Tíminn - 25.09.1945, Blaðsíða 1
tú&mmx ÞÓRABINSSON.
FBAÍdSÓIQf ARFLOK3CURINN
Símar 2358 Oe 4373.
PBKN3SMDPJAN KDDA hX
RrrSTJÓBASKKœBTOWm:
EDDUHÚSI. Itodargðtu 9A.
Slmar 2353 Og 4373.
APGREIÐSLA, ENNHSERETA
OG AUGLÝSINGASKRIPSTOPA:
EDDUHÚSI, Ltodargötu 9A.
Slmi 2323.
29. érg.
Reykjavik, þrlðjudagiim 25. sept. 1945
T2. MafS
Staðreyndir, sem kaupstaðabúar þurfa að athuga:
Er landbúnaðurinn eini íslenzki atvinnuvegurinn
sem dýrtíðin hefir gert dsamkeppnisfæran?
AfmæLi Kristjáns X
Mynd. þessi var nýlega tekin af dönsku konungslijónunum í Marselleborg.
Á morgun á Kristján X. Danakonungur 75 ára afmæli. Mun
afmælisins verða minnzt með miklum hátíðahöldum víðsvegar
um Danmörku og víðar á Norðurlöndum.
Kristján X. hefri verið konungur Danmerkur í 33 ár. Hann
hefir jafnan notið mikilla vinsælda hjá þjóð sinni, enda verð-
skuldað það vel. Mestar hafa þó vinsældir hans orðið á hernáms-
árunum, enda var dönsku þjóðinni ekkert meiri styrkur en hin
djarfmannlega og virðulega framkoma konungs í skiptum við
yfirþjóðina. Með þeirri framkomu hefir Kristján X. unnið sér
ódauðlegt nafn í sögu Danmerkur og Norðurlanda.
Konungur íslands var Kristján X. í 32 ár. Skipti hans við ís-
lendinga unnu honum meiri vinsælda en nokkur annar kon-
ungur hefir notið hér á landi. Skilnaður íslands og Danmerkur
var íslenzku þjóðinni viðkvæmur fyrir þá sök, að hún varð að
slíta stjórnarfarsleg tengsli við konung, sem hafði reynzt henni
vel og hún virti mikils. Heillaskeyti konungsins til þjóðarinnar í
sambandi við lýðveldisstofunina í fyrra, vakti því óskiptan
fögnuð hennar, og vafasamt er, hvort konungurinn hefir með
nokkru betur sýnt, hvílíkur drengskaparmaður og mikilmenni
hann er.
íslenzka þjóðin mun óskipt færa Kristjáni X., drottningu hans,
fjölskyldu og dönsku þjóðinni innilegustu hamingjuóskir í til-
efni þessara tímamóta í ævi konungsins.
Gerfifulltrúarnir hafa enn
lækkað kjötverðið til bænda
Það verður ekki neaiia kr. 5.98 á kg. cða
85 aurnm lægra cn í fyrra.
Kjötverðið, sem bændur fá, verður 50 aurum lægra en skýrt
var frá í seinasta hlaöi. Stafar þetta af því, að „gerfifulltrú-
arnir“ hafa hækkað verðjöfnunárgjaldið í kr. 1.50 á kg. í stað
kr. 1.00, sem þeir ákváðu upphaflega. Verður þá niðurstaðan
sú, að bændur fá kr. 5.98 fyrir kjötkg., þar sem kr. 3.47 fara í
verzlunarkostnað, kr. 1.50 í verðjöfnunargjald, en útsöluverð-
ið er kr. 10.85.
Samkvæmt þessu verður verðið til bænda 85 aurum lægra
á kg. en það var í fyrra. Hins vegar áttu bændur nú að fá kr.
1.79 verðhækkun á kjötkg. samkv. sexmannanefndar álitinu.
Raunverulega er verðið til bænda því kr. 2.64 lægra á hvert
kjötkg. en það á að vera.
Vissulega eru bændumvhér gjafir gefnar af stjórnarflokk-
unum og er nú að sjá, hvort þeir eru ekki menn til að launa
þær einhverju.
Hvers vegiia fá Reykvíkingar ekki ódýra Korpúlfsstaðamjólk? —
Er það ósanngirni af bændum að vilja hafa svipuð Iaunakjör og
aðrar vinnandi stéttir?
í stjórnarblöðunum er nú sunginn rógsöngurinn um bændyr og búskap þeirra með öllu meiri
elju en nokkuru sinni fyrr. Tilefnið er hið nýja verðlag á landbúnaðarvörum og kröfur bænda
um sexmannanefndar-verðið. Blöðin halda því fram, að orsakir hvorutveggja séu að sumu leyti
lélegur og úreltur búskapur bænda og að sumu leyti heimtufrekja þéirra og ósanngirni. „Slóða-
skapur“ og „heimtufrekja“ bænda er svo útmáluð með því orðbragði, sem þessum blöðum er eigin-
legt. Tímanum þykir rétt, vegna þessara rógskriía, að snúa máli sínu til bæjarmanna, sem mun sér
staklega ætlaður þessi rógur, og skora á þá að gera sér grein fyrir staðreyndum áður en þeir láta
glepjast af honum. Til þess að þetta megi verða þeim auðveldara, skal hér bent á nokkur
þau atriði, sem meginmáli skipta.
Ep landbúnaðurinn
eiim ósanskeppnis-
fær?
í Þjóðviljanum 17. þ. m. er
hamrað á því, „að landbúnaður-
inn þurfi verðlag, sem er í ósam-
ræmi við annað verðlag í land-
inu“ og ennfremur, að „landbún
aðurinn sé ekki fær um að fram-
leiða á sambærilegum grund-
velli sem aðrir atvin,nuvegir.“
Hin stjórnarblöðin hafa og
hamrað á þessum fullyrðingum.
Hverjar eru svo staðreynd-
irnar i þessu máli:
Fyrir liggja góðar heimildir
um það, að húsgögn séu 4—5
sinnum ódýrari í Svíþjóð en hér
og í sumum tilfellum mun verð-
munurinn vera íslenzka hús-
gagnaiðnaðin(um enn meira i
óhag.
Fyrir liggja upplýsingar um'
það, að í sumum nágrannalönd-
unum sé smjörlíkisverðið þrisv-
ar sinnum lægra en hér, og hafa
þó smjörlíkisverksmiðjurnar hér
notið uppbóta úr ríkissjóði.
Fyrir liggja upplýsingar um
|það, að hefði nýja járnbrúin á
Ölfusá verið smíðuð af íslenzk-
um járnsmiðjum myndi hún
alltaf hafa orðið helmingi dýr-
ari. Saina gildir um smærri járn-
' brýr.
| Fyrir liggja upplýsingar um
I það, að skipaviðgerðir og skipa-
[ smíðar kosta erlendis aðeins
brot af því, sem þær kosta hér.
Fyrir liggja upplýsingar um
það, að prentunarkostnaður er-
lendis er aðeins brot af því, sem
hann er hér.
Þannig mætti lengi nefna
dæmin, sem sanna það, að ís-
lenski iðnaðurinn er sízt færari
um það en landbúnaðurinn að
keppa við erlenda framleiðslu.
Sjávarútvégurinn er hins vegar
færari um það, eins og er, en
þegar veruleg samkeppni byrjar
Sænsk samvinnufélög undirbúa
framkvæmdir fyrir 125 milj. kr.
Gnðlangiir Rósinkranz yfirkeiinari segir frá
samvinmistarfsemiimi á IVorðurlöndum.
Guðlaugur Rósinkranz yfirkennari er nýkominn heim úr Sví-
þjóðarför. Sat hann af íslands hálfu mót norrænna samvinnu-
manna sem haldið var í Stokkhólm í sumar. Tíminn hefir notað
tækifærið til að spyrja Guðlaug frétta af fundinum og samvinnu-
starfseminni á Norðurlöndum. Viðtalið við Guðlaug fer hér á
eftir.
— Hafa norrænir samvinnu-
menn nokkurntíma áður haldið
með sér svona mót?
— Nei, þetta er í fyrsta sinn
sem norrænir samvinnumenn'
halda með sér sameiginlegt mót.
Þarna voru mættir fulltrúar frá
samvinnusamböndum allra
Norðurlandanna, 18 frá Svíþjóð,
16 frá Finnlandi, 12 frá Dan-
mörku, 12 frá Noregi og ég einn
frá íslandi.
Mótið var haldið í húsakynn-
um sænska samvinnuskólans, er
sænska Sambandið rekur, og
stóð það yfir dagana 19.—25.
ágúst.
..— Hvað var rætt? )
— Um starfsemi samvinnu-
manna á styrjaldarárunum og
framtíðaráætlanir. Albin Jo-
hansson, forstjóri og formaður
sænska sambandsins setti mótið
með ræðu og ræddi meðal ann-
ars um samvinnufélögin og af-
Guðlaugur Rósinkranz
stöðu þeirra til ríkisvaldsins.
Hélt hann því eindregið fram,
að beztur árangur næðist með
starfi þeirra, þar sem þau gætu
starfað sem óháðust ríkisvald-
inu. Þetta hefir sýnt sig í Sví-
(Framhald á 8. síðu)
þar aftur, mun vissulega sækja
í svipað horf með hann og iðnað-
inn og landbúnaðinn.
Stafar það, að íslenzki iðnað-
urinn er ekki samkeppnisfær,
kannske af því að iðnaðarmenn
hér séu ekki eins starfhæfir og
stéttarbræður þeirra erlendis?
Áreiðanlega ekki. Stafar það, að
íslenzki útvegurinn verður bráð-
lega ekki samkeppnisfær, kann
ske af því, að íslenzkir sjómenn
séu ekki jafnokar erlendra stétt-
arbræðra sinna? Áreiðanlega
ekki. Orsakirnar til þess eru
aðrar, sem síðar verður komið
að.
Ksiiimi bændor ekki
að báa?
Með því að sýna fram á, að
svipað er ástatt með ósam
keppnishæfni iðnaðarins og
landbúnáðarins og raunar sjáv-
arútvegsins líka, þótt við eigum
fullkomlega samkeppnishæfa
iðnaðarmenn og sjómenn, er því
raunverulega nægilega svarað,
að háa verðlagið á landbúnaðar
vörunum stafi ekki af lélegum
búskap bænda. Þessu til frekari
rökstuðnings er þó rétt að minna
á afkomu stórbúskaparins, þar
sem hægt er að byggja á full-
komnustu ræktun og vélavinnu
Ríkisbúin á Vífilsstöðum og
Kleppi hafa verið rekin með
tapi, þótt þau fái hærra verð
fyrir mjólkurframleiðsluna en
bændur.
Skólabúið á Hvanneyri hefir
einnig verið rekið með tapi.
Mjólkurbúin, sem bæjarfélög-
in reka, hafa öll verið rekin með
stórfeldu tapi.
Ríkisbúið á Vífilsstöðum og
haldsmenn og kommmúnistar í
bæjarstjórn Rvíkur sameinuð
ust um að kaupa og ætluðu að
sanna með því, að þeir gætu
framleitt .ódýrari .mjólk en
bændur, hefir að mestu leyti
verið lagt niður, og sú litla
mjólkurframleiðsla sem þar er
fyrir mjólkurframleiðsluna en
leiðslan á öllu landinu.
Með þVí að bendia á þessi
dæmi, er vissulega engan veginn
verið að halda þvi fram, að bú
skapur bænda þurfi ekki að taka
ýmsum framförum frá því, sem
nú er. Engum er það ljósara en
Framsóknarmönnum, eins og
barátta þeirra fyrir 10 ára rækt
unaráætlunni, auknum véla-
kaupum og raforkulagafrv. sýnir
bezt. Þessi dæmi eru nefnd til
að sýna, að fullkomin ræktun og
tækni nægja ekki til að lækka
afurðaverðið, eins og málum er
nú að öðru leyti komið.
(Framhald á 8. síðu)
Óþolandi óvissa í
dýrtíðarmálunum
Er stjjérnin að undir-
biía geiigislsekkiín?
Stöðugt eykst óánægja
manna yfir því, að ríkis-
stjórnin skuli ekki birta fyr-
irætlanir sínar í dýrtíðar-
piálunum. í ýmsum tilfellum
veldur þessi seinadráttur
stórfelldu tjóni, t. d. í sam-
bandi við kjötsöluna. Neyt-
endur í bæjunum eru vanir
á þessum tíma að kaupa sér
kjöt til vetrarins, en nú draga
þeir þessi kjötkaup í þeirri
trú, að niðurgreiðslunum
verði haldið áfram eða ein-
hverjar slíkar ráðstafanir
gerðar. Veldur þetta stórerf-
iðleikum í sambandi við
slátrunina og getur líka orð-
ið til að draga stórlega úr
kjötsölunni.
Ef.nokkur stjórn'hefði verið
á þessum málum, þurfti stjórn-
in að vera búin að tilkynna
fyrirætlanir sínar í dýrtíðar-
málunum fyrir 15. þ. m. eða áð-
ur en niðurgreiðslunum var
hætt. Sést nú næsta glöggt, að
hyggilegt hefði verið fyrir
stjórnarflokkana að fylgja því
ráði Framsóknarflokksins að
kveðja þingið saman í seinasta
lagi 1. september.
Sagt er, að stjórnin hafi enn
ekki komið sér saman um nein-
ar aðgerðir í dýrtiðarmálunum.
Hjá kommúnistum og Sjálf-
stæðismönnum mun hæst uppi
að fella gengið. Kommúnistar
gerðu það í Finnlandi í sumar.
Fyrst hækkuðu þeir kaupið um
helming og létu þakka sér fyrir
„kjarabæturnar". Þegar verð-
lagið hafði einnig hækkað áð
sama skapi, var gengi marks-
ins lækkað um meira en helm-
ing. Þannig voru „kjarabæturn-
ar“ teknar aftur og meira til.
Kannske er það orðið „línan“
að fara þannig að? Enn er þetta
talið stranda á Alþýðuflokkn-
um, en Stefán hefir löngum
þótt „leikinn“ í því að fylgja í
slóð kommúnista í fjárhags-
málunum.
En hvað, sem verður gert, er
(Framhald á 8. síðu)
1 Nýtt fjárbrall Áka
og Þóroddar
Á síffastl. vori fengu kom-
múnistar því framgengt í bæj-
arstjórn Siglufjarffar, aff skipt
var um stjórn Rauffkuverk-
smiffjunnar. Svo langt gengu
þeir í því aff knýja fram stjórn-
arskiptin, aff lögmæti þeirra eru
dregin í efa, en úr því mun
skoriff af dómstólunum. Til-
gangur kommúnista meff þess-
um affförum er hins vegar orff-
inn ljós. Blaffið Einherji upplýs-
ir 10. þ. m., aff þessi vafasama
Rauffkustjórn hafi látiff verk-
smiffjuna taka á sig rúmlega
100 þús. kr. ábyrgff fyrir Falk-
urútgerff Áka Jakobssonar! Mun
það algert einsdæmi, aff opin-
berar verksmiffjur gangi þannig
í ábyrgff fyrir einstök útgerðar-
fyrirtæki, enda liggur áhættan,
sem því getur fylgt, í augum
uppi.
Þá upplýsir Alþýffublaffiff 20.
þ. m., aff Siglufjarffarbær hafi
nýiega tekiff ábyrgff á 60 þús. kr.
láni fyrir MiIIy-útgerff Þórodds
Guffmundssonar. Milly er gam-
alt og úrelt skip, sem Þóroddur
hefir keypt fyrir nokkru. Þór-
oddur hefir notaff sér kunnings-
skap viff ýmsa forráffamenn
Sigiufjarffarbæjar til aff koma
þessari ábyrgff fram.
Sýna þessi tvö dæmi mæta vel,
hvernig forsprakkar kommún-
ista nota sér valdaaðstöffu sína
sér til persónulegs ávinnings alls
staðar þar, sem þeir koma því
viff •