Tíminn - 18.11.1947, Blaðsíða 3

Tíminn - 18.11.1947, Blaðsíða 3
211. blað TÍMINN, þriðjudaginn 18. nóv. 1947 3 Frá sasnvmmmefnd Miiflindismanna Fimmtngnr: Árið 1941 lá fyrir alþingi frumvarp til laga um breyt- ingar á áfengislög-um, nr. 33 9. janúar 1935. Gekk frv. út á það, að leyft yrði að brugga og selja áfengt öl í landinu. Málinu var vísað til alls- herjarnefndar neðri deildar og varð nefndin ekki sam- mála. Álit minnihlutans var flutt af Vilmundi Jónssyni landlækni og gerði hann málinu svo góð og greinileg skil, að Samvinnunefnd bind- indismanna þykir vera full á- stæða til að birta þetta merki lega nefndarálit landlæknis nú, þegar komið er fram á al- þingi frumvarp til laga um öl- gerð og sölumeðferð öls. Hefir landlæknir góðfúslega leyft birtinguna. Fer nefndarálitið hér á eftir: „Því greiðari sem er aðgang- urinn að áfengum drekkj- um ög því fleiri tegundir þeirra, sem um er að velja því meiri og almennari verður drykkjuskapurinn, og að sama skapi eykst hvers konar siðleysi, böl og óhamingja, sem af áfenginu leiðir. Hver hinna þriggja höfuðtegunda áfengra drykkja, öl, vín og brenndir drykkir, á sinn söfn- uð, ölið: unglinga (jafnvel börn) og erfiðismenn, vínið: konur og annað tízkufólk og veizlulýð, brenndu drykkirnir: drykkjusjúkt fólk að eðlisfari, og svo þá, sem orðnir eru ó- hófsmenn og meiri og minni rónar fyrir* vanadrykkju, sem að jafnaði hefst á hinum veik- ári tegundum. Það er fánýt kenning, að veikar áfengis- tegundir komi í staðinn fyrir sterku drykkina og útrými þeim. Þær visa miklu fremur leiðina út í ófæruna og gera margan manninn að drykkju- manni, sem aldrei hefði farið flatt á sterkum drykkjum. Það væri jafnvel vafasamur ávinningur þó að unnt væri að útrýma með öllu brenndu drykkjunum og láta öl og veik vín koma/í þeirra stað. Hið verkandi eitur er hið sama í öllum tegundum á- fengis, aðeins í mismunandi þynningum. Nú er það kunn- ugt, að menn hænast að á- fengi eitursins vegna, og nor- rænar þjóðir einkum vegna sterkra áhrifa þess. Erum vér fslendingar þar sízt eftir- bátar og drekkum yfirleitt til þess að verða ölvaðir og ve'l drukknir. En því fer fjarri, að hollara sé að iðka þvílíkan drykkjuskap með því að neyta fremur veikra áfengistegunda en sterkra drykkja. Ofdrykkja öls er ein hin óhollasta áfengis- nautn, með því að þar koma ekki einungis til greina bein- ar verkanir áfengiseitursins á taugakerfið, heldur of- reynsla nýrna og blóðrásar- færa, er leiðir til ömurlegs orkutjóns og illkynjaðs heilsuleysis. Vér íslendingar eigum nú um sáran að binda vegna al- menns og siðlauss drykkju- skapar, sern er því varhuga- verðari fyrir það, að nú lifum vér á þeim tíma, að oss hefir aldrei riðið meira á að vera allsgáðir. Síðan byrjað var að slaka á hinu algera áfengis- banni, hefir í áfengismálun- um verið hopað úr hverj u víg- inu eftir annað og ætíð með þeim auglj ósu af leiðingum, að drykkjuskapur og hvers konar lausung hefir magnazt og orðið erfiðari viðureignar. Má nú heita, að aðeins eitt vígi sé eftir: bannið við bruggun og sölu áfengs öls i landinu. Meðan varizt er í því, er ekki hægt að segja, að vér gerum sérstakar ráðstafanir til að ginna börn og unglinga til áfengisnautnar eða svíkj- um áfengi ofan í érfiðismenn við vinnu þeirra sem lokkandi svaladryklc. Bráðabirgðalög þau um breytingar á áfengis- lögunum, sem hér ef farið fram á, að alþingi staðfesti, eru fyrsta skrefiö til þess, að hörfað verði nú einnig úr þessu vígi. Það má talið' illa farið og ríkisstjórninni og öðrum þeim, er aö því hafa stuðlaö, vansæmandi að hafa ekki látið hið brezka setulið eitt um að brugga ofan í sig stríðsöl það, er það telur til nauðsynlegra hernaðarað- gerða sinna hér á landi. Meö því að nú eru þeir tímar, að margt má fremur telja til lífsnauðsynja á íslandi en brezk sterlingspund, vekur eftirsóknin eftir því að öl- bruggun þessi sé i höndum íslendinga, þá tortryggni mína og margra annarra, að það sé gert í vísu trausti þess að áframhald verði á þeirri starfsemi, eftir að núverandi viðskiptavinum sleppir. Dreg- ur einn nefndarm. (JMG) raunar ekki dul á, að hann telji of skammt gengið með þessu frumvarpi, og vill hann helzt þegar gera sölu hins áfenga öls frjálsa, bæði út úr landinu og innanlands. Uggir mig, að fleiri mikilsráðandi menn í ýmsum flokkum séu sama sinnis þó að hagkvæmt þyki að láta hægt um fyrst í stað. Næsta skrefið er að helga einhvern hluta ágóð- ans af ölbrugguninni vísinda- störfum eða verja honum á annan hátt til guðsþakka, en slík góðgerðastarfsemi er stjóri, sem djöfullinn hefir fundið upp til að leggja sið- (Framhald. á 6. síðu) Jarðarför mannsins míns SIgiirlíei*gs Eiiasifssoiiai’ fer fram föstudaginn 21. þ. m. og hefst meö hús- kveðju að heimili okkar, Nýja-Bæ í Ölfusi, kl. 10 f. h. Jarðað verður að Kotströnd um kl. 12,30. Bílferðir verða frá bifreiðast. Heklu kl. 8 á föstu- dagsmorguninn. Ef einhverjir hefðu í huga að senda blóm eða kransa, eru þeir beðnir, samkvæmt ósk hins látna, að láta andvirði þess ganga til einhverrar góðgerðar- starfsemi. Árný Eiríksdóttir. Mílss-SsiBEdvík Fimmtugur er í dag Lýður G-uðmundsson hreppst j óri í Litlu-Sandvík í Flóa. Hann er fæddur í Litlu-Sandvík. Þar hafa forfeður hans búið í rúmlega hálfa aðra öld. Allir hafa þeir verið dugn- aðarmenn með afbrigðum, og haft forystu í sveitinni. Guðmundur Þorvaröarson — sem látinn er fyrir nokkr- um árum, — faðir Lýðs, var einn af allra framtakssöm- ustu og dugmestu bændum sýslunnar. Enda ber jörðin og húsaskipun öll í Litlu-Sand- vík þess ljósan vott, að þar liefir enginn meðalmaður gengið um götur. Þegar Guðmundur lézt voru Lýð falin hreppstjórastörf og önnur sveitarstjórnarstörf. Er hann til þeirra starfa prýði- lega faliinn vegna góðrar greindar og kunnugleika á þeim málum öllum. Lýður Guðmundsson er hið mesta lipurmenni, samvinnu- þýður og ráðhollur, þykir gott að vinna með honúm. Lýður tók við stórbýli af föður sínum, stórbýli, er for- feður höfðu lagt alúð við að bæta og prýða. Lýður hefir dyggilega fetað í spor feðra sinna. Hann er fyrirmyndar- bóndi, sem hefir aflað sér landbúnaðarvéla af fullkomn- ustu gerð. Lagt í stórfellda ræktun, og stefnir að því, að afla allra sinna heyja af rækt- uðu landi. Það er staðarlegt að lita heim að Litlu-Sandvík, reisu- legar byggingar og stór tún. Fögur minnismerki um clug- mikla og hagsýna bændur, minnismerki sem tala til ungra bænda hvað hægt sé að gera jörð sinni, þegar vilji, dugnaður og hagsýni fylgjast að. Lýður Guðmundsson er kvæntur Aldísi Páísdóttur frá Hlíð, hinni ágætustu konu. Eiga þau fjögur börn. í dag munu sveitungar Lýðs heimsækja hann og færa honum árnaðaróskir, og ég, gamall sveitungi, óska honum alls góðs á komandi árum. Gamall soeitungi. Héraðsþing ung- mennafélaga Héraðsþing vestfirzkra ung- mennafélaga var háð að Núpi í Dýrafirði í síðasta mánuði. í sambandi þeirra eru nú 15 félög og félagsmenn um 600. Meðal ályktana þingsins var þetta: „Héraðsþing U. M. F. Vest- fjarða skorar á Alþingi og ríkisstjórn að láta lögin um héraðabönn koma til fram- kvæmda sem allra fyrst. Einnig að afnema vínveiting- ar í opinberum veizlum á rík- isins kostnað. Jafnframt skorar héraðs- þingið á ríkisstjórnina að láta bindindismenn ganga fyrir við veitingar í embætti og opinberar stöður“. „Héraðsþingið álítur, að eins og málum er nú háttað, beri að skammta tóbak og tó- baksvörur, engu síður en nauðsynjavörur". „Héraðsþingið heitir á sam- $ ókabúð Æskunnar Þrjár nýjar bækur. Aðrar fjórar á leiðinni. Maggi verður að manni, hrífandi drengjasaga eftir vinsælasta barnabókar- höfund Dana A. Chr. Westergaard, en þýdd af Sig. Gunnarssyni skólastjóra á Húsavík. Dóra og Kári. eftir frú Ragnh. Jónsd. Hafnarfirði. Dórubækurnar hennar, sem áður hafa komið, hafa fengið góða dóma og ekki munu lesendurnir verða fyrir neinum vonbrigðum við lestur Dóru og Kára. Litla kvenhetjan þýdd af Marinó L. Stefánssyni kennara. Litlu stúlk- urnar munu áreiðanlega fylgja með athygli efni þessarar sögu um hina litlu munaðarlausu kven- hetju, sem sýndi framúrskarandj^hetjuskap og dæmalausa einurð í framkomu sinni. Næstu daga koma svo: Sögurnar hennar mömmu. Adda og litli bróðir. Spæjarar og Gusi grísakóngur. Fást hjá næsta bóksala. Spyrjið bóksalann ávalt fyrst og fremst um bækur Æskunnar. Að’alútsala: Bókaböð Æskunnar Kirkjuhvoli. I ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ J * ♦ Þakkarávarp. Innilegt þakklæti fyrir heimsóknir, gjafir og skeyti á 85 ára afmæli mínu, þann 11. þ. m. Guð blessi ykkur öll. Þóra Jónsdóttir, frá Onundarholti. Góðar viðtökur Þegar ég lét undan fyrir þrábeiðni ýmsra mætra sam- herja og tók að mér fram- kvæmdastjórn við Tímann í nokkra mánuði, bjóst ég við ýmsum örðugleikum í sam- bandi við breytingu blaðsins. En hvað sem þeim líður, þá léttir mjög starfið, hve góð- ar móttökur Tíminn virðist ætla að fá sem reglulegt dag- blað. Seinasta dæmið um þær, kom áðan í símtali við um- boðsmann blaðsins í Borgar- nesi, Jón Guðmundsson. Jón kvað 40 manns þar í kauptúninu vera búnar að gerast nýir kaupendur Tím- ans síðan honum var breytt bandsfélögin að vinna gegn tóbaksnautn, t. d. með starf- rækslu tóbaksbindindisflokka og meö því að banna reyk- ingar á innisamkomum fé- laganna“. Auk þessa voru geröar ýms- ar samþykktir um íþrótta- (Framhald á 5. síðu) 7. þ. m. Áður voru þar all- margir kaupendur. Þessi frétt er máske sér- stakt gleðiefni persónulega fyrir mig, þar sem oft var barizt hart á þessum slóöum um menn og málefni — og við nokkuð óvægnir á báða bóga. En svona dæmi eru líka mjög til athugunar og eftir- breytni í mörgum öðrum kauptúnum landsins. Vilja nú ekki einhverjir duglegir menn, eins og Jón Guðmunds son í Borgarnesi, taka sig til í sem flestum kauptúnum og safna nýjum kaupendum að Tímanum? Sýnisblöð er vel- komið að senda þeim, geri þeir aðvart um slíkt. Tíminn álíka útbreiddur í bæjum og kauptúnum eins og hann er nú í sveitunum verður að vera takmarkið, jafnframt því, að hann verði í fylkingarbrjósti þjóðræk- inna umbótamanna, sem vilja að á íslandi búi menntuð og efnalega sjálfstæð menning- arþjóð. V. G.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.