Tíminn - 13.11.1947, Síða 1

Tíminn - 13.11.1947, Síða 1
Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson Fréttaritstjóri: Jón Helgason Útgefandi Framsóknarflokkurinn Skrifstofur í Edduhúsinu Ritstjórnarsímar: 4373 og 2353 Afgreiðsla og auglýsinga- sími 2323 Prentsmiðjan Eddct 31. árgr. Reykjavík, fimmtudaginn 13. nóv. 1947 207. blaS Du.glegu.stu. sölumerm. Tlmans Langþraðu takmarki nað: Húsvíkingar og tvö byggðalög í Aðaldal fá rafmagn frá Laxárstöðinni Meypí á Islsa aiýjgg kerfl s fsessari vikn Innan skamms verður rafmagni frá Laxárvirkjuninni hleypt á bæjarkerfi Húsavíkur og tveggja þéttbýla sveita í Þingeyjarsýslu.. Er nú að mestu búið að ganga frá bæjar- kerfinu á Húsavík og líklegt, að Húsvíkingar fái hið lang- þráða rafmagn í þessari viku. Þá er búið að tengja flesta bæi í Grenjaðarstaðahverfi og Múlahverfi við háspennu- linu, sem íögð var í sumar. Hér eru tveir duglegrustu sölumenn Tímans á landinu. Þeir eiga báð- ir heima í Vestmannaeyjum og heita Helgi, 8 ára, og Páll, 14 ára. Þeir eru synir Helga Benediktss onar útgerSarmanns. Þessir tveir ungu menn hafa nú gert Tímann að útbreiddasta blaðinu í Eyjum. (Ljósm. Guðni Þórðarson). Síldarganga á Akraneshöfn Báíar fá góðan aflæ í laiodvari Mikil síld virðist nú vera svo að segja við hafnargarðinn á Akranesi. Var það hending ein, að menn uppgótvuðu þessa síld, þar sem hún veður ekki, en það hefir aldrei fyi r þekkzt á Akranesi, að síld veiðist svo nærri landi. A þriðjudagsnóttina lagði gamall sjóm. á Akranesi tvö síldarnet, sem hann reri með skammt út fyrir hafnargarð- inn, á innsiglingarleiðina til Akraneshafnar, þar sem Krossvík heitir. Maður þessi heitir Eilifur ísaksson, og er það raunverulega honum aö þakka, að síldin fannst þarna í landvari. Á þriðjudagsm., þegar gamli maðurinn fór á hátnum sínum að vitja um netin, hafði hann fengið í þau 8 tunnur, Sem er af- bragðsgóð veiði. í fyrradag ætlaði vélbátur- inn Svanur inn í Hvalfjörð og leggja þar reknet sin. — Vegna stormsins sáu skip- verjar sér þó ekki annað fært en að hætta við að leggja þar og sneru aftur heimleiðis, án þess að leggja. Á leiðinni fréttu þeir um veiði Eilífs og ákváðu að leggja netin á Krossvikina um fimm mín- útna siglingu frá sjálfum hafnargarðinum á Akranesi. Fóru þeir svo aftur í land þegar netin höfðu verið lögö. Skipverjar á Svan byrjuðu að draga kl. sjö í gærmorgun. Horfðu menn á Akranesi á vinnubrögðin í gær. Var glögglega hægt að fylgjast með því úr landi, hvað gerð- ist um borð í Svan. Sá.st það greinilega, að mikil sild var í netunum og sum þeirra al- veg „búnkuð“ af síld, eins og sjómenn kalla það. Virtist því svo, að um mikla síld- veiði væri að ræða þarna upp við landsteinana. En þar var skjól fyrir norð- anáttinni og auðvelt fyrir báta að athafna sig við veið- arnar. Skipverjar á Svan fengu 170 tunnur í net sín. í gærkvöldi lögðu Fylkir og Svanur net á Krossvíkina og voru þeir að draga í morgun, þegar blaðið fór í prentun. En vitað er, að mik- síld er í netunum. Leikfélag Akureyrar Leikfé’ag Akureyrar er að hefja velrarstarfsemi sína um þessar mundir. Hefir fé- Iagið ha’öið uppi leikstarf- semi á hverjum vetri og haft mörgum efnilegum leikurum á að skipa. Fyrsta leikritið, sem valið verður til flutnings á þessu starfsári, er gamanleikur, sem er að góðu kunnur hér á ]andi: „Karlinn í kassan- um“ eftir Arnold Back. Leik- stjóri er Þórir Guðjónsson. Hann fer einnig með aðal- hiutverkið. TIMINN. Tíminn lcom ekki út í gær vegna vélbilunar í prent- smiðjunni. Um nokkurt skeið hefir það staðið til, að Húsavík og tvö byggðarlög í Þingeyjars. fengju rafmagn frá Laxár- virkj uninni. Hefir mikiil á- hugi ríkt fyrir þessu nauð- synjamáli í þessum byggðar- lögum allt frá upphafi að Laxárvirkjunin varð til. í fyrra sumar var hafizt handa um lagningu há- spennulínu frá virkjuninni til Húsavíkur og um Grenj- aðarsjaða- og Múlahverfi. Er lagningu línunnar nú að fullu iokið, tengingu sveita- bæjanna að mestu lokið og langt komið með lagningu bæjarkerfis á Húsavík. Er gert ráð fyrir, að hægt verði að hleypa rafmagninu á kerfið í þessari viku. Ekki geta þó allir þorpsbúar feng- ið rafmagnið undir eins, þar eð enn vantar ýmislegt til þess, að hægt sé að ljúka viö bæjarlögnina. Gömlu rafstöðvarnar á Húsavík. Til þessa hafa Húsvíkingar fengið rafmagn sitt frá gam- alli vatnsaflsstöð, sem byggð var 1918, en er nú fyrir löngu orðin algerlega ófullnægj- andi. Var fyrir nokkrum ár- um reist mótorrafstöð til viðbótar, og hefir Húsavíkur- borp rotazt við báðar þess- ar stöðvar jöfnum höndum. Nú verður hætt að nota mót- orrafstöðina, en gamla vatnsaflsstö'ðin yeröur not- uð fyrst um sinn handa beim hluta þorpsins, sem ekki getur strax fengið raf- magn frá hinni nýju virkj- un. — Ekki til upphiíunar, Fyrir nokkrum árum gerðu Húsavíkurþorp og Akureyr- arbær, eigandi Laxárvirkj- unarinnar, með sér sam- komulag um þessa rafveitu, og skyldu báðir aðilar sitja við sama borð um nót raf- magnsins. Bæjarstjórn Ak- ureyrar samþykkti nú fyrir nokkrum dögum erindi frá rafveitustjóra ríkisins um að Jeyfa að tengja við Laxár- virkjunina hinar nýju raf- veitur, er fyrr um getur. Það hefir þó verið sett að skil- yrði fyrir leyfinu, að Grenj- aðarstaða- og Múlahverfi noti ekki meira en 30 kíló- vött og Húsavík ekki meira en 200 kílóvött. Rafmagns- notkun til upphitunar er ekki leyf'ð, nema með sér- stöku samþykki rafveitu Ak- ureyrar í hvert sinn. Engum húsaeigendum á Akureyri sem ekki hafa haft raf- mdgnáupphitun áðúr, 'er heldur leyft að nota raf- magn til upphitunar eins og [ sakir standa. Rafmagn út með Eyjaflrði. í ráði er að leggja rafmagn frá Laxárvirkjuninni um byggðirnar út með Eyjafirði, en eins og sakir standa leyx- ir orka Laxárstöðvarinnar ekki meira álag. Hins vegar hefir nú um nokkurt skeið staðið til að stækka Laxár- stöðina, en hljótt hefir ver- ið um þá framkvæmd að undanförnu. Fjallvegir norðan Iands að teppast vegna snjóa í gærmorgun var hríð á Akureyri og víða norðan lands. Snjóaði fyrst að ráði þar á þriðjudagsnóttina, en í fyrrinótt og í gær jókst hríðin svo að talsverður .snjór var fyrir norðan í morgun. Hraðferðabílarnir, sem komu að sunnan til *Akur- eyrar í gær, komust leiðar sinnar til Akureyrar um síðir og urðu fyrir talsverðum töf- um vegna snjóa. Var almennt dregið í efa á Akureyri í gær- kvöldi, að bílarnir kæmust alla leið norður. Ef snjókoma heldur áfram í dag, má búast við því, að fjallvegir teppist víða norðan lands. í Þingeyjarsýslu hefir tlals- vert snjóað í gær og í nótt, en vegir þar hafa þó ekki cnnþá teppst. Hins vegar má ekki snjóa mikið i dag til þess að leiðir lokist bifreið- um Teppast þá mjólkurflutn- ingar viða um héraðið. Hans Hedtoft myndar stjórn Sami ufanríkisráð herra og áður Tekist hefir að mynda stjórn í Danmörku eftir all margra daga þóf um mál- efnasamning milli stjórn- málaflokkanna í landinu, svo að unnt væri að mynda samsteypustjórn. Niðurstaðan varð sú, að formaður Alþýðuflokksins myndaði flokkstjórn, að því undanteknu að utanríkisráð- herra gömlu stjórnarinnar, Gustaf Rasmussen, heldur embætti sínu áfram. í nýju stjórninni eru 17 ráðherrar. Lagði Hedtoft ráð herralista sinn fyrir konung í gærkvöldi. Það hefir vakið mikla athygli, að Gustaf Rasmussen skuli vera utan- ríkisráðherra áfram, en ekki einhver flokksmaður Al- þýðuflokksins. Má telja víst, að þátttaka Rasmussen • í stjórninni hafi verið ráðin m. a. vegna þess að hann hefir þótt halda mjög vel á mál- um Dana í sambandi við Gr ænlandsmálin. Rasmussen er utanflokka. Ráðherr alistinn: Hans Hedtoft verður for- sætisráðherra, Gustaf Ras- mussen utanríkisráðherra, Hans Hansen fjármálaráð- herra, Wilhelm Buhl ráð- herra án sérstaks ráðuneyt- is, en mun eiga að starfa, aðallega að efnahagsmálum, K. Bording landbúnaðarráð- herra, Alsing Andersen inn- anríkisráðherra, Johannes Kjærboel bygginga- og heil- brigðisráðherra, Carl Peter- sen ráðherra ríkisfram- kvæmda, Niels Busch-Jerisen dómsmálaráðherra, Hartvig Frisch menntamálaráðherra, Christian Christiansen sjáv- arútvegsráðherra, J. Stroem félagsmálaráðherra, Rasmus Hansen landvarnarmálaráð- herra, Frede Nielsen kirkju- málaráðherra. Marius Sör- ensen atvinnumálaráðherra, Fanny Jensen ráðherra án ráðuneytis, en mun hafa yf- irumsjón barnafræðslu o. i!., og Jeils Krag verzlunar- og birgðamálaráðherra. Útför Steinþórs Sigurðssonar Jarðarför Steinþórs Sig- urðssonar magisters fór fram i gær, að viðstöddu miklu fjölmenni. Fylgdu honum til grafar meðal annarra fjöl- margir íþróttamenn.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.