Tíminn - 25.09.1945, Page 5
72. hlatS
TÍMIM, liriðjuclagiim 25. scpt. 1945
RITSTJÓRI: SIGRÍÐUR INGIMARSDÓTTIR
, 1
Flóttadrengurinn
Saga eftir A. J. Cronin
(Þessi smásaga er rituð af hinum
kunna rithöfundi A. J. Cronin, sem
hefir m. a. skrifað sifguna „Borgar-
virki". Sagan er býggð á sönnum við-
burði).
Ég hefi þekkt Harry Adams
árum saman. Ég»verð að segja
ykkyr þegar í stað, að hann er
ósköp venjulegur má.Öur. Hann
er 45 ára gamall, dálítið sköllótt-
ur og gengur með gleraugu, sem
auka á spurnarsvipinn í bláum
.augum hans. Hann er bókhald-
ari hjá rafmagnsfyrirtæki einu
í New York. Hann er búsettur
í einni útborginni ásamt konu
sinni, tveim dætrum þeirra, 15
og 13 ára gömlum, og syni, 6 ára
að aldri.
Heimili hans er ekki íburðar-
mikið, en hann er stoltur af því,
einkum þó af garðinum sínum.
Þar vinnur hann öll laugardags-
kvöld og alla sunnudaga.
Sammý sonur hans er þá van-
ur að hjálpa honum. Hann strit-
ar með garðhrífu og hjólbörur
og fær nokkra skildinga laun
fyrir hverja klukkustund. Þeim
tókst jarðræktin svo vel, að
nærri lá, að Harry hlyti verð-
laun á garðyrkjusýningu síðast-
liðið haust. Það haust var ég
oft vanur að heimsækja Harry
á kvöldin. Ég hafði gaman af
að horfa á þá feðganp,, lágvaxna
granna manninn óg hnellna
drenghnokkann. Þeir stóðu
þarna ýmist hálfbognir eða upp-
réttir í kvöldrökkrinu, stoltir af
vinnu sinni. Sammý var nefni-
lega einlægur aðdáandi föður
síns, og Harry þótti heldur en
ekki vænt um snáðann. Annars
hefir Harry afar hversdagsleg
áhugamál, að garðræktinni und-
anskilinni. Honum geðjast jafn-
vel góðar ■ kvikmyndir, og stöku
sinnum bregður hann sér í bolta-
leik, eins og hér tíðkast. Á rign-
ingarkvöldum setzt hann mak-
indalega á góðan stól, les leyni-
lögreglusögur og reykir vindil,
eftir að börnin eru háttuð. Samt
sem áður tekst eiginkonunni oft-
ast að teyma hann með sér á
kirkjufundi, ^þegar henni þókn-
ast. —Ég býst nú við því, að illar
tungúr myndu nefna frú Adams
húsbóndann á heimilinu, en
þannig er þvi þó ekki varið,
þegar um mikilvæg mál er að
ræða. Hún er mesta dugnaðar-
kona, fríð sýnum, broshýr og
hárprúð. Hún hefir máske held-
ur mikinn áhuga á alls konar
félagsstörfum, en það ei^auðvelt
að fyrirgefa henni eftir að hafa
bragðað á bláberjakökunni henn
ar og séð snotru skólakjólana,
sem hún saumar dætrum sínum.
Ég minntist á félagsstörf. í
Elmville, útborginni, er Adams-
hjónin búa i, er troðfullt af alls
konar félögum og góðgerðastofn-
unum. Nú, þegar stríðið brauzt
út og neyðin hélt innreið sína í
,Evrópu, var stofnað félag í borg-
inni til styrktar nauðstöddum
börnum í þessum löndum. Frú
Adams var þar í broddi fylking-
ar. Hún stakk upp á því við
bónda sinn, að þau léðu einu
flóttabarninu húsaskjól um
tíma. Harry var lítið hrifinn í
fyrstu, en sá þó, að hér var um
mannúðarverk að ræða og féllst
að lokum á uppástunguna
Eftir miklar bréfaskriftir og
formsatriði fengu Adamshjón-
in loks tilkynningu um, að pólsk-
ur drengur hefði fallið þeirra
hlut. Ég fór með Harry til New
York, þegar hann sótti drenginn.
Páll hét hann. Ættarnafn hans
var svo kynlegt, að enginn lagði
það á minnið.
Ég gleymi aldrei þeim áhrif-
um, sem ég varð fyrir, þegar ég
' sá fyrst þetta níu ára gamla af-
sprengi skelfinga og hungurs-
neyðar. Hann sat á háum stóli,
náfölur með tággranna hand-
leggi og fótleggi. Höfuðið var
snoðklippt og beinabert, augun
stór og dökk, þrungin ótta en
þó hyldjúp og órannsakanleg.
Hann kunni ekki orð i ensku, og
þegar talað var til hans, sneri
hann höfðinu og horfði yfir höf-
uð þess, sem talaði. Þetta voru
fyrstu kynni mín af Páli litla
Pietrostanalski,' eða hvað hann
nú hét.
Nú jæja, við fórum með hann
heim. Systkinin fögnuðu okkur
í dyrunum og frú Adams kom
þjótandi út úr eldhúsinu Eldur
var á arni í dagstofunni, mat-
borðið var skrýtt blómum og
kertastjökum. Hlýja og steikar-
ilmur fyltu húsið. Þegar við sett-
umst að borði voru ‘állir svo sam-
hentir um að gera litla útlend-
ingnum glatt í geði, að mér
vöknaði um augu.
Það lifnaði dálítið yfir Páli,
meðan á máltíðinni stóð. Hann
át græðgislega og horfði stöðugt
á Sammý, sem sat á móti hon-
um. Hann virtist varla s^á telp-
urnar, sem gerðu gælur við hann
í sífellu. Hann starði án afláts
á Sammý. Loks bablaöi hann
einhver óskiljanleg orð skrækum
rómi og rétti Sammý höndina.
Þetta var broslegt og innilegt
atvik, sem brá birtu yfir þessa
samfundi.
Hér ættu að véra sögulok. En
sannleikurinn er sagna beztur.
Vikur liðu, og litli gesturinn hjá
Adamshj ónunum fór að sýna
hegðun, sem dró úr gleði- fyrsta
kvöldsins. Ég veit ekki, hvort
það hefir stafað af hörmungum
styr'j aldarinnar feða hvort það
var meðfædd veiklun, en auðséð
var, að Páll litli var varla eins
og fólk er flest. Haún var und
arlegt barn, kunni varla að hlýða
og hafði óþroskaða siðferðistil
finningu. Hann stakk á sig smá-
peningum, sem á vegi hans urðu.
Þegar hann var orðinn fær í
ensku, og það tók stuttan tíma,
fór að bera á skreytni í tali hans.
Hann sagði skólasystkinum sín
um ótal sögur af ímynduðum
afreksverkum sínum. Þessi
skreytni kom líka fram við fjöl
skylduna á annan og verri hátt.
Þegar Páll fékk ávítur, kom á
hann tómleikasvipur og hann
starði þá stórum augum út í blá
inn. Það var ómögulegt að sýna
honum hörku, því væri það gert
vaknaði hann nóttina^ftir æp
andi og hljóðandi og vakti alla
í húsinu. Hann sýndi lítinn
þakklætisvott, nema að einu
leyti. Hann sýndi Sammý afar
mikla hollustu. Hann elti hann
svo á röndum, að furðu gegndi.
Hann hafði orðið hrifinn af
drengnum við fyrstu sýn ,og gat
varla af honum séð.
Þannig voru heimilisástæð
urnar, þegar Bandaríkin fóru í
styrjöld. Harry vann mikið og
lengi dag hvern en hafði ekki
hærri laun en áður. Átti hann
því heldur erfitt uppdráttar um
veturinn, en komst þó af. Vorið
kom og færði þeim nýja von og
nýja gleði.
En þá var það dag nokkurn
í júnímánuði, að Páll lagðist i
rúmið með hálsbólgu, sem eng-
inn hugði alvarlegan sjúkdóm
Læknirinn var sóttur og eftir
furðu langa rannsókn, kom hann
niður stigann, alvarlegur á svip
Drengurinn hafði stolizt til þess
að baða sig í læk þar rétt hjá
en þar var öllum börnum bann-
að að koma. Nú hafði hann smit
ast af hættulegum sjúkdómi.
Smitunin stafaði frá sýklum, er
lifðu í lækjarvatninu.
í heila viku voru dapurlegar
ástæður á heimilinu. Allir lædd-
ust hljóðlega um húsið, en Páll,
sem var einangraður í svefnher
bergi sínu vegna smithættu
bylti sér í rúminu og muldraði
óskiljanlegt óráðsrugl. Læknir
inn kvað litla von um bata, því
að mótstöðuafl sjúklingsins var
ekki mikið. En öllum til undrun-
ar hjarnaði hann við. Eftir tíu
erfiða daga var hann úr hættu;
og bað þá án afláts um að fá
að sjá Sammý litla. Það var ó
mögulegt vegna smithættunnar
en börnin skrifuðu honum bréf
LAR.S HANSEN:
Fast þeir sóttLL sjóihn
FRAMHALD
Það varð löng þögn eftir þessa rökföstu skýringu Kristófers.
Þeir drúptu höfði, allir fjórir, og voru mjög hugsi.
Klukkan var ekki orðin nema þrjú, þegar mörg hundruð þát-
ar lögðu frá bryggjunni í Brettingsnesi. Það hrikti í árum og
keipum, hvítt löðrið freyddi um kinnungana og sterklegar hend-
ur læstust um hlummana.
Annríkið jókst eftir því, sem leið á morguninn. Allir stóðu á
hausnum í fiski og slori, eins og framast getur orðið í stórri ver-
stöð, þegar landburður er.
Þeir á „Noregi“ höfðu dregið sínar eigin lóðir úr sjó í dag, og
Guð hafði blessað þær með mokafla — á löngum köflum var fisk-
ur á hverjum öngli. Aflinn taldist þrettán hundruð, þegar þeir
seldu í Brettingsnesi. Verðið var þrjátíu krónur fyrir hundraðið.
Þeir fengu 452 krónur fyrir róðurinn, þegar búið var að gera
r.pp bæðí lifur og hrogn.
Eftir fjórða róðurinn gat'hann Kristófer sent „Norska ljóninu“
fimm hundruð krón^ir — hann símsendi þær meira að segja,
þessar krónur, svo að allir Trdínsöbúar fengju að vita, að Kristó-
fer Kalvaag hefði eignazt veiðarfæri, þótt hann knékrypi ekki
fyrir kaupmönnunum í TJromsö.
Svo skrapp Kristófer heim. 8
Fyrir utan brennivíns-samsöluna stóðu hópar manna, eins og
venja var til. Það var nístandi kuldi, og allmargir voru þegar
búnir að kræla í ákavítisflösku. Þeir höfðu þá ekki heldur sleg-
ið því á frest að hressa sig á innihaldinu, heldur flýtt sér nið-
ur á bryggjurnar, og nú voru þeir komnir aftur í hópinn, þegar
Kristófer Kalvaag snaraðist út úr búðinni. Hann staðnæmdist í
miðri þvögunni með flösku í hendinni,. reif úr henni tappann,
setti hana á munn sér og drakk niður í hana miðja I einum
teyg. Síðan litaðist hann um, hvessti augun á úfna og veður-
bitna íshafskarlana og hrópaði:
— Þið vitið sjálfsagt, að Kristófer Kalvaag" sendi kerlingunni
sinni fimm hundruð krónur á dögunum. Hann lætur ekki að sér
hæða, og hann er líka piltur, er ekki hímir allan veturinn bak
við kvenpils, eins og þið gerið. Hann á nóg veiðarfæri, og hann
kann líka að nota þau.
Hann skimaði aftur í kringum sig, eins og hann væri að gá,
hvort hér væri enginn, sem vildi láta hnefa semja sátt, áður
en hann tæmdi ákavítisflöskuna.
En enginn gaf sig fram, og þá tæmdi Kristófer flöskuná,
snaraðist síðan aftur inn í búðina og kom út með stóran pakka
að vörmu. spori. Daginn eftir gaf lögregluþjónn sig á tal við
Kristófer Kalvaag á götunni og varaði hann við því, að það
væri óleyfilegt að drekka vín úti á götu í allra augsýn — hann
yrði að gæta þess.
En Kristófer Kolumbus, sem vissi það af gamalli reynslu, að
hvorki einn né tveir né þrír lögregluþjónar áttu erindi I hend-
urnar á honum, sagði honum óðar að fara norður og niður. Síðan
slagaði hann leiðar sinnar niður Prestsbæturnar.
FJÓRÐI KAPÍTULI. x
„Noregur“ aflaði mjög vel. En svo gerðist atburður, sem vakti
bæði undrun og skelfingu allra bátverja. Þeir voru að draga
lóðirnar. Veðrið var ágætt. Lúlli og Nikki voru báðir niðri í bátn-
um við línudráttinn. Allt í einu sagði Lúlli, er var við borðstokk-
inn:
Tilkynning
þ
' frá Verðlagsnefnd landbúnaðarafurða,
um verðlagningu á kartöflum .
Heildsöluverð á kartöflum er ákveðið, sem hér segir, frá 20.
jessa mánaðar til 1. nóvember næstkomandi, hver 100 kg.:
i. I
Úrvalsflokkur ... kr. 138.00* 1
9
I. flokkur .í..... — 123.00
n. flokkur ....... — 108.00
f
Smásöluálagning 25%.
f ) •
Verðlagsnefndin
og sendu honum ávexti Tveim
dögum síðar var Harry að sækja
Sammý til morgunverðar. Þeg-
ar hann kom inn i herbergið, lá
við að hann hnigi niður af skelf-
ingu. Sammý lá sofandi í rúmi
sínu. Við hlið hans lá Páll litli.
Hann hafði lagt handlegginn
um háls Sammýs og andardrátt-
ur hans lék um andlit drengs-
ins. Páll hafði læðst inn án þess
að Sammiý vaknaði og skriðið
upp í rúmið, sæll af því að verá
í návist augasteinsins síns. Hann
leit upp, þegar Harry kom inn,
starði út í bláinn og brosti.
Sammý veiktist sama kvöldið
— og dó fjórum dögum síðar.
Ég var ekki heima, þegar þetta
kom fyrir. Ég skrifaði Harry,
þegar ég frétti látið, fátæklegt
bréf, fullt af innantómum hugg-
unarorðum. Ég vissi, hve mjög
þessi kyrláti maður hafði unnað
syni sínum. Þess vegna varð mér
það á, að spyrja hann að því í
bréfinu, hvort hann vildi nú ekki
losa sig við þenna leiijinlega
strákling, sem þannig hafði
'aunað honum umhyggjuna.
Ráðlagði ég honum að láta
drenginn á munaðarleysingj a-
hæli, reyna fyrir hvern mun að
losa sig við hann.
Ég kom heim frá Kaliforníu
um veturnætur. Lét ég það vera
mitt fyrsta verk að heimsækja
Harry Adams. Þegar ég beygði
inn í götuna og kom auga á hús-
ið brá mér i brún. Ég trúði vart
eigin augum. Þarna var Harry
í garðinum, fölari og grennri en
áður. Hann var að þekjá blóma-
beðin til þess að verja þau frost
um. Lítill drengur með garðhrífu
og hjólbörur var að hjálpá hon-
um til. Ég ■ hélt í fyrstu, að ég
sæi þar framliðna veru, en svo
sá ég að þetta var Páll. Ég gekk
'hægt i áttina til þeirra.
1 „Jæja,“ sagði ég, þegar við
höfðum heilsazt. „Hann er þá
hérna enn.“
1 „Já.“ Harry leit undan. „Hon-
um hefir farið mikið fram upp á
síðkastið. Hann er ólíkt þægari
og skýrari. Hann er stöðugt und-
ir læknishendi og ég býst við,
að þetta sé lyfjunum þeirra að
þakka..........“ ,
I Við þögðum lerigi báðir, og
horfðum á drenginn, sem var 1
óðaönn að tæma hjólbörurnar.
Þegar hann kom nærj roðnaði
hann undan augnaráði mínu,
sem var víst allt annað en vin-
gjarnlegt. Ég gat ekki orða
bundizt, þvi að mér gramdist
satt að segja að sjá drenginn
þarna ennþá, ö^ ég sagði snúð-
ugt: „Ég verð að segja, að hann
er heppinn, þessi Páll Pietrosta-
malski, eða hvern skollann hann
heitir.“
„Nafnið þarf ekki að valda
þér neinum vandræðum lengur.“
Harry lagði arminn um herðar
drengsins, leit á mig og brosti
feimnislega. „Nú heitir hann
Páll Adams. Við erum búin að
ættleiða hann.“
(Lauslega þýtt).
E.S. „LAGARFOSS"
fer héðan þriðjudaginn 25. þ. m. til Siglufjarðar. Það-
an fer skipið til Kaupmannahafnar og Gautaborgar
með viðkomu I Leith.
H.f. Eimskipafálag íslands
Vikapiltar
(Framhald af 3. síSuJ
samtök sín, og gátu, á þessu
stigi málsins, engu hótað.
Af þvi, sem nú hefir verið
sagt, er augljóst, að bændur eru
látnir fá mikið minna en þeim
ber eftir sexmannanefndar-
verði hagstofunnar. Það er
ljóst, að hjá meðalbúi er þetta
hvað mjólkina snertir kr. 1201,75
og hvað kjötið snertir — 2864,92
eða samtals kr. 4066,67
Þetta er mat ráðherans og
vikapilta hans annars vegar á
vinnu bænda, hins vegar á vinnu
verkamanna. Sexmannanefndin
gekk út frá, að báðir ættu að
hafa svipað kaup fyrir vinnu
sina, landbúnaðarráðherrann og
vlkapiltar hans segja, að bænd
urnir eigi að hafa ca. ys lægra
kaup en verkamenn.
Það hefir verið talið' eitt verk-
efni þessarar stjórnar, að auka
fiskiskipaflotann. Margir halda
að á það hafi verið lögð sú á-
herzla, að þeir vísu menn í rík-
isstjórninni séu nú farnir að
sjá, að til þess að skipin geti
komizt á flot, ef, og þegar þau
koma, þá þurfi að ná I nokkuð
af því fólki, sem enn er í sveit-
unum, og koma þvi á mölina, og
að vikapiltarnir séu látnir gera
þennan mun á kaupi bændanna
og verkamannanna til þes að
flýta fyrir að svo verði. Og það
er vafamál hvort hægt er að
styðja að því betur á annan hátt
en með þvl að skera kaup bænd
anna svo við neglur, gegnum
afurðaverðið, að þeir neyðist til
að hætta búskap. Ef til vill er
það þá líka þess vegna, sem
kommúnistar eru nú farnir að
tala um að flytja inn verkafólk.
Þeir ætla á eftir að geta hreins-
að sig af þvi að hafa gegnum
verðlagningu landbúnaðarvar-
anna haft áhrif á það, að bænd
ur ílyttu á mölina. En það
heppnast nú varla fyrir þeim,
því að þeir gera það á margan
annan hátt, þó út í þá sálma
verði ekki farið hér.
Það munu allir, sem nokkuð
hugsa, sammála um það nú orð
ið, að það sé þjóðarnauðsyn að
láta ekki dýrtíðina vaxa. En það
munu tiltölulega fáir telja, að
það eigi að byrja að gera það
með þvi að láta bændur eina
fórna. Bændur buðu í fyrra fórn
íýðræðið í Rásslandi *
(Framhald af 3. slSu)
sætir engum árásum, en þar
kemur ekki heldur fram neinn
áhugi fyrir henni eða hennar
málum. Frásagnir um kirkju-
mál komast því aðeins í blöðin,
að þær hafi á einhvern hátt
stjórnmálalegt gildi. Rómversk-
kaþólska kirkjan, sem alltaf hef-
ir barizt hart fyrir sjálfstæði
sínu, er þó enn illa séð.
Hin aukna ættjarðarhyggja 1
hugmyndakerfi bolsévikka hefir
leitt það af sér, að nú er lögð
vaxandi rækt við sögulegar
erfðir Rússa og ýmsir þjóðhöfð-
ingjar þeirra, svo sem Pétur
mikli og fleiri, hafa nú aftur
verið hafnir til vegs. Ef að lík-
um lætur, mhin straumurinn
halda áfram að liggja í þessa
átt. Vera má, að þessi þróun
kunni, þegar fram líða stundir,
að frelsa Rússa frá þeim ein-
hliða og þrönfeu hugmyndum
um lífið og tilveruna, er þeir
hafa um skeið verið einskorðað-
ir við. Hvaða áhrif þetta kann
að hafa á afstöðu Rússa til
annarra þjóða, er enn of
snemmt að segja.
„Lýðræðið“, sem svo er nefnt
í Rússlandi, er þannig gagn-
ólíkt því, sem við vestrænir
menn teljum, að sé fólgið í þvi
hugtaki. Það er ekki okkar hlut-
verk að dæma um hvaða stjórn-
arfar muni henta rússnesku
þjóðinni bezt. En Rússland
getur haft svo mikil áhrif á líf
hinna vestrænu þjóða, að það
er rétt og skylt, að við gerum
okkur grein fyrir, hvað Rússar
hafa á prjónunum. Pravda hefir
oftsinnis staðhæft, að ólíkar
lífsskoðanir og hugmyndakerfi
þurfi ekki að hindra vinsamleg
samskipti landa og þjóða. Og það
er alls ekki rétt að láta sér vaxa
í augum þann reginmun, sem er
á stjórnarfari og viðskiptahátt-
um í Rússlandi og Vesturlönd-
um. Góð samvinna við Rússa er
mjög mikilvæg, og það ætti ekki
að þurfa að koma að sök, þótt
hugmyndaheimur þeirra sé ólík-
ur okkar.
og færðu hana. Á þá útréttu
hönd var slegið. Allir aðrir
heimtuðu allt hækkað, og fengu
það. Nú launar ráðherra þeim
fórnfýsi þeirra þá, með því að
lækka ^rstekjur þeirra um.fjög-
ur þúsund krónur, og trúandi
væri honum til að hækka nú
tekjur annárra likt eins og hann
eða vikapiltar hans hafa gert
við kjötkaupmennina.
ttbreiðið Tímann!
Útvegið sem flestir ykk^r einn
áskrifanda að Timanum og lát-
ið afgreiðsliína vita um það sem
fyrst.
«