, Side 4
4 49. folað TÍ»nM, foriðjudaginn 3. ji.lí 1945 Deílan um sérréttíndi Eímskípafélagsins Á árinu 1943 og fyrsta árs- fjórðungi ársins 1944 rakaði hlutafélagið Eimákipafélag ís- lands að sér yfir 30 milj. kr. gróða eða álíka upphæð ognam öllum tekju- og eignaskatti, svo og stríðsgróðaskatti til ríkisins á sama tíma. Gróði þessi var tekinn með því að sniðganga verðlagseftir- litið á mjög óviðeigandi hátt og brjóta í bág við yfirlýstan vilja þáverandi ríkisstjórnar um að halda öllu verðlagi niðri, svo sem framast væri hægt. Spunn- ust miklar umræður um þetta mál, bæði manna á meðal og í blöðum, og urðu fléstir til að fordæma trúnaðarbrot Eim- skipafélagsins. Var það helzt Morgunblaðið, sem reyndi að bera blak af félaginu eða léði rúm'til þess, endá hefði það ver- ið andstætt sögulegri reynslu, ef aðili, sem átti tuga-milj. kr. gróða að verja, hefði ekki átt peina formælendur. Morgun- 'blaðinu rann blóðið til skyld- unnar að verja hina gömlu reykvíksku , íhaldsmenn, sem ráða öllu um stjórn Eimskipa-. félagsins og eru sumir einnig meðal helztu eigenda Morgun- blaðsins. Gróðinn á leiguskipunum. Nú kom í ljós, að umræddur gróði var aðeins að litlu leyti á eigin skipum Eimskipafélags- ins, heldur fyrst og fremst á er- léndum skipum, sem ríkissjórn- in fékk á leigu, en trúði Eim- skipafélaginu fyrir að reka, enda þótt ríkisstjórnin hefði auðvit- að alveg eins getað látið sína eigin siglingastofnun sjá um rekstur leiguskipanna og tekið gróðann til sín, eða selt flutn- ingana ódýrar. Það var því fjar- stæða að telja nefndan gróða stafa af sérstakri ráðdeild hiá stjórn EimskiDafélagsins og ekki var heldur hægt að telja gróð- ann sem óvænt happ, nema það væri talið happ, að stjórn Eim- skipafélagsins skyldi takast að sniðganga verðlagseftirlitið. ■ Samkvæmt þeim undirtektum, sem mál þetta fékk í fyrstu í blöðum stjórnmálaflokkanna, hefði mátt ætla, að aðrir flokk- ar en Sjálfstæðisflokkurinn myndu standa óskiptir að ráð- stöfunum til þess að Eimskipa- félagið ráðstafaði hinum mikla gróða í samræmi við heildarhag, en þetta fór á aðra leið. Bæði Alþýðuflokkurinh og Sósíalista- flokkurinn runnu frá öllum að- gerðum í nefnda átt og sam- þykktu ásamt Sjálfstæðis- flokknum á Alþingi að veita Eimskipafélaginu áframhald- andi skattfrelsi í næstu tvö ár, aðeins gegn því skilyrði, að fé- lagið greiddi á þessum tíma ekki yfir 4% vexti af hlutatfé og birti hluthafaskrá sína. Framsóknar- flokkurinn reyndi að fá það skil- yrði sett fyrir skattfrelsinu, að félagið léti ríkið fá, af gróða sín- um, viðbótarhlutafé að því marki, að ríkið ætti jafnt í fé- laginu og einstaklingar, en þetta var fellt af stjórnarliðinu á Al- þingi, sem hélt því fram, að hér væri um óþarfa öryggisráSstöf- un að ræða, því að Eimskipa- félagið væri sameign allrar þjóð- arinnar og þar ríkti fullt þjóð- ræði. Hverjir ráða Eimskipa- félaginu? Rithöfundur einn reyndi síð- an í blaðagrein að rökstyðja þetta, með því að benda á eftir- farandi: 1. Að samkv. lögum Eimskipa- félagsins sé eitt atkvæði á að- alfundum félagsins fyrir hverja 25 kr. hlutareign, en þó megi enginn fara með fleiri atkvæði en 500 fyrir sjálfan sig og aðra. 2. Að aðalfundir séu því að- eins lögmætir, að mættir séu fulltrúar fyrir þriðjung hluta- fjárins. En svo fórst nefndum rithöf- undi svo óhönduglega röksemda- færslan, að benda á, að það væri jafnan á mörkum, að næg fund- arsókn fengist á aðalfundi Eim- skipafélagsins, til þess að þeir væru lögmætir. Þar með var auðvitað sannað, að ekkert þjóðræði ríkir í Eimskipafélag- inu, því að ástæðan til hinnar daufu fundarsóknar er sú, að hinir dreifðu smáhlutaeigend- ur hafa erfiða aðstöðu til þess að sækja umrædda fundi í Reykjavík, svó dýr sem ferða- lög nú eru. Almennt hafa þeir heldur ekki þá hugmynd um gildi sinna smáu hluta, að þeir fari að skipa umboðsmenn, til þess að fara með atkvæði fyrir sig. Vita heldur ekki, hvernig við skuli snúast málum, sem fram kunna að koma á aðal- fundunum og hafa ekki verið opinberlega skýrð. Kunnugir vita, að aðalfund Eimskipafélagsins sækja ekki fleiri menn að jafnaði en 50 tals- ins, og þar sem þessir menn virðast fara með atkvæði fyrir þriðjung hlutafjárins, verður það ljóst, að næstum hver fund- armaður fer með hámarks atkvæðamagn (500 atkvæði). Hvar halda menn að þessir 50 fundarsækjendur séu aðallega búsettir? Hverjir hafa toezt að- stöðuna? Geta ekki nokkrar f j öl- skyldur í Reykjavík algerlega ráðið umræddu miljónafyrir- tæki, með því að skipta hluta- fjáreigninni niður eins og henta þykir upp á atkvæðisréttinn? Jú, þær geta þetta og gera það. Þess vegna er það óverjandi brot á jafnrétti þjóðfélagsþegnanna að afhenda umræddu hlutafé- lagi á fáum missirum nokkra tugi milj. kr. til fullrar eignar og umráða. Öryggi og jafnrétti. í siðuðu þjóðfélagi er reynt að tryggja almennt öryggi og jafn- rétti þegnanna, en það samrým- ist ekki þeim tilgangi að gefa allt í einu nokkrum fjölskyld- um í Reykjavík, sem standa að Eimskipafélaginu, fullan um- ráðarétt og sumpart eignjarrétt yfir tugum milj. kr. Það er ekki hægt að gera svo skarpan grein- armun á þýðingu Eimskipafé- lagsins annars vegar og þýðingu annarra þjóðnytja fyrirtækja og atvinnurekenda í landinu hins vegar, að þetta sé réttlæt- anlegt. Menn hafa hamrað á því, bæði í sölum Alþingis og í blaðagrein- um, aö ástæðulaust væri að ótt- ast nokkuð um það, að gróði Eimskipafélagsins yrði notaður öðru vísi en aðeins í þágu al- þjóðar. En hví eru nokkrir menn settir í þá freistandi aðstöðu að notfæra sér það, persónulega, að þeim er, svo að segja kvaðalaust, heimilað að skattleggja almenn- ing til þrítugföldunar eða fer- tugföldunar á hlutafé sinu? Hvernig fór um tiltrúna til heildsalanna, sem keyptu vörur í Ameríku fyrir landsmenn nú á styrjaldartímanum? Og þurftu þeir þó að brjöta lög til auðgun- arinnar. Stórkostleg hneykslismál eru góður blaðamatur, en þau borga sig ekki fyrir þjóðfélagið, og bezt er að komast hjá þeim, ef hægt er. Það er því vansæmandi fjármálastjórn og ósamboðin réttlætismeðvitund almennings í landinu s að gera ekki frek- ari ráðstafanir heldut en fram til þessa hafa verið gerðar, gegn hættunni á misnotkun á aðstöðu og 'gróða umrædds hlutafélags. Vönduð bankastjórn lánar engum manni fé, hversu vandaður og heiðvirður sem hann er, öðru vísi en gegn full- um veðum eða tryggingum, og telja allir þetta sjálfsagt. En það sem gerst hefir að því er Eim- skipafélagið snertir, er það, að því hefir í skyndi verið fram- seldur frá ríkinu tuga-milj. kr. skattur, án þess að nokkur trygging væri sett fyrir meðferð- inni, önnur en felst í því að út- borga ekki yfir 4% arð til hlut- hafanna í næstu 2 ár. Þetta er lítil gjöf en lagleg fyrir þá hina fáu menn í Reykjavík, sem hafa hlutafjáreign og aðstöðu til að ráða öllu um stjórn Eimskipa- félagsins. En vitað er, að hneyksli þetta sigldi í kjölfar núverandi ríkisstjórnar. Eimskip eða mótorskip. Hér í blaðinu var á það bent fyrir skömmu síðan, að stjórn Eimskipafélagsins hefði ekki sýnt árvekni í því að sjá félag- inu fyrir heppilegum skipa- kosti. Þetta hefir hneykslað ýmsa formælendur Eimskipa- félagsstjórnarinnar, en það haggar ekki sannleikanum. Fyrir löngu var það ljóst, að hin litlu gufuskip Eimskipafélagsins hentuðu oss ekki til millilanda- siglinga á aðalflutningaleiðum, og varð þetta enn berar, þegar Ameríkusiglingarnar hófust. Stjórn Eimskipafélagsins hafði fyrir stríð næga möguleika til að fá sér nýtízku mótorskip, annað hvort með því að skipta á skipum eða án þess. En félags-' stjórnin vanrækti þetta, og hef- ir sú vanræksla kostað þjóðina mikið fé í háum flutningsgjöld- um, ekki einungis með skipum Eimskipafélagsins heldur einn- ig með erlendum skipum, sem fylgdu sömu töxtum. Árið 1927 lét Sameinaða gufu- skipafélagið dansa byggja hý- tízku mótorskip, Dronning Al- exandrine, til íslandsferða, en stjórn Eimskipafélagsins lét byggja gufuskip (nýjasta skip sitt, Dettifoss) 3 árum síðar, þrátt fyrir það, að stöðugt var að koma betur og betur í ljós, að mótorskipin áttu meiri framtíð. Sögðu sumir, að fastheldni Eim- skipafélagsstjórnarinnar við gufuskipin (eimskipin) stafaði af því, að henni fyndist heiti félagsins knýja það til að reka eingöngu gufuskip. Við þetta var átt hér í blaðinu, þegar talað var um, að jafnvel nýjasta skip Eimskipafélagsins, Dettifoss, hefði verið gamaldags, og þýðir ekkert fyrir Morgun- blaðið að vera með neinar vand- lætingar út af því, enda var um- rætt skip þegar orðið 15 ára, og slíkt getur ekki talizt nýtt skip, eins og sjá má á því, að talið er (Framhald á 7. síöu) Fundur skólastjóra Kéraðs- og gagnfræðaskóla Dagana 11.—13. júní var haldinn fundur skólastjóra hér- aðsskóla og gagnfræðaskóla á íslandi. Átti fræðslumálastjóri frumkvæði að fundi þessum og ákvað fundarefnið, sem var á þessa leið: 1. Frumv. skólamálanefndar um gagnfræðastigið. 2. Launamál. 3. Námsbækur. 4. Ýmis mál. Fundinn sátu fræðslumála- stjóri, skrifstofustjóri fræðslu- málastjóra og allir skólastjórar, er boðaðir höfðu verið, nema einn, er ekki gat komið því við að sækja fundinn. Fræðslumálastjóri setti fund- inn og lagði fyrir dagskrá hans. Fundarstjórar voru kjörnir þeir Bjarni Bjarnason, skólastjóri, Laugarvatni og Þorsteinn M. Jónsson, skólastjóri, -Akureyri. Ritarar fundarins voru skóla- stj órarnir Benedikt Tómasson, Hafn?irf. og Guðmundur Gísla- son, Reykjum. Frummælandi var Ingimar Jónsson, skólastjóri, Reykjavík, sem gerði grein fyrir frv. skóla- málanefndar um gagnfræða- nám. Fundir hófust að jafnaði kl. 1,30—2 e. m. Var gefið fund- arhlé kl. 4—5 og stóðu fundir síðan fram til kl. 7—8 að kveldi. Á morgnana störfuðu nefndir. Öll þau mál, sem fundurinn átti að hafa til meðferðar voru tekin rækilega til umræðu og íhugunar og síðasta daginn sam- þykktar ýmsar tillögur ýmist til milliþinganefndar í skólamálum eða fræðslumálastjórnarinnar. Þessar voru helztar: Stofnun menntaskóla í sveit. „Fundur héraðs- og gagn- fræðaskólakennara beinir þeim tilmælum til milliþinganefndar í skólamálum, að hún geri það að tillögu sinni, að menntaskóli verði stofnaður í sveit hið fyrsta til þess að auðvelda æskumönn- um sveitanna menntaskóla- nám.“ Útgáfa skólabóka. „Fundurinn telur, að útgáfa kennslubóka eigi að vera frjáls og öllum heimil, þvi að þann veg verði bezt tryggð eðlileg þróun í vali og útgáfu námsbóka, enda verði fræðslumálastj. jafnan á verði um, að ekki skorti nauð- synlegar kennslubækur. Þá tel- ur fundurinn rétt, að nemendur kaupi og eigi þær bækur, er þeir nota við nám. Einnig lítur hann svo á, að æskilegast sé, að fræðslumálastjóri annist útveg- un erlendra kennslutækja og | kennslubóka.“ Um breytingar á frv. skóla- málanefndar. „Um 39 gr. frv. Setja mætti skýrari ákvæði um það, að ýmis störf kennara, önnur en bein kennslustörf, megi teljast með í starfsmánaðafjölda hans og geti því lengt hann. Um 44. gr. frv. Rétt væri að fella niður ákvæði um það, að kennarar dæmi um úrlausnir hver í sinni grein við landspróf. Skulu öll ákvæði um framkvæmd prófa vera í reglugerð. Um 56. gr. frv. Ákvæði vanta um það, að nemendur í heima- vistarskólum skuli greiða húsa- leigu. Geta mætti þess, að um fleiri tekjuöflunarleiðir en fram lög ríkis og sveita megi vera að ræða. Um 57. gr. Of lítið mun vera að ætla einn kennara á 25 nem- endur í skólum, sem hafa verk- námsdeildir. Mundi nær, að einn kennara þyrfti á 15—18 nem. eftir stærð skólanna. Þá hafa sumir fundarmenn sérstöðu að því leyti, að þeir telja skyldu- nám frá 13—15 ára aldurs ekki æskilegt að svo stöddu. Ef skyldunám verður lögboðið eftir 13 ára aldur, telja ýmsir æski- legt, að því þurfi ekki að vera , lokið við 15 ára aldur. Fundurinn samþykkir, að upp haf 55. gr. í frumvarpi til laga um gagnfræðanám orðist svo: „Ríkissjóður greiði allt að þrem fjórðu stofnkostnaðar við heima vistarskóla og heimangöngu- skóla.“ Starfstími héraðs- og gagn- fræðaskólanna. „Fundurinn telur, að héraðs- og gagnfræðaskólar skuli ekki starfa lengur en 7 y2 mánuð á ári hverju, til þess að æskumenn þeir, er skólann sækja, slitni ekki úr tengslum við lífrænt at- vinnulíf þjóðarinnar." Laun héraðs- og gagnfræða- skólakennara. „Fundurinn samþ. að kjósa þriggja manna nefnd, er vinni að því við fræðslumálastjóra, kennslumálaráðherra og Alþingi að laun héraðs- og gagnfræða- skólakennara og kennara Eiða- skóla verði greidd eins og ákveð- ið er í 16. og 29. gr. launalaga, þótt kennslutími skólans sé styttri en 9 mánuðir. Má benda á það, að skólarnir geta að öðr- um kosti búizt við því, að beztu kennararnir hverfi frá þessum skólum og leiti sér starfs ,þar sem kennslutími er lengri og árslaun því hærri. Þá felur fund- urinn nefndinni að beita sér fyr- ir því, að héraðsskólakennarar _ (Framhald á 5. slðu) fram. Þessi uppástunga hefir að líkindum fallið í gleymsku, en án efa eru fleiri sama sinnis. Spurningin er, hvort það er með þessum auðmýktarhug, sem við eigum að mæta friðnum og nágrönnum okkar. Þeirri spurn- ingu ættu menn að reyna að svara, áður en samfundirnir verða. En til þess að það svar verði rétt, er nauðsynlegt að rifja upp fyrir sér, hvað skeð hefir i raun og veru. Það er bezt að taka það fram strax, að forsendurnar fyrir öll- um þessum hugsanagangi eru alrangar. Norðmenn og Finnar hafa alls ekki barizt fyrir okkur, Ameríkumenn og Englendingar ekki heldur. Ytri nauðsyn og eigin hugsjónir hefðu mótað baráttu þeirra á sama hátt, þótt Svíþjóð hefði verið í fjalldölum Alpanna eða á ströndum Suður- Ameríku. Það hefði engu breytt öðru en því, að þeir flóttamenn, sem leitað hafa hælis< í Svíþjóð, hefðu hlotið þar aðrar viðtökur. Við getum dáð framgöngu hinna stríðandi vinaþjóða og verið þeim þakklát'ir, en ■ við getum ekki fallizt á, að þeir séu að berjast fyrir okkur. Það væri óafsakanleg eigingirni., Jafnvel Norðmenn — svo nær- tækasta dæmið sé tekið — skilja þetta til fulls við nánari at- hugun. Þeir vita líka jafnvel og við sjálfir, að stefna okkar í ut- anríkismálum var engin tjáning á tilfinningum sænskra manna, heldur aðeins rökrétt afleiðing af undangenginni afvopnun okkar. Það, sem við ætturn að blygðast okkar fyrir, er fyrst og fremst þessi afvopnun, sem rændi okkur hverjum möguleika til þess að framfylgja þeirri stjórnarstefnu, sem formælend- ur afvopnunarinnar töldu þó heppilegasta. Jafnvel þetta geta Norðmenn skilið til fulls, því að þeir höfðu sjálfir framkvæmt ennþá algerðari afvopnun. Þar var sparsemin og friðardýrkun- in að verki og varð þeim harla dýrt og setti okkur í ófyrirsjá- anlegan vanda. Þegar þýzki inn- rásarherinn í Noregi varðsetti öll vesturlandamæri okkar, fékk það okkur ærið verkefni að vinna. ' En það er eitt, sem grannar okkar í vestri skilja, að minnsta kosti seinna, þótt það reynist erfitt í hita stríðsins, og það er afstaða okkar til Finnlands. Þessir tveir grannar okkar hafa dregizt þannig inn í styrjöldina, að þeir standa þar hvor gegn öðrum. Svíþjóð var jafn ó- mögulegt að veita Finnlandi hjálp gegn Noregi, sem Norðr mönnum gegn Finnum. Við vor- um tengdir báðum þessum þjóð- um alltof sterkum sögutengsl- um og vináttuböndum til þess að veita annarri þjóðinni gegn hinni. Þegar tímar líða, munu Norðmenn skilja fullkomlega á- stæður Finna og komast að raun um, að til eru aðrir innrásar- menn en Þjóðverjar. Þá er jafn- vel að finna í hópi Banda- manna, og má þar sérstaklega nefna Rússa. Nei, það sem blandar geð ná- grannanna i okkar garð, er ekki fyrst og fremst það, að við skyldum ekki kasta okkur út í styrjöldina. Það er annað, og á þessum sjálfskönnunartímum er skynsamlegast að gera sér fulla grein fyrir því, hvað það er. Það kemur reyndar greinilega fram í þessum orðum, sem höfð eru eftir Norðmanni nýlega: „Ég hefi orðið fyrir miklum von- brigðum hér í Svíþjóð, og það skeði í sambandi við útlegðar- flutninga stúdentanna frá Oslo. Hér voru haldnar miklar kröfu- göngur í neitunarskyni, og við Norðmenn biðum i eftirvænt- ingu um það hvað mundi ske. En ekkert skeði“. Já, það er einmitt þetta. Það, sem særir nágranna okkar, er ekki það, hvað við gerum eða látum ógert, heldur fremur mis- ræmið milli orða okkar og gerða. Og það, sem tekur einna mest á taugar þeirra, er lofsöngur skrif- borðsmannanna um baráttu annarra og orðagjálfrið um þrautir og þjáningar annarra manna. Glöggt auga kemst held- ur ekki hjá því að veita því at- hygli, að meðal þeirra, sem hæst hvetja til baráttu fyrir frelsi og mannréttindum, eru þeir, sem mest unnu að því, að sú barátta yrði háð án vopna, eða með öðrum orðum á þann hátt, sem minstar líkur voru til árangurs. Þetta er gömul saga, en raun- ar alltaf ný. Gustav Sundbárg gerir þennan greinarmun á hinum norrænu þjóðum í bók sinni „Det svenska folklynnet": „Norðmenn halda, að allt vinn- ist bezt með stórum orðum, Danir með viturlegum orðum en Svíar með fögrum orðum“. Hvert sanngildi þessara orða er, að því er snertir frændþjóðir okkar, skal ósagt látið, en atburðir sið- ustu ára virðast hafa styrkt þennan dóm um Svía. Við vilj- um heyra fögur orð um þessa styrjöld, um afstöðu okkar til hennar, um afstöðu okkar til nágrannaþjóðanna, um samhug okkar með þeim og um okkar eigin hugsanir og tilfinningar. Þá, sem þannig tala, hyllum við. Fyrir styrjöldina var hug okkar lýst með fögrum orðum í frelsisræðum og ættjarðar- söngvum: „Men kommer nágon vára fjáll för nára och mulnar det i Svitiod, dá bröder, vid várt namn, vár gamla ára, vi hugga oss en vág i blod“. En því var gleymt, með hvaða vopnum við ættum að höggva þennan veg í blóði. Hættan á því, að fjandmenn nálguðust fjöll vor um of, var þá líka harla fjarlæg. Nú hefir löngunin eftir fögr- um orðum komið fram á ný með auknum styrk. Mönnum, sem þurftu að tala fyrir stórum á- heyrenþahóp á hátíðastundum, hlaut að verða það mikil freist- ing að bregða fyrir sig hinum fögru orðum um réttlæti, frelsi og mannúð. Og þegar lófatak og fagnaðarlæti áheyrendanna hafa ætlað að rífa þakiS af húsinu að ræðu lokinni, verð- um við að fyrirgefa gestum vor- um frá nágrannalöndunum, sem oft hafa skipað heiðurs- sess á þessum hátíðum, þótt þeir hafi tekið hin fögru orð í fullkominni alvöru. Af þeim, sem hafa haft „varðveizlu frelsisins á stefnuskrá sinni“, er vænzt einhverra aðgerða í samræmi við það. Gestirnir hafa átt bágt með að átta sig á því, að menn- irnir, sem bannfært höfðu af svo miklum hita órétt og of- beldi, skyldu ekki ganga með sama ákafa að framkvæmd dag- skipanarinnar. Það, sem gest- irnir hafa saknað, er áreiðan- leiki hinna fögru orða. Þeim hefir fundizt lítið koma til hjals- ins um „hjálpsemi og samúð, þegar hinn dýpri skilning brast með öllu“, og hinnar „lítt hugs- uðu og grunnstæðu meðaumk- unar“, svo ekki sé minnzt á pre- dikunartóninn, sem stundum kemur greinilega fram. Skýringarinnar á þessu-í fari sænsku þjóðarinnar mun fyrst og fremst vera að leita í hinni rótgrónu trú þjóðarinnar á sigri réttlætisins. Það er full- vissa, algerlega trúarlegs eðlis, af sama toga spunnin og trúin á réttlátan guð. Það er djúpstæð réttarmeðvitund og vissa um það, að hið góða muni ætíð sigra að lokum, og að sá, sem hefir á réttu að standa, muni líka ná rétti sínum. Það einkennilega er, að þessi bjartsýni virðist vaxa, þegar trúarlega grundvell- inum virðist kippt undan henni. Jafnframt því, sem menp tapa trúnni á algóðan guð, sem styrkir hinn veika og stjórnar öllu af vizku og kærleika, verða þeir sannfærðari um sigur rétt- lætisins í heiminum. Það sigr- ar ætíð að lokum. Þessi sannfæring hefir því miður ekki við rök að styðjast. Þegar norsku, dönsku og hol- lenzku þjóðirnar hefja frjálst líf á ný eftir styrjöldina, byggist það ekki á því, að þær hafi haft rétt til þess, heldur hinu, að barizt hefir verið til sigurs. Og ef baltnesku þjóðirnar, Eistlend- ingar, Litháar og Lettar, verða þurrkaðar út, byggist það ekki á því, að þær hafi minni rétt til að lifa sjálfstæðu og frjálsu lífi en aðrar þjóðir, heldur því, að þær verða að lúta sterkum grönnum. En bjargföst trú á sigur hins rétta málstaðar, er þó nauðsyn- leg hverri þjóð, sem á í styrj- öld. Finnskur ræðumaður mælti svo fyrir nokkru: „Þá fyrst, er við töpum trúnni á endanlegan sigur réttlætisins, verður mót- lætið óbærilegt". En sænsku þjóðinni hefir þessi fullvissa um sigur réttlætisins ekki orðið ein- göngu til góðs. Hún hefir breitt yfir þá óþægilegu staðreynd, að vald verður að mæta valdi. Og þessi bjartsýnistrú verður orsök þess, að þjóðin verður fyr- ir gagnrýni, af því tagi, sem (Framhald á 7. 8íÖu) /

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.