Tíminn - 29.11.1947, Page 3

Tíminn - 29.11.1947, Page 3
eí CT 220. blað TIMINN, laugardaginn 29. nóv. 1947 Æöri siðfræði á Alþingi Frá uinræðnim á gær ©g, fyrradag Það var bæði illt og bros- legt að hlusta á umræður á Alþingi i fyrradag og gær, þegar rætt var um áfengis- fríðindi ráðherra og forseta. Jónas Jónsson talaði á móti þessum forréttindum og sagði, að hreinlegra væri að samþyhkja blátt áfram, að hafa staupabar í þinghús- inu svo að „hver okkar sem er geti fengið Svartadauða- snaps á fimm aura“, enda væri það ekki eðlilegt, að sá réttur, sem Álþingi hefði, væri bundinn við forsetana eina. Barði Guðmundsson svar- aði Jónasi og brá honum um óheilindi, missögli og eigin- girni. Lýsti hann sögu hans um barinn ósannindi frá rót- um. Vitnaði því næst til reynslu sinnar af Jónasi frá samstarfi þeirra í mennta- málaráði, þar sem Jónas tók upp þann sið, eftir að hann varð formaður ráðsins, aö láta menningarsjóð borga bíl ferðir þeirra félaga milli húsa í bænum og veizlur með vín- veitingum á Hótel Borg. — Talaði Barði af þjósti og gerðist lítt þinglegur í munn- söfnuði, kallaði Jónas hræsn ara og lygara og fleiri slík- um nöfnum. Jónas óskaði þess, að hv. forseti n. d. væri ekki hindr- aður í að nota fúkyrði, ef hann vildi, því að gott væri áö það kæmi fram til hvers ofnotkun umræddra friðindá léiddi. /. Stefán Jóhann flutti þarna ftirðulega ræðu -og- virtist telja persónuleg áfengis- kaup ráðherra og þingforseta handa kjósendum sínum, eðlilegan kostnað við stjórn ríkisins og þinghald og að- eins bókfærzluatriði, hvort Æskulýðssamkoma í Tjarnarbíó á morgun Eins og undanfarna vetur hefir „Bræðralag", kristilegt félag stúdenta, ákveðið að hafa nokkrar æskulýðssam- komur í vetur. Sú fyrsta verð ur á morgun sunnudag 30 nóv. í Tjarriarbíó og hefst kl. 1.15 stundvíslega. Svipað snið verður á þéssari sam- komu og að undanförnu. Þar verður einsöngur, kvartett- söngur og fjöldasöngur. Frk. Arndís Björnsdóttir les upp og Hannes Guðmundsson stud. art. flytur ávarp, svo og séra Pétur Sigurgeirsson, sem staddur er í bænurn og mun hann stjórna samkom- unni. Að lokum verður svo sýnd kvikmynd. Þessar æsku lýðssamkomur „Bræðralags“ hafa gefið góða raun að und- anförnu og verið mjög vel sóttar af æsku þessa bæjar og má tvímælalaust gera ráð fyrir að svo verði enn. Vegna naums tíma vill „Bræðralag“ beina því til þeirra æsku- manna og kvenna, sem hafa í hyggju að sækja þessa sam- komu að mæta stundvíslega. Aðgangur ér ókeypis og öll- um unglingum frjálst að koma meðan húsrúm leyfir. um allt sukk og frekju, því þeir fengu áfengið til þess með hærrá eða iægra verði. Virðist Stefán vera ókunnur þessum' sið, því að hér er ekki um að ræða opinbera risnu, heldur persónuleg rétt- indi, sem látin eru fylgja embættunum. Ég ætla ekki að rengja frá sögur Barða um vínkaup og ökuferðir þeirra félaga á op- inberan kostnað undir stjórn Jónasar Jónssonar, En þar virðist mér Barði samekur því að hann ók í þessum bílum og sat í þessum veizlum og hefir þar sjálfsagt etið og drukkið, án þess að kunnugt sé um ágreining um greiðslu Menningarsjóðs. Það er fyrst nú, að hann minnist á þetta og dregur af því þá ályktun, að Jónasi sæmi ekki að eiga þátt í því að svipta sig brenni vínsfríðindum forsetastóls- ins. Það er atriði út af fyrir sig, hvort J. J. stendur að þessu máli með hugarfari iðrandi ræningja eða öfund- sýki hins afskipta. Það er ekki rétt að meta rök hans eftir því. Og hvað ljóta for- tíð sem þeir Barði kunna að eiga saman frá fyrri árum, eru það engin rök um forseta brennivínið. Jafnframt því, sem alþing- ismenn ræddu málin á þenn- an hátt, töluöu þeir um vonzku mína og ósanngirni að hafa nefnt Jón Pálma- son brennivínsforseta. Vegna þess tilefnis neyðist ég til þess, að endurtaka ástæð- urp%r fyrir^ þeirri %nafngif.t.,‘; Ég vé’it é'eiski hveníg':Jón Pálmason hefir notað þessi fríðindi. Kviksögur vil ég helzt ekki fara með, en ná- kvæmar vottfestar upplýs- ingar frá fyrstu hendi hefi ég ekki. Hitt tel ég þó að ég viti, ,að eitthvað af slíku á- fengi hafi kjósendum Jóns borizt norður í Húnavatnss. og tel ég enga hæfu að telja það kostnað við þinghaldið, enda ekki gert, þó að slíks rugl- ings kenndi í ræðum. En vel má það vera, að Jón Pálma- son hafi notað sér þessi fríð- indi tiltölulega hóflega. Hins vegar hefir Jón Pálma son opinberlega gengið til varnar fyrir þennan sið og lagt illt til þeira, sem vildu afnema hann og brigzlað þeim um mannvonzku af því tilefni. Má sjá það í grein, sem hann birti á síðasta vetri í Mgbl. og ísafold. Ætla ég, að þau ummæli Jóns gangi nær æru þeirra, sem gegn þessu berjast, en þó að hann sé að gömlum og þjóð- legum sið, kenndur við þau fríðindi, sem hann nýtur og berst fyrir. í öðru lagi er óhætt að segja, að Jón hefir ekki beitt forseta valdi sínu til að láta vilja Alþingis um þetta mál koma sem fyrst fram. En til skýringar í fram- haldi umræðnanna. ætti svo hinn pólitíski lífvörður Jóns Pálmasonar, að upplýsa hversu lítið hann hefir notað þessi fríðindi, þó að þaö geri siðinn hvorki verri né betri. Bjarni Benediktsson hélt því fram, að hér væri ekki um að ræða rétt yfir víni, heldur aðeins rétt yfir opin- berum fjármunum. Þetta er þó rangt, því að það er ein- mitt rétturinn til persónu- Síorfelld ©g lifandi söguleg skáldsag'a: Græna tréð Í.N .. ..........•! eftir Kelvin Lindemann Þessi efnismikla og spennandt skáldsaga opnar fyrir lesanda ^ undralönd Austurheims, lönd hinna eftirsóttu kryddjurta, skæðra drepsótta og þrotlausr- ax baráttu nýlendumanna við' fjandsamlega frumbyggja og...] tryllt náttúruöfl. Það er löng leið frá Norður- löndum til Austur-Indía og margt skeður á 'sæ, þegar út- þráin og ævintýralöngunin seiða hrausta drengi út í óviss- una í siglingu til hillingaland- anna austan við hinn kannaða heim. Margir þeirra týna líf- inu fyrir vopnum harðfengra keppinauta, aðrir nema ný lönd og koma heim sigursælir með fé og frægð. Græna tréð er um 500 bls. í stóru broti og forkunn- arvönduffum frágangi. ! Græna tréð er glæsileg gfafabók legra kaupa á tóbaki og á- íengi með innkaupsverði, fyr> ir eigið féj sem hér er til umræðu. í öðru lagí hélt hann, að þessi fríðindi væru viður- kenning á því, að ríkið heföi ekki treyst sér til að borga viðkomandi embættismönn- um eðlileg laun. Væntanlega telur hann þetta fyrirkomu- lag þá líka viðurkenningu á því, að bindindismenn þurfi hvergi sömu laun og aðrir. Enn hélt dómsmálaráð- herra því fram, að þetta væri hreint fjárhagsmál, sem hefði enga siðferðislega hlið. — Er það að sönnu vorkunn, þó að meðhaldsmenn fríðindanna biðjist undan siðferðislegu mati á málinu, en jafn fjar- stæð er svona fullyrðing fyrir því. Síðan sagði Bjarni að nú ætti enginn ofdrykkjumaður sæti á þingi, enda gætu menn orðið sér til skammar ódrukknir. Talaði hann af þjósti nokkrum og kvað bind indismenn koma fram af yf- irdrepskap og hræsni, svo að það væri siðferðisblettur á þjóðinni að eiga slíka menn. Svo kom venjulegt mas um það, að ástandið í áfengis- málunum væri svo alvarlegt, að ekki væri til að hafa þaö í flimtingum, en ekki sæi hann aö áfengisfríðindi kæmu siðferði neitt við. Ég vísa hrópyröum ráð- herrans um yfirdepskap og hræsni heim til föðurhús- anna að því er til mín tekur, og hygg ég að slík orð eigi betur við þá, sem lýsa því yfir, að nú sitji engir drykkju menn á Alþingi. Ráðherrann talaði margt um siðferðislegan aumingja- skap þeirra, sem kynnu að (Framhald, á 6. síðu) Konurnar og skattarnir Einhver, sem nefnir sig „X+Y“, hefir skrifað nokkrar smágreinar í Tímann undan- farna daga. Harm hefir bent þar á ýmislegt, ‘sem aflaga hefir farið í þjóðfélaginu, og gert skynsamlegar tijlögur til úrbóta. En í grein, sem hann skrifar í blaðið í dag, og nefn- „Giftu konurnar og skatta- lögin,“ hefir honum að mínu áliti fatast nokkuð. Hann bendir á það, sem rétt er, að þegar gift kona vinnur fyrir launum utan heimilisins, sé launum hennar bætt við tekj - ur eiginmannsins, ef ein- hverjar eru, þegar skattar eru á Jagðir, og skattarnir reikn- aðir af sameiginlegum tekjum þeirra. Af þessu leiðir það, að á tekjur þeirra leggst skattur eftir hærri skattstiga, heldur en ef tekjur konunnar væru skattlagðar út af fyrir sig, og greiðir hún því hærri skatta heldur en ógift kona þarf að borga af jafn miklum tekjum. í tilefni af þessu mælir greinarhöfundur með því, að sá háttur verði upp tekinn, að reikna sérstaklega skatt af þeim tekjum giftrar konu, sem hún aflar sér með vinnu utan heimiiis, í stað þess að reikna skattinn af sameiginlegum tekjum hjónanna eins og nú er gert. Tillögur um þetta hafa áð- ur komið fram, jafnvel í frum varpsformi á Alþingi. Ég tel, aö þessar tillögur hafi ekki við rök að styðjast. Eða hvers vegna ætti frekar að skattleggja tekjur kvenna, sem vinna utan heimilis, eft- ir öðrum reglum en tekjur þeirra, sem vinna á heimilum sínum? Ég skal sýna með dæmi, hver útkoman yrði af þéirri breytingu. Pétur og kona hans vinna bæði fyrir launum utan heimilis. Páll og kona hans vinna saman að' framleiðslustörfum á sínu eigin heimili. Hver vill halda því fram, að rétt sé að skipta tekjum þeirra fyrrnefndu við skattaálagningu, en ekki hinna síðarnefndu, þvi að lcona Péturs eigi að borga minni skatta en kona Páls, í hlutfalli við tekjurnar? Nei. Þetta fær ekki staðizt. Ef sú breyting yrði gerð að skattleggja sérstaklega tekj- ur giftra kvenna, þá verður það vitanlega að gilda jafnt. fyrir þær konur, sem vinna á eigin heimilum, eins og hin- ar, sem sækja tekjur út fyrir heimilið. En ég tel ekki rétt að breyta þessu. Maður og kona eru eitt. Þau hafa sameiginlegan sjóð„, og tekjur þeirra eiga að skatt- leggjast í einu lagi. 28. nóv. 1947. Sk. G. Bergur Jónsson héraffsdómslögmaffur Málflutningsskrifstofa Lauga veg 65, sími 5833. Heima: Hafnarfirði, sími 9234 Vinnið ötullega ;ið ntbrciðsln Tímans. Auglýsið í Tímanum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.