Tíminn - 10.08.1945, Side 8
DAGSKRÁ er bezta íslenzka tímaritið um
♦
þjóðf élaffsmál.
8
•i m
^Ss
REYKJAVÍK
Þeir, sem vilja kynna sér þjjóðfélagsmál, Ínn■
lend oy útlend, þurfa að lesa DaysUrá.
10. ÁGÉST 1945
59. blað
7 juhnáijÍtíibans ^
1. ágúst, miðvikudagur:
Potsdamráðstefu-
unni slitið.
Þýzkaland: Síðasti fundur
ráðstefnunnar í Potsdam var
haldinn. Ráðstefnan hefir stað-
ið yfir í 12 daga og er því sú
lengsta, er hinir „þrír stóru“
hafa haldið.
Frakkland: Laval og kona
hans komu til Parísar. Mál hans
mun nú verða tekið til með-
ferðar af dómstólunum þar.
Belgía: Nokkrar breytingar
voru gerðar á stjórn landsins.
Sex nýir ráðherrar voru teknir
inn í stjórnina í staðinn fyrir
þá kaþólsku ráðherra, er sögðu
af sér, vegna afstöðunnar, sem
þingið tók til konungsins.
2. ágúst, fimmtudagur:
Yfirlýsmg Potsdam-
ráðstefmumar.
Þý/kaland: Greinargerð um
árangur Potsdamráðstefnunnar
var birt. Er hún alls 6000 orð
og sú lengsta, sem gefin hefir
verið-út eftir ráðstefnur Banda-
manna og Rússa.
England: Truman forseti kom
til Englands með flugvél frá
Þýzkalandi. Skoðaði hann þar
skemmdir af loftárásum í Pley-
mouth og snæddi hádegisverð
.með konungi. Skömmu seinna
lagði forsetinn á haf út á beiti-
skipinu Augusta.
3. ágúst, föstudagur:
Ráðherrar skipaðir
í Bretlandi.
England: Birt voru nöfn 19
ráðherra í hið nýja ráðuneyti
Attlee. Vekur það mikla athygli,
að sex þeirra hafa áður verið
námuverkamenn. Alexander
verður áfram flotamálaráð-
Tíu ísl. fangar
komnir heim
Einn þegar látinn laus
Síðastliðinn föstudag kl. 4 af-
hentu amerísk stjórnarvöld
sakadómara 10 íslendinga, sem
sakaðir eru um starfsemi i þágu
þýzku léýniþj ónustunnar í sam-
bandi við ísland. Menn þessir
hafa að undanförnu verið í haldi
í Bretlandi. Dómsmálaráðuneyt-
ið hefir falið sakadómara að
rannsaka mál þeirra.
Menn þessir eru: Guðbrandur
Hlíðar dýralæknir, Akureyri,
Einar Björn Sigvaldason hljóm-
sveitarstjóri, Reykjavík, Páll
Sigurðsson verkfræðingur, Rvík,
Lárus Sigurvin Þorsteinsson
sjómaður Reykjavík, Hjalti
Björnsson matsveinn, Norðfirði,
Magnús Guðbjörnsson, Reykja-
vík, Sverrir Matthíasson verzl-
unarmaður, Vestmannaeyjum,
Jens Björgvin Pálsson loftskeyta
maður af Arctik, Reykjavík,
Sigurður Normann Júlíussón
sjómaður ,Reykjavík, Ernst
Frezenius búfræðingur, var hér
áður búsettur og íslenzkur rík-
isborgari, en telur sig nú vera
orðinn þýzkan ríkisborgara aft-
ur. <
Þeir voru allir settir í gæzlu-
varðhald meðan rannsókn fer
fram. En samkvæmt upplýsing-
um, er blaðið rékk hjá skrif-
stofu sakadómara í gær, mun
allt gert sem hægt er til að hraða
rannsókninni og hafa staðið yf-
•ir stöðugar yfirheyrslur síðan
mennirnir voru afhentir íslenzk-
um stjórnarvöldum. Einn mann-
anna, Páll Sigurðsson verkfræð-
ingur, hefir verið látinn laus.
herra, Isaacs verðr verkamála-
ráðherra, Bevan yérður heil-
brigðismálaráðherra, frú Wilk-
inson verður menntamálaráð-
herra og er hún eini kvenráíðr
herrann í stjórninni, og önnur
konan, er verið hefir ráðherra
í Bretlandi.
4. ágúst, laugardagur:
Laval fyrir rétti.
Frakkland: Laval var leiddur
fram sem vitni í máli Pétains
í París. Komizt hefir upp um
vopnasmigl til fangahúss þess,
er Laval er hafður í haldi. Til-
ætlunin var að reyna að ná
honum úr fangelsinu.
\ ,
5. ágúst, sunnudagur:
Stórárás á Japan.
Kj'rrahafsstyrjöldin: Stórárás
var gerð á ýmsar borgir Japan.
Tóku um 600 risaflugvirki þátt
í árásunum og 120 flugvélar af
öðrum gerðum. Tjón af árásun-
um varð mikið.
Belgía: Tilkynnt, að nokkrir
belgiskir svikarar hafi verið
dæmdir til dauða eða ævilangr-
ar fangelsisvistar.
Bandaríkin: F4ugbáturinn
Hawaii Mars, sem er 70 smál.
að stærð, 'sökk á Chesapeake-
flóa, þegar verið var áð reyna
hann.
6. ágúst, mánudagur:
KJarnorkusprcngju
varpað á Japan.
Kyrrahafsstyrjöldin: Banda-
mönnum hefir nú loks tekizt að
framleiða kjarnorkusprengju og
var fyrstu sprengju þeirrar teg
undar varpað á japönsku bo^g-
ina Hiroshima, af bandarísku
flugvirki. Meira en helmingur
borgarinnar fór#í rúst við þessa
einu sprengingu. Ein sprengja
af þessari tegund hefir jafnmik-
ið sprengimágn inni að halda
og 20 þús. smálesti^ af dyna-
miti, eða 2000 tíu smál.TSprengj-
| ur. Þessar sprengjur eru svo
fyrirferðalitlar, að ein stór flug-
vél gæti flutt forða af þeim, er
næði til að leggja allar borgir
Japan í eyði og rúst. Banda-
menn setja Japönum nú tvo
kosti: uppgjöf eða gereyðing.
Mesta uppgötvun
vísindanna
Tckizt hcfir að beizla frumeindaorkuna
Það hefir nú verið opinber-
lega tilkynnt, að brezkum og
amerískum vísindamönnum hafi
loks tekizt að hagnýta orku
frumeindanna. Er þessi upp-
götvun talin hafa geysilega þýð-
ingu fyrir allt mannkynið og
geta jafnvel í framtíðinni komið
til með að breyta gersamlega
högum mannanna á jörðunni.
Svo stórfengleg er sú orka, er
hér hefir verið beizluð.
Síðan farið var að varpa
frumeindasprengjum á Japan
hafa heimsblöðin ekki rætt ann-
að meira. Vísindamenn segja,
að hagnýting þessarar orku sé
miklu þýðingarmeiri en upp-
götvun , raforkunnar. Til þessa
hafa allar rannsóknir og* til-
raunir með hagnýtingu þessarar
orku verið gerðar í eyðilegging-
arskyni, en þær tilraunir munu
samt koma að gagni, þegar far-
ið verður að .hagnýta orkuna til
blessunar fyrir mannkynið.
Margir þeir, er rætt hafa' um
aessa uppgötvun, geta þeirrar
lættu, sem stafar af meðferð
aessarar miklu orku og telja það
eitt mesta vandmál heimsins,
hvernig hún verður hagnýtt. í
amerísku blaði er því slegið
fram, að nú sé svo komið, að ef
sjóðir heimsins geti ekki lifað
saman í sátt og samlyndi, þá
geti þær alls ekki lifað. Öllum
ber saman um ,það, að það sé
framtíð mannkynsins höfuð-
nauðsyn, að það takist að hag-
nýta þessa miklu orku til annars
en sjálfseyðingar.
Til dæmis um þá byltingu, er
uppgötvun þessi hlýtur að hafa
Hjónaband.
Síðastliðinn laugardag voru geíin
saman í hjónaband af séra Jóni Thor-
arenserj ungfrú Guðmunda Kristjáns-
dóttir frá Arnarnúpi í Dýrafirði og
Óskar Magnússon bifreiðarstjóri frá
Seyðisfirði.
7. ágúst, þriðjudagur:
RáSstcfna UMRA.
England: Ráðstefna hjálpar-
stofnunar hinna sameinuðu
þjóða var sett í London. Bevin
utanríkismálaráðherra hélt þar
ræðu við setningu ráðstefnunn-
ar. Fulltrúunum voru sýndar
kvikmýndir af starfsemi stofn-
unarinnar í Grikklandl og í
Ítalíu.
Kjarnorkusprengjan: Heims
blöðin ræða mikið hina nýjú
uppfindingu og telja hana geta
haft stórkostlega, þýðingu til
ills eða góðs.
8. ágúst, miðvikudagur:
• Rássar í stríð við
Japani
Rússland: Það var opinber-
lega tilkynnt í Moskvu, að Rúss
ar myndu fara í strið við Jap
ani á miðnætti. Litlar fregnir
berast af hernaðaraðgerðum
Rússa, þó er í fréttum frá
Moskvu sagt frá því, að rúss-
neskur her hafi farið inn fyrir
landamæri Mansjúríu. í Kína
gætir nokkrar undrunar yfir því
að Rússar hafa nú sagt Japönum
stríð á hendur, þótt viðræðum
Kínverja og Rússa í Moskvu sé
ekki lokið. Víða er rætt um það
að styrjaldarþátttaka Rússa
standi sambandi við kjarn
orkusprengjuna og muni hafa
áukið áhuga þeirra fyrir styrj
aldarþátttöku við Japani.
löndum Bandamanna gætir hins
vegar þeirrar skoðunar, að betra
sé seint en aldrei.
Japan: Bandamenn vörpuðu
annarri kjarnorkusprengju á
japönsku borgina Nagasaki
Tjón mun hafa orðið svipað og
af völdum fyrri sprengjunnar.
í för með sér má geta þess, að
eitt frumeindaorkuver myndi
nægja allri Danmörku sem orku-
gjafi. Með þýí væri hægt að
starfrækja allar verksmiðjur í
landinu og knýja hreyfla þá, er
nú ganga fyrir öðru eldsneyti og
auk þess þyrfti landið ekki ann-
an aflgjafa til ljósa og hita.
Þessi uppgötvun kemur í veg
fyrir að allar kolanámur og olíu-
lindir heimsins tæmist. Ef orka
frumeindanna verður notuð rétt
í framtíðinni, þurfa mennirnir
lítið fyrir lífinu að hafa og geta
_að mestu helgað tíma sinn and-
legum hugleiðingum og vísind-
um.
Fastar flugferðir
(Framhald aj 1. síðu)
leiðinni Stokkhólmur — Reykja-
vík og Reykjavík — Stokkhólm-
ur. Flugfélag íslands mun, að
minnsta kosti fyrst um sinn,
hafa umboð fyrir SILA hér á
íslandi og öllum fyrirspurnum
um farþega- og farangurs-
flutning verður svarað í skrif-
stofu þess í Lækjargötu. .
SILA er það félag Svía, sem
sér um allt utanlandsflug, sem
Svíar taka þátt í eða halda uppi.
Það hefir hins vegar nána sam-
vinnu við annað sænskt flug-
félag, ABA, sem aðajlega sér
um innanlandsflug. Hefir það
félag í 20 ár haldið uppi flug-
ferSum um Norðurlönd, til meg-
inlandsins og einnig til Stóra-
Bretlands. SILA gat því byggt á
tiltölulega mikilli reynslu, þeg-
ar farið var að ræða um vænt-
anlegar flugferðir* yfir Atlants-
hafið að stríðinu loknu. Meðan
styrjöldin stóð urðu allmargar
flugvélar bandamanna að nauð-
lenda í Svíþjóð og voru þær
kyrrsettar þar. Nú hafa Amer-
íkumenn afhent Svíum nokkrar
af þessum sprengjuflugvélum
og hafaSvíar látið umbyggjaþær
þannig, að þær séu hæfar til
farþega- og farangursflutnings.
Þetta var að vísu erfitt verk, en
það hefir tekizt og urðu Svíar
fyrstir til þess að reyna þetta.
Hafa Amérikumenn og Englend-
ingar fylgzt með þessum breyt-
ingum af miklum áhuga. Að
vísu verða þessar flugvélar ekki
eins heppilegar til farþe^aflutn-
ings og þær vélar, sem aðeins
eru byggðar með farþegaflug
fyrir augum, en þær nægja
að minnsta kosti jí bili og
nú *eru hernaðarflugvélaverk-
smiðjur Svía að breyta fram-
leiðslu sinni í nýtt horf. Hinar
umsmíðuðu flugvélar eru ágætar
til langflugs. Þær kallast
„Felix“, og geta þær tekið 12
farþega.
Nokkru áður en styrjöldin
brauzt út, var ipn það rætt milli
fulltrúa Norðurlandaþjóðanna,
að Norðurlöndin tækju í sam-
einingu upp farþegaflug yfir
Atlantshafið. Voru til reglur
um þetta og skipulag slíks flugs
var langt á veg komið. Þessar
áætlanir eru alls ekki úr sög-
unni. Svíþjóð hefir verið þanri-
ið sett, að hún hefir getað hafið
Vextir lækka
Vextir af útlánum í Lands-
banka íslands og Útvegsbanka
íslands h.f. reiknast frá og með
1. ágúst 1945 eins og hér segir:
1. Fasteignaveðslán.
Vextir fjórir ,og hálfur af
hundraði, sé veðið ekki yfir
50% af fasteignamatsverði.
2. Sjálfskuldarábyrgðarlán:
Vextir fimm af hundraði.
Framlengingargjald hálfur af
hftndraði.
3. Handveðslán:
Vextir fjórir og hálfur af
hundraði, ef veðið fyrir veð
setum skuldabréfum er ekki
yfir fimmtíu prósent af fast-
eignamatsverði. Annars fimm
•af hundraði.
4. Lán sýslu- og bæjarfélaga:
Vextir fimm af hundraði.
Ekkert framlengingargjald.
5. Reikninga- og viðskiptalán:
Vextir fimm af hundraði.
Viðskiptagj. einn af hundr
aði af lánshæð eða hæstu
skuld.
6. Hlaupareikningsyf irdráttur:
Vextir sex af hundraði mán-
aðarlega eftir á.
7. Framleiðsluvíxlar:
Vextir fjórir af hundraði
Ekkert framlengingargjald
fyrstu sex mánuðina. Trygg-
ing fyrsti veðréttur í eftir-
töldum framleiðsluvörum,
allt að % gangsverðs eins og
metið er af framkvæmdar
stjórninni á hverjum tíma:
1. Fiskur (þó ekki meðan veð-
ið er í væntalegum afla.).
Síldarmjöl og síldarolía.
Saltsíld. #
Fiskbein og fiskimjöl.
Þorskalýsi.
Beitusíld,
7. Kjöt.
8. Gærur.
9. Ulli
Ennfremur kola- og salt-
birgðir framleiðslufyrir-
tækja.
8. Aðrir víxlar:
Vextir fimm af hundraði
Framlengingargjald hálfur af
hundraði p. s. eftir fyrstu
þrjá- mánuðina.
Lækkun þessi nemur yfirleitt
Vz%. Mest er lækkunin á fram-
leiðsluvíxlum, lVz%-
2.
3.
4.
5.
6.
ar að aðrar Norðurlandaþjóðir
og þá einnig ísland geti bráð
lega tekið þátt í samstarfi um
árangursríkar flugferðir frá
Norðurlöndum og til þeirra yfir
Atlantshafið."
Ráðstafanir eru nú gerðar til
þess að koma öllu í sem bezt
horf og þar á meðal flutningi á
farþegum, farangri, pósti, o.
frv. frá Reykjavík til Keflavíkur
og frá Keflavík til Reykjavíkur,
Þá er nú verið að stofnsetja
nýja skrifstofu fyrir skoðun
vegabréfa og farangurs. Þá
standa og yfir samningar við
bandarísk ýfirvöld, því að flutn
ingur borgaralegra farþega og
farangurs þeirra um hernaðar
^væði hlýtun að vera sérstakt
mál. En ég er sannfærður um
segir B. Björkman að lokum
að þetta kemst allt mjög fljótt
í lag. Hér er ekki mikil skrif
finnska, allt gengur fljótt og vel
og tiltöluléga lítill tími fer
ýmsar ráðstafanir er gera þarf
Jsessar flugferðir, en SILA von-. en það er mjög mikils virði
(jatnla Síc
BATAAN
Amerísk stórmynd.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýning kl. 9.
Ofurhugi
i
Spennandi mynd með
Harry Piel.
Sýnd kl. 5 og 7.
Wýja Síc
Þeir gerðu garðinn
frægan
OG
Dáðir
voru drýgðar
eru ágætar skemmtibækur og
TÓNAREGN
(„The Garig’s All Here“)
Afburða skemmtileg og skraut-
leg dans- og söngvamynd í
eðlilegum litum.
Aðalhlutverk:
Alice Fey,
Phil Baker,
Carmen Miranda
og jazzkóngurinn
Benny Goodman
og hljómsveit hans.
Sýning kl. 5, 7 og 9.
Jjanatkíc
HITLERS-KLÍKAN
• ’ (The Hitler Gang)
Amerísk mynd um sögu
nazistaflokksins.
hafa auk þess þann kost
vera ódýrar.
að
I \
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýning kl. 5, 7 og 9.
Hjartanlega þakka ég öllum þeim sem sýndu mér vinar-
hug á 70 ára afmœlinu með heimsóJcnum, Hlómum, skeytum
og stórgjöfum.
Herdís Jakobsdóttir.
1
d^tejdn *3á(cindi:
Söngskemmtun
í Gamla Bíó í kvöld kl. 7,15 c. h.
Við hljóðfærið: Fritz Weisshappel.
; Aðgöngumiðar seldir í Bókaverzlun S. Eymundssonar. Pantað-
ir aðgöngumiðar sækist fyrir kl. 1 í dag.
NY SONGSKRA
Ráðsmaður óskast
á báið á Lundi í Lundarcykjadal
frá 15. sept. þ. á., sökum veikindaforfalla.
Upplýsingar gefur Herluf Clausen, Lunfdi, Lundareykjadal.
Sími um Skarð eða bréflega í þóstbox 333, Reykjavík.
íSrlcnt yfirlit
(Framhald aj 2. síðu)
að nýta alla atvinnuvegi þjóð-
arinnar og sj á um réttláta skipt-
ingu afurðanna. Vonast stjórnin
til þess, að' þetta megi takast
með góðri samvinnu milli hinna
ólíku afla innan' vébanda at-
vinnulífsins.
í utanríkismálum mun stjórn-
in vilja gæta góðrar samvinnu
milli Svíþjóðar og allra annarra
l^nda. Svíar hafa ekki viljað
taka þátt í neinum samtökum
gegn öðrum ríkjum, en hafa jafn
an verið fúsir til þess að taka
þátt í alþjóðlegri samvinnu.
Þess vegna fagnar stjórnin
myndun nýrrar alþjóðastofn-
unar í stað Þjóðabandalagsins
til þess að vinna að varanlegum
friði og skipulegri samvinnu
þjóða á milli, í pólitískum, við-
skiþtalegum og félagslegum fefn-
um.
Sænska stjórnin vonast ein-
dregið til þess ,aö brátt verði
aftur upp tekið náið sam-
band Norðurlanda. Samvinna
þessi er eðlilegur þáttur í hinni
lalþjóðlegu samvinnu ,en verð-
|ur umfram allt að miða að þvi,
að endurreisa og efla samvinnu
og samhygð Norðurlanda.
í öllu starfi sínu vill sænska
stjórnin vera í sem beztu sam-
bandi og samvinnu við ríkis-
þingið. Enda þótt stjórnin sé öll
úr einum flokki, leyfir hún sér
að vænta þess, að aukin almenn
samvinna geti átt sér stað til
hagsbóta fyrir heildina.“
Hvað cr í vændnin ...?
(Framhald aj 1. síðu)
er svo mikið víst, að í herbúðum
stjórnarinnar eru veður öll vá-
lynd, að því er snertir bænda-
stéttina, og þvi fyllsta ástæða-
fyrir hana að standa saman
sem einn maður á verðinpm.
Hér er um stórmál að ræða,
þótt ekki verði það rætt meira
að sinni, meðal annars vegna
þess, að Búnaðarþing það, sem
nú situr mun að sjálfsögðu taka
til athugunar þessi bráðabirgða-
lög og þær leiðir, sem til greina
koma í verðlagsmálunum.
<
/