Tíminn - 05.02.1946, Síða 8
KosningaskrLfstota Framsóknarmanna
er í Edduhúsinu. Sími 6066.
8
REYKJÆVÍK
FRAMSÓKNARMENN!
5 FEBR. 1946
Komíð í kosningaskrifstofuna
22. folað
ANNÁL.JL TÍÍBANS
Eru foringjar Sjáifst.fiokksins?
Grikklandsmálm rædd
I Öry^isráðinu.
Krafa Rússa um, að Öryggis-
ráðið fjallaði um málefni Grikk-
lands og dvöl brezka hersins þar,
var rædd á fundi ráðsins á
föstudaginn. Fulltrúi Rússa
deildi all fast á framkomu Breta
þar, en Bevin svaraði fullum
hálsi. Kvað hann það lítið vin-
skaparbragð af Rússum að vísa
þessu máli til Öryggisráðsins f
stað þess að hefja viðræður um
það við Breta sjálfa. Hann
sýndi síðan fram á,' að Bretar
hefðu eftir megni forðast öll
afskipti af innanlandsmálum
Grikkja og stutt að því eftir
megni, að frjálst lýðveldi kæm-
ist þar á. Þá benti hann á dvöl
rússnesks setuliðs í Búlgaríu,
Júgóslavíu, Ungverjalandi og
Rúmeníu. Bretar hefðu ekki vilj-
að gera þau mál að umtalsefni
í Öryggisráðinu, þótt meiri á-
stæða hefði verið til þess en að
ræða afskipti Breta af málefn-
um Grikkja.
Málið hefir enn ekki verið af -
greitt frá ráðinu.
Brczkur Iier í Japan
Samkomulag hefir orðið um
það milli Breta og Bandaríkja-
manna, að brezkur her taki þátt
í hernámi Japans. Fyrstu brezku
hersveitirnar fara þangað fljót-
lega. _____
Uraniiimiiániiir
finnast.
í Ástralíu hafa fundist auðug-
ustu uraníumnámur heimsins,
að því er talið er.
i
Svarti dauði í Man-
sjiiriu.
í Mansjúríu hafa komið fyrir
nokkur svarta dauða tilfelli.
Rússar, sem fara með stjórn í
þeim héruðum þar sem veikinn-
Skemmtikvöld.
Framsóknarfélögin í Beykjavík
efndu til skemmtunar í Listanianna-
skálanum s. 1. föstudagskvöld fyrir þá,
sem unnu á kosningadaginn fyrir B-
listanum í kjördeildum, skrifstofu eða
önnur störf. Var fullt hús samkomu-
, gesta, sem skemmtu sér prýðilega
við söng, ræðuhöld og upplestur með-
an setið var að kaffidrykkju.
Forstöðumaður hófsins hefir beðið
blaðið fyrir eftirfarandi orðsendingu:
Vegna þess hve húsrúm var tak-
markað fyrir ofangreinda skemmtun
var ekki hægt að bjóða nærri eins
mörgum og æskilegt var. Þeir, sem
unnu fyrir B-listann og rnóske hafa
ekki fengið boðskort eru vinsamlega
beðnir að láta vita um það í skrifstofu
flokksins í Edduhúsinu.
Framsóknarvist.
Næsta skemmtun Framsóknarmanna
í Reykjavík, verður í Listamannaskál-
anum n. k. föstudag. Byrjar hún með
Framsóknarvist klukkan 8,30. Af því
hve mikil aðsókn hefir verið undan-
farið að þessum samkomum og margir
orðið frá að hverfa vegna rúmleysis,
eru Framsóknarmenn, sem sækja ætla
þessa skemmtun, minntir á að panta
aðgöngumiða sem fyrst i síma 2323.
Tvær fyrirsagnir
á sjöttu síðu blaðsins í dag hafa
ruglazt — þannig að yfir þakkarorð-
um Stefáns Sigurðssonar fyrrverandi
íshússtjóra stendur Afmæliskveðja, en
yfir afmæliskveðju til Eggerts Levý
bónda á Ósum stendur Þakkarorð. —
Á þessum mistökum er beðiö velvirð-
ingar.
Sjómannablaðið Víkingur,
1. hefti, 8. árg., er nýkomið út, fjöl-
breytt að efni að vanda. — Efni er
m. a.: Varðbátakaupin, Áramóta-
þankar eftir Ásgeir Sigurðsson. Aukið
öryggi, ný tegund skipsbáta, þýddar
smósögur, á frívaktinni, bækur, úr
vélarúminu o. fl,
Farþegar
með es. Lagarfossi vestur og norður.
og til Oslo: Guðmundur Albertsson,
Flateyri. Ingibjörg Kristjánsdóttir,
Siglufjörð. — Skafti Sigurðsson, Akur-
eyri. Lárus Jóhannsson, Flateyri. Jón
ar hefir orðið vart, hafa gert ít-
rustu ráðstafanir til að hefta
útbreiðslu hennar.
Nýtt lýðveldi.
Ungverska þingið hefir sam-
þykkt, að Ungverjaland skuli
vera lýðveldi.
Montgomery fær nýtt
embætti.
Montgomery marskálkur hefir
verið skipaður yfirmaður alls
brezka hersins. Ekki er enn ráð-
ið hver tekur við herstjóifninni
í Þýzkalandi í stað hans.
Aðsetursstaður Þjóða-
bandalagsins.
Nefnd, sem hefir haft til at-
hugunar, hvar aðsetursstaður
nýja Þjóðabandalagsins skuli
vera, hefir lagt til, að hann
verði nálægt bænum Stamford,
sem er 40 km. frá New York.
Danska frelsisráðið
klofið.
Danska frelsisráðið, er
stjórnaði mótspyrnuhreyfing-
unni gegn Þjóðverjum, hefir
klofnað. Fulltrúar íhaldsmanna
og jafnaðarmanna hafa gengið
úr því. Klofningurinn virðist
stafa af því, aö kommúnistar
hafa viljað gera ráðið að póli-
tisku tæki fyrir sig.
Hirðisbréf páfans.
Páfinn hefir nýlega sent hirð-
isbráf til katólsku biskupanna í
Þýzkalandi. Hann segist sér-
taklega votta Þjóðverjum í
Berlín og Austur-Þýzkalandi
samúð sína, þar sem þeir hafi
verið hraktir í stórum stíl frá
heimilum sínum. Þá segist páf-
inn harma þá niðurlægjandi
meðferð, sem margar þýzkar
konur, er búa á þessu svæði, hafa
orðið að sæta.
Karlsson, Akureyri. Þórhallur Þor-
steinsson, Akweyri. Katrín Lárusdótt-
ir, Akureyri. Hermann Hermannsson,
toliv.
Nýtt kvennablað,
7.—8. tbl. 6. árg. hefir blaðinu bor-
ist. Er blað þetta hið vandaðasta.
prentað á góðan pappír og prýtt f jölda
mynda. Á forsíðu þess er myhd af
verki Einars Jónssonar, er hann nefn-
ir Alda aldanna. Auk þess eru ýms-
ar greinar og sögur.
Aðalfundur félags ís-
lenzkra myndlistarmanna
var nýlega haldinn. Var þar kosin
stjórn félagsins og ýmsar nefndir. —
Kosningar fóru sem hér segir: í stjórn
félagsins voru kjörnir: Þorvaldur
Skúlason, formaður. Jón Engilberts,
ritari og Jón Þorleifsson, gjaldkeri.
í sýningarnefnd voru kjörnir Ásgrímur
Jónsson, Jón Þorleifsson, Þorvaldur
Skúlason, Sigurjón Ólafsson og Jó-
hann Briem. Þá fór fram kosning 5
fulltrúa til þess að mæta á fundum
Bandalags íslenzkra listamanna, og
hlutu kosningu þeir: Sigurjón Ólafs-
son, Ásmundur Sveinsson, Svavar
Guðnason, Jón Þorleifsson og Jóhann
Briem. Félagar í Félagi íslenzkra
myndlistarmanna, sem nú dvelja hér
á landi, eru 36 talsins.
Teresia Guðmundsson
veðurstofustjóri
Frú Teresia Guðmundsson
hefir verið sett til að gegna
embætti veðurstofustjóra.
Þorkeli Þorkelssyni, sem veitt
heíir Veðurstofunni forstöðu
frá ársbyrjun 1920, hefir verið
veitt lausn frá embætti með
fullum launum skv. heimild Al-
þingis.
Frú Teresia er af norsku bergi
brotin og vel menntuð. Hún er
íslenzkur ríkisborgari, gift
Barða Guðmundssyni, þjóð-
skjalaverði.
(Framhald af 1. síðu)
meiri tök en hann þegar hefir
fengið.“
Öllu rækilegri landráöaað-
dróttun er vissulega ekki hægt
að bera neinni flokksforustu á
brýn en þá, sem hér er borin á
forkólfa Sjálfstæðisflokksins.
Þeir eru hvað eftir annað nefnd-
ir landráðalýðurinn og því hald -
ið fram fullum fetum, að þeir
vinni að því af fullum krafti að
svíkja ísland undir erlent stór-
veldi.
Ætla foring'jar Sjálf-
stæðisflokksins að
þegja við þessn?
Það er vissulega margt, sem
mun vekja athygli í sambandi
við þessar aðdróttanir Þjóð-
Viljans.
Það vekur t. d. athygli, að
Þjóðviljinn skuli nú fyrst eft-
ir bæjarstjórnarkosningarnar
minnast á glæpsamlega atburði,
er hann telur forkólfa Sjálf-
stæðisfl. hafa unnið ’í októ-
ber og nóvember í haust. Voru
heildsalarnir kannske búnir að
fá Brynjólf og Einar til að
þegja um þennan verknað sinn
og hefðu þeir þagað um hann
áfram, ef kommúnistum hefði
gengið vel í kosningunum? j
Hafa forkólfar kommúnista ekki
gert sig grunsamlega með þess-
ari löngu þögn sinni, sem þeir
rjúfa fyrst eftir óhagstæð kosn-
ingaúrslit?
Mesta athygli hlýtur það þó
að vekja, að Sjálfstæðisflokkur-
inn virðist ætla að þegja með
öllu við þessum aðdróttunum
Fjársöfnun tií barna
(Framhald a) 1. síðu)
er gjöfum einnig veitt móttaka
í skrifstofu Rauða Kross íslands
Hafnarstræti 5, Reykjavík.
Hér fer á eftir ávarp frá Rauða
Krossinum í tilefni þessarar
söfnunar.
„Samkvæmt bréfum og skýrsl-
um, sem stjórn Rauða Kross ís-
lands hafa borizt frá erlendum
Rauða kross-stofnunum, eru nú
miljónir barna á meginlandi Ev-
rópu í lífshættu stödd vegna
klæðleysis, sjúkleika og lang-
varandi fæðuskorts. Er eigi ann-
að sýnna en að mikill fjöldi
þessara barna muni verða hung-
urmorða eða bíða varanlegt tjón
á heilbrigði sinni, andlegri og
líkamlegri, ef ekki berst stórum
aukin og skjót hjálp erlendis
frá.
Vér íslendingar framleiðum
hlutfallslega meira en nokkur
önnur þjóð þá vöru, sem flestu
eða öllu öðru er líklegri til
bjargar þessum nauðstöddu
börnum, en það er meðalalýsi.
Með hæfilegum dagskammti af
lýsi, sem fullnægi bætiefnaþörf -
inni og bætir að verulegu leyti
úr feitmetisskortinum, nægir
ein flaska af lýsi einu barni í
nálega tvo mánuði.
— Enda þótt stjórn Rauða
kross íslands sé það ljóst, að ís-
lendingar hafa nú þegar látið
allmikið fé af hendi rakna til
hjálpar erlendum þjóðum, telur
hún sér skylt að beita sér fyrir
því, að enn verði gert betur, ef
verða mætti til þess að bjarga
mörgum bágstöddum börnum
frá sjúkdómum eða dauða.
StjórnRauða kross íslands vill
því beina eindregnum tilmælum
til allra íslendinga, að þeir enn
leggi nokkurt fé af mörkum, til
kaupa á meðalalýsi, sem sent
verði hið fyrsta til Miö-Evrópu
og úthlutað meðal þurfandi
barna, í samráði við Rauða
kross-stofnanir viðkomandi
landa.
Til þess að hjálpin komi að
sem mestum og beztum notum,
er nauðsynlegt að lýsið verði
sent héðan hið allra fyrsta. Er
því ákveðið að söfnun fjár skuli
hraðað eftir föngum og sé lokið
um 20. þ. m.
Þess er vænst að íslenzka
þjóðin, nú sem fyrr, bregðist vel
og skjótt við beiðni um stuðning
við mannúðarmál og að skerfur
hennar til þessa verði henni til
sæmdar og sem flestum nauð-
stöddum til bjargar.
Þjóðviljans. Slík framkoma úr
því, sem komið' er, getur vitan-
lega ekki annað en ýtt undir
grunsemdirnar. Enginn flokkur,
sem veit sig saklausan, getur
þagað við slíkum aðdróttunum,
og þó allra sízt, þegar þær eru
bornar fram af samstarfsflokki
í ríkisstjórn, er ætti því að
vera öllum hnútum vel kunn-
ugur.
Það er áreiðanlega krafa
þjóðarinnar og þó fyrst og
fremst hinna óbreyttu liðs-
manna Sjálfstæðisflokksins, að
foringjar hans hreinsi sig op-
inberlega af þessum iandráða-
aðdróttunum og leggi öll gegn
á borðið í því máli, sem hér
mun átt við, en það er vafalaust
beiðni Bandaríkjanna um her-
stöðvar hér.
Tíminn hefir lengi krafizt
þess, að þessi gögn væru lögð
á borðið. Forsætis- og utanríkis-
málaráðherra hefir jafnan
þrjózkast við því. Hér eftir get-
ur hann ekki gert það með
góðu móti, nema dökkur
skuggi falli á hann og flokk
hans.
Lærdómsríkar npplýs-
Ingar um stjórnar-
sainviiiiiuiia.
En það er fleira í þessu sam-
bandi, sem þjóðin þarf að at-
huga. Hún þarf ekki sízt af þessu
tilefni að gera sér grein fyrir því
stjórnarsamstarfi, sem hér er
nú.
Trúir hún því, að það stjórn-
arsamstarf geti verið farsælt og
þar muni unnið af mikilli ein-
drægni, þar sem smastarfs -
flokkarnir keppast við að bera
landráöabrigsl hvorir á annan?
Treystir hún þeim forsætis-
ráðherra, er metur völdin svo
mikils, að hann situr áfram,
eins og ekkert hafi í skorizt,
eftir að annar samstarfsflokk-
urinn hefir borið honum og
flokki hans verstu landráð á
brýn? Halda menn t. d., að Chur-
chill hefði látið samstarfsflokk
sinn í brezku þjóðstjórninni
bjóða sér slíkt?
Og trúa menn á lýðræöTsást
og heiðarleika þess stjórnmála-
flokks, er heldur áfram að styðja
þá menn til stjórnarforustu,
sem hann telur landráðalýð af
lökustu tegund? Halda menn,
að slíkur stuðningur sé frekar
veittur til að efla álit og veg
lýðræðisins eða til að eyðileggja
það?
Framangreindar aðdróttanir
Þjóðviljans, er ein bezta sönnun
þess, hvílíkt fúafen spillingar-
innar grundvöllur núv. stjórn-
arsamstarfs er. Það sýnir eins
vel og verða má, að hér hafa
ábyrgðarlausir öfgamenn og
valdabraskarar skriðið saman
vegna stundarhags, og allt ann-
að en hagsmunir þesara klíkna
er óvirt og einskis metið.
Þjóðin þarf að losna við
slíka stjórnarsamvinnu. Það er
henni lífsspursmál. Hún þarf
í næstu kosningum að skapa
nægilega öflugan meirihluta
frjálslyndra umbótamanna, eins
og aðrar þjóðir hafa gert hvar-
vetna annars staðar, þar sem
frjálsar kosningar hafa farið
fram.
Skjatdarglíman
(Framhald af 1. síðu)
5. Ágúst Steindórsson, H. 3
vinninga.
6. Kristján Sigurðsson, Á. 3
vinninga.
7. Davíð Hálfdánarson, K.R.,
2i/2 vinning.
8. Guðm. J. Guðm.son, K.R.,
iy2 vinning.
9. Ólafur Jónsson, K.R., 0 v.
Guðm. Ágústsson vann því
í fyrsta sinn hinn nýja skjöld,
sem Eggert Kristjánsson stór-
kaupmaður hafði gefið. Þann
gamla hafði Guðmundur unnið
í fyrra til fullrar eignar. Einnig
voru veitt tvenn fegurðarglímu-
verðlaun, litlir silfurbikarar.
Hlaut Guðm. Ágústsson fyrstu
verðlaun og Guðm. Guðmunds-
son 2. verðluan. Þá voru Sigurði
Hallbjörnssyni veitt heiðurs-
verðlaun, silfurbikar, fyrir að
Ú R B Æ N U M
(jatnla Bíó fbjja Bíc
Undir austræmim bimni (China Sky) Hefnd ósýnilog'a iiianiisiiis (The Invisible Man’s Revenge)
Eftir sögu Pearl S. Buck. Bandoip Scott, Ruth Warrlck, Ellen Drew. sýnd kl. 5 og 9. Börn innan 16 ára f4 ekki aðgang. Sérkennileg og óvenjulega spennandi mynd. Aðalhlutverk: Jón Hall. Eveiyn Ankers. John Carradine. Börn fá ekki aðgang. Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Sundhöll á Isafirði IjatHatbíó
(Framhald af 1. siðu) laugarsalsins er 24XH m. og hæð 5 m. Alls kostaði byggingin 476 þús. kr. Gjafir og vinnuframlög námu 162 þús. kr., framlag bæjarsjóðs, 75 þús. kr. og fram- lag íþróttasjóðs 120 þús. kr. Að láni voru teknar 120 þús. kr, er íþróttasjóður mun greiða. Augun mín og augun jiín (My Love Came Back To Me). Amerísk múslkmynd. Olivía de Havilland Jeffrey Lynn, Eddie Albert Jane Wyman. Sýning kl. 5, 7 og 9.
FYLGIST MEÐ Allir, sem fylgjast vilja með almennum málum, verða að lesa TÍMANN.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
sýnir hinn sögulega sjónleik
SKÁLHOLT
(Jómfrú Ragnheiður)
eftir Guðmund Kamban
anuað kvöld kl. 8 (stimdvíslega).
Aðgöngumiðasala í dag kl. 4—7
Til félagsmanna
KRON
Munið að skila arðmiðum yðar frá árinu 1945 fyrir
15. febrúar n. k., því eftir þann tíma verður ekki tekið
á móti arðmiðum.
Ef einhver félagsmaður hefir eigi fengið bréf um
arðmiðaskil, er hann vinsamlega beðinn að gera skrif- ,
stofu félagsins aðvart fyrir 8. þ.,m.
Reykjavík, 2. febrúar 1946.
Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis.
\
é
Orðsending
til garðleigjenda í Reykjavlk.
Pöntunum á tilbúnum áburði og útsæði verður
veitt móttaka í skrifstofu minni í Austurstræti
10, virka daga frá kl. 10—12 og 1—3, laugardaga
10—12, sími 5378.
/
Ræktunarráðunautur Reykjavíkur.
Byggingarsamvinnufél. Reykjavíkur.
SÆNSK HÚS
Þeir félagsmenn Byggingarsamvinnufél. Reykjavíkur, sem
óska eftir að félagið útvegi þeim tilbúin timburhús frá Svíþjóð
í sumar, ef innflutningsleyfi fæst, og sjái um uppsetningu þeirra
að einhverju leyti, eru beðnir að skrifa sig á lista, sem liggur
frammi á teiknistofu Gísla Halldórssonar arkitekts, Garðastræti
6, daglega kl. 4—6 til 12. febrúar.. — Nokkrar teikningar af til-
búnum húsum eru til sýnis á sama stað. Lóðir undir húsin mun
félagið fá við Langholtsveg.
Félagsstjórnin
hafa tekið þátt í Skjaldarglím-
unni 10 ár í röð.
Glíman fór mjög vel fram, og
voru margar glímurnar hinar
skemmtilegustu. Aðalkeppnin
var milli þeirra nafnanna úr
Ármanni. Guðm. Ágústsson var
þó vel að sigrinum kominn, og
á hann nú orðið óvenju glæsi-
legan sigurferil að baki.
Áhorfendur voru eins margir
og húsrúm leyfði.
*