Tíminn - 05.10.1945, Síða 6
6
TÍMIM, föstndagÍMii 5. okt. 1945
75. blað
Minning Sveins Hannessonar
frá Elivognm
i.
Brags í éli stóðst sem steinn
stuðla- vel hélzt boga.
Götu að heli gekkstu, Sveinn,
greppur Elivoga.
Þín að minnast skerpir skin,
— skúra þynnist vegur —
Tryggur þinna vina vin
varstu innilegur.
Minni órotið fékk þér fest
fræði, að notum var þér.
Þig, er hlotið hafði gest,
hlýrra kotið var mér.
Miðlaðir fróðleik mörgum þá
máls frá sjóði í haginn.
Þínum glóðum gáfna frá
geislar flóðu um bæinn.
Röddin skýr og hreimahlý
hlumdi á dýrum brögum.
Sjóð órýran áttir í
ævintýrum, sögum.
Listagróður geymdi sál,
gildan sjóð í orði.
Falla í ljóðin fagurt mál
fár þér stóð á sporði.
List þín fló um borg og bý,
brags þér hlógu skeyti.
Bak þér hjóu ýmsir í
arfar Gróu á Lei'ti.
Þá, er sendu seggjum leir,
— satt má endurgreina: —
Öfund brenndi, og ýmsra þeir
innan kenndu meina.
Þeim tókst öngum þér í draf
þrýsta, ströngum önnum.
Varst þó löngum eltur af
álits-svöngum mönnum.
Ljóðs þig störfin lúðu ei par,
lundin djörf við slarkið.
Þínar örvar orðsnilldar
yddar svörfu markið.
Hvergi sýndir fum né fálm
fram, er tíndir rökin.
Heini brýndir Braga-skálm,
bragna klíndi sökin.
Innt af rögg mörg orðfleyg sneið,
efnistögg, sem báru,
markviss högg, það mörgum
sveið,
merki glögg þess váru.
Við ei gældir glópa hót,
grip þig nældu tdnna.
Öruggt pældir upp og mót
óvi£sældum granna.
Virðing gæðavina nauzt,
vel það kvæðin sanna.
Öfund bæði og óþökk hlauzt
aftanlæðings-manna.
Hugsun lág þeim hæfa má
— hrökklast þá í leynin —
sem að náinn nota þrá,
naga um dáins beinin.
Vert er að hylla og heiðra þá,
horfna villurökum,
sæmdum gylla seggi, er ná
Sveini í snillitökum.
Húnvetningur.
II.
Brotið er skarð í Bragasveit
— Brunnin harpa í Surtar-
logum —
Nú er hniginn hels í reit
hetjan Sveinn frá Elivogum.
Hagur bragarhörpu sló.,
hrundi bundið mál af vörum.
Orðaforða yfir bjó
undir stundum þungum kjörum.
Uppeldið og æskan var
erfitt, hrjúft og kuldablandið,
skapið hart, og því varð þar
þröngt að sneiða lífs hjá strandi.
Misskilinn í mörgum reit
maðurinn var, af sínum grönn-
um.
Enda frá sér einatt beit
ægihvössum bragartönnum.
Þó sál af gremju sýndist full
og sori væri i kvæðum talinn
allra innst þó glóði gull
guðs hjá neista er lá .þar falinn.
Sigurjón Jónsson, Skefilsstöðum.
Sérstakt stjómlagaþing..
(Framhald aj 3. síðuj
um almemlra kjósenda. Blöðin
ræða alls ekki eða mjög lítið
um það, sem koma skal í þessu
máli. Ástæðan er án efa sú, að
flokkarnir hafa ekki enn gert
sér grein fyrir stefnu sinni í
málinu. Af þessum sökum er
það að vonum, að kjósendur
hafi almennt ekki heldur hugs-
að mál þetta svo sem vera ber
um jafn þýðingarmikið mál. Til
þess að bjarga vanrækslu kjós-
endanna og flokkanna í þessu
efni, virðist beinlínis nauðsyn-
legt að fresta lýðveldisstjórnar-
skránni um skeið. Frestinn ber
að nota sem bezt til umræðna
um málið í öllum helztu blöð-
um, svo þjóðinni gefist kostur
á því að mynda sér skoðanir og
marka viðhorf sitt til hinna
einstöku atriða, sem stjórnar-
skráin á að fjalla um. Þetta er
sá háttur, sem bezt á við í lýð-
frjálsu landi, og önnur af-
greiðsla þessa máls en sú, sem
byggist* á vandlegri atlíugun
þjóðarinnar, er ekki frambæri-
leg. Þótt ekki verði það talið til
ástæðna fyrir því að stofna til
sérstaks stjórnlagaþings, að það
hefði i för með sér nokkurn
frest á afgreiðslu málsins, fer nú
einmitt það vel saman við þörf
þjóðarinnar til þess að fá tíma
til þess að átta sig á málinu.
VI.
Að lokum skal aðeins drepið
á eitt atriði enn. Miklar líkur
eru til þess, að mjög almenn
ósk sé um það, að stjórnarskrá-
ín verði sett á sérstöku stjórn-
lagaþingi. Þing- og héraðsmála-
fundur ’á Vestuflandi hefir ein-
dregið óskað þessarar skipunar.
Hér á Seyðisfirði var háður 3.
fundur Fjórðungsþings Aust-
firðinga dagana 15. og 16. þ.
m. Þing þetta sátu 12 fulltrúar,
þrír kosnir af sýslunefnd Norð-
ur-Múlasýslu, þrír kosnir af
sýslunefnd Suður-Múlasýslu,
þrír kosnir af bæjarstjórn Nes-
kaupstaðar og þrír kosnir af
bæjarstjórn Seyðisfjarðarkaup-
staðar. Allir stjórnmálaflokkar
áttu fulltrúa á þinginu. Áskor-
un um sérstakt stjórnlagaþing
var borin undir atkvæði eftir ýt-
arlegar umræður og var hún
samþykkt með ellefu samhljóða
atkvæðum. Ekki er kunnugt, að
mál þetta hafi verið rætt ann-
ars staðar á almennum fundum.
Ástæðan' til þess mun vera
tómlæti það, sem blöð og stjórn-
málamenn yfirleitt hafa sýnt
þessu mikilvæga máli. Það er
engin ástæða til þess að ætla,
að afstaða annara landsmanna
til málsins sé önnur en af-
V
staða Vestfirðinga og Austfirð-
inga, sem nú liggur greinilega
fyrir eins og hér var skýrt frá.
Án efa má benda á margt
fleira, sem ástæður fyrir stjórn-
lagaþingi, en hér hefir verið
gert og sérstaklega mætti gera
þeim atriðum, sem nú var bent
á, fyllri og gleggri skil en hér
var gert. En við þetta verður
að sitja að svo stöddu.
Seyðisfirði, 18. sept. 1945.
Hieypir
í kútum, heilflöskum, hálfflösk-
um og smáglösum.
Sendum um land allt.
EFNAGERÐ SEYÐISFJARÐAR.
Símskeyti: Efnagerðin. í
Talsími: Seyðisfjörður 43.
Auglýsing
HEILBRIGÐISFULLTRUASTAÐAN í Reykjavík er laus
til unlsóknar.
Laun skv. launasamþykkt bæjarins.
Umsóknir sendist skrifstofu minni, sem gefur nánari
upplýsingar.
Umsóknarfrestur til 1. nóvember n. k.
ISorgarstjióriim í Reykjavík.
Stúikur
vantar í borðstofu og eldhus á Kleppsspítala.
Upplýslngar í skrifstofu ríkisspítalanna, síini
1765 ojí í síina 2319.
Frá Golfskálanum
Félög, einstaklingar og starfsfólk fyrirtækja, sem hús-
næði þyrfti í vetur fyrir veizlur og aðra skemmtistarf-
semi, ætti að tala við mig sem fyrst í síma 4981.
. , /
ATH. Ég mun reyna að hafa bíla til heimferðar fyrit gesti
hússins.
fj)
Jón VeturliÓasón.
Tanniæknir
Bæjarráð hefir ákveðið ,að ráða skólatannlækni til starfa í
Laugarnesskólanum.
Skrifstofa mín, sem gefur nánari upplýsingar um starfskjör
og laun, tekur við umsóknum til 1. nóv. n. k.
' ' |
Borgarstjórinn í Reykjavík.
Höfum nú daglega:
NÝTT SLÁTUR
• NÝTT STÁTTR,
MÖR,
TIFUR,
IIJÖRTU,
SVÍÖ,
ásamt úrvals
DIUKAKJÖTI.
BÚRFELL
Skjaldborg. Sími 1506.
Nýkomið
SANDCRÉPE
i mörgum litum.
H. Toít
Skólavörðustíg 5. Sími 1035.
Húsmæður!
Sultutíminn er kom-
inn, — en sykurskammt-
urinn er smár.
Tryggið yður góðan árangur
af fyrirhöfn yðar. Varðveitið
vetrarforðann fyrir skemmdum.
Það gerið þér bezt með þyí að
nota
BETAMON, óbrigðult rot
varnarefni, nauðsynlegt,
þegar litill sykur er not
aður.
BENSONAT,
natron.
bensoesúrt
Dökkblá
KVPUEFIVT
góð og ódýr, nýkomin.
H. TOFT
Skólavörðustíg 5. Sími 1035.
Vinitið ötullegw fyrir
Tímann.
PEjCTINAL, , sultuhleypir,
sem gerir yður kleift að
sjóða sultu á 10 mínút
um. — Pectinal hleypir
sultuna, jafnvel þó að
notað sé ljóst sýróp allt
að % hl/utum í stað syk-
urs.
VÍNEDIK, gerjað úr áyöxt'
um.
VANILLUTÖFLUR Og
VÍNSÝRU, sem hvorttveggja
er ómissandi til bragð-
bætis.
FLÖSKULAKK í plötum.
Allt frá
CHEMIA H.F.
Fæst í öllum
matvöruverzlunum.
flth.
Flestir íslendingar eyða mörgum ævistundum í
allskonar fundastörf. Árangur þeirra verður þó oft
sorglega lítill vegna þekkingarleysis stjórnendanna og
annarra fundarmanna. Leitið yður fræðslu um þessar
undirstöðureglur lýðræðisins, í
(Bréfaáhóíci S. 1S.
Stór bólt um líf og starf og samtíð listamannsins mikla
Leonardo da Vinci
eftir rússneska stórskáldið Dmitri Mereskowski, í þ'ýðingu
Björgúlfs læknis Ólafssonar
er komin í bókaverzlanir
Leonardo da Vinci var furðulegur maður Hvar sem hann er nefndur i bókuih. er
eim og menn skorti orð til þess að lýsa atgerfi hans og yfirburðum. I .JLncyciopcrdia
Dntannica” (1911) er sagt, nð sagan nefni engan mann, sem sé hans jafningt n sx'tðt
visinda og lista og óhugsandi sé, að nokkur maður hefði *nzt tíí að afkasto hundiaðasto
parti af öllu þvi, sejn hann fékkst við.
Leonardo da Vinci var óviðjafnanlegur mdlari. En liann var lika uppfinningamnður
d við Edison, eðlisfrccðingur, stcrrðfrccðingm, stjömufraðingur og hervélafrctðingnr
Hann fékkst við rannsóknir i Ijósfrccði, liffcrrafrcrði og sljórnfrccði, andlitsfall manna og
fellingar i klccðum athugaði liann vandlega. „
Söngmaður var Leonardo, góður og lék sjálfur d hljóðfccri. Enn fremur 'ritaðí hann
kynstrin öll af clagbókum, en -
list hans hefir gefið honum orðstír, sem aldrei deyr.
Þesst bók um Leonardo da Vinci er saga urn mannnm, er fjölliccfastur og afkasta•
m'eslur er tnlinn allra manna, er sögur fnra af. og einn aj mestu lislamönnum vcraldor.
í hókinni eru um 30 myndir af listaverkum.
H.F. LEIFTUR, Reykjavík.
Skmnaverksmidjan
Iðunn
framlciðii*
SÚTUÐ SKKVN OG LEÐUR
\
ennfrcmnr
hina landskumm
1ðunnarskó
Bókaforlag Æskunnar:
Nýjar bækur í dag:
Kalla fer í vist
(framhald af Kalla skrifar dagbók).
Á aevintýraleiðum.
Spennandi saga fyrir drengi.
ÍPrUin hans IVón,
meö teiknimyndum, Walt Disney.
*
Undrafluyvélin
kemúr út eftir nokkra daga.
Tryggið ykkur þá bók í tíma, því á henni verður
hraðsala.
Öríá eintök eru enn til af Kalla skrifar dagbók.
Spyrjið næsta bóksala um forlagsbækur Æskunnar.
Aðalúísahi:
Kirkjuhvoli
Bókabúð Æskunnar