Tíminn - 12.02.1946, Blaðsíða 1

Tíminn - 12.02.1946, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON ÚTGEFANDI: FRAMSÓKN ARFLOKKURINN Símar 2353 og 4373 PRENTSMIÐJAN EDDA hJ. 30. árg. Reykjavík, þriðjudaglim 13. febr. 1946 RITST JÓRASKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI. Líndargötu 9 A Slmar 2353 og 4373 OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Lindargötu 9A Slml 2323 AFGRETBRLA, INNHF.IMTA 24. blað SEXTUGUR; Albin Johansson Óttast er um, að tuttugu sjómenn forstjóri Kooperativa Förbundet Albin Johansson er fæddur 11. febrúar 1886, og er því 60 ára í dag. Snemma þurfti hann að vinna fyrir sér. Hann byrjaði sem vikapiltur í stóru einkafyrir- tæki í Stokkhólmi, en 1903 varð hann starfsmaður hjá kaupfé- laginu „Tantó“ og framkvæmda- stjóri þess 1905. — Til sam- vinnusambands Svía (Koopera- tiva Förbundet) kom hann 1907. Hann varð að mennta sig jafn- framt vinnunni, en hann var snemma kappsamur og dugleg- ur, og hefir honum því ekki háð skortur menntunar, eins og sést bezt á hinu stórkostlega lífs- starfi hans. Hjá samvinnusambandinu vann hann sig upp til mikilla áhrifa með undraverðum hraða. Á árinu 1918 var hann kosinn í stjórn þess og varð á sama ári aðal-framkvæmdastjóri bess og er það enn. Undir stjórn Albin Johansson hefir Kooperativa Förbundet tekið óvenjulega stórstígum framförum. Skipulag þess var endurbætt og þvert stórátakið hefir rekið annað. Hver sigur- inn hefir unnist, öðrum stór- kostlegri á sviði verzlunar og framkvæmda. K. F. er nú eitt hið allra fjárhagslega sterkasta og áhrifamesta fyrirtæki Sví- þjóðar, og hafa kaupfélög lands- ins stækkað og margfaldað um • setningu sína og samvinnustarf- semi öll undir áhrifum þess blómgast svo, að til fyrirmyndar er flestum þjóðum. Albin Johansson hefir ekki látið sér nægja samvinnustarfið innan landamæra Svíþjóðar. Hann hefir í orði og verki verið talsmaður samvinnu, einnig milli þjóðanna. Hann var einn af aðalhvatamönnum þess, að fyrsta samvinnusamband landa á milli var stofnað, Norræna Samvinnusambandið (Nordisk Andelsforbund) og hefir hann verið í stjórn þess og varafor- maður frá stofnun þess 1920. í því hafa starfað með ágætum árangri samvinnusambönd Dan- merkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar. í Alþjóða samvinnu,- jsambandinu (International Co- operativ Alliance) hefir hann einnig verið mikið starfandi og áhrifa hans gætt þar mikið. Hann á sæti í stjórn þess. Alls staðar þar sem Albin Johansson hefir lagt hönd að verki, hefir gætt sama fjörsins, áhugans og orkunnar, en við. sem höfum átt þá ánægju að kynnast honum persónulega, þekkjum og metum eigi síður aðra góða mannkosti hans, ljúfmennskuna, glaðlyndið og gestrisnina. Á þessum merkisdegi hans, senda honum hundruð þúsunda manna hlýjar árnaðaróskir, með þakklæti fyrir unnin framúr- skarandi störf, sem eru til fyrir- myndar, fyrst og fremst sam- vinnumönnum, en einnig öðrum mönnum, hvar sem í fylking standa. Mér er það ánægja að vera með í þeim stóra hópi. Ég óska honum heilla og hamingju og vona, að hann eigi enn langt ' starf fyrir höndum, með miklum árangri og stórum sigrum. 11. febr. 1946. Vilhjálmur Þór. Sextngnr; Guðmundur Hlíðdal laiftdsímastjóri Sextugur varð s. 1. sunnudag einn af kunnustu mönnum þessa lands, Guðmundur Hlíð- dal, póst- og símamálastjóri. Guðmundur er bóndasonur úr Húnaþingi, en brauzt áfram með dugnaði á menntabraut- inni, strax á unglingsárum sín- um, og lauk prófi í rafmagns- verkfræði í Þýzkalandi árið 1907. Síðan hefir hann gegnt fjölda trúnaðarstarfa í þágu lands og þjóðar, m. a. verið í ráðum eða séð um flestar helztu rafmagns- framkvæmdir hér á landi frá fyrstu tíð. Guðmundur Hlíðdal gegnir nú einu umfangsmesta og erf- iðasta embætti ríkisins. Hann hefir mætt víða um lönd á síð- ari árum, sem fulltrúi íslands á fundum og ráðstefnum, og jafnan getið sér og landi sínu góðan orðstir. Sæmdur hefir hann verið fjölda heiðurs- merkja íslenzkra og erlendra, og nú síðast sæmdi forseti ís- Maður verður úti Um fyrri helgi varð maður úti á Tunguheiði. Lagði hann af stað frá Syðri-Tungu á laugar- daginn, en síminn á heiðinni hafði bilað nóttina áður, og bár- ust því ekki fréttir af því fyrr en á þriðjudag, að hann hefði hvergi komið fram austan heið- arinnar. Var þá strax hafin leit að honum óg fannst lík hans ekki fyrr en eftir nokkurra daga leit. Maður þessi var Jón Har- aldsson bifreiðastjóri í Reykja- vík. Hann var ættaður frá Aust- ur-Görðum í Kelduhverfi og var á leið þangað í kynnisför. Stirðar gæftir og lít- ill afli á Akranesi Gæftaleysi hefir mjög hamlað veiðum við Faxaflóa, það sem aí er vertíðar. í janúar reru flestir bátar frá Akranesi 10—13 róðra. Mestan afla hefir Egill Skalla- grímsson fengið 70.845 kg. í 13 róðrum, næstur er m.b. Ægir með 67.870 kg. Hann hefir farið jafn marga róðra. Þriðji afla- hæsti báturinn er Sigurfari með 65.580 kg. í 13 róðrum. Fjórði aflahæsti báturinn er Fylkir, sem aflað hefir 62.705 kg. í 13 róðrum. Alls hafa borizt á land ú Akranesi í janúar 766.712 kg. Fiskurinn hefir verið seldur í skip, settur í frystihús og niður- suðu. lands hann á sextíu ára afmæl- inu stórriddaraorðunni með stjörnu, sem er veglegasta heið- ursmerkið, er íslenzka rikið veitir. hafi farizt í ofviðrinu um heigina Tveir miklir samvinrLaleihtogar Einn allra merkasti samvinnuleiðtogi, sem nú er uppi, Albin Johansson, forstjóri Kooperativa Förbundet í Svíþjóð, átti sextugsafmæli í gær. í til- efni af því birtist grein um hann eftir Vilhjáim Þór forstjóra S. í. S. á öðrum stað hér í blaðinu. — Hér á myndinni sést Albin Johansson (til hægri) vera að afhenda Alexander, flotamálaráðherra Breta, heiðurs- merki norrænnar samvinnu, en Alexander er einn af helztu leiðtogum enskra samvinnumanna. Atburður sá gerðist I sept. síðastl. haust. Frá afgrciðslu fjárhagsáætlunar Reykja- víkurhæjar: Útsvörin verða sennilega um 39,6 miljónir kr. á þessu ári llialdið felldi allar till. Pálma Haiuiessouar Fjárhagsáætlun Reykjavíkurbæjar var til umræðu og afgreidd á fundi bæjarstjórnarinnar síðastl. fímmtudag. Fundurinn hófst kl. 17 og stóð tii ki. rúmiega 5 á föstudagsmorguninn. Breyt- ingatillögur þær, sem, Pálmi Hannesson flutti og gerð var grein fyrir f seinasta blaði, voru allar felidar með atkvæðum íhalds- manna. Þegar búið var að afgreiða fjárhagsáætlunina, var út- svarsupphæðin komin upp í 35 miilj. og 916 þús. kr. og hafði hækkað við umræðurnar um 1764 þús. Auk þess er svo heimild 'il 10% viðbótarútsvarsálagningar, sem jafnan hefir verið notuð, svo að raunverulega verða þá útsvörin 39.6 millj. kr. Miðað við útsvarsálagninguna á Akureyri og íbúafjöida á báðum stöðum, ættu útsvörin að vera hér um 23 millj. kr. Má giöggt á þessum samanburði marka í hvíiíkt óefni fjármál bæjarins eru komin undir stjórn Sjálfstæðismanna. Á síðastl. ári var jafnað niður lúmlega 32 millj., og sígur því hratt á ógæfuhliðina. Útsvöi*in liafa sjöfald- azt síðan I stríðs- liyrjun. Pálmi Hannesson flutti ítar- lega framsöguræðu og skýrði tillögur sínar og gagnrýndi ýms- ar aðfarir bæjarstjórnarmeiri- hlutans, t. d. við afgreiðslu fjár- hagsáætlunarinnar. í upphafi ræðu sinnar gat Pálmi þess, að fresturinn til að >kila breytingatillögum við fjár- hagsáætlunina hefði verið allt of skammur. Á fyrsta fundi bæj■■ arstjórnarinnar fyrra laugar- dag var fjárhagsáætlunin lögö fram og* frestur til að skila breytingatillögum ákveðinn til næsta mánudagskvölds. Gefur það að skilja, að nýir fulltrúar 1 bæjarstjórninni hafa ekki tækifæri til að kynna sér fjár- hagsáætlunina til hlítar á svo skömmum tíma. Pálmi Hann- esson Sagðist því ekki hafa flutt margar breytingatillftgur að þessu sinni, en myndi gera það síðar. Þá gagnrýndi Pálmi mjög á- kveðið hina sífelldu hækkun útsvaranna og sýndi m. a. fram á, að útgjöldin við rekstur bæj- arins vaxa meira en verklegar framkvæmdir. Síðan fyrir styrj- öldina, hafa gjöldin rúmlega sexfaldazt, en útsvörin sjö- faldazt. Hann benti einnig á, að hlunnindi, svo sem laxveiðin í Elliðaánum, væru rekin með 8 þús. kr. tekjuhalla, og ætti þó að vera hægt að reka slík hlunnindi að minnsta kosti hallalaus. íhaldilf vill ekki effla bæjai’bókasafnið. Vegna breytingatillögu sinn- ar um aukið framlag til bæjar- bókasafnsins (en Pálmi lagði til að tillagið yrði aukið úr 300 þús. í 600 þús.) benti hann á þá stað- reynd, að safnið væri nú í alltof þröngum húsakynnum. Bæjar- bókasafnið er ein nytsamasta stofnun bæjarins og þar er mik- 'il þörf fyrir lesstofur handa þeim bæjarbúum, sem ekki hafa (Framhaid á 4. síöu). | Fjögurra báta er saknað, en flestir aðrir urðu fyrir miklum áföllum og tjóni j Síðastliðinn laugardag gerði aftaka veður á Suður- og Vestur- landi. Flestir bátar voru þá á sjó og hrepptu hið versta sjóveður og komust margir við illan leik í land, eftir að hafa orðið fyrir línutapi og fengið áföll. Fjögurra báta er saknað. Af þeim er vitað með vissu um afdrif eins, m.b. Magna frá Norðfirði, en hann sást farast út af Garð- skaga og líkur benda til um sömu afdrif annars, m.b. Geirs frá Sandgerði, því farið er að reka lóðabelgir og brak úr stýrishúsi hans á fjörunum skammt frá Sandgerði. Um afdrif hinna bát- anna tveggja, sem saknað er, er ekki vitað, en þeirra hefir verið leitað af bátum og flugvélum árangurslaust. Þeir heita Max, frá Bolungarvík, og Alda, frá Seyðisfirði. Þá tók út tvo menn af vél- bátnum Hákon Eyjólfsson, frá Garði. Alls er óttast um, að rúm- lega tuttugu menn hafi farizt í ofviðri þessu. Vélbáturinn Magni frá Norð-i firði var gerður út frá Sand- gerði. Hann fór í róður eins og allir hinir bátarnir, á föstu- dagskvöld. Var hann seint bú- inn að draga línuna, eins og fleiri bátar, og var á leiðinni til lands, er honum hvolfdi undan Garðskaga. Nærstaddur var þar báturinn Barði frá Húsavik og sá til afdrifa Magna og fór á Vettvang. Þegar þangað kom flaut brak á sjónum og hélt einn mannanna sér uppi á því og varð honum bjargað. Til ann- arra af skipshöfninni sást ekki. Sá, sem komst af, var vélamað- urinn. Áhöfnin var alls fimm menn. Frá hinum bátunum þrem- ur, sem saknað er, hefir ekk ■ ert frétzt, þrátt fyrir mikla eftirgrennslan, en vegna veður- ofsans síðari hluta laugardags- ins, er talið ólíklegt, að nokkur þeirra sé ofansjávar, fyrst þeir eru ekki enn búnir að ná landi. Áhöfn hvers báts hefir verið fimm menn og hafa því farizt 21 maður í óveðrinu, svo vitað er um, 19 af bátunum fjórum, en auk þessa tók tvo menn út af vélbátnum Hákoni Eyjólfssyni frá Garði, sem ekki náðust aft- ur. Vélbáturinn Geir frá Keflavík reri þaðan á föstudagskvöldið og vissu menn það síðast til hans á laugardag, að hann var að draga lóðir sinar. Síðan hef- ir ekkert til hans spurzt, nema hvað farið er að reka úr honum skammt frá Sandgerði. Hefir rekið bjóð og lóðabelgi og einn- ig brak úr stýrishúsi og aftur- sigla. Líkur benda því til, að báturinn sé ekki lengur ofan- sjávar. Til vélbátsins Max frá Bol- ungarvík hefir ekkert spurzt síðan hann fór í róður á föstu- dagskvöld. Lóðir bátsins fund- ust á sunnudaginn um 10 sjó- mílur undan Deild. Þann dag leituðu sex bátar að Max í all- góðu veðri og góðu skyggni, en sú leit bar engin árangur. Fjórði b'áturinn, sem saknsð er, er vélbáturinn Aldan frá Seyðisfirði, sem rær frá Hafn- arfirði. Til hans hafði ekkert spurzt í gærdag. Margir bátar frá verstöðvum við Faxaflóa og vestanland? komust við Illan leik til hafnar og voru sumir hætt komnir. Allt lauslegt tók fyrir borð á mörg- um bátum, rúður brotnuðu og einnig urðu nokkrar aðrar skemmdir á bátum vegna sjó- gangs. Lóðatap er mikið, fæstir bátar gátu dre^ið allar lóðir sinar og nokkrir sáralítið af beim. Vera má þó, að nokkuð af bátum finni lóðir sínar aft- ur, enda reru flestir bátar vlð Hæstiréttur staðfesti undir- réttardóminn í kaupfélagsmál- inu á Siglufirði • KI. 7 síðdegis í gær var kveð- inn upp dómur í hæstarétti í kaupféiagsmálinu á Siglufirði. Dómur undirréttarins var stað- festur. Nánar verður skýrt frá þessum dómsúrslitum síðar. Skemmdir á símum Allmiklar skemmdir urðu á símalínum í ofviðrinu um helg- ina. Mestar urðu skemmdirnar á Vesturlandi, í Borgarfirði og Hvalfirði. Símasambandslaust var í gær við ísafjörð, annars er unnið af kappi að viðgerð- um og verður sennilega búið að koma símasambandi á aftur víðasthvar í dag. Faxaflóa aftur á sunnudags- kvöldið. Vélbáturinn Freyja hélt uppi björgunarstarfsemi á Faxaflóa ofviðrisdaginn í stað Sæbjargar og hjálpaði þremur bátum til hafnar, Bjarna Ólafssyni, Eini og Faxa. Þá fór linuveiðarinn Ólafur Bjarnason, sem var á Akranesi, er ofviðrið skall á, bát til hjálpar, sem var með bilaða vél og virtist mundi reka upp á Mýrar. Var það vélbáturinn Sæ- rún frá Siglufirði, en skipverj- um tókst að koma vélinni í lag og náði báturinn því heilu og böldnu til lands hjálparlaust. Þrjá menn tók út af vélbátn- um Ófeigi frá Vestmannaeyjum og náðust þeir allir inn aftur og má það teljast hraustlega gert f slíkum veðurofsa og sjógangi. Skinstjóri á Ófeigi er Angan- týr Elíasson. Báturinn Hermóður af Akra- nesi varð fyrir vélbilun, er hann var að fara frá bryggju til legufæra sinna á laugardags- kvöldið, og rak hann á land udd í kletta hjá Sólmundarhöfða við Langasand. Mannbjörg varð, en líklegt er talið, að báturinn hafi orðið fyrir verulegum skemmdum og muni ekki nást út, nema sjór kyrrist fljótlega.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.