Tíminn - 10.08.1945, Blaðsíða 3

Tíminn - 10.08.1945, Blaðsíða 3
59. blað TÍMIiyiV, föstndagmn 10. ágúst 1945 3 Bjartsýni og trú á land og þjóð Ræða forseta íslands við 1. ágúst Um leið og ég tek nú við starfi sem þjóðkjörinn forseti lýðveld- isins um næstu fjögur ár, læt ég í ljós innilegt þakklæti mitt fyrir það traust, sem mér hefir verið sýnt með því að fela mér þessa vandasömu virðingarstöðu. Það mun verða mér styrkur í starf- inu. nú, og ég hygg yfirgnæfandi stjórnar og þings þá, eru það meiri hluti íslenzku þjóðarinnar hafi verið þeirrar skoðunar þá, sé það enn í dag og muni verða í framtíðinni.. Þetta samrýmist að öllu fyrri atburðum í þjóðlífi okkar, og atburðum, sem orðið hafa síðan. Ég kenni enn meira þakklæt- is í hjarta mínu fyrir eining- una, sem varð um þetta fyrsta þjóðkjör forseta íslenzka lýð- veldisins. Ekki sjálfs mín vegna, heldur vegna íslenzku þjóðar- innar. Það mun verða til að treysta hið unga lýðveldi, bæði inn á við og út á við. Ég marka það meðal annars á bréfum og skeytum, sem mér hafa borizt og öðrum ummælum, sem hníga ákveðið í þá átt. Nú kemur til kasta okkar allra íslendinga að auka ör- yggi nins íslenzka ríkis með hverjum þeim hætti, sem í okk- ar valdi stendur. Ætti hverjum íslendingi að verða það metn- aðarmál og ábyrgðar, að færa þær fórnir á því altari, sem með þarf, og láta ekki ágreining um mál, sem minna skipta, verða að þröskuldi á þeirri braut. Öryggi lýðveldisins verður ekki tryggt án vinsamlegrar samvinnu við aðrar þjóðir. Þess vegna á það við, að gera sér grein fyrir afstöðu íslands til annarra ríkja eins og hún er nú og mun sennilega verða í framtíðinni. Um leið og lýðveldið var stofn- að, 17. júní 1944, hlaut það við- urkenningu margra okkur vin- veittra ríkja. Meðal þeirra fremstu í þeim flokki voru stór- veldin Bandaríkin og Stóra Bret- land. En eins og kunnugt er, gáfu einmitt þessi tvö stórveldi þá yfirlýsingu, með Atlantshafs- sáttmálanum 1941, að hver þjóð æ,tti rétt á að ráða sjálf og ein stjórnarformi sínu. Hikuðu þau ekki við að standa við þá yfir- lýsingu gagnvart íslandi. Við hljótum að bera þakkarhug í brjósti fyrir þetta, bæði til þess- ara tveggja stórvelda og ann- arra velda, sem þá strax og síð- ar sýndu okkur sömu viðurkenn- ingu. Það er kennt í þjóðarrétti, að til þess að ríki geti tekið þátt í alþjóðastarfsemi sem fullgild- ur aðili, þurfi viðurkenningu annarra ríkja. Ennfremur, að ef eitt eða fleiri stórveldanna veiti slíka viðurkenningu, muni að jafnaði ekki standa á viður- kenningu annarra ríkja. En rétt- arríki munu gæta þess að veita því aðeins viðurkenninguna að talið sé í samræmi við alþjóða- lög. Með þessum viðurkenning- um, sem ég hefi minnst á, hef- ir þannig fengizt traustur grundvöllum fyrir islenzka .lýð- veldið að byggja á. Fyrir rúmum fjórum árum tók ég fyrst við ríkisstjórastarf- inu. Við það tækifæri lét ég falla orð um, að það væri nú, sem fyrr, eindreginn vilji og ósk íslendinga, að þótt við óskum fyrst og fremst að teljast 1 hópi frjálsra Norðurlandaþjóða, mættum við einnig í framtíð- inni eiga heima í hópi þeirra annarra lýðræðisþjóða, sem vilja byggja líf sitt, framtíð og gagn- kvæm viðskipti á grundvelli réttarins, með gagnkvæmri virðingu fyrir rétti hver ann- arrar og orðheldni. Þau ummæli voru í samræmi við stefnu í sambandi við afgreiðslu lýð- veldismálsins, gerði Alþingi þá ályktun vorið 1944, að það teldi „sjálfsagt, að íslenzka þjóðin kappkosti að halda hinum fornu frændsemi- og menningarbönd- um, er tengt hafa saman þjóðir Norðurlanda, enda er það vilji íslendinga, að eiga þátt í nor- rænni samvinnu að ófriði lokn- um“. Þessir yfirlýsing markar ákveðið óskir okkar um nána framtíðarsamvinnu við hinar Norðurlandaþjóðirnar. Eitt af táknum um einlægni íslenzku þjóðarinnar í þessu efni tel ég vera þá innilegu samfagnaðar- öldu, sem reis meðal alls al- mennings hér í landi er Dan- mörk og Noregur fengu aftur frelsi sitt. Og það, sem gerzt hefir síðan, sýnir að samvinnan er nú þegar hafin. Það hafa borizt fréttir, eftir að samband er aftur komið á milli landanna, þótt slitrótt sé enn, um óánægju, sem gert hafi vart við sig í Danmörku, vegna þess, að við frestuðum ekki lýð- veldisstofnuninni fram yfir ó- friðarlok. í stað þess að gera of mikið úr þessum fréttum, ætti okkur að vera ljúft að minnast þeirra hlýju kveðja frá konungi og stjórn Dana, sem borizt hafa eftir lýðveldisstofnunina, og annarra vinseihdarvotta af hálfu danskra manna. Því miður var samgönguteppa af völdum ófriðarins, er sá tími var kominn, að heimilt var að slíta fyrra sambandi, samkvæmt samningum þeim, sem þjóðirn- ar höfðu gert með sér af fúsum og frjálsum vilja. Vegna óviss- unnar taldi yfirgnæfandi meiri- hluti þjóðarinnar ekki rétt að láta þetta óviðráðanlega ástand valda frestun lýðveldisstofnun- arinnar. Tilfinningar manna eru stað- reynd engu siður en lögmætar athafnir. Okkur hefir verið ljóst, að hörmungar þær, er Danir hafa orðið að þola undanfarin ár, hafa hlotið að valda dönsku þjóðinni með hinn aldraða og hugprúða konung í broddi fylk- ingar miklum sársauka. Slíkt gerir tilfinningarnar enn næm- ari. Með fullum skilningi á þessu, ættum við að forðast að mæta óánægju með óánægju, þar sem hún kann að gera vart við sig. Nú standa fyrir dyrum samningar við Dani. Það er von okkar og ósk að þær fari fram í andrúmslofti vinsemdar og gagnkvæms skilnings. Að því viljum við vinna. Við trúum því að vinsamleg samvinna verði einnig í framtíðinni milli okk- ar og þessarar fyrri sambands- þjóðar okkar. Og það er okkur ánægjuefni að vita, að ýmsir merkir áhrifamenn meðal Dana bera einnig þessa trú í brjósti. Misseri áður en styrjöldin hófst, eða snemma á árinu 1939 neituðu íslendingar að verða við peim tilmælum Þjóðverja að þeir fengju flugstöðvar og aðr- ar stöðvar í sambandi við þær, hér á landi, þótt boðin væru á móti freistandi fríðindi. Þá höfðu margar aðrar þjóðir und- anfarið sýnt þeim undanláts- semi á ýmsan hátt. Mér er það minnisstætt, að erlendur maður samfagnaði mér þá vegna þjóð- ar minnar, að ísland, sem væri meðal minnstu ríkja Norðurálf- unnar, skyldi hafa tekið þessa ákveðnu afstöðu gegn ágengni Þjóðverja. Hvað sem annars má segja um þetta hafði ísland þannig Degar fyrir styrjöldina neitað samvinnu við Þjóðverja, sem afdrifarík hefði getað orðið er til styrjaldar kom. Enda er það haft eftir einum aðalráðamanna Þjóðverja þá, að þeir hefðu haft áform um að hernema ísland snemma í styrjöldinni, en hætt við þau áform vegna þess að hér voru engir flugvellir. Eins og kunnugt er, háðu lýð- ræðisþjóðirnar nær 6 ára blóð- uga baráttu í Norðurálfu, á At- lantshafi og víðar, unz einræð- isvald ráðamanna Þjóðverja var að velli lagt. Við höfðum að vísu lýst yfir ævarandi hlutleysi og höfðum ekki enn fallið frá þeirri yfirlýsingu. En öll ófrið- arárin áttum við slíkt samstarf við andstæðinga Þjóðverja í baráttu þeirra fyrir frelsi og lýðræði, að ekki gat leikið vafi á því hvoru megin væri samúð stjórnarvaldanna og alls þorra þjóðarinnar í þeirri baráttu. Ég vil í því efni minna á það, hve árekstrarlítil var sambúðin við brezka setuliðið, þótt það kæmi hingað gegn mótmælum okkar. Mér er ekki kunnugt að íslendingar gerðu tilraunir til þess að gera því erfitt fyrir, því síður um skemmdarverk. Er til tals kom, sumarið 1941, að Bandaríkin tækju að sér her- vernd íslands, gerðum við hik- laust samninga við þau um það. Sambúðin við bandaríska setu- liðið var góð frá byrjun og virt- ist g&nga æ betur fram á síð- ustu stundu. Þó mun hér hafa verið í landi óhemju fjölmennt herlið, er mest var, sam- anborið við fólksfjölda í land- inu. Við héjdum áfram þrot- laust að flytja bandamönnum björg í bú, þrátt fyrir miklar hættur og hlutfallslega óvenju- miklar mannfórnir og skips- tapa, sem við máttum illa við. Gat vopnlaus þjóð sýnt virkari samúð með bandamönnum? Ég minnist þessa ekki í því skyni, að ég álíti að okkur beri að miklast af því. En þar fyrir má það ekki gleympist. Við gleymum heldur ekki þakklæt- isskuld okkar við þessar vina- þjóðir, bæði fyrir það, hve annt ráðamenn þeirra létu sér' um að gera sambúðina sem bezta og fyrir margs konar aðra sam- vinnu og góða aðstoð þeirra. Sameinuðu þjóðirnar notuðu aðstöðu sína hér á landi, með beinu og þegjandi samþykki okkar, til hernaðaraðgerða, sem voru þeim væntanlega ekki lít- ils virði í baráttunni við öxul- veldin. Við vissum, að þær háðu baráttu sína fyrir hugsjónum, sem við metum öllu ofar. Af greindum ástæðum munum við hafa verið taldir samvinnuþjóð þeirra („associated nation“). |Því höfum við og verið boðnir og búnir til þátttöku í ýmiss konar alþjóðastarfsemi, er þess- ar þjóðir stofnuðu til og okkur var gefinn kostur á að taka þátt í. Því erum við og boðnir og búnir til áframhaldandi sam- vinnu við þessar þjóðir til þess að tryggja framtíðarfrið og ör- yggi í heiminum, á þann hátt, sem okkur er fært. Þótt hér sé um staðreyndir að ræða, sem hvorki eru nein nýj- ung né leyndarmál, tel ég rétt að rifja þær upp, vegna afstöðu okkar út á við. Sú afstaða hefir jafnan verið óbreytt öll styrj- aldarárin og óháð vopnaláni þjóðanna í styrjöldinni. Enda á hún rætur sínar í sams konar þjóðræknishugsunarhætti, sem ríkjir meðal lýðræðisiþjóðanna. Við trúum á farsæld þess stjórn- skipulags, að þjóðinni sé stjórn- að með hagsæld allrar þjóðar- heildarinnar fyrir augum af stjórn, sem þjóðin ræður sjálf, eins og Abraholm Lincoln orð- aði það fyrir tæpri öld. Um þessa stefnu vona ég að haldast megi eining meðal ís- lenzku þjóðarinnar hér eftir sem hingað til. Margir þeirra íslendinga, sem nýkomnir eru heim eftir margra ára fjarveru í ófriðar- eða her- námslöndum, hafa lýst undr- un og ánægju yfir breytingum, sem hér hafa orðið til bóta í fjarveru þeirra og yfir því, hve fólki líði almennt vel, saman- borið við líðan fólks í löndum þeim, sem þeir hafa dvalið í. Þeir hafa gleggra auga, sem getur gert samanburð, en bygg- ist á eigin reynslu. Ég efast ekki um að við ber- um öll þá ósk í brjósti, að þessi vellíðan megi haldast og að við eigum framundan miklu meiri breytingar til bóta. En'— enginn má gleyma því, að undanfarin ár hafa verið ó- venjuleg ár á margan hátt. Við erum nú að byrja millibilsá- stand, sem hlýtur að verða, milli óvenjulegra styrjaldartíma og öruggari friðartíma. Sem betur fer er mannlífið svo auðugt af tilbrigðum, að ekkert er til, sem mætti nefna „venjulega tíma.“ Ýmsir eru bölsýnir á það, sem framundan er, aðrir bjartsýnir. Hvort tveggja getur gengið úr hófi fram, frekar en sennileg rök liggja til. Ástin á föðurland- inu byggist mjög á trú á landi og þjóð. Þá trú getum við tæp- lega varðveitt nema nokkurrar bjartsýni gæti. Bjartsýni og trú á land og þjóð var uppistaðan hjá Jóni Sigurðssyni, samherj- um hans og þeim, sem tóku við af þeim í baráttunni unz full- komið sjálfstæði fékkst. Sama hefir verið uppistaðan hjá þeim þjóðum, sem hafa þolað hvers konar hörmungar styrjaldarinn- ar í baráttunni fyrir nýrri og betri heimi. En hér kemur meira til. Smátt og smátt er verið að lyfta blæju leyndarinnar af ýmsum átökum styrjaldarþjóðanna. Hugkvæmni þol og þrek, og síðast en ekki sízt staðgóð þekking hefir gert að veruleika margt, sem áður mundi hafa verið talið annað hvort hreinir draumórar eða framtíðardraumar, sem ættu mjög langt í land að rætast. Það mætti verða okkur lær- dómsríkt, hve miklu þessi stað- góða þekking hefir orkað um örlög þjóðanna í þessurm mikla hildai-leik, og á eftir að orka í því, sem framundan er. Það er lögð mikil áherzla á mikilvægi þekkingarinnar í áformum þeim, sem eru um að búa öllum þjóð- um betra líf en áður. Sú fræðilega þekking, sem öll vísindi vinna með, hlýtur að verða hér á landi sem annars staðar, sá grundvöllur sem öll þróun byggist á, jafnt á verk- legum sviðum sem öðrum. Nið- urstöður vísindanna vísa leið- irnar. En þörf er aukinnar þekk- ingar á mörgum sviðum, svo sá leiðarvísir komi að notum. „Það er eitthvað sérstakt við hvaðeina og ekkert verk er svo lítilfjörlegt eða auðvelt, að mað- ur verði ekki að læra það,“ sagði danskur bóndi við ungan ís- lending fyrir mörgum árum. ís- lendinginn langaði til að fylgj- ast meífc samstarfsmönnum sín- um við fremur óbrotna sveita- vinnu en gat það ekki, vegna þess að hann kunni ekki nógu vel til verksins. Ætli þetta geti ekki átt við um nokkuð marga íslendinga nú í dag? Aukin þekking á öllum sviðum ætti að vera markvisst takmark okkar. í því mun felast fjársjóðir, sem hvorki mölur né ryð fær grand- að. Sá mikli áhugi, sem nú virð- ist vera með íslendingum til þess að nota meiri fjárráð en við höfum áður haft, til að bæta f ramtíðarlífskj ör þj óðarinnar með því að taka í þjónustu sína tækni nútímans, kemur ekki að gagni, nema fyrst og fremst sé lögð áherzla á það, að afla sem beztrar þekkingar á því, hvernig á að nota þessa tækni og tækin, svo að þau skili réttum og mikl- um afköstum. Hér eigum við mikið enn óunnið verk fyrir \ ’ (Framhald á 5. síðu) lngihjörg Jóiisson; Kennarastóll í ísl. fræðum við Manitobaháskólann Grein þessi birtist upphaflega í Lögbergi í vor, og er Ingibjörg Jónsson, kona ritstjórans Einars Páls Jónssonar skálds, höfundur. Hér er fjallað um merkilegt mál, sem íslendingar austan hafs munu einnig láta sig varða. Oft hefi ég heyrt á það minnst á undanförnum árum, hve mik- ill skaði það væri þjóðflokki okkar að íslenzka væri ekki kennd við Manitoba-háskólann, að það væri raunar ekki sam- boðið virðingu íslendinga að ekki væri kennarastóll í islenzku og íslenzkum fræðum við þann háskóla, þar sem íslendingar eru fjölmenAastir. Ég hefi og heyrt ungt fólk af íslenzkum ættum, sem sótt hefþ: háskól- ann, harma það, að það átti ekki kost á því að nema íslenzku við háskólann; að það myndi miklu fremur hafa kosið að nema tungu feðra sinna heldur en t. d. þýzku eða frönsku, að þessi mál yrði þeim aldrei lif- andi mál, en íslenzkan hefði orðið þeim lifandi níál, vegna hins nána sambands þeirra við íslenzka þjóðarbrotið. Það hlýtur því að vera mörg- um fagnaðarefni „að fyrir eld- legan áhuga ýmsra vorra ágæt- ustu manna, er nú nokkur skrið ur kominn á þetta mikilvæga mál.“ (Sjá ritstjórnargrein í Lögbergi 24. maí, Hvert stefnir.“) Það hefir jafnan verið metn- aðarmál íslendinga að verða sem beztir borgarar landsins. Að vera góður borgari, felst ekki aðeins í því að kunna landsmál- ið, að vera löghlýðinn, að greiða atkvæði við kosningar, að vera efnalegar sjálfstæður. Allt þetta er. vitanlega nauðsynlegt, en sá verður mestur og beztur borg- arinn, sem gefur þjóð sinni dýr menningarverðmæti, skapar þessi verðmæti eða verndar þau frá glötun — verðmæti, er all- ir fá notið. Þannig teljum við ekki þann mann sérstaklega góðan borgara, sem bindur allan sinn áhuga við það að bæta sinn eigin hag og afla sjálfum sér þessa heims gæða, án tillits til allra annarra og alls annars. Okkur finnst að mælikvarðinn eigi fremur að vera sá skerfur, sem borgarinn leggur fram til andlegrar og líkamlegrar upp- byggingar og velferðar mannfé- lagsins í heild sinni. Þennan skilning höfum við íslendingar yfirleitt lagt í hugtakið, að vera góður borgari, og þess vegna fögnum við, þegar einhver úr’ okkar hópi veitir t. d. fegurð inn í líf mannfélagsins með list sinni, eykur á þekkingu mann- anna með uppgötvunum eða rannsóknum sínum, bætir sam- búð og kjör manna með réttsýni sinni og skipulagningarhæfi- leikum, hefur samfélagið á hærra menningarstig með sín- um kennimannshæfileikum, eða leggur krafta sína fram til þess að vernda frá glötun þau verð- mæti, sem eru mannfélaginu til góðs og til uppbyggingar. Frá þessu sjónarmiði séð, erum við íslendinga'r óneitanlega að leysa af hendi helga þegnskyldu ef við tökum saman höndum og stofnun kennarastól í íslenzku og íslenzkum fræðum við Mani- tobaháskólann. Það mun ekki einungis stuðla að verndun ís- lenzkunnar og íslenzkra menn- ingarverðmæta okkar á meðal, heldur gefum við samborgurum okkar tækifæri til þess að nema íslpnzkuna og fá aðgang að hin- um íslenzka menningarheimi. Hinn ungi enski námsmaður líkti íslenzkunámi sínu við það að ljúka upp þungri hurð að nýjum heimi og nýjum viðhorf- um. Er það ekki skylda okkar gagnvart þjóðerni okkar og gagnvart samborgurum okkar að gera auðveldara fyrir náms- fólk, sem langar til að skyggn- ast inn í hinn íslenzka heim, að ljúka upp þessari hurð? Sennil^ga er ekki þörf á því að útskýra fyrir íslenzkum les- endum menningargildi íslenzk- unnar. En þó vil ég leyfa mér að •’f’taka upp úr tímaritsritgerð eft- ir dr. Sigurð Nordal, ummæli hans um íslenzka tungu. „íslenzkan er klassiskt mál. Hún er í raun og veru eina forn- tungu Norðurálfunnar. Hún er auðug að beygingum, og setn- ingabygging hennar og orða- skipun, mótast mjög af því. Um þetta er hún svo ólík enskunni, að það er meiri tamning að nema hana samhliða ensku sem móðurmáli en t. d. að nema dönsku eða jafnvel þýzku og frönsku. íslenzkan er frumstæð og óblönduð, í henni sést ó- venjulega vel niður í rætur orð- myndanna og merkingabreyt- inga og hún er full af kjarn- miklum og frumlegum talshátt- um. Sem ritmál er hún þrótt- mikil, gagnorð og skýr í bezta lagi, éf vel er með hana farið. Frakkar halda því fram, að eng- in geti ritað frönsku til hlítar, haft rétta tilfinningu fyrir gildi (veleur) orðanna, nema hann kunni latínu, sem er stofnmál frönskunnar. Nú er engilsax- neska og norræna undirstaða enskrar tungu, og flestir beztu rithöfundar Englendinga og enskumælandi þjóða telja ensku svo bezt ritaða, að meir sé dreg- inn fram hlutur þessarar germ- önsku undirstöðu tökuorða. Ég hygg því, að það sé sjónarmið, sem vert er að minnast, hvort sá maður muni ekki að öðru

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.