Tíminn - 18.11.1947, Page 8
Reykjavík
18. nóvember 1947
211. blað
Harry S. Truman forseti Bandaríkjanna.
Framleiösluráð ræðir nýja
skiptingu landsins í mjólkur-
sölusvæöi
Aknniesiiigar vilja fá mjólkurbú
Hiö nýstofnaða framleiðsluráð landbúnaðarins hélt nýlega
fimmta fund sinn. Á fundinum voru mörg mál rœdd, sem
snerta afurðasölu landbúnaðarins. En aðalmál fundarins að
þessu sinni var skipting landsins í mfólkursölusvœði og til-
lögur um að koma upp fyrirmyndar ostabúri í Reykjavik.
Tiðindamaður blaðsins hefir átt tal við Svein Tryggvason,
framkvœmdastjóra framleiðsluráðs, og spurt hann frétta af
fundinum.
Ræba Trumans forseta:
Evrópa þarfnast 597 milj. doll-
ara aðstoðar án tafai
Taka verður ugsp um skeið sama verðlags-
eftíirlit í Baudærikjimnm og styrjaldarárin
Trúmann forseti hélt rœðu í gœr, er aukaþing Bandarikj-
anna vegna ráðstafana gegn verðbólgunni var sett. Hefir
rœða þessi verið helzta umrœðuefni allra blaða í Bandarikj-
unum í morgun og einnig i öðrum löndum.
Framleiðsluráð landbún-
aöarins var, eins og lesend-
um Tímans er kunnugt,
stofnað með lögum frá al-
þingi síðastliðið sumar. Tók
það til starfa 1. júlí. Tók það
við störfum búnaðarráðsins
sáluga. Ráðið skipa 9 menn,
fulltrúar úr öllum fjórðung-
um landsins. Eiga sæti í því
þeir Sverrir Gíslason í
Hvammi. Einar Ólafsson í
Lækjarhvammi, Björn Birn-
ir í Grafarholti, Sigurjón
Sigurðsson i Raftholti, séra
Sveinbjörn Högnason á
Breiðabólstað, Pétur Jóns-
son á Egilsstöðum, Kristján
Karlsson á Hólum, Jón Sig-
urðsson. á Reynistað, og
Kristjón Kristjónsson í
Reykjavík. Framleiðsluráðið
hefir síðan kosið sér fram-
kvæmdastjórn, sem þeir
Sverrir Gíslason, Einar Ól-
afsson og Kristjón Krist-
jónsson skipa. En ráðið hefir
ráðið Svein Tryggvason
mjólkurfræðing sem fram-
kvæmdastjóra. — Er hann
mjög vel kunnur afurða-
sölumálum bænda.
Ný mjólkursölusvœði.
Eins og áður segir eiga ný
sölusvæði að koma í staö
gömlu verðjöfnunarsvæð-
anna, þannig að bændur á
sama mjólkursölusvæði fái
sama verð fyrir mjólkina, i
hvort hún er seld sem neyzlu
mjólk, en þannig fæst mest
fyrir hana, eða hún er seld
til vinnslu.
Leitað var um umsagnir |
allra mjólkurbúa á landinu
um máliö, og verður stuðst
við tillögur þeirra við end-
anlega lausn þess. Gömlu
verðjöfnunarsvæðin eru nú
þannig, að full þörf er breyt-
inga, þar sem mörg ný
mjólkurbú hafa verið stofn-
uð síðan þau voru sett á.
Sölumiðstöð.
Annað aðalmál fundarins
var stofnun sölusambands
allra mjólkurbúa á landinu.
Skal það koma upp fyrir-
myndar ostageymslu í R.vík.
Yrði að henni mikill hagur
fyrir öll samlögin, sem nú
verða að hafa dýrar geymsl-
ur, hvert fyrir sig fyrir osta,
en hins vegar er engin osta-
geymsla til í Reykjavík, þar
sem aðalmarkaðurinn er. —
Auk þess myndi slík stofnun
geta stuðlað mjög að aukinni
notkun íslenzkra mjólkuraf-
urða og annast útflutning af-
urðanna, ef til hans kæmi í
stórum stíl.
Mjólkurbú á Akranesi?
Framleiðsluráðinu hefir
borizt erindi frá mjólkur-
neytendum á Akranesi og
þeim, er selja þangað mjólk.
Ætlast þeir til þess, að ráðið
athugi möguleika á því að
koma upp mjólkurbúi þar. —
Var kosin nefnd til að rann-
saka það mál. Akranes er nú
orðinn bær með um 2500 í-
búa og myndi vera þar mark-
aður fyrir 500—600 þúsund
lítra mjólkur á ári, ef sá
markaður væri nýttur vel.
Fjallaði ræðan um tvennt:
í fyrsta lagi hjálp til nokk-
urra Evrópuþjóða í vetur, og
í öðru lagi hömlur á verð-
bólgunni í Bandaríkjunum.
Evrópuþjóðirnar, sem áform-
að er að veita aðstoð í vetur,
eru Ítalía, Frakkland og Aust-
urríki.
Um verðbólguna lét for-
setinn svo ummælt, að nauð-
synlegt væri, í bili að minnsta
kosti, að taka upp sömu regl-
ur í því efni og giltu á styrj-
aldarárunum. En eins og
kunnugt er giltu þá mjög
strangar skömmtunarreglur
og verðlagi var haldið niðri
með sérstökum lögum. Kvað
forsetinn nauðsynlegt að
gera almennar ráðstafanir til
minni neyzlu á öllum útflutn-
ingsvörum og fóðurvörunotk-
un þyrfti að takmarka stór-
lega frá því, sem nú er.
Varðandi hjálp til nokkurra
Evrópuþjóða, en Marshall
utanríkisráðherra hefir látið
þá skoðun í ljós á allsherjar-
þinginu, að hjálpin til þriggja
framangreindra landa í vetur
þyrfti að nema um 600 milj-
ónum dollara, minntist for-
setinn á þá skyldu, er hvíldi
á Bandaríkjamönnum að
hjálpa bágstöddum þjóðum í
Evrópu. Benti hann á það
mannúðarhlutverk, er Banda-
ríkjamönnum bæri að vinna í
því sambandi, auk þess sem
frekari útbreiðsla kommún-
ismans væri andstæð skoðun-
um Bandaríkjaþjóðarinnar,
en vaxandi velmegun í Ev-
rópu yrði til að hefta út-
breiðslu þeirrar stjórnmála-
stefnu.
Sundurliðað til einstakra
'anda kvað forsetinn hjálpina
til nauðstaddra Evrópulanda
vera þessa: Til Ítalíu 227
miljónir dollara, til Austur-
ríkis 42 miljónir og til Flakk-
lands 328 miljónir dollara.
Þessar upphæðir eru nauð-
synlegar framangreindum
þjóðum til að geta keypt mat-
væli, olíur og aðrar brýnustu
:ífsnauðsynj ar næstu 4 mán-
uðina.
Ræöan er yfirleitt rædd í
hverju blaði í Bandaríkjun-
um og víðar í dag. Meðal rep-
ublikana kennir nokkurrar
óánægju vegna þeirrar stað-
hæfingar forsetans, að hin
aukna veröbólga í landinu sé
að kenna því, að farið var að
ráðum þeirra í fyrra í verð-
lagsmálunum, að afnema svo
að segja alveg verðlagseftir-
litið.
Eftir að hafa lýst skoð-
unurn sínum á þessum tveim
aðalmálum fórust forsetan-
um orð á þessa leið: „Við get-
um ekki hætt að veita erlend-
um þjóðum aðstoð, frekar en
við getum leyft, að dýrtíðin
aukist með okkar eigin þjóð.
Framtíð sjálfstæðra Evrópu-
bjóða er í veði, og framtíð
okkar eigin efnahagsmála
einnig, ef ekkert verður að-
gert. Sú stefna, sem þér veljið
nú, verður skráð stóru letri í
veraldarsögunni“.
Geysir 25 ára
Karlakórinn Geysir á Ak-
ureyri hélt samsöng á Akur-
eyri síðastl. sunnudag í til-
efni af 25 ára afmæli sínu.
Söngstjóri var Ingimundur
Árnason. Hann hefir verið
söngstjóri Geysis að heita rná
frá stofnun kórsins.
Elrýn nauðsyn:
Fullkomin síldar-
verksmiðja við
innanverðan
Faxaflóa
Síldveiðarnar í Hvalfirði
nú og í Kollafirði í fyrra
hafa opnað augu sjómanna
fyrir auknum möguleilcum á
vetrarsíldveiði við Faxaflóa.
Telja margir líklegt, að um
árlegar síldveiöar verði að
ræða í flóanum.
Mikil óánægja ríkir meðal
sjómanna út af þvx, að ekki
skuli vera til við Faxaflóa
nein síldarverksmiðja, sem
afkastað geti bræðslu á veru-
legu síldarmagni. Telja sjó-
sjómenn það höfuðnauðsyn,
ef veiðar þessar eiga að halda
, áfram, að stór og afkasta-
jmikil síldarvei’ksmiðja rísi
j upp innarlega við flóann og
þá líklega helzt á Akranesi.
Hin litla verksmiðja, sem
fyrir er á Akranesi, hefir þeg-
! ar gert mikið gagn, þó að
bi’æðsla í henni hafi gengið
misjafnlega, enda er verk-
smiðjan byggð til að vinna
úr fiskúrgangi en ekki síld.
í sumar voru pressur verk-
smiðjunnar endurbættar með
tilliti til síldarvinnslu. Þegar
svo til kom í haust, reyndust
skilvindur verksmiðjunnar
ónógar, en úr því er búið aö
bæta, með því að fá auka-
skilvindu frá Siglufirði. Nú
hefir þar að auki komið í
ljós, að blásarar, sem blása
c-iga mjölinu, afkasta ekki
verki sínu ,eins og þeir eiga
að gera, og stíflast því frá-
rennsli mjölsins stundum, og
jtefur það afköst verksmiðj-
I unnar.
Útgerðarmenn í
Eyjum segja ekki
upp samningum
Frá fréttaritara Timans
í Vestmannaeyjum.
Útgerðarmenn í Vest-
manriaeyjum ákvaön á fundi
nýlega að segja ekki upp
gildandi kjarasamningum viö
sjómenxx. Þótt samningurinn
sé ekki allskostar hagstæður,
meðal annars vegna þess að
kauptr^gging er hvergi eins
há og í Eyjum, 610 króna
grunntrygging á mánuði, þá
er þó sá kostur um kaup-
tryggingu þessa, að hún er.
miðuð við fiskverð það, sem
var á síðustu vertíö, og
lækkar af sjálfu sér falii
flskverðið.
Aftur á móti eru Eyjamenn
orðnir langþreyttir á verk-
fallabrölti kommúnista, sem
á undanfömum árum hefir
bakað byggðarlaginu stór-
tjón, þar sem verkföll hafa
verið háö bæði framan af
þorskvertíð og síldavvertíð,
og við það hefir afli tapazt,
auk þess sem verr hefir
gengið að ráða fólk til Eyja
af þessum ástæðum, þrátt
fyrir það að aflaskiptin í
Eyjum eru á þann veg, að
raunhcefir aflahlutir hafa
hvergi reynzt hærri.
Þá mun líka sú reynsla, að
Landsamband útvegsmanna
samdi í fyrra um þorsk- og
síldveiðikjör við Faxaflóa, en
lét Eyjamenn vera samnings-
lausa, líka hafa verkaö á
móti uppsögn samnings.
Námskeið S. U. F.
Stjórnmálanámskeið Sam-
bands ungra Framsóknar-
manna var sett í gær í Eddu-
húsinu við Lindargötu.
Formaður sambandsins
Jóhannes Elíasson, setti
námskeiðið með stuttri ræöu.
Þá flutti formaður Fram-
söknarflokksins, Hermánn
Jónasson, snjalla ræðu, um
stjórnmálaviðhorfið. Að lok-
um skýrði Friðgeir Sveinsson
frá undirbúningi og tilhögun
þessa námskeiðs.
Að þessu sinni munu 29
menn sitja námskeiðið. Ríkir
mikill áhugi fyrir störfum og
stefnu Framsóknarflokksins.
Kemur þér sem víðar fram
öruggt fylgi við stefnu hans í
landsmálum.
Næsti fundur verður í
Edduhúsinu á morgun kl.
8.30 e. h. Flytur prófessor Ól-
afur Jóhannesson þá erindi
um fundarreglur og fundar-
stjórn. A§ því loknu verður
umræðufundur.
Reknir til vinnu
Brezka stjómin hefir nú
hafiö herferð gegn iðjuleys-.
ingjum. Hefir húix tilkynnt,
að 500—750 þúsund iðjuleys-
ingjar verði reknir til vinnu
við framleiðslustörfin.