Tíminn - 20.07.1945, Blaðsíða 8

Tíminn - 20.07.1945, Blaðsíða 8
DAGSKRÁ er bezta íslenzka tímarltlð um þjóðfélagsmál. 8 REYKJAVÍK f»eir, sem vilja ki/nna sér þfóðfélagsmál, inn- lend og úilend, þurfa að lesa Dagskrá. 20. JÚLÍ 1945 54. blað AHfl¥ÁIX TÍJNANM ^ 15. júlí, sunnuda^ur: Trunian og Clmreliill koma til Berlínar. Þýzkaland: Undirbúningi a5 Potsdam ráðstefnunni er lokið Truman og Churchill komu til Berlínar og áttu með sér undir- búningsviðræður um ýms mál, sem rædd verða á ráðstefnunni. Belgía: Tilkynnt var, að Leo- pold konungur hafi endanlega neitað að afsala sér völduní, en kveðst hins vegar ekki muni koma heim strax. 16. júlí, mánudagur: Biðið eftir Staliii. / Þýzkaland: Ráðstefna „hinna þriggja stóru“ gat ekki hafizt í Mag, því að Stalin var ekki kom- inn til Berlínar. Churchill og Truman óku um borgina, hvor í sínu lagi, og skoðuðu hana. Þeir höfðu viðræðufund um morgun- inn. Grikkland: — Kommúnistar sendu ráðstefnunni í Potsdam skeyti og hótuðu borgarastyrj - öld, ef ekki yrði látið að kröfum þeirra. Þeit kvarta undan of- sóknum af her og lögreglu. Argentina: Sagt er að Hitler og Eva Braun séu komin til Ar- gentinu og hafi komizt þangað í þýzkum kafbáti. Stjórnarvöld þar í landi hafa mótmælt þess- um orðróm. 17. júlí, þriðjudagur: Ráðstefnan I Potsdam hefst. / Þýzkaland: Ráðstefnan í Pots- dam hófst. Koma Stalins til Berlínar var tilkynnt skömmu eftir hádegi. En kl. 17 komu þeir saman til viðræðna, Truman, Þegar Hermann Jwnasson neltaði . . . (Framhald af 1. sí3u) enn ekki verið neitt viðnám veitt, og margvísleg verzlunar- viðskipti, er íslendingar áttu •undir högg að sækja hjá Þjóð- verjum. Hann skilur einnig til hlítar afstöðu íslendinga til hernámsins, bseði almennings, sem fyrst áttaði sig ef til vill ekki fullkomlega á því, hversu brýna nauðsyn bar til þessara aðgerða, og hinna ábyrgu stjórnarvalda, er frá fyrstu tíð áttu ágæta ^amvinnu við her- stjórnina. Hann metur fullkomlega þá á- kvörðun íslendinga að biðja Bandaríkin um hervernd, svo að Bretar gætu flutt brott til ann- arra st^iða nokkuð af því liði, sem annars hefði verið nauðsyn- legt að hafa hér, og hann skil- ur, hversu mikið afhroð íslend- ingar hafa beðið bæði á mönn- um og skipum, við flutning ís- lenzkra matvæla til Bretlands. Loks furðar hann sig á því, að íslendingum skyldi ekki vera boðin þátttaka í ráðstefnunni í San Francisco. Öll er greinin skrifuð af ó- venjulegum skilningi á'afstöðu Lslendinga og bak’ við hana býr augljóslega sannur vinarhugur. Það hlýtur að vera öllum ís- lendingum hið mesta ánægju- efni, þegar slík grein birtist í „Times“, og það því fremur sem það er eitt af stórblöðum þeirr- ar þjóðar, sem íslendingar hafa haft hvað mest og bezt skipti við og kjósa að eiga sem mest skipti við í framtíðinni — þjóð- ar, sem í tveimur heimsstyrjöld- um hefir barizt til sigurs fyrir málstað ' frelsis og mannrétt- inda. íslendingar eru hreyknir af því að hafa þegar frá önd- ' verðu lagt Bandamönnum það lið, sem- þeir megnuðu, og þeir munu með ánægju taka sinn litla þátt í viðreisnarstarfinu. Þeir trúa því/ að frá engilsax- nesku stórþjóðunum megi smá- þjóðirnar ávallt vænta sér verndar og réttlætis, íslending- ar sem aðrir, svo miklujiafa þær, bæði^Bretar og Banda- ríkjamenn, nú fórnað til þess að bæla niður ofbeldið og yfir- ganginn í heiminum. Churchill og Stalin. Truman er forseti ráðstefnunnar, samkv. ósk þeirra Churchills og Stal- ins. Fundurinn stóð í eina og hálfa, klukkustund og fóru fram undirbúningsviðræður. Truman tilkynnti það í Berlín, að ekki myndi verða neitt af ferð sinni um Evrópulöndin að ráðstefn- unni lokinni. Þriggja daga umferðarbann var sett á í Hamborg, vegna ó- eirða er þar höfðu orðið. Spánn: Franco hélt ræðu og kvaðst vera fylgjandi konungs- stjórn á Spáni, en sagði að hún yrði að vera styrk og snör í snúningum. Hann réðist á kom- múnista og sagði það þjóðar- nauðsyn, að Spánverjar berðust gegn þeim, sem einn maður. Kyrrahafsstyrjöldin: Brezkar og amerískar flotadeildir gerðu heiftarlega árás á Jaijan, eina þá mestu, sem gerð hcfir verið. Var árásin gerð 60' mílur frá Tokio og olli hún miklum skemmdum og truflunum á landi. Belgía: Þingið kom saman til að ræða afstöðu konungsins. Var samþykkt, að Leopold mætti ekki taka aftur við völdum, nema þingið leyfði það. 18. júlí miðvikudagur: Ky r r ahaf ssty r j öldln rædd. Þýzkaland: Litlar fregnir/ber- ast af ráðstefnunni í Potsdam. Þremenningarnir komu saman á fund og telja fréttaritarar, að þeir hafi rætt um Kyrrahafs- styrjöldina. Kyrrahafsstyrjöldin: Brezk og amerísk herskip halda uppi stöðugri skothríð á Japan og flugherinn lætur sprengjum rigna,yfir eyjarnar. Japanir geta litla vörn veitt. Tilkynnt er að manntjón Japana nemi nú hálfri annarri-miljón. Stefan Islandi iagnad Stefan Islandi hélt fyrstu söngskemmtun sína í Gamla Bíó á þriðjudagskvöldið. Var hvert sæti í húsinu skipað, og lófatak og 'fagnaðarlæti gest- anna, að Gamla Bíó mun vart hafa boðizt annað eins. Svo mikil var hrifning Reykvíkinga, er þeir loks áttu kost á að hlusta á söng þessa ástmögs þjóðarinn- ar eftir hina löngu og ströngu fjarvist hans. Fólki fannst hann eins og heimtur úr helju, kom- inn þarna upp á sviðið eftir sjö ár. Blómvendirnir hlóðust að honum, og hann varð að syngja mörg aukalög. Viðfangsefni hans voru af ýmsum toga, bæði íslenzk c% er- lend, þar á meðal óperulög. Undirleik annaðist Fritz Weiss- happel. Að söngnum loknum ávarpaði Jónas Þorbergsson útvarpsstjóri söngvarann og bauð hann vel- kominn heim á Frón og bað hann hér að dvelja svo lengi sem hann fýsti. Undir þá ósk munu allir íslendingar taka af alhug. Kaupfélag Austur-Skaft- fellinga 25 ára Vegleg hátíðahöld Sunnudaginn 8. júlí minntist Kaupfélag Austur-Skaftfellinga aldarfjórðungsafmælis síns með veglegum hátíðahöldum, að Höfn í Hornafirði. Var ræðustóll reistur á slegnum túnbala við verzlunarhúsin og skreytt inngönguhlið. íslenzki fáninn var dreginn að hún víða á hátíðarsvæðinu, en samvinnufáninn blakti á hárri stöng í fullu litskrúði. G A* M L A B í Ó ♦♦ ❖ N Ý J A B í Ó Hið n/^a verzlunarhús Kaupfélags Austur-Skaftfellinga í Hornafirði. í; Verzlunar- og geymsluhús Kaupfélags Austur-Skaftfellinga í Hornafirði. Stjórnmálaiundír í Ncskaupstað Stjórnmálafundur, sem stjórn- arliðar höfðu boðað til í Nes- kaupstað í Norðfirði, var hald- inn á þriðjudaginn var. Sóttu hann 46 manns, þegar fjöl- mennast var. Mikil og hörð andstaða gegn stjórninni kom fram á fundi þessum, og höfðu þeir Ingvar Pálmason alþingismaður og Ní^els Ingvarsson útgerðarmaður orð fyrir stjórnarandstæðingum. Snerust vopnin mjög í höndum stjórnarliða'og breyttist fyrir- huguð sókn þeirra fljótt í vörn, sem ekki tókst heldur fimlega. Lauk fundinum með algerðum málefnaósigri stjórnarliða, er una sínum hlut hið versta, sem vonlaust er, eftir slíkar ó- farir. Hátíðin hófst kl. 2.30 með því, að formaður félagsins, Þorleifur Jónsson, fyrrv. alþm., Hólum, sté í stólinn og flutti ávarp og bauð gesti velkomna. Bjarni Guðmundsson, kaupfélagsstj., rakti því næst allýtarlega starfs- sögu félagsins, frá því, er það hóf verzlun sína, 1. júní 1920. Steinþór Þórðarson, bóndi, Hala, mælti fyrir minni íslands. Því næst varð hlé á ræðuhöldum meðan kaffi var veitt. Að því loknu flutti Gunnar Snjólfsson, bókari, frumort afmæliskvæði til félagsins eftir Stefán Sigurðs- son, Höfn, sem var fyrsti utan- búðarmaður þess. Hann er nú há aldraður og nálega blindur. Þá mælti sr. Eirikur Helgason, pró- fastur í Bjarnarnesi, fyrir minni Austur-Skaftafellssýslu, Sigurð- ur Jónsson, bóndi Skaftafelli, fyrir minni bænda, Kristján Benediktsson , bóndi Einholti, fyrir minni kvenna og Vilhjálm- ur Guðmundsson, bóndi Gerði, fyrir minni samv.stefnunnar. Karlakór Hornafjarðar, undir stjórn Bj. Bjarnasona,' Brekku- bæ, skemmti með söng milli ræða og auk þess söng hann síðar um kvöldið allmörg lög við fögnuð samkomugesta. Að ræðum loknum, eða um kl. 8,30 um kvöldið, var sezt að mat- borði. Var borðhaldið í stóru tjaldi og fundarsal félagsins. Varð að tvísetja, ^þar sem sam- komugestir voru nær 400 úr öll- um sveitum á félagssvæðinu. Þrjár blómarósir úr hverri deild gengu um beina. Að lokum var dans stíginn unz skammt var eftir nætur. Þess má géta, að héraðsbúum hafði aldrei gefizt köstur á að sjá samvinnukvikmyridina. Var því leitgð hófanna að fá hana sýnda á hátíðinni, en hún var þá á f erð og flugi annars staðar um lantíið, svo að menn urðu af henni í þetta sinn. í nefnd, sem annaðist undir búning hátíðarinnar voru Gunn- ar Snjólfsson, bókari félagsins, Óskar Guðnason, deildarstjóri og Stefán Jónssop, Hlíð, endur- skoðandi. Þeir önnuðust tilföng öll og framreizlu. Hösktíldur Björnsson, listmálari, Höfn, skreytti smekklega ræðustólinn og hátíðarsvæðið. Stefán Jóns- son 'á Hlíð stjórnaði hátíðar- haldinu með rögg og skörungs- skap. Hægviðri var um daginn og á- kjósanlegt til útisamkomu, enda fór hátíðarhaldið* hið bezta fram og voru hátíðargestir hinir ánægðustu. Tveír fimmmenaing- anna úr Esju frjálsir Af íslendingunum fimm, sem teknir voru úr „Esju“, þegar hún var áð leggja af stað frá Kaup- mannahöfn, hafa nú tveir verið látnir lausir. Voru það þeir Sig- urður Kristjánsson verkfræðing- um, sem tekinn var í misgripum fyrir annan, og Leifur Jóhann esson. Munu þeir hyggja til heimferðar sem fyrst. Hinir þrír eru enn i halái hjá brezku herstj órninni í Höfn, en hún lofaði að hraða rannsókn í mál um þeirra, en annars hefir ekk- ert af þeim frétzt. Vonandi verður þess ekki langt að bíða, að hernaðaryfirvöldin sannfærist um fullkomið • sak- leysi þeirra og láti þá einnig lausa. Sýaingar Jóhanns og Vals Jóhann Pétursson, risinn úr Svarfaðardal, og töframaðurinn Valur Norðdahl, héldu sameig inlegar sýningar I Gamla Bíó í fyrrakvöld og gærkvöld, við húsfylli í bæði skiptin. Þeir end- urtaka sýninguna í kvöld og ef til vill oftar. Sýningar, slíkar sem þessar, eru nýlunda fyrir fs- lendinga, enda vekja þeir félag- ar óskipta undrun og aðdáun á- horfenda fyrir listir sínar og töfrabrögð. ' Maður drukknar í Reyk javíkurhöf n í gærmorgun vildi það sorg lega slys til,#að ölvaður maður drukknaði í höfninni í Reykja vík.' Fór hann út í lítinn bát ey lá víð Ægisgarð, en festi annan fótinn í bátskeðju og féll í sjó- inn. Hann hét Jóhann Kristján Jóhannsson, til heimilis að Brunnastöðum á Vatnsleysu- strönd. Hann var um tvítugt. OFSÓTTUR (The Fallen Sparrow) Maureen O’Hara, Jolin Garfield. Sýnd kl. 9. Börn innan 14 ára fá ekki aðg. \ Cowboy-mynd með JOHN WAYNE. Ræningjar á þjpð- braut með LLOYD NOLAN. Báðar þessár myndir sýndar Sýnd kl. 5. Börn innan 12 ára fá ekki aðg. VETRAR. Æ VINTÝRI (,,Wintertime“) Sýnd kl. 9. Kátir voru karlar (Pardon My Sarong) Ein skemmtilegasta myndin, sem til er með ABBOTT og COSTELLO. Sýnd kl. 5 og. 7. Þe^r gerðn garðinn * frægan OG 'v Dáðir voru drýgðar eru ágætar skemmtibækur og hafa auk þess þann kost að vera ódýrar. TJABNABBÍÓ * DRAfJMADÍS (Lady in the Dark) Skrautmynd í eðlilegum litum. Ginger Borgers, Bay Milland, ; Warner Baxter, Jon Hall. Sýnd kl. 5, 7 og 9. STEFAN ISLANQI: Söngskemmtanir í Gainla BIó I kvöld og mánud. 23. þ. mánaðai* Vid hljódlæríð: Fritz Weísshappel Pantaðir aðgöngumiðar sækist í Bókaverzlun Sigf. Eymunds- sonar fyrir kl. 1, dagana sem sungið er. V ATH.: Allir aðgöngumiðar hafa þegar verið pantaðir á báð- ar söngskemmtanirnar. f Hverjjir gæta réttar íslendinga? (Framhald af 1. síðu) eða fylgjast með því á annan hátt, hvernig hún er fram- kvæmd. Það er óviðunandi, ef íslenzka ríkisstj órnin gerir ekki þessa kröfu. Ef henni er'fylgt eftir með festu, verður að telja líklegt, ef ekki víst, að það fáist framgengt. íslenzka þjóðin vill ekki þQla það að þegnaf hennar séu teknir fastir, jafnvel úr ís- lenzku skipi, þeir hafðir í haldi án þess að þjóðin viti hvar þeir eru geymdir og mál þeirra rann- sakað eðfc túlkað af aðiljum, sem meir en vafasamt er að geri það af velvild, og án þess að fylgzt sé með því.af íslands hálfu hvernig framkvæmt er. Við get- um sett okkur i spor þeirra sjálfra. Okkur mundi í þeirra sporum þykja þetta köld um- hyggja og heldur lítilmótlegt af hálfu stjórnar hins sjálfstæða íslenzka ríkis. Ríkisstjórnina skortir vissulega ekki utanríkis- þjónustu til þess að láta vinna þetta verk. Ríkisstjórnin hefir þrjá sendiherrra sem að sjálf- sögðu eru að ýmsu leyti hæfir menn og sumir þeirra mjög h^f- ir. Þeir hafa ekki allir svo mikið að gera í svip, að þeir geti ekki farið til Danmerkur þessara er- inda, ef þörf telst. En hvað sem því líður hefir íslenzka ríkið nógum hæfum mönnum á að skipa, sem ekki munu gegna öðrum störfum nauðsynlegri í bráð en að vera til staðar og fylgjast með því, hvernig er farið með mál þeirra fslendinga, sem kunna að vera bornir sökum erlendis. Það eru sendar utan nefndir í sérstök- um erindum, þó að við höfum þar hæfa fulltrúa til þess að sinna störfum, sem vissulega eru þýðingarminni heldur en þetta. Þjóðin öll verður því hiklaust og þegar í stað að gera þá kröfu til íslenzku ríkisstjórnarinnar, að hún geri allt það, sem í henn- ar valdi stendur til þess að kom.a því til vegar, að fulltrúi af okkar hálfu fái að fylgjast með málum þeirra landa okkar, sem eru bornir sökum og eru og kunna að verða undir rannsókn. Þessa er einatt nauðsyn og þó fremur nú en nokkru sinni á þeim tímum umróts-og ábyrgðarleysis sem víða ríkja og enn virðist langt frá því að verða lokið. — Við höfum sýnt brezku þjóðinni þá velvild í þessari styrjöld og hún mætti sanngjörnum óskum íslendinga af þeim skilningi, að þetta ætti að vera auðsótt, að því er til kasta Breta kemur. Það, sem þegar hefir gerzt — víg að minnsta kosti eins íslend- ings, handtaka fimmmenning- anna og fleira — er næg á- stæða til þess, að þetta verði ekki látið dragast deginum lengur. — • / Furðnlegt blaöaviðtal. (Framhald af 1. síðu) svívirðilegastar, séu bornar á þann mann, sem hæst ber í þeirra flokki. Og hér í rauninni meira i veði. Hér á landi hefir ríkt sannur bróðurhugur í garð hinna Norð- urlandaþjóðanna. Við höfum beðið þess með óþreyju að geta á ný tekið upp þráðinn, sem varð niður að falla eftir innrás Þjóð- verja á Norðurlönd. En í um- mælum slíkum sem þeim, sem „Politiken" he^ir haft um Gunn- ar Gunnarsson í þessu viðtali við Skúla Skúlason, er verið að blása að kolum sundfungar og mis- skilnings, sem getur orðið hin-. um norræna samhug hættuleg- ur. Það er og vert að geta þess, að einmitt þetta sama blað, „Politiken", hefir upp á síðkast- ið birt fleiri ummæli um íslend- Inga og islenzk málefni, er koma mjög undarlega fyrir sjónir. Hjónaband. Nýlega voru gefin saman 1 hjóna- band ungfrú Hulda Pétursdóttir og Svavar^ Jóhannsson, sýsluskrifarí á, Patreksfiröi. I

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.