Tíminn - 29.11.1947, Síða 5

Tíminn - 29.11.1947, Síða 5
220. blaff TÍMINN, laugardaginn 29. nóv. 1947 5 ERLENT YFIRLIT: FunÉr ytanríkisráöherranna Bevin ej* Bidault segja haim „seluasta íækiíærið“ til samkonmlags Síðastliðinri' þriðjudag hófst í London fundiir utanríkisráðherra Bretlands, Báridaríkjanna, Frakk- lands og Sovétríkjanna. Það var samþykkt á P'ótsdamráðstefnunni, að utanríkisráðherrar þessara landa skyldu h'ittast öðru hverju til að ræða þau ágreiningsefni, sem upp kynriu að rísa, og undir búa friðarsariiningana við hinar sigruðu þjóðír. Þegar hafa verið haldnir nokkrír slíkir fundir og hefir sumum þeirra lokið án nokkurs árarigurs. Það hefir þó áunnist fyrir atbeina þessara funda, að buið er að ganga frá friðarsamningum við bandamenn Þjóðverja í Evrópu. Aðalverkefnið er samt eftir, en það eru friðar- samningarnir við Þýzkaland og Austurríki. -Fyrsti utanríkisráð- herrafundurinn um það mál var haldinn í Moskvu síðastliðið vor og náðist þar ekki samkomulag um nein atriði, er máli skiptu. Umræðum um þessi mál verður haldið áfram á fundinum nú, en náist ekki samkomulag að þessu sinni, er almennt óttast, að stór- veldin muni ekki koma sér saman um þessi mál, a. m. k. ekki fyrst um sinn. Bæði Bevin og Bidault hafa komizt svo að orði, að þessi fundur sé „seinasta tækifærið" til þess að ná samkomulagi. Dagskrá fundarins. Undanfarnár vikur hafa fulltrú- ar utanríkisráðherranna setið á ráðstefnu til þess að ganga frá dagskrá ráðherrafundarins og undirbúa ýms mál fyrir hann. Undantekningárlaust náðist ekk- ert samkomulág á þessari ráð- stefnu fulltrúánna. Fyrsta verk- efni ráðherrafúndarins var að á- kveða dagskráiia og náðist sam- komulag um þ'ffð eftir nokkurt þóf, að hún skyldi verða á þessa leið: 1. Friðarsámningurinn við Austurríki." 2. Fyrirkömulag samninga- gerðarinnár" við Þýzkaland og landamæri þess. 3. Efnahagsmál Jýzkalands. 4. Tilhögún og valdsvið þýzkr- ar bráðabifgöastjórnar. 5. Framkvæmd á fyrri sam- þykktum um útrýmingu naz- ismans og áfvopnun Þýzkalands. 6. Tillaga Bandaríkjanna um 40 ára sáttmála milli fljórveld- anna um á'fvopnun Þýzkalands. Samningurinn við Austurríki. Ástæðan til þess, að ekki var samið við Austurríki jafnhliða og samið var við aðra bandamenn Þjóðverja, vaf sú, að Austurríki var hluti Þýzkalands á stríðsárunum. Hins vegar lýstu Bandamenn því strax yfir á stríðsárunum, að þeir myndu veita .Áusturríki sjálfstæði sitt eftir styrjöldina, og fékk það líka strax sjálfstæða stjórn í stríðslðkin. Af hálfu Bandaríkjamanna og Breta hefir það verið kappsamlega sótt, að samningurinn við Austur- ríki yrði fyrsta mál fundarins. Rússar hafa þybbast á móti, en hafa nú látið undan og vilja ýmsir trúa því, að það spái góðu. Rök Bandamanna hafa verið þau, að samningurinn við Austurríki sé miklu einfaldari og auðveldari en samningurinn við Þýzkaland og ástæðulaust sé því að draga hann, þótt hinn samningurinn kunni að dragast nokkuð enn. Rússar munu hins vegar vilja draga samninginn við Austurriki á langinn vegna þess, að þeir geta haft hersetu i landinu meðan samningurinn er ógerður og tryggt aðstöðu sína á þann hátt. Einnig geta þeir rökstutt á meðan, að þeir þurfi að hafa nokkurt herlið í Rúmeníu og Ungverjalandi til þess aö gæta samgönguleiða sinna til Austurrikis. Hefir því verið haldið fram af mörgum, að Rússar myndu ekki hverfa úr Austurríki fyrr en þeir væru orðnir vonlausir um yfirráð þar, en væru jafnframt búnir að tryggja sér full yfirráð í Ungverjalandi og Austurríki, þótt þeir flyttu herinn þaðan. Má vera, að hinar stórfeildu „hreinsanir,',‘ sem undanfarið hafa farið fram í þessum löndum, standi í sambandi við þetta mál. Fyrirkomulag samning- anna við Þýzkaland. Annað dagskrármál utanríkis- ráðherrafundarins er fyrirkomu- lag samninganna. við Þýzkaland. Þar hefir komið fram mikill skoð- anamunur. Rússar vilja, að allt raunverulegt vald í þessum málum verði í höndum fjórveldanna, en önnur ríki fái ekki nema ráðgef- andi vald. Bandamenn vilja hins vegar veita þeim ríkjum, sem áttu í styrjöld við Þýzkaland, fulla hlut- deild í samningagerðinni. Náist ekki samkomulag um þetta atriði, er vart að búast við því, að samkomulag náist um síðari dag- skrármálin, enda verður erfitt að ræða um þau til nokkurrar hlítar áður en búið er að ákveða tilhögun samningagerðarinnar. Að öllum líkindum mun fundurinn því snú- ast mest um tvö fyrstu dagskrár- málin, en jafnframt verða skipzt á skoöunum um hin málin og þau svo rædd nánara á framhalds- fundum, ef samkomulag verður um fyrsta og annað dagskrármálið. ' Skipting Þýzkalands. Fari svo, að ekkert samkomulag náist á fundinum, en það er spá margra, verða sennilega ekki haldn- ir fleiri fundir stórveldanna um þessi mál, a. m. k. ekki fyrst um sinn. Líkleg áfleiðing þess er m. a. talin sú, að tvískipting Þýzkalands verði varanleg staðreynd. Banda- menn munu þá halda áfram að sameina Vestur-Þýzkaland undir Lauyard. 29. nóv. Bætt skipan á f jár- festingnnni Tíminn birtir þessa dagana útdrátt úr skýrslum Fjárhags ráðs um fjárfestingu í bygg- ingum á þessu ári. Þó a3 mörgu sé sleppt í útdrætt- inum, koma þar þó fram að- alatriði málsins. Það var sótzt eftir að byggja meira en tvöfallt á við það, sem unnt var að útvega efni til, ef miðað er við sementið eingöngu, og mun þó sízt auöveldara um aðra efnisút- vegum. Það er nú auðséð, að hér hefði stefnt í fullkomið öng- þveiti, ef Fjárhagsráð hefði ekki skorizt í leikinn. Ýmsir munu þykjast hafa ástæðu til að kvarta undan ráðstöfun- um þess, og mun svo lengst- um verða, þegar þarf að skammta og það heldur naumt, að enginn geri svo öllum líki. En hvað sem um það er, er hitt þó víst, að vegna afskipta Fjárhagsráðs hefir mikið unnizt og í heild má segja, að á þeim grund- velli hafi veriö tekin upp skynsamleg stefna í bygging- arfnálunum. Ilefði ekki skipulag Fjár- hagsráðs komið til sögunnar, hefði það auðvitað verið hending ein, hvort nauðsyn- legar byggingar gengu fyrir eða sátu á hakanum. — Og það hefði líka arkað að auðnu, hvoyt hið takmarkaða byggingarefni hefði verið fest í nýjum byggingum, sem ekki gætu komið að neinum not- um fyrr en seint og síðar- meir, og hið hálf-kláraða svo orðið að bíða lengur vegna þessara nýbygginga. Það má ef til vill segja, að orustan hafi verið töpuð, þegar Fjárhagsráð kom til, en það má þó að minnsta kosti viöurkenna, að það hafi komið skipulagi á und- anhaldið og' beri þjóðingæfu til að hlíta því skipulagi fram vegis, mun hún innan skamms verða fær um að hefja nýja sókn á grund- velli þess. Hér var a'ð sönnú allt of seint hafizt handa, en þaö var þó reynt að bjarga því, sém bjargað yrði, þegar loks var vaknað. Hitt er svo annað mál, og það sannar þessi skýrsla Fjárhagsráðs nú, að komast hefði mátt hjá mörgum mis- tökum, ef fyrri hefði verið komið stjórn og skipulagi á fj árfestinguna. Framsóknar- menn beittu sér fyrir því, og ríkisstj órn Ólafs Thors lét líklega um þau efni og mælti fagurt um áiætlunarbúskap o. s. frv., en það er óþarft að spyrja um efndirnar, eins og oftar á því heimili. Þær urðu aldrei neinar. Það má heldur ekki loka augunum fyrir því, sem Fjár hagsráð bendir nú á, að þenslan í byggingariönaðin- um hefir náð víða til með óholl áhrif. Hún hefir drégið fjármagn og vinnuafl frá bjargræöisvegum þjóðarinn- ar. Þess vegna vantar nú bæði ’fólk og fé til að hag- nýta framleiðslumöguleika sums staðar, þar sem þeir eru góðir, af því fólkið fór til Reykjavíkur; þar sem það hafði nóga atvinnu hjá bygg- ingarfélögunum við það að byggja yfir sjálft sig. Að- komumennirnir höfðu at- vinnu við að byggja og bygg- ingarfélögin græddu á að selja.þeim á okurverði hús- næöi fyrir peningana, sem þeir komu meö sér frá fyrri heimkynnum. Þetta getur litið vel út í byrjun, en þetta eru engir bjargræðisvegir til fram- búðar. Skýrsla Fjárhagsráðs sann- ar það vel, að skiplag á fjár- festingunni var orðið óhjá- kvæmilegt í sumar, ef ekki átti að kalla yfir þjóðina fullkomið öngþveiti. En hún sannar líka, að það var mik- il nauðsyn, að koma þessu skipulagi alllöngu áður en stríðinu lauk, eins og Fram- sóknarmenn lögðu til og beittu- sér fyrir. Marshall. eina stjórn og gera það að sérstöku ríki. Brezku og bandarísku her- námssvæðin hafa þegar verið gerð ein efnahagsleg heild og verða þá vafalaust gerð að stjórnarfars- legri heild. Sennilega bætist franska hernámssvæðið við, þótt de Gaulle beiti sér gegn því, en hann vill helzt að Þýzkaland sé sundrað í smáríki. Rússar munu á sama hátt vinna að því að gera Austur- Þýzkaland að sérstakri ríkisheild. Gengur m. a. sá orðrómur, að þeir vinni kappsamlega að því að koma upp þýzkum her, er verði þeim fylgispakur, svo að þeir geti oröið fyrri til að flytja her sinn frá Þýzkalandi en Bandamenn. Þá hefir það komið til tals og hefir Byrnes fyrrv. utanríkismála- (Framhald á 6. síðaj Rannsókn á hafnar- gerð við Dyrhólaey Tillaga. Jóns Gíslasonar Jón Gíslason hefir í sam- einuðu þingi lagt fram tillögu þess efnis, að „Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórina að láta fram fara á næsta sumri ýtarlega rannsókh á því, hvort mögu- legt sé að gera höfn við Dyr- hólaey." í greinargerð tillögunnar segir svo: „Um aldamótin síðustu mun fyrst hafa komið til tals að athuga hafnarstæði við Dyrhólaey, og þá voru það er- lendir menn, Englendingar, sem buðust til þess að byggja þar hafskipahöfn, gegn því skilyrði að mega fiska í land- helgi á svæðinu frá Vest- mannaeyjum að Ingólfshöfða um nokkra áratugi. Þetta leyfi fékkst ekki, og voru þar með áætlanir Englendinga úr sög- unni. Svo á Alþingi 1942 var samþykkt ályktun um at- hugun á lendingarbótum við Dyrhólaós, en úr þeim athug- unum mun lítið eða ekkert hafa orðið. Allt síðan þetta kom fyrst til tals, hefir það verið óska- draumur Skaftfellinga og ef- laust líka margra fiskimanna, að þarna viö Dyrhólaey yrði gerð höfn. Enda mun það svo, að þó víða á landinu sé þörf hafnarbóta, yrðu eflaust flest- ir eða allir menn sammála um það, að hvergi sé hafna meiri þörf en við suðurströndina, ef kleift væri að gera þær, þar sem strandlengjan frá Reykja nesi til Hornafjarðar er sem allir vita að mestu leyti hafn- laus. Ef nokkurs staðar á þessu svæði væri mögulegt að gera höfn, þá er Dyrhólaós legu sinnar vegna mjög heppi Lækkuðu Brynjólf- ur og Áki tollana? Þjóðviljinn skrifar nú grein um það dag eftir dag, að það sýni bezt áhuga kommúnista fyrir afkomu verkalýðsins, að þeir hafi borið fram frumvarp á Al- þingi, þar sem lagt sé til að afnema tolla á ýmsum nauð- Synjavörum. Trúlegt er það ekki, að þessi áróður Þjóðviljans beri mikinn árangur. Verkamenn munu minnast þess, að þéir Brynjólfur Bjarnason og Áki Jakobsson sátu í ríkisstjórn um tveggja ára skeið. Þá höfðu þessir aðalhöfðingjar Sósíalisaflokksins aðstöðu til þess að koma fram tolla- lækkunuum. Fjárhagur rík- isins var þá líka stórum hag- stæðari en nú, og þess vegna hefði verið enn auðveldára að koma fram tollalækkun- um þá en nú. En þeir Brynj- ólfur og Áki gleymdu þessu máli alveg þá. Og þeir gerðu reyndar meira. Á fyrsta stjórnarári þeirra þarfnaðist ríkissjóður nokkurra auka- tekna. Úrræðið, sem þeir Brynjólfur og Áki fundu tíl tekjuöflunar, va.r aldeilis ekki aukinn skattur á stór- gróðann. Það varff veltu- skatturinn illræmdi, sem lagðist jafnt á nauðsynjar hinna fátæku sem þeirra ríku. Ef Þjóffviljinn hyggst aff reyna aff mótmæla því, aff veltuskatturinn hafi ekki lagzt á hinar efnaminni stéttir, getur hann aflað sér upplýsinga um það hjá KRON. Félagið mun á einú ári hafa greitt 140 þús. kr. minna í arðsuppbót til fé- lagsmanna en ella, vegna veltuskattsins. Svipuff varff niðurstaffan hjá öffrum káup- félögum landsins. Þeir menn, sem höguffu nýrri tekjuöflun handa rík- issjóffi á þessa Ieið, meðan þeir gátu ráðið nokkru þar um, verða ekki teknir hátíð- lega, þótt þeir haldi öðru fram, þegar þeir eru komnir í stjórnarandstöðu. Þaff sýnir affeins enn betur en áffur, hve fullkomlega kommúnistar byggja stjórnmálastarf sitt á I blekkingum og falsi. X+Y. mannaeyjar og allt til Horna- fjarðar er mjög lítið notað af íslenzkam fiskiskipum. En á öllu þessu svæði eru á vetrar- vertið afarmiklar fiskigöngur, sérstaklega af stórum þorski, og svo nærtæk fiskimið, að’ óviða eða jafnvel hvergi mundi jafnskammt að sækja á mið. Sem dæmi um, hversu nærri landi þessar fiskigöng- ur fara, má geta þess, að alloft á vetrarvertið, eða frá því í marz og það fram í maí- mánuð, er það algengt, að þorskurinn syndir upp i fjör- una og dagar þar uppi, kem- ur fyrir í hundraðatali. Líka má geta þess, að með sönd- unum eru líkur til, að oft sé mikil síld, frá því á vetrar- vertíð og allt fram í ágúst- mánuð. Er um hana eins og þorskinn, að stundum hleyp- ur hún í land í talsverðum torfum, og oft nokkuð kem- ur það fyrir, að hún fer inn í Dyrhólaós og veiðist þar í silunganet. í fyrra sumar (1946) óð síldin í stórum (Framhald á 6. síðu)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.